Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1994, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1994
Fréttir
Þyrlukaupamálið hefur velkst 1 meðförum ríkisstj ómarinnar alla tíð hennar:
Sex nefndir á 4 árum án
ákvörðunar um þyrlukaup
- margar viðræður við Bandaríkjamenn en ríkisflármál og óeining tefla málið
M «■
Fjogurra
ára gangur
þyrlu-
málsins
Haustiö 1990: Flugmenn hefja
viöræöur um kaup á þyrlu viö
tvo ráöherra.
Nóvember 1990:100 milljóna króna
heimild veitt á lánsfjárlögum vegna
kaupa á björgunarþyrlu.
Maí 1991: Undirbúningsnefnd
skipuö vegna þyrlukaupa.
Haustlb 1991: Akvörþup uni
viö Bandaríkjamenn um sá'rrfr
varnarliö. Ríkisstjórn ásökuö
um seinagang.
Febrúar 1992: Ráögjafahópur
skipaöur til aö ákvaröa
þyrlutegund.
Apríl 1992: Nefnd fulltrúa
fjögurra ráöuneyta skipuö
til viöræöna viö Bandaríkjamenn.
Apríl 1993: Forsætisráöherra
lýsir því yfir aö ákvöröun um
jiyrlukaup veröi tekin innan
nokkuria vikna.
Maí 1993: Dómsmálaráöherra
.. og fjármálaráöherra fá umboö
í tii aö leita samninga um kaup
u.
1993: Nefnd leggur
til 9Ö ákveðin Super Pumaþyrla
veröi keypt. Samnigsdrög iiggja fyrir.
1 Ríkisstjórnfrestar ákvöröunum.
Febrúar 1994: Super Pumaþyrlan
seld öörum aðilum.
Febrúar 1994: Dómsmálaráöherra
segir ákvöröun um þyrlukaup tekna
fýrir 1. mars.
Febrúar 1994: Nefnd skipuö frá
fjórum réöuneytum sem á i
viöræöum viö Bandaríkjamenn.
Mars 1994: Utanríkisráöherra og
dömsmálaráöherra greinir á í
yfirlýsingum sínum vegna
þyrlukaupa fyrir Landhelgisgæsluna.
Þyrlukaupamálið hefur nú verið til
umfjöllunar hjá íslenskum stjóm-
völdum í fjögur ár án þess að sjái
fyrir endann á niðurstöðu í því máU.
Tvær ríkisstjómir, sex nefndir, fjöldi
sérfræðinga, embættismanna og ráð-
gjafa hafa á þessum tíma veriö í við-
ræðum og ákvarðanatökum sem
ekki hafa leitt til þess ennþá að
ákvörðun Uggi fyrir um kaup á björg-
unarþyrlu fyrir Landhelgisgæsluna.
Ágreiningur er um málið í ríkis-
stjóm og stangast yfirlýsingar dóms-
málaráðherra og utanríkisráðherra
á í megindráttum varðandi framhald
í þyrlukaupamáUnu.
Lánsfjárheimild kom fljótlega
Síðari hluta árs 1990 hófu starfs-
menn fluggæslu Landhelgisgæsl-
unnar að hreyfa við því, m.a. í við-
ræðum við dómsmálaráðherra og
forsætisráðherra, aö þörf væri á því
að kaupa þyrlu tíl viðbótar við TF-
SIF sem þá var búin að vera hátt í
sjö ár í notkun og halði þá að áUti
lækna bjargað 74 inannslífum.
Þennan vetur var síðan gefm 100
miUjóna króna heimUd í lánsfjárlög-
um tU að kaupa nýja björgunarþyrlu.
í aprU árið 1991 fór hópur manna
tU Evrópu og Bandaríkjanna tíl að
kanna það sem í boði var. Niðurstaða
hópsins var á þá leið að Super-Puma
væri heppUegasta björgunarþyrlan.
í maí 1991 var skipuð undirbún-
ingsnefnd sem Bjöm Bjarnason
veitti forstöðu. Hún komst m.a. að
þeirri niðurstöðu að nauðsynlegt
væri að halda úti þyrlu tíl viðbótar
við TF-SIF.
Ríkisstjórnin ásökuð
Um haustið 1991 var ákvöröun um
kaup á þyrlu í raun frestað og ákveð-
ið að ganga tíl viðræðna við Banda-
ríkjamenn um samstarf við vamar-
liöið varðandi björgun. Skömmu síö-
ar komu fram þungar ásakanir á
hendur ríkissfjóminni um að hún
drægi lappimar varðandi ákvörðun-
artöku um kaup á þyrlu. Þorsteinn
Pálsson dómsmálaráðheiTa lýsti því
þá yfir að ákvörðun í þessum efnum
yröi hraðað.
