Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1994, Page 10
10
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1994
Utlönd
Solzhenítsyn
sínaíVermont
Rússneski
ríthöfundurinn
Alexander
Solzhenítsyner
farinn aö und-
irbúa heimferð
sína efitir tutt-
ugu ára útlegð
á Vesturlönd-
um og hann hefur þegar kvatt
nágranna sína í bænum Cavend-
ish í Vermont þar sem hann hefur
dvalið.
Solzhenítsyn þakkaði grönnum
sínum fyrir aö gera sér kleift að
lifa friðsælu lífi sem væri nauð-
synlegt svo hann gæti sinnt störf-
um sínum.
Rithöíúndurinn og eiginkona
hans flytja til Rússlands með vor-
inu þegar lokið verður við smiði
húss þeirra nærri Moskvu en
synir þeirra verða eftir í Banda-
ríkjunum.
Froskumfækkar
vegnageislunar
frásólinni
Hugsanlegt.gr talið aö fækkun
í froskastofninum í norövestan-
verðum Bandaríkjunum megi
rekja til geislunar frá sólinni
vegna þynningar ósonlagsins, aö
þvi er segir í nýrri rannsókn sem
gerð var við háskólann í Oregon.
Rannsakaðar voru þijár
froskategundir og í ljós kom að
bein tengsl voru milli ástands
stofns hverrar tegundar og hæfi-
leikum eggja þeirra til aö gera við
DNA-kjarnsýruskemmdir af
völdum útíjólublárra geisla.
Baristgegn
reykingumá
barnaheimilum
Fóstrur á mörgum dönskum
barnaheimilum reykja án þess aö
taka nokkurt tillit til barnanna
sem þar eru. Þótt flest barna-
heimilanna hafi sérstakt reyk-
herbergi eru böm í fjórum af
hverjum tiu dagheimilum innan
um tóbaksreyk.
Þetta kemur fram í nýrri könn-
un sera danska krabbameinsfé-
lagið hefur gert í samvinnu við
önnur sambærileg félög annars
staðar á Norðurlöndum.
Böm em sérstaklega viðkvæm
fyrir óbeinum reykingum og
hættan á öndunarfærasjúkdóm-
um eykst því til muna.
Jens Kr. Götrik, formaöur
danska krabbameinsfélagsins,
segir að þegar böm tengi saman
tóbakslykt og þægílegheit sé búiö
að afvegaleiða þau og hann skor-
ar á stjórnmálamenn að gera
nauðsynlegar ráðstafanir.
Rútskoj hvetur
Rússatilað
sýnasáttfýsi
Alexander
Rútskoj, fyrr-
um varaforseti
Rússlands, sem
var sleppt úr
fangelsi í sið-
ustu viku, hélt
uppi vömum
fyrir bylting-
artilraunina gegn Jeltsín forseta
í október síðastliðnum en hvatti
Rússa þó til að sýna sáttfýsi.
í fyrstu yfirlýsingu sinni fráþvi
hann var leystur úr haldi veittist
Rútskoj að „óábyrgum vindhön-
um og óheiöarlegum stjómmála-
mönnum og blaðamönnum" sem
hann sagði hafa hagrætt sann-
leikanum um átökin í Moskvu í
fyrrahaust sem urðu 140 manns
aöbana. Reuter, Ritaau
Skotárásin á gyðingastúdentana í New York:
Búið að hand-
taka þrjá menn
- Líbanitalinnveraaðalmaðurinn
Lögreglan handtók 28 ára gamlan Líbana í gær, Rashad Baz, sem grunað-
ur er um að hafa staðið að skotárásinni á gyðingastúdentana i New York
á þriðjudag. Slmamynd Reuter
Lögreglan í New York hefur hand-
tekið þrjá menn, einn Líbana og tvo
Jórdana, fyrir skotárásina sem gerð
var á gyðingastúdenta á þriðjudag
er þeir vom í sendiferðabíl sínum að
fara yfir Brooklyn-brú í New York.
Einn stúdentanna er heiladauöur af
völdum skotsárs, annar er enn í lífs-
hættu og tveir hlutu minni háttar
skotsár.
Granurinn beinist helst að Líban-
anum, sem heitir Rashad Baz og er
28 ára gamall, en lögreglan handtók
hann 16 tímum eftir skotárásina eftir
að hafa fengiö vísbendingu frá bíla-
verkstæði þar sem talið er að Baz
hafi skilið bíhnn sinn eftir eftir að
hafa framið verknaðinn.
Jórdanarnir tveir voru handteknir
seinna sama dag og ákærðir fyrir
minni háttar brot sem tahn era tengj-
ast skotárásinni. Yfirheyrslur standa
nú yfir mönnunum þremur en lög-
reglan telur þó líklegt að Líbaninn
hafi staðið einn að verknaðinum.
Lögreglan fann nokkrar byssur, þar
á meðal íjórar hlaðnar vélbyssur, við
húsleit hjá honum.
Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna,
ræddi í gær við foreldra drengsins
sem slasaðist hvað mest í árásinni
og lýsti yfir samúð sinni. Hann lýsti
einnig yfir ánægju sinni með að lög-
reglan hefði handtekið mennina.
Verknaðurinn hefur vakið mikinn
óhug á meðal gyðinga í New York
og margir óttast að vandamál Mið-
austurlanda séu nú að berast til
Bandaríkjanna þar sem mikill fjöldi
gyðinga og araba búa.
Öryggisgæsla í skólum og bæna-
húsum gyðinga var hert til muna
eftir atburðinn og um 500 manna
aukalögreglulið var fengið til að gæta
Crown-hæða, eins stærsta gyðinga-
samfélagsíBrooklyn. Reuter
Syngjandi munkar
frá Spáni slá í gegn
Syngjandi Benediktsmunkar frá
smábænum Silos á Spáni eru að slá
í gegn með nýjustu upptökum sínum
af aldargömlum gregorískum lögum
sem em aö komast á topp helstu vin-
sældahsta víða um heim.
