Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.1994, Blaðsíða 31
LAUGARDAGUR 26. FEBRÚAR 1994
43
Henni fannst eins og einhver ætlaði að taka barnið frá sér eða byrla sér eitur. Hún hélt því fram að barniö
væri vanskapað og fæðingin hefði eyðilagt líkama sinn um aldur og ævi.
Geðveiki eftir
barnsburð
Elísabet B. fæddi sitt fyrsta barn
þegar hún var 38 ára gömul. Fæð-
ingin var bæði löng og erfið en allt
fór þó vel að lokum. Barnið var lið-
lega 14 merkur að þyngd, frískt og
ljörugt með dökkt hár og blá augu.
Ehsabet og maður hennar,
Hrungnir Hraunfoss kennari,
höfðu um langt skeið þráð að eign-
ast barn en fyrir einhverja grá-
glettni guðanna hafði það ekki tek-
ist fyrr en nú. Eftir fæöinguna svaf
Elísabet illa vegna mikils kvíða og
ofsahræðslu. Henni fannst eins og
einhver ætlaöi að taka barnið frá
sér eða byrla sér eitur. Hún hélt
því fram að barnið væri vanskapað
og fæðingin hefði eyðilagt líkama
sinn um aldur og ævi. Smám sam-
an versnaði ástandið. Hún hló og
grét til skiptis og augun voru fuU
skelfingar. í heimsóknartíma
þekkti hún ekki manninn sinn eða
aðra ættingja. Elísabet varð frá-
hverf baminu enda sagðist hún það
vera af tröllaættum. Hún var lögö
inn á geðdeild til meðferöar vegna
þessa. Barnið fékk hún að hafa hjá
sér undir eftirliti starfsfólks.
Fæðingarþunglyndi
Þessi sjúkrasaga er dæmigerð
fyrir svokallað fæðingarþunglyndi
eða fæðingarrugl. Þetta ástand er í
hrópandi mótsögn við þá mynd
sem flestir gera sér af hamingju-
samri móður sem þrýstir nýfæddu
bami að brjósti sér. Bamsburður
og brjóstagjöf eru mikið andlegt og
líkamlegt álag fyrir hverja konu.
Samkvæmt flestum rannsóknum
kvarta um 20% kvenna yfir ein-
hveijum misalvarlegum geðræn-
um einkennum á þessu tímabili,
þunglyndi, kvíða, mikilli spennu
og svefnleysi. Ein kona af hveijum
þúsund missir tengslin við veru-
leikann og sturlast um tima eins
og Elísabet gerði. Oft skilur fólk
ekki þessi einkenni og finnst það
furðu sæta þegar móðir virðist
hafna barninu og efast um að hún
eigi það. Slík kona þjáist stundum
af alvarlegu þunglyndi sem taka
verður fostum tökum. Miklu skipt-
ir að sýna konunni skilning en
skamma hana ekki fyrir óhemju-
gang og vanrækslu. Batahorfur
þessara kvenna eru nokkuð góðar.
Helmingur þeirra jafnar sig algjör-
lega en um 40% geta fengið fleiri
tímabil með þunglyndiseinkennum
og geðsveiflum. Ein kma af tíu fær
eða hefur áður haft alvarlegri geð-
sjúkdóm. Rughð byrjar oft með því
Álækravaktiimi
að konunni finnst að starfsfólkið á
fæðingardeildinni sé að tala um sig
á bak og barnið sé umskiptingur. í
kjölfarið fylgja önnur misalvarleg
einkenni sem þó sjaldnast ganga
eins langt og hjá Elísabetu.
Orsakir
Orsakir þessa ástands eru
óþekktar. Læknar fornaldar töldu
að mjólkin færi út í blóðið og eitr-
aði þannig heila móðurinnar. Þessi
hugmynd er ekki eins fjarlæg
kenningum nútíma læknisfræði og
gæti virst í fyrstu. Margir læknar
hafa talið að hormónar eöa ein-
hverjir líkamsvessar væru orsaka-
valdur þessa ástands. Þetta hefur
þó ekki tekist að sanna. Flestir geð-
greinar telja að um sé að ræða
mikið andlegt álag og spennu sem
veikir hæfni líkamans til að fást
við þá angist og hræðslu sem eru
samfara hverri fæðingu. Sumar
konur ráða ekki við það reginhaf
sem skilur að draum og veruleika
þegar böm eru annars vegar. Með-
an á meðgöngu stóð létu þær sig
dreyma óraunhæfa drauma um
einhvem fullkomleika í barns-
mynd sem í raun er ekki til. Þegar
bamið fer að gráta, vaka á nóttum,
pissa og kúka á sig fyllast þær von-
leysi og vantrú á sjálfar sig og geta
misst tengslin við veruleikann.
