Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1994, Side 8
8
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1994
Útlönd
Stuttar fréttir
Færeyingar bakka
í kvótadeilu við Dani
- búist við að niðurstaða fáist 1 málinu 1 dag
Svo virðist sem lausn sé í sjónmáli
á stríði Færeyinga við dönsku ríkis-
stjórnina um flskveiðimál eyjar-
skeggja eftir að fulltrúar færeysku
landstjórnarinnar kynntu Poul Nyr-
up Rasmussen, forsætisráðherra
Danmerkur, endurskoðaði frumvarp
að lögum um stjóm flskveiða.
Frumvarpið þýðir í raun að Færey-
ingar hafa dregið í land eftir hótanir
danska forsætisráðherrans um að
veita ekki ábyrgðir fyrir erlendum
lánum Færeyinga nema þeir taki upp
kvótakerfi í sjávarútveginum með
framseljanlegum veiðiheimildum.
Slíkt frumvarp var hluti uppruna-
legs samkomulags færeysku lands-
stjómarinnar við dönsku stjórnina
um enduríjármögnun erlendra
skulda Færeyja.
Nymp Rasmussen var jákvæður í
garö frumvarpsins eftir fund með
samstarfsflokkum sínum í ríkis-
stjórninni í gær en Færeyingar fá
endanlegt svar hjá ráðherranum í
dag þegar hann gerir grein fyrir
málinu í-samráði við stjórnmála-
og efnahagsnefnd danska þings-
ins.
Tillaga Færeyinga felur í sér að
kvótar fyrir veiðarnar frá mars til
september á þessu ári verði ákveðnir
í samvinnu við tillögur frá svokall-
aðri kerfisnefnd, eins og segir í sam-
komulagi þjóðanna. Á næsta kvóta-
tímabili, það er frá september í ár til
jafnlengdar á hinu næsta, verða
kvótamir ákveðnir á „líffræðilega
veijanlegum grundvelli sem byggist
á alþjóðlegum viðmiðunum" eins og
danski forsætisráðherrann orðaði
það.
Poul Nyrup Rasmussen, forsætis-
ráðherra Danmerkur.
Simamynd Reuter
Nyrup Rasmussen benti á að það
lægi á að flnna endanlega lausn þar
sem lán sem Færeyingar hefðu tekið
upp á átta hundmð til niu hundruð
milljónir íslenskra króna gjaldféllu
þann 10. mars.
Enn er óleyst hvernig menn eiga
aö geta keypt sér kvóta eða selt.
Færeyingar vilja að hægt verði að
skiptast á kvótunum en Danir vilja
fremur að kvótamir geti gengið
kaupum og sölum. Nymp Rasmus-
sen vildi ekkert segja í gær um hvor
lausnin yrði ofan á.
Færeyskir sjómenn eru mjög reiöir
vegna afskipta dönsku stjómarinnar
og hafa þeir hótað að sigla togurum
sínum í land í dag.
Ritzau
Bandariski kvikmyndaleikstjórinn Steven Spielberg og eiginkona hans, leikkonan Kate Kapshaw, ganga hér um fyrrum fangabúðir nasista i Auschwitz-
Birkenau. Spielberg er í Evrópu aö kynna mynd sína Lista Schindlers sem fjallar um mann sem bjargar gyðingum frá bráðum bana i útrýmingarbúðum
naslsta. Simamynd Reuter
SiofnandiBlack
Pantherserá
batavegi
Stofnandi Black Panthers sam-
takanna, sem stofnuð vom í
Bandaríkjunum árið 1960 og
böröust fyrir rétti svartra manna,
er á batavegi eftir aö hafa gengist
undir heilaskuröaðgerð í gær.
Cleaver, sem er 58 ára gamall,
var fluttur á sjúkrahús í Berkeley
í Kalifomiu eftir að hafa fengiö
heilablæðingu,. Útvarpsstöð í Ka-
lifomíu sagði að Cleaver hefði
fengiö verki skömmu eftir að
hann var handtekinn lyrir að
hafa eiturlyf undir höndum. Lög-
reglan hefur ekki staðfest þá frá-
sögn. Black Panthers samtökin
hvöttu blökkumenn til aö mót-
mæla kúgun ogþeirri mismunun
æm blökkumenn raáttu þoia.
