Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1994, Page 9
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1994
9
Utlönd
Breska fyrirsætan Naomi Campbell sýnir haust- og vetrarfatnað frá tískufyr-
irtækinu Les Copains i Milanó. Símamynd Reuter
Fyrrum starfsmenn í Thule-herstöðirmi:
Lesa leyniskjöl um
kjarnorkuflugvél
Bandarísk stjómvöld hafa nú opn-
aö leyniskjöl sín um B-52 sprengju-
flugvélina sem fórst tólf kílómetra
frá herstööinni í Thule á Grænlandi
áriö 1968. Fjórar vetnissprengjur
voru um borð í flugvéhnni og
sprungu hvellhettumar á þeim viö
brotlendinguna. ís og snjór í grennd
við slysstaðinn varð fyrir geisla-
mengun.
Þaö era samtök fyrrum starfs-
manna við herstöðina í Thule sem
hafa fengið að skoða leyniskjölin og
þau hafa einnig krafist þess að ráðu-
neyti utanríkis- og vamarmála í
Danmörku opni skjöl sín.
Thule-starfsmennimir hafa í mörg
ár reynt að sanna aö samhengi sé
milli vinnunnar við að hreinsa til
eftir slysiö og sjúkdóma meðal starfs-
manna í herstöðinni. Stór hluti fyrr-
um starfsmannanna kvartar undan
þreytu og sárindum í liðum á bæði
handleggum og fótleggjum, auk
krabbameins.
Danska krabbameinsskráin komst
þó að þeirri niðurstöðu í janúar í
fyrra að enginn starfsmannanna
hefði fengið krabbamein af völdum
geislavirkni.
Marius Schmidt, formaður félags
fyrram starfsmannanna, sagði í við-
tali við fréttaritara danska útvarps-
ins í Washington í gær að hann hefði
fengið nýjar upplýsingar á fundum
NORÐUR- (
GRÆNLAND 1
• Thule,^
GRÆ JLAND
VESTUR- Scoresbysund
GRÆNLANC AUSTUR- *
• GRÆNLAND
Godhavn FmY+A
sínum með bandarískum stjómvöld-
um.
„Meðal annars að það var danska
ríkisstjómin sem bað þá bandarísku
um að halda flugslysinu leyndu í tvo
og hálfan sólarhring vegna kosninga
sem vora framundan í Danmörku,"
sagði Marius Schmidt.
Rannsóknir krabbameinssérffæð-
inga á undanfómum áram sýna svo
ekki verður um villst að tíðni
krabbameins hefur aukist en þó ekki
þær tegundir krabbameins sem
tengja má við geislavirkni heldur
krabbamein af völdum tóbaks- og
áfengisneyslu. Þá hefur verið rætt
um asbest sem eixm sökudólgiim í
aukinni tíðni lungnakrabba hjá fyrr-
um starfsmönnum herstöðvarinnar
í Thule. Ritzau
Sexburarfædd-
ustiArgentmu
Þrjátíu og sjö ára kona í borg-
inni Rosario I Argentínu ól sex-
bura í gær, tvo drengi og fjórar
stúlkur, að sögn argentínska
sjónvarpsins.
„Við þráöum svo heitt aö eign-
ast bam og fengum svo heldur
meira en ráð var fyrir gert,“ sagði
hinn 39 ára gamli faðir, Daniel
Ascencio. Reuter
///////////
TI6RA-
PENNINN
. 1994
Smásagnasamkeppni
um íslandsævintýri Tígra
Tígri ætlar aö ferðast um ísland í sumar því hann þekkir landið
okkar svo lítið. Hvert ætti hann að fara?
Upp á fjöll og leita að öðrum tígrum því kannski á Tígri ættingja
sem hann þekkir ekki?
Nú eða sigla um Breiðafjörð og skoða selina og hvalina sem
svamla á milli allra eyjanna.
Kannski hittirTígri fröll eða álfa, kannski drauga.
Það er margt sem getur komið fyrir lítinn Tígra sem ekki
þekkir landiðvel.
Ef þú ert 12 ára eða yngri getur þú tekið þátt í ævintýrum Tígra
á íslandi með því að skrifa smásögu um ferðir hans og
ævintýrin sem hann lendir í.
Allir sem senda inn sögur fá sérstakan Tígrablýant að gjöf og
leikjabók Krakkaklúbbsins.
50 sögur verða valdar og gefnar út í einni bók, Tígrabókinni.
Þeir sem eiga sögur í bókinni eiga möguleika á að vinna
vegleg verðlaun frá verslunum Pennans.
Komið verður upp Tígrahomi í Kringlunni 4-12. mars þar sem
þú getur fengið öll þátttökugögn.
Þú getur einnig haft samband við Krakkaklúbb DV,
Þverholti 14,105 Reykjavík,
og við sendum þér gögnin. Skilafrestur er til 23. apríl.
Það er leikur að skrifa um íslandsævintýri Tígra.
Vertu með!
....... fv.*#
KRINGWN
■V
island
Noregur og Evrópusambandið:
Erf iðustu málin enn óleyst
Eftir tíu tíma maraþonfund Jans
Henrys T. Olsens, utaiuíkisráðherra
Noregs, og samningamanna Evrópu-
sambandsins í Brassel í gær er ljóst
að öfl erfiðustu málin varðandi inn-
göngu Noregs í ES era enn óleyst og
að ekkert verður gert fyrr en á fundi
með utanríkisráðherrum þess á
þriðjudag.
Olsen hefur verið fámáfl um samn-
ingaviðræðumar frá því þær hófust
síðdegis á laugardag og hann var
ekki á því að fara nánar út í erfiðleik-
ana þegar hann hitti blaðamenn að
máli seint í gærkvöldi.
„Viðræðurnar hafa verið jákvæðar
og þær eru í góðum farvegi. Við höf-
um reynt að finna leiðir til að leysa
þetta,“ sagði Olsen við fréttamenn.
Sjávarútvegsráðherrann gerði það
þó ljóst að engin lausn væri enn
fundin í erfiðustu málunum. Það á
einnig við um kröfur Norðmanna um
að fá að veiða hrefnu áfram.
„Það er aflt uppi á borðinu," sagði
hann.
Olsen og Grete Knudsen viðskipta-
ráðherra fara til Óslóar í dag en
halda aftur til Brassel á sunnudag
eða mánudag. Þá bendir allt til þess
að niðurstaða fáist í aðfldarviðræður
Noregs eftir að Svíþjóð, Finnland og
Austurríki luku aðfldarviðræðum
sínum á þriðjudag.
í miflitíðinni eiga norskir embætt-
ismenn að fara yfir sjávarútvegs- og
landbúnaðarmálin með sérffæðing-
um Evrópusambandsins.
NTB