Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1994, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1994
Viðskipti
Steinb. á fiskm.
Mi Fi Fö Má Þr Mi
Þingvísit. húsbréfa
R fö Má Þr Mi
Svartolía
tonn Þr Ml Fi Fö Má Þr
Gengi marksins
Mi Fi Fö Má Þr Mi
Kauph.í Tokyo
Markiðáuppleið
Steinbítur á fiskmörkuöum hef-
ur selst á lægra verði í þessari
viku en þeirri síöustu. Munar þar
um allt að 10 krónur á kílóið að
meðaltali.
Þingvísitala húsbréfa hefur
stigið örlítið upp á við í vikunni
eftir nokkurt jafnvægi í síðustu
viku.
Á einni viku hefur svartolía á
Rotterdam-markaði lækkað um
tæp 4 prósent, úr tæpum 94 doll-
urum tonnið í 90 dollara sl.
þriðjudag.
Gengi þýska marksins gagnvart
íslensku krónunni hefur verið á
hægri uppleið síðustu daga. Sölu-
gengið var 42,55 krónur í gær.
Nikkei hlutahréfavísitalan í
kauphöllinni í Tokyo féll í gær
um 2%, eða ein 500 stig úr 20216
í 19744 stig. Síðustu dagana á
undan fór vísitalan stöðugt
hækkandi. -bjb
Lánsloforö Fiskveiðasjóðs til skipasmíða:
1670 prósenta meiri
lán innanlands
- en erlendis á síðasta ári
Stjóm Fiskveiðasjóðs kom saman
á þriðjudag til að fjalla um tilmæli
Sighvats Björgvinssonar iðnaöarráð-
herra til sjóðsins um að breyta út-
lánareglum þannig að lán til skipa-
smiðaverkefna verði öll vegna inn-
lendra verkefna. Stjórnin samþykkti
að óska eftir samstarfi við ráðuneyti
sjávarútvegs, viöskipta og iðnaðar
um aðferðir til að efla íslenskan
skipasmíðaiðnaö og stuðla að því að
skipasmíðaverkefni verði unnin hér
á landi. Jafnframt telur stjóm Fisk-
veiðasjóðs æskilegt að efnt verði til
viðræðna við aðrar lánastofnanir,
s.s. Iðnlánasjóð, Iðnþróunarsjóð og
banka, um lánveitingar vegna inn-
lendra skipasmíðaverkefna.
„Við teljum hæpið að loka eina
lánastofnun af í þessu efni. Það þjón-
ar engum tilgangi," sagði Svavar
Ármannsson, aðstoðarforstjóri Fisk-
veiðasjóðs, í samtali við DV. í máli
Svavars kom fram að á síðasta ári
voru lánsloforð til skipasmíðaverk-
efna innanlands ríflega 450 milljónir
króna á móti 25,5 milljónum til verk-
efna erlendis. Þetta gerir 1670 pró-
senta meiri lán til verkefna innan-
lands en erlendis. Sjá nánar með-
fylgjandi graf.
Á grafinu em lánsloforð síðustu
tveggja ára hjá Fiskveiðasjóði fyrst
og fremst vegna viðhaldsverkefna en
ekki vegna nýsmíða. Þaö sem af er
þessu ári nema lánsloforð sjóðsins
vegna skipasmíðaverkefna um 100
milljónum króna sem skiptast jafnt
milli verkefna erlendis og innan-
lands.
-bjb
Lánsloforð Fiskveiðasjóðs
— tii skipasmíöaverkefna —
Norræni fj árfestingarbankinn:
5 milljarða hagnaður
Hágnaður af starfsemi Norræna
fjárfestingarbankans nam rúmum 5
milljörðum króna á síðasta ári sem
er 26% meiri hagnaður en árið 1992.
Vaxtamunur jókst um 36% á árinu
og nam rúmum 8 milljörðum króna.
Aukningin skýrist m.a. af breyttri
reikningseiningu bankans úr SDR
yfir í ECU-mynt á árinu.
Á síðasta ári lagði bankinn 1,2
milljarða inn á afskriftasjóð og varð
fyrir einu útlánatapi upp á 254 millj-
ónir. Samsvarandi tölur fyrir árið á
undan voru töluvert hærri. Heildar-
útlán bankans um sl. áramót námu
tæplega 370 milljörðum króna.
Mestur hluti útborgaðra lána á ár-
inu 1993 til Norðurlanda tengdust
umhverfismálum með einum eða
öðrum hætti, eöa fyrir um 18 millj-
arða króna. Á árinu jukust verulega
lánveitingar til verkefna í Asíu.
Norræni fjárfestingarbankinn er í
eigu Norðurlandanna en þau hækk-
uðu grunnfé bankans um 50% á síð-
asta ári. Grunnféð nemur nú 230
milljörðum króna. Sem kunnugt er
verður Jón Sigurðsson seðlabanka-
stjóri næsti aðalbankastjóri Nor-
ræna fjárfestingarbankans og tekur
við þeirri stöðu í næsta mánuði.
-bjb
Olía og bensín á erlendum mörkuðum:
Litlar verðbreytingar
Þegar viðskipti hófust með hráolíu
á markaði í London í gærmorgun var
tunnan seld á 13,68 dollara sem er
heldur hærra verð en sést hefur síð-
ustu daga. Þá virðist verð á svartolíu
vera á niðurleið eftir að tonnið náði
hæst tæplega 94 dollurum. Á þriðju-
dag var tonnið komið í 90 dollara.