Reuter
Samningur Króata og múslíma um sambandsríki:
Getur strandað á f ramtíð
Króata í Hersegóvínu
Hætta er á að samningurinn á milli
Króata og múslíma í Bosníu um
myndun sambandsríkis, sem Banda-
ríkjamenn höfðu milhgöngu um, geti
strandað á framtíð harðhnu Króata
er varðar Herzegovínu.
Her Bosníu-Króata barðist við
stjómarher Bosníu, sem var undir
forystu múshma, í nærri eitt ár til
þess að reyna að vinna eins mikið
land og mögulegt var og innhma það
í Króatíu. Nú þykir ólíklegt að Króat-
ar sætti sig við minna en það sem
þeim finnst þeir eiga rétt á.
1 sömu andrá og utanríkisráðherra
Króatíu, Mate Granic, var að undir-
FranjoTudjman. JU Simamynd Reuter
rita samninginn um sambandsríki
múslíma og Króata í Bosníu var
valdamikill þrýstihópur í Herzegó-
vínu að gefa til kynna andstöðu sína
í máhnu.
Harðhnu Bosníu-Króatar hafa sagt
að þeir æth ekki að sætta sig við
neitt minna en sjálfstjóm á sínu
svæði í Bosníu en það era ekki allir
sáttir við.
Forseti Króatíu, Franjo Tudjman,
sem er stuðningsmaður Bosníu-
Króata, setti Herzegóvínu harðhnu-
þjóðemissinnann Mate Boban af sem
forseta sjálfsstjórnarríkis Bosníu-
Króataísíöastamánuði. Reuter
Fangarlausir
ísraelsmenn hafa leyst fleiri
palestínska fanga úr haldi. 400 fá
frelsi í dag.
Vopnahlérofið
Tveggja vikna gamalt vopnahlé
í Sarajevo var rofið í morgunþeg-
ar skotið var út vélbyssu og
sprengju varpað nærri miðbæn-
rnn.
Ohristopheríalar
Warren
Christopher,
utanríkisráð-
herra Banda-
ríkjanna, sagði
að það væri nú
undir múslím-
um og Króöt-
um 1 Bosníu
komiö að hrinda í framkvæmd
samningnum um sambandsríki.
Stjómvöld í Suður-Kóreu hafa
aflýst heræfingum með banda-
ríska hemum.
Ríki ræða saman
Norður- og Suður-Kóreumenn
íhuga að efna til viðræðna hátt-
settra manna um kjarnorkuáætl-
anir sínar.
Hershöfðingi með
Brasihuforseti hefur skipað
hershöfðinga í stjórn landsins.
SamiðiMexíkó
Uppreisnarbændur í Mexíkó og
stjómvöld hafa samiö um um-
bætur í efnahags- og stjómmál-
um landsins.
Færeyjum bjargað
Danska stjómin ætlar að
tryggja það að færeyska land-
stjómin geti staðiö við útgjöld sín
fram í september.
Clinton í vígahug
Bill Clinton
Bandaríkjafor-
seti ákveður í
; dag hvort hann
setur í gildi til-
skipun sem
heimilar hon-
um að beita
viðskipta-
þvingunum gegn Japan.
Súdanir sprengja
Flugvél úr stjómarher Súdans
varpaði sprengjum á þorp á valdi
uppreisnarmanna í suðurhluta
landsins.
Maður ákærður
Liðlega þritugur maður hefur
verið ákærður fyrir að kveikja í
hommaklúbbnum í London þar
sem níu menn létust.
Concorde á af mæli
Hljóð&áa Concorde-þotan átti
25 ára afmæh í gær.
Flugvélafbraut
Flugvél rann út af flugbraut á
LaGuardia flugvelh við New
York i snjóbyl í gærkvöldi og slös-
uðust tuttugu og níu.
Aristide vill lýðræði
Jean-Bertr-
and Aristide,
útlægur forseti
Haíti, hvatti til
þess í gær að
lýðræði yröi
endurreist í
landinu og úti-
lokaði samning
þar sem ekki væri kveðið á um
heimkomu sína.
Skólastúlkadrepin
Sautján ára skólastúlka var
meðal flmm óbreyttra borgara
sem vora drepnir i síðustu of-
beldisöldunni i Alsír.
Viðræður Rússa og Eistlend-
inga um brottfór rússneskra her-
sveita voru nær því sigldar í
strandígær. Reuter