Upptökumar, sem fóru fram í
Benediktsklaustri munkanna á
Norður-Spáni, hafa einkum hlotið
miklar vinsældir hjá spænskum
krökkum á aldrinum 16-26 ára sem
vilja helst ekki hlusta á neina aðra
tónlist þessa dagana. Tvöfaldur disk-
ur munkanna hefur nú þegar selst í
300 þúsund eintökum á Spáni.
Þessar sérstöku vinsældir munk-
anna hafa náð heimsathygli og
munkarnir, sem em vanir kyrrlátu
og fálátu lífi, mega hafa sig alla við
að verjast ágangi fjölmiðla sem vilja
ólmir kynna þessar nýjustu „popp-
stjömur" fyrir umheiminum.
Um eitt hundrað fréttamenn frá
hinum ýmsu löndum voru saman-
komnir í klaustrinu til að tala við
munkana eftir að hljómplötufram-
leiðendur tilkynntu að þeir myndu
dreifa lögunum víða um heim.
„Við emm hissa á þessum miklu
vinsældum sem lög okkar hafa feng-
ið en ef fjölmiðlar ætla aö fara að
leggja þaö í vana sinn að koma hing-
Bróðir Miguel Vivanco, einn af „poppstjörnunum", ræðir við fréttamenn sem
eru tíðir gestir i klaustri munkanna þessa dagana. Símamynd Reuter
að í klaustrið á hveijum degi þá á
það eftir að trufla hið daglega líf okk-
ar og þann frið sem við sækjumst
eftir,“ sagði bróðir Miguel Vivanco
viö fréttamenn.
Aðspurður hvort munkamir
kærðu sig um að verða poppstjömur
sagði bróðir Vivanco: „Við emm
bara munkar og fyrir okkur er þetta
ekki bara söngur heldur bænir.“
Munkamir halda eftirmiðdags-
messu fyrir almenning hvern einasta
dag og áður en þeir urðu vinsælir
sást varla nokkur í messu en nú er
hins vegar alltaf troðið út að dyrum.
Reuter
Upptökurað
Upptökur á
nýjustu mynd
leikstjórans
Roberts Alt-
mans, Ready to
Wear, þar sem
Sophia Loren
fer með eitt
aðalhlut
verkið, eru senn að hefjast.
Myndin, sem verður tekin í París,
fjallar um tískuiðnaöinn og ýmsir
leikarar koma þar fram ásamt
tískusýningarfólki.
Sophia Loren leíkur eiginkonu
tískukóngs og segist hlakka mik-
ið til að vinna með Altman. Aðrír
leikarar i myndinni eru Júiía
Roberts, sem leikur blaðakonu,
og Marcello Mastroianni. Heyrst
hefur að Robert de Niro og Ric-
hard Gere leíki einnig í myndinni
en það hefur ekki verið staðfest.
likamshitinii
mældist14
Læknar í Kanada eru orðlausir
eftir að tveggja ára stúlka hélt
lífi eftir að hafa veríð úti í 22 stiga
frosti í sex tíma. „Það er enn of
snemmt að segja hvort stúlkan
liafi orðið fyrir langvarandi tjóni
af völdum frostsins. Við erum að
vonast til að geta bjargað hægri
fæti hennar en vinstri fætinum
verður því miður ekki bjargað,“
sagði Joy Dohson læknir sem
annaðist stúlkuna. Líkamshiti
stúlkunnar féll úr 37 gráðum í 14
gráður og þetta er fyrsta tilfellið
þar sem svo ung stúlka lifir svona
mikið frost af.
Tahð er að stúlkan, sera var alein
heima, hafi farið ein út af heimil-
inu en pahbi hennar var farinn í
vinnuna.
Viljaekkisýna
ListaSchindlers
Kvikmyndin Listi Schindlers
verður líklega ekki sýnd í kvik-
myndahúsum í Jórdaníu þar sem
yfirvöld þar í landi telja tímasetn-
inguna ekki góða vegna þeirrar
ólgu sem fjöldamorðin i Hebron,
þar sem 43 Palestinumenn voru
drepnir, hafa haft í fór með sér.
„Ef myndin gengur út á með-
aumkun með gyðingum þá viljum
við ekki taka hana til sýningar.
Hvernig er hægt að ætlast til þess
aö við sýnum gyðingum með-
aumkun ef þeir sýna aröbum fyr-
irlitningu,“ sagði kvikmmdaeft-
irlitsmaður 1 Jórdaníu.
Eins og kunnugt er íjallar Listi
Schindlers um stríðsgróðamann
sem bjargaðí um 1.200 gyðingum
frá dauðabúðum nasista í seinni
heimsstyrjöldinni.
Ætlarsérekki
aðtapa
ítalski fjöl-
miðlakóngur-
inn Silvio Ber-
lusconi hefur
yfirhöndina í
komandi kosn-
ingum sem fara
fram í Ítalíu í
næsta mánuði
samkvæmt skoðakönnun sem
nýlega var birt. „Ég hef aldrei
tapað í viðskiptum og ég ætla mér
ekki að tapa í kosningum held-
ur,“ sagði Berlusconi á blaða-
mannafundi.
Aðalbaráttumál Berlusconi,
sem býður sig fram fyrir flokkinn
Afram Ítalía (Forza Italia), er að
koma landinu úr efnahagsvanda
og ijölga einkafyrirtækjum i
landiriu. „Land með okkar efna-
hagsvandamál og glæpi þarf
sterka meirihlutastjórn,“ sagði
Berlusconi. Reuter