í febrúar 1992 var skipaöur svokaU-
aöur ráðgjafarhópur sem átti að
komast að niðurstöðu um hvaða
þyrla skyldi keypt.
í apríl sama ár var síðan skipuð
nefnd embættismanna, m.a. frá fjór-
um ráðuneytum, sem fór í viðræður
við stjómvöld í Bandaríkjunum um
samstarf við varnarliðið. í kjölfar
þessa þótti liggja nokkuð ljóst fyrir
að af slíku yrði ekki.
Vorið 1991 lýsti Davíð Oddsson for-
sætisráöherra því yfir á Alþingi að
ákvörðun um kaup á björgunarþyrlu
yrði tekin innan fárra vikna.
í maí 1993 fengu þeir Þorsteinn
Pálsson dómsmálaráðherra og Frið-
rik Sophusson fjármálaráðherra
umboð í ríkisstjórninni tíl að leita
samninga um kaup á björgunar-
þyrlu.
„Draumaþyrlan“ seld öðrum
í september 1993 lagöi enn ein
nefndin tU að Super-Puma þyrla yrði
keypt og fékk hún umboð tU að vinna
að tilboöum og samningsgerð. TUboð
lá þá fyrir frá eigendum slíkrar
þyrlu. Efdr þetta hefur málinu verið
frestað og þyrlan, sem menn komu
sér saman um aö ætti að kaupa, var
nýlega seld öðrum aðilum.
í febrúar síðastiiðnum var skipuð
nefnd fjögurra ráöuneyta sem á nú
í viðræðum við Bandaríkjamenn um
samstarf við vamarliðið. Um svipað
leyti lýsti Þorsteinn Pálsson því síð-
an yfir að ákvörðun um kaup á þyrlu
yröi tekin fyrir 1. mars. Nú er sú
dagsetning liðin og hefur dómsmála-
ráðherra nú lýst þvi yfir að málið
teflist á meðan nýir kostir eru kann-
aðir. Utanríkisráðherra hefur hins
vegar sagt aö fresta eigi kaupum á
þyrlu á meðan kostir og samstarf við
Bandaríkjamenn eru kannaðir.
Óeining þessara ráðherra, og
reyndar fleiri, hefur þvi komið fram
enn á ný. Dómsmálaráðherra hefur
ávallt lýst því yfir að þyrlukaupum
skuh hraöa en utanríkisráherra hef-
ur við flest tækifæri talið að fuli-
reyna eigi viðræður vegna vamar-
liðsins. Forsætisráðherra hefur þótt
vera hlynntari stefnu Jóns Baldvins
en Þorsteinn í þyrlumálinu. Á síð-
ustu misserum hefur Friðrik Soph-
usson fjármálaráðherra verið and-
vígur þyrlukaupum með hliðsjón af
halla í ríkisfjármálunum.
-Ótt
Stuttar fréttir
Ráðheirariforsæti
íslenskir ráðherrar taka viö
formennsku i öllum nefhdum í
norrænu samstarfi í næstu viku
þegar Norðurlandaráðsþinghefst
í Stokkhólmi.
Sjómenn neita viðræðum
Samtök sjómanna neituðu aö
ræða viö sjávarútvegsnefnd Al-
þingis í gær um fiskveiðistjóm-
un. Sjómenn vilja fyrst sjá að-
geröir gegn kvótabraski.
Borginvfllmdra
Reykjavíkurborg vill 1 milljarði
króna meira úr ríkissjóði til vega-
framkvæmda í borginni. Stöð 2
greindi frá þessu.
Siæm áhrif af Smugunni
Norskir flskifræðingar telja
^veiðar íslendinga í Smugunni
óheppilega og hafa slæm áhrif á
norska sjómenn. Þetta kom fram
á Ríkissjónvarpinu.
19umsóknir
Starf framkvæmdasijóra
sjúkrahússins á Húsavík er eftir-
sótt því ails sóttu 19 manns um
stöðuna nýverið samkvæmt
RÚV.
Björgun ’94 i Pertunni
Landsbjörg og Slysavamafélag-
iö standa fyrir sýningunni Björg-
un’94íPerlunni. -bjb
Fjöldi dauðsfalla í Bretlandi af völdum algengs sýklalyfs:
Talsverð notkun
lyf sins hériendis
- aukaverkanir geta verið mergbilun, blóðleysi og útbrot
Breskir vísindamenn telja að
hundmð manna kunni að hafa látist
af völdum aukaverkana af sýklalyf-
inu Septrin sem einnig gengur undir
nafhinu Bactrim. Ætla má að á
hverjum degi neyti um 800 manns
þessa lyfs hér á landi.
