Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1994, Síða 3
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1994
3
DV
Akranes:
Vitja iosna við
Búsetaíbúðir
Nokkrir eigendur búseturéttar-
íbúöa á Akranesi eru nú aö reyna
að selja eignarhlut sinn. í al-
menna kerfinu er mánaðar-
greiðsla fyrir rúmlega 100 fer-
metra íbúð nálægt fimmtíu þús-
und krónum. JEigendum búsetu-
réttarins þytór það of mitóð.
Svipaðar Sbúðir eru leigðar á 30
þúsund á almennum markaði.
Innifalið í mánaðargreiðslu Bú-
seta er hins vegar hitakostnaður,
fasteignagjöld, tryggingar, við-
hald og afborganir af lánum.
Vextir af lánunum eru 4,5 pró-
sent.
„íbúarnir fá ektó vaxtabætur
af lánunum og það er mitóð órétt-
læti i því. Það verður það sama
að ganga yfir alla varðandi vaxta-
bæturnar,11 segir Ásgeir Magnús-
son, formaður Búseta á Akranesi.
-IBS
Leigubílstjóri:
Skilaðifösku
meðum 300
þúsund krónum
Leigubílstjóri í Reykjavík fann
tösku á glámbekk í borgjnni á
mánudag með um 300 þúsund
krónum í gjaldeyrí, farseðlum,
greiðslukortum og fleiri verð-
mætum. Maðurinn fór til lögregl-
unnar og var þá reynt að hafa
uppi á eigandanum en hann var
þá búinn að tilkynna um hina
töpuðu tösku.
Þegar aðili, sem hafði milli-
göngu um að aíhenda eigandan-
um töskuna, rnnti hann eftir
fundarlaunum fyrir fmnanda
hennar eins og talið er sjálfsagt í
tilfellum sem þessum urðu við-
brögðin heldur neikvæð. Á end-
anum var þó ákveðið að bílstjór-
inn fengi sem svarar um 9 þúsund
krónumífundarlaun. -Ótt
Suðumes:
Framsóknar í
nýja sveitar-
félaginu
Ægir Már Kárason, DV, Suöumesjum;
Próflgör hjá framsóknarmönn-
um í nýja sveitarfélaginu Kefla-
vík, Njarðvík, Hafiúr fer fram
5.mars. Tuttugu gefa kost á sér;
átta frá Njarðvlk og 12 úr Keílavík.
Þau eru; Anna Ósk Kolbeins-
dóttir, Arngrímur Guðmunds-
son, Bergþóra Káradóttir, Drífa
Sigfúsdóttir, Friðrik Georgsson,
Gísli Hlynur Jóhannsson, Gísli
B. Gunnarsson, Guðmundur
Margeirsson, Gunnar Ólafsson,
Gunnólfur Ámason, Hafsteinn
Ingibergsson, Haukur Jóhannes-
son, Ingiber Óskarsson, ísleifur
Björnsson, Kjartan Már Kjart-
ansson, Oddný Mattadóttir, Olaf-
ur Guðbergsson, Pétur Axel Pét-
ursson, Steindór Sigurðsson og
Þorsteinn Ámason.
Borðapantanir
í síma 679967 ^
Fréttir
Bann við lausagöngu hesta nurnið úr gildi 1 hluta Nauteyrarhrepps:
Bara leyfð á jörð
hreppstjórans
- hreppstjórinn segir þetta svar við dómi héraðsdóms um bótaskyldu hesteigenda
Samkvæmt heimildum DV kallaði
sýslumaðurinn á ísafirði Ástþór Ág-
ústsson, oddvita Nauteyrarhrepps, á
sinn fund í gær í kjölfar afnáms sveit-
arstjómar hreppsins á banni við
lausagöngu hrossa á svæði frá Gervi-
dalsá og út að Langadalsá. Umrætt
landsvæði er í eigu og umsjón hrepp-
stjóra Nauteyrarhrepps og er það
svæöi sem hann er með hesta á.