Að öðru leyti hafa litlar verðbreyt-
ingar átt sér stað á olíu og bensíni á
erlendum mörkuðum undanfarna
viku.
Þó gerðist það sl. þriðjudag í fyrsta
sinn í tvær vikur að 98 oktana bens-
ínið á Rotterdam-markaði hækkaði
um dollar tonnið, fór í 148 dollara að
meðaltali. Hins vegar lækkaði blý-
lausa bensíniö, 92 og 95 oktana, sama
dag um tvo dollara tonnið. Gasolían
hefur verið í kringum 140 dollara
tonniö síðustu daga.
Únsan af gulli á markaði í London
virðist vera á uppleið á ný. Þegar
viðskiptum lauk sl. þriðjudag var
únsan á 381 dollar. Hveiti hefur held-
ur lækkað á mörkuðum í Chicago og
hefur lægra verð ekki sést síðan í
nóvember sl. Verð á sojamjöli á sama
markaði er svipað. BómuÚ í London
helduráframaðhækka. -bjb
'*' ~ ' ' ' '' ' ' ' V ' ' - '' '' X-x > . '■''' ''/•'■/ í i?' ''A ’f > ~ SWJí:5í:íífÆf5ffííSÍA;:
WjVöruverð á erlendum mörkuðuml
380
360 350
D J F M
D J F M
| Bensín 95 okt.
150 145 , ^
[j\
1140 135' 130 aJ
A/
[ ) J F M
Lítil þátttaka í
útboðihús-
næðisbréfa
Aðeins tveimur af fimm tilboð-
um í húsnæðisbréf var tekið í
útboði sl. þriöjudag. Tilboð bár-
ust fyrir 61 milljón króna að nafn-
virði en tilboöin tvö, sem tekið
var, voru upp á 11 milljónir.
Hæsta ávöxtunarkrafa var
5,20% en sú lægsta 5% þannig að
meðalávöxtun var 5,12%. Tekið
var tilboðum með 5% ávöxtun.
Næsta útboð húsnæðisbréfa fer
fram 15. mars nk.
Stálsmiðjani
greiðslustöðvun
Stálsmiðjan hf. í Reykjavík fékk
í gær heimild tO greiðslustöðvun-
ar næstu þrjár vikur. Þar meö
hefur fjórða fyrirtækið bæst í hóp
þeirra skipasmíðastöðva sem eru
í greiðslustöövun. Fyrir eru Þor-
geir & Ellert á Akranesi, Slippur-
inn i Njarövík og Slippstöðin
Oddi á Akureyri.
Um 100 manns hafa unnið hjá
Stálsmiðjunni að undanförnu. í
tilkynningu frá fyrirtækinu segir
að rætt hafi verið við stærstu lán-
ardrottna Stálsmiöjunnar á und-
anförnum vikum um leiðir til að
endurskipuleggja reksturinn.
Flutningsmiði-
unin meðeigin
tollvörugeymslu
Flutningsmiölunin hf. opnar nýtt
húsnæðí á morgun í Skútuvogi
og verður þar fyrst íslenskra
flutningsfyrirtækja með eigin
tollvörugeymslu. Samtímis mun
fyrirtækið taka upp pappírslaus
viðskipti við Tollstjóraembættið
varðandi tollafgreiðslu.
Flutningsmiðlunin var stofnuð
árið 1980 og þar starfa 10 manns.
Fyrirtækið velti nær 270 míUjón-
um króna á síöasta ári og sá um
20 þúsund sendingar á árinu.
Sighvaturíund-
armeðiðnaðar-
mönnum
Samkvæmt fréttatilkynningu
frá Samiðn, sambandi iðnfélaga,
hafa íslenskar útgerðir látið
smiða, gera viö og endumýja
skipakost sinn fyrir 42 milljarða
króna síöustu 7 ár. Þar af voru
verkefm fyrir 28 milljarða króna
unnin erlendis.
í tilefhi af slæmri stöðu skipa-
iönaðar, húsgagnaiðnaðar, bygg-
ingariðnaðar og iðnaðar almennt
í landinu boöar Samiðn til fundar
í kvöld með Sighvati Björgvins-
syni iðnaðarráðherra.
-bjb
Framkvæmdir
viðhóteliðá
Klaustri
EUnValdimarsd., DV, Kíxkjubæjarkl.:
Framkvæmdir eru hafnar við
að fullgera 20 tveggja manna her-
bergí og eina svítu á efri hæð
nýja hótelsins á Kirkjubæjar-
klaustri en neðri hæðin var tekin
í notkun á sl. vori. Hótelið, sem
er opið allt árið, er í eigu Bæjar
hf. en rekiö sem Edduhótel.
Yfir sumarmánuðina mun hót-
ehö hafa á að skipa gistirými fyr-
ir 150 manns, auk svefnpokapláss
fyrir um 80 manns. Hið nýja hót-
el er þriðja stærsta hótel á lands-
byggðinni. Ennfremur er Ferða-
þjónusta bænda starfrækt á
nokkrum bæjum í Skaftárhreppi.
Þörfin fyrir gistirými er mikil í
hreppnum yfir sumarið.