Breska blaðið The Sunday Times
greinir frá því í forsíðufrétt að nú
þegar séu hundrað og þrettán dauðs-
foll tengd neyslu lyfsins í Bretlandi.
Ekki sé útilokað að sá fjöldi sé í raun
tífaldur.
Bactrim, sem hefur verið á skrá í
Bretlandi frá 1969 en á íslandi frá
1971, er blanda af tveimur efnum,
sulphamethoxazole og trimethoprim.
„Aukaverkanir af súlfa eru umtals-
verðar. Það er farið að halla í tíu ár
síöan Svíar gátu rakið nokkur dauðs-
foll til þessa lyfs. Þaö var nánast allt
fullorðið fólk með byijandi nýmabil-
un, og í sumum tilfellum mikla, sem
lést. Við höfum varað mjög við notk-
un þessa lyfs hjá þessum aldurs-
flokki. Aukaverkanimar geta verið
mergbilun og blóðleysi," segir Sig-
urður B. Þorsteinsson, formaður
lyfjanefndar og smitsjúkdómalæknir
á Landspítalanum.
„Ég þekki ekki til dauðsfalla af
völdum lyfsins hér en það getur ver-
ið. Aukaverkanaskráning hér er því
miður ekki mjög virk. Hins vegar
höfum við inni á spítulunum iðulega
mikið veikt fólk vegna húöútbrota
af völdum lyfsins. Þetta er algengara
og alvarlegra heldur en af flestum
öðrum sýklalyfjum.
Sigurður segir lyfiö þó hafa ýmsa
kosti. Það sé býsna virkt þegar um
þvagfærasýkingar er að ræða. Það
fari heldur ekki illa í maga.
Bactrim er töluvert notað gegn
vissri tegund af lungnabólgu hjá
eyönisjúklingum, aö því er Sigurður
greinir frá. „Við sjáum mikið af
aukaverkunum hjá þeim en í þessum
tilfellum er súlfaþátturinn bráð-
nauðsytilegur."
í frétt The Sunday Times um lyfið
er vitnað í prófessor í sýklafræði viö
háskólann í Leeds, Richard Lacey,
sem segir aö á öllum sjúkrahúsum
þar sem hann hafi verið ráðgjafi hafi
lyfið verið bannað. Sebastian Amyes,
prófessor í sýklafræði við Háskólann
í Edinborg, fordæmir almenna notk-
un Septrins og Bactrims.
„Að mínu viti er óhugsandi að
banna lyfið. Þetta er lyf sem við verð-
um að hafa. En ég held að það sé
ástæða tU að fara varlega. Það er
auðvitað til fjöldi annarra lyfja í flest-
um tilfellum. Við erum meö mörg lyf
skráð sem innihalda bara trimethop-
rim og notum það líka töluvert. Það
er tiltölulega lítill kostur sem fylgir
súlfanu en meiri aukaverkanir," seg-
ir Sigurður.
Af Norðurlandaþjóðunum nota ís-
lendingar og Finnar lyfið mest en
Danir og Svíar minnst. „Við notum
3,5 dagskammta miðað við hverja
þúsund íbúa. Það eru um 800 manns
á dag sem taka lyfið,“ bendir Sigurð-
ur á.
-IBS
Stuttar fréttir
JónBaldvinút
Alþýðublaðið greinir frá vilja
sjómanna til að senda Jón Bald-
vin Hannibalsson utanrikisráð-
herra út til Frakklands til að
leysa fiskmálið.
Lárahættirhjá ASÍ
Lára V. Júliusdóttir hefur
ákveðið að hætta sem fram-
kvæmdastjóri hjá Alþýöusam-
bandi íslands og snúa sér aö lög-
mannsstörfum. Lára tilkynnti
þetta á miðstjórnarfundi ASÍ í
gær í Keflavík.
Nýttvin tilÁTVR
í samræmi við EES-samninginn
hyggst ÁTVR leyfa innflutning
og sölu á nokkrum nýjum áfeng-
istegundum til reynslu. Morgun-
blaðið greindi frá þessu.
Bubbi með barnabók
Tíminn sagði frá þvi aö barna-
bók væri væntanleg frá tónlistar-
manninum Bubba Morthens. Að
auki er plata í undirbúningi með
lögum í reggi- og rapptakti.
Vinsæll Kópavogur
Mikil ásókn er í byggingarlóðir
í Kópavoginum samkvæmt frétt
Tímans. Reiknað er með fjölgun
íbúa um tvö þúsund næstu árin
en 450 íbúðir eru i byggingu í
Kópavogsdalnum. Þetta gleður
bæjarstjórann, Sigurö Geirdal.
-bjb