„Þarna er um ábyrgðarhluta á báða
bóga að ræða þar sem samskipti bú-
fjár og ökutækja eiga sér stað. Sveit-
arstjóm hefur samþykkt að nema
bannið úr gildi um fjögurra mánaða
skeiö. Þetta afnám er fyrst og fremst
til komið vegna niðurstöðu héraðs-
dómi í málum þar sem árekstrar
hafa orðið á vegum úti á milli hrossa
og ökutækja. Þar sem lausagöngu-
bann hefur gilt hafa búfiáreigendur
verið gerðir bótaskyldir. Þessi um-
ræða hér og víðar er með þeim hætti
að þetta era viðbrögð landeigenda
við því að þeir eru ekki með fiöregg
sitt í höndunum. Með þessum dómi
er hreinlega verið að gera jarðir þar
sem vegir liggja víða ekki búrekstr-
arhæfar. Þetta rýrir í raun verðgildi
þeirra og getur haft þau áhrif að það
lífsviðurværi sem búiö hefur verið
við á jörðunum bregðist," segir Jón
Guðjónsson, hreppstjóri í Nauteyr-
arhreppi.
„Óskynsamlegt"
Ólafur Helgi Kjartansson, sýslu-
maður á ísafirði, sagði að hugur sinn
færi ektó leynt í þessu máli. Hann
vildi þó ekki staðfesta að oddviti
Nauteyrarhrepps hefði verið kallað-
ur á sinn fund en neitaði því ekki.
„Ég hef tjáð oddvita Nauteyrar-
hrepps þá skoðun mína að það væri
óskynsamlegt að hreppsnefndin tæki
ákvörðun um afnám banns við lausa-
gögnu hrossa í hreppnum. Ektó síst
vegna þess að ljóst er samkvæmt
sveitarstjómarlögum að of fáir íbúar
eru í Nayteyrarhreppi til þess að
sveitarfélagið eigi sér tilvemrétt
samkvæml þeim. í gangi eru samn-
ingaviðræður og umleitun eftir
samningum um sameiningu við önn-
ur sveitarfélög. Þar ai' leiðandi hef
ég talið þaö óskynsamlegt að sveitar-
stjórnin tató þessa ákvörðun rétt fyr-
ir kosningar," segir Ólafur Helgi.
Sýslumenn í Rangárvallasýslu,
Skagafirði og Blönduósi könnuðust
ekki við að sveitarstjórnarmenn í
hreppum í þeirra umdæmum hefðu
haft á orði að stefnt væri að afnámi
banns við lausagöngu hrossa.
„Ætti ekki að þekkjast“
Þó nokkuð hefur verið um að etóð
hafi verið á hross á þjóðvegum í
Skagafirði og nágrannasýslunum. í
ársskýrslu lögreglunnar á Sauðár-
króki kemur fram að mikið hefur
verið kvartað yfir lausagöngu búfiár
í umdæminu. í skýrslunni segir:
„Með bættu vegakerfi hefur um-
ferðarþunginn autóst og einnig hrað-
inn. Lausaganga ætti þar af leiðandi
ekki að þekkjast, á eða við vegi, og
alls ekki þar sem girt er beggja vegna
vega. Hins vegar verður að taka tillit
til snjóa og vega í afréttum, eins geta
skepnur sloppið úr girðingum. Þá
verða einnig að vera skýrari ákvæði
um bótaþátt, jafnt ökumanna sem
búfiáreigenda, í tjónum er stafa af
ákeyrslum á skepnur."
RENAULT 19 R N
- með hörkuskemmtilegri og sparneytinni 1400 vél.
HAGSTÆÐUSTU
BÍLAKAUP ÁRSINS?
Fallegur fjölskyldubíll á aðeins kr. 1.169.000,-
STAÐALBÚNAÐURINNIFALINN í KYNNINGARVERÐI:
• l400cc vél - bein innspýting.
• 80 hö. din.
• Eyðsla 8,1/100 km, innanbæjar .
• Rafdrifnar rúðuvindur framan.
• Vökvastýri.
• Olíuhæðarmælir í mælaborði.
• 460 lítra farangursrými.
• Utvarp með kassettu.
• Ryðvörn, skráning.
Fjarstýrðar samlæsingar.
Fjarstýrðir útispeglar.
Oryggisbitar í hurðum.
Vönduð innrétting.
Snúningshraðamælir.
Vetrardekk.
Málmlitur.
Veghæð 17 cm.
RENAULT
fer á kostum!