Aðrar konur finna fyrir miklum
einanaleik sem tengist fæðingu
bamsins. Miklir erfiðleikar í sam-
búð eða hjónabandi magnast við
fæðingu barnsins. Konan einangr-
ast í eigin heimi og ræður ekki við
þá stöðu sem upp er komin. Hún
fyllist vonleysi og þunglyndi.
Stundum finnur konan ekki fyrir
neinum móðurtilfinningum. Henni
finnst hún vera versta móöir í
heimi og sektarkenndin verður yf-
irþyrmandi. Slík kona telur stund-
um að dauðinn sé eina leiðin út úr
þessum erfiðleikum og réttast sé
að taka barnið með sér. Öðrum
konum finnst eins og barnið hafi
tekið úr sér allan kraft. Þær hafa
öll möguleg líkamleg einkenni sem
fylla þær vonleysi og angist. Skýr-
ingarnar eru mýmargar en senni-
lega er engin ein rétt eða önnur
röng. Eins og svo oft í læknisfræð-
inni er um að ræöa flókið samspil
aðstæðna þar sem erfðir, um-
hverfi, áreiti, streituþol og andlegir
og líkamlegir burðir stíga trylltan
dans.
Meðferð
Meðferðin er flókin og erfið og
ætti að vera á fárra höndum. Best
er að konan hafi barnið áfram hjá
sér undir eftirliti jafnvel þótt leggja
þurfi hana inn á geðdeild um tíma.
Reynt er að halda bijóstagjöfinni
áfram svo að móðirin tengist barn-
inu á sem j ákvæðastan hátt. Þess-
um konum eru annaðhvort gefin
einhver geðlyf eða raflostsmeðferð.
Eftir einhvern tíma lagast yfirleitt
ástandið og konan getur farið heim
með bamið sitt. Nauðsyn ber þó til
að fylgja þessum konum vel eftir
og hjálpa þeim með margvíslegum
stuðningsaðgerðum - viðtölum,
hjónaviðtölum ogjafnvel áfram-
haldandi lyijameðferð. Elísabet og
Hrungnir komust klakklaust í
gegnum allar þessar hremmingar.
Drengurinn þeirra var skirður
Símir einn sunnudag nokkrum
vikum eftir útskrift frá sjúkrahús-
inu. „Kannski var hann af trölla-
ættum eftir allt saman,“ sagði El-
ísabet í skírnarveislunni. „Nafnið
bendirtil þess.“
Félagsmálastofnun
Reykjavíkurborgar
Síðumúla 39 - 108 Reykjavík - Sími 678500 - Fax
686270
Félags- og þjónustumiðstöð
aldraðra að Lindargötu 59
Óskað er eftir starfsfólki í eftirtalin störf:
1. 2 stöður leiðbeinenda í félagsstarfi aldraðra. Óskum
eftir fjölhæfu fólki til ýmiss konar fræðslu og föndur-
kennslu.
2. Hárgreiðslumeistari. Unnið er samkvæmt verktakafyrir-
komulagi.
3. Fótaaðgerðafræðingur. Unnið er samkvæmt verktakafyr-
irkomulagi.
4. Sjúkraliði. Til aðstoðar við böðun og aðhlynningu.
5. Fulltrúi. Starfsmaður vinnur við innheimtu og bókhald,
ásamt afgreiðslu og skrifstofustörfum.
Reiknað er með að starfsemi hefjist í apríl/maí nk. Nánari
upplýsingar gefur Edda Hjaltested forstöðumaður í síma
15355 milli kl. 10 og 12 virka daga. Umsóknarfrestur um
störfin er til 9. mars nk. Umsóknum skal skila til Félags-
málastofnunar Reykjavíkurborgar á umsóknareyðublöðum
sem þar fást.
Ef þú hauprir
nýjan eða notaðan
Skri-doo vélslcða
núna •••
færðu aukahlutri
að verðmætri
kr. 30.000,-
ókeypris!
GÍSU IÓNSSON HF
Bfldshöfða 14
112 Reykjavík
Sími686644
Tilboðið gildir eingöngu um vélsleða að verðmæti kr. 200.000,-
eða dýrari. Um uppítökur er ekki að ræða í tilboði þessu nema
að sérstaklega sé um samið. Umboðsmenn okkar eru: Bílval á
Akureyri, Nonni, Bolungarvík og Bílasalan Fell, Egilstöðum.