Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1994, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1994
5
Vilt þú fylgjast
með því nýjasta
sem er að gerast í
hestamennskunni?
Gerist
áskrifendur!
Á
IE1-3FAXI
TÍMARIT HESTAMANNA
Sími 91-685316
Markarfljót:
Landbrot
ógnar mann-
virkjum bæj-
arveitna
Ómar Garöaisson, DV, Vestmannaey.:
Eiríkur Bogason, veitustjóri í Eyj-
um, ræddi nýlega á fundi bæjarveitn-
anna um landbrot við Markarfljót
sem ógnar mannvirkum veitunnar,
það er dæluhúsi, vatnsleiðslunni til
Eyja og einnig Bakkaflugvelli. Verði
ekki gripið til ráðstafana fer fljótið
yfir svæðið innan fjögurra mánaða.
Eiríkur sagði að landbrotið kæmi
í beinu framhaldi af vamargarði sem
byggður var á síðasta ári.
„Hann breytti vatnsstraumnum á
annan hátt en menn ætluðu. Straum-
urinn brýtur nú land neðan við garð-
inn en þar er 200 metra haft sem
varnar því að fljótið renni beint út í
álana. Þar em dæluhúsið, raforku-
mannvirki, vatnsleiðslan og Bakka-
flugvöllur sem fara undir vatn ef
haftið rofnar. Núna gengur fljótið,
sem ekki er í vexti, tvo metra inn í
haftið á sólarhring," sagði Eiríkur.
Samkvæmt þessu verður fljótið 100
daga að fara í gegnum haftið og þarf
því að grípa til ráöstafana strax.
„Vegagerðin og Landgræðslan
segja að ekki sé eftir neinu að bíða.
Lengja þarf varnargarðinn og nú
vantar bara að tekin verði ákvörðun
um að byija. Þorsteinn Pálsson ráð-
herra var hér nýlega og kynntum við
honum máhð. Ætlar hann að setja
hrygg í máUð þannig að ég á von á
að byrjaö verði á framkvæmdum
fljótlega," sagði Eiríkur.
Fréttir
EIÐFAXm
HESTAFRtniR
Auknar líkur á sameiginlegu framboði á Seltjamamesi:
Óvíst að ef nt verði
til prófkjörs
Framsóknarflokkurinn á Seltjarnar-
nesi hefur ákveðiö aö verða við ítrek-
uðum óskum félagsmanna í Bæjar-
máiafélaginu um að taka þátt í við-
ræðum um sameiginlegt framboð í
bæjarstjórnarkosningunum í lok
maí, þrátt fyrir fyrri ákvörðun um
að bjóða fram sérUsta. Verður þá
annaðhvort boðið fram undir merkj-
um Bæjarmálafélagsins eins og í síö-
ustu kosningum eða með hreinu
kosningabandalagi eins og í Reykja-
vík. Þá yrði staða óháðra í Bæjar-
málafélaginu hins vegar óviss.
Fulltrúar flokkanna komu í fyrsta
sinn saman til viðræðna um sameig-
inlegt framboð í gærkvöldi.
„Viö erum ekki búin að skipta um
skoðun. Við teljum okkur eiga einn
fufltrúa inni í sérframboöi Fram-
sóknarflokksins og vUjum gjarnan
mæla styrk flokksins á Seltjarnar-
nesi. En líkurnar á sameiginlegu
framboði hafa hins vegar aukist. Við
getum ekki lokað augunum fyrir því
sem er að gerast í Reykjavík og
ákváðum að verða við ítrekuðum
óskum frá samstarfsaðilum um að
endurskoða fyrri ákvörðun okkar
um sérframboð. Endanleg ákvörðun
verður þó ekki tekin fyrr en á stjóm-
arfundi í Framsóknarfélaginu," segir
Siv Friðleifsdóttir, oddviti framsókn-
armanna á Seltjarnarnesi.
í lögum Bæjarmálafélagsins er
kveðið á um prófkjör. Fulltrúar
flokkanna telja hins vegar of seint
að fara í prófkjör nú og telja uppstUl-
ingu einu færu leiðina úr því sem
komið er. Er því búist við lagabreyt-
ingartillögum á aðalfundi Bæjar-
málafélagsins en honum var frestað
á dögunum vegna möguleikanna á
sameiginlegu framboði.
- En hvers vegna tókuð þið ákvörð-
un um endurskoðun?
„Samstarf flokkanna hefur gengið
vel og málefnastaða okkar hefur
batnað verulega eftir að okkur tókst
að afstýra umhverfisslysi á Vestur-
svæðinu svokaUaða. Það er greini-
legt að Reykvíkingar hafa hug á að
breyta tU í borgarstjórn og ef tU vUl
hafa Seltimingar hug á að breyta til
eftir 30 ára valdasetu sjálfstæðis-
manna í bæjarstjóm," segir Siv Frið-
leifsdóttir, Framsóknarflokki.
-GHS/hlh
Sértu að leita að vandaðri hljómtækj asamstæðu, með sérlega góðum hljórni og
ríkulegum tæknihúnaði ■ á góðu verði ■ er Goldstar FFH-333L-samstæðan fyrir þig
Goldstar FFH-333L-hljómtækjasamstæðan
samanstendur af:
60 W magnara með tónsvið 20 - 30.000,
rafdrifnum styrkstilli, 5 banda tónjafnara, 3 inn-
byggðum hljómstillingum, aðgerðastýringu á
ljósaskjá, Ultra Bass Booster-bassahljómi,
plötuspilaratengi og tengi fyrir heymartól; útvarpi
með 30 stöðva forvali, FM/MW/LW-bylgjum,
PLL Synthesizer-stilli; tvöfoldu
með sjálfvirkri spilun
y. ,
K
sjálfvirkri byrjun við upptöku frá geislaspilara;
16 bita geislaspilara með 32 laga forvali, síspilun,
handahófsspilun, sýnishornaspilun o.m.íl.;
vönduðum hátölurum og þráðlausri ljarstýringu
fyrir allar aðgerðir og innbyggðum útvarps-
vekjara fyrir alla sem þurfa að vakna.
V/SA
Samkart
Frábær greiöslukjör viö allra hæfi
t.d. 2.868,- kr. á mán. í 18 mán.
SKIPHOLTI 19
SÍMI 91-29800