Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1994, Blaðsíða 33
LAUGARDAGUR 26. FEBRUAR 1994
45
Tíska
Vortískan:
Kvenlegt og
rómantískt
Samsettur kjóll, blár og
hvitur, úr siffoni og þykkara
efni.
Þunnt munstrað efni í jarðlitum.
Stuttir kjólar skjóta upp kollinum.
Hér er einn úr hvitri blúndu.
Þunnt rjómalitað
efni með
knipplingum.
Blúndumynstur
á sokkunum.
VAtENTINO
ðiftfegvj'....
Kventískan í vor er kvenleg og
rómantísk og þykir ýmsum það lík-
lega tílbreyting frá hippatísku
vorsins í fyrra. Þær sem ekki vilja
segja alveg skiiið við þá tísku geta
nú vafið um sig blúndugardínun-
um hennar ömmu eða búið sér tíl
hálsklút úr þeim. í vor ber nefni-
lega mikið á blúndum og siffoni.
Hvítur htur og jarðhtir eru mest
í tísku í vor ásamt svörtum og
dökkbláum.
Skyrtublússur í öllum síddum
eru gjaldgengar í öhum tilfeUum.
Skyrtukjólar eru orðnir vinsæUr
aftur, núna í þunnum efnum.
Línur í jökkum eru mjúkar og
það þykir fara vel að vera í þeim
utan yfir þunnum, síöum kjólum
eða með víðum buxum.
Rendur sjást í alls kyns fatnaöi,
í íþróttafatnaði, hversdagsfótum og
sparifótum. Rendumar eru mest
áberandi munstrið í vor.
Að fara í hverja flíkina utan yfir
aðra þykir enn flott. Og nú er bætt
um betur því það nýjasta er að vefja
utan sig leðurreimum eða þá að
vera í Ufstykki yst. Það er bara að
lofa hugmyndafluginu að ráða.
I vor verður hægt að vefja utan
um sig blúndugardínunni hennar
ömmu.
Svartur jakki úr glansandi efni. Hvít og drapplit buxnadrakt.
Buxurnar eru hvít- og rauðröndótt-
ar.
Kvöldkjóll, svartur með hvítum
röndum.