Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1994, Page 20
32
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1994
Iþróttir
Utah hef ur tak á San Antonio
- Chicago tapaði heima fyrir Lakers og Cleveland vann sinn 8. sigur í röð
Af sex leikjum í bandaríska
körfubolatnum í nótt lyktaöi flmm
þeirra með útisigrum. Hæst ber þó
ósigur San Antonio gegn Utah Jazz
í Texas. Karl Malone og Jeff
Hornacek fóru fyrir sínum mönn-
um, Malone skoraði 24 stig og
Hornacek 23 stig.
Þetta var fyrsti ósigur San An-
tonio á heimavelli síðan 23. des-
ember og þá beið liðið einnig ósigur
fyrir Utah og hefur Utah því unniö
allar fjórar viðureignir liðanna á
tímabilinu. David Robinson skor-
aöi 32 stig fyrir San Antonio.
Divac kominn i gang
LA Lakers vann mjög óvæntan sig-
ur gegn Chicago á útivelli. Vlade
Divac skoraði 27 stig fyrir Lakers
og tók 11 fráköst, Nick Van Exel
22 stig og gamla brýnið James
Worthy 15 stig. ScottiePippen gerði
24 stig fyrir Chicago.
Miami sigraði Minnesota í fjörug-
um og framlengdum leik. Glen Rice
var með 33 stig fyrir Miami en hjá
Minnesota skoraði Christian La-
ettner 21 stig og tók 15 fráköst
Minnesota tapaði sínum 14. leik í
síðustu 16 leikjum.
Boston laut i lægra haldi fyrir
Cleveland i Boston Garden. Mark
Price var í miklum ham hjá Cleve-
land, skoraði 32 stig þarf 21 í fyrri
hálfleik. Sherman Douglas skoraði
25 stig fyrir Boston. Þetta var átt-
undi sigur Cleveland í röö sem lék
án þeirra Brad Daugherty, Larry
Nance og John Battle sem eru allir
meiddir.
Portland tók
Detroit í kennslustund
Portland tók Detroit í kennslu-
stund og skoraði Clyde Drexler 28
stig fyrir Portland og Clifford Rob-
ínson 27 stig. Terry Mills skoraði
30 stig fyrir Detroit sem beið þama
sinn fimmta ósigur x röð.
Dominique Wilkins skoraði 33
stig fyrir LA Clippers gegn Charl-
otte og Harold Ellis 23 stig. Frank
Brickowski skoraði 26 stig fyrir
Charlotte og Dell Curry 20.
Úrslit leikja í nótt:
Boston-Cleveland..........96-110
Detroit-Portland.........107-131
Chicago-LA Lakers..........89-97
Minnesota-Miami.........100-108
San Antonio-Utah Jazz....96-106
LA Clippers-Charlotte....118-96
-JKS
United í
banastuði
-komiöíúrslit
Manchester Urnted vann stórsigur,
1- 4, á Sheffield Wednesday í síðari
leik liðanna í undanúrslitum ensku
deildabikarkeppninnar í knatt-
spyrnu í gærkvöldi en liðin mættust
í Sheffield. United vann því, 5-1, sam-
anlagt.
Brian McClair og Andrei Kantsj-
elskis komu United í 0-2, David Hirst
minnkaði muninn en Mark Hughes
skoraði tvisvar og innsiglaði Manc-
hester United sem mætir Aston Villa
í úrslitaleik 27. mars.
Wolves úr 1. deild vann úrvals-
deildariið Ipswich, 1-2, og komst í
8-liða úrslit enska bikarsins. Lee
Mills og Andy Thompson skoruðu
fyrir Wolves en Steve Palmer fyrir
Ipswich. Charlton vann Bristol City,
2- 0.
Tottenham og Aston Villa skildu
jöfn, 1-1, í úrvalsdeildinni. Mark
Bosnich, markvörður Villa, varði
tvær vítaspymur. Gary Parker skor-
aði fyrir Villa en Ronnie Rosenthal
fyrir Tottenham. í 1. deild vann For-
est 2-0 sigur á Peterboro og Southend
og Millwall skildu jöfn, 1-1. -VS
Evrópumótin
í knattspyrnu
-8-liðaúrslit
Evrópukeppni meistaraliða
A-riöill:
Spartak Moskva - Barcelona ....2-2
Monaco - Galatasaray 3-0
Monaco.......3 2 0 1 7-3 4
Barcelona....3 1 2 0 4-2 4
Sp. Moskva....3 0 2 1 3-6 2
Galatasaray...3 0 2 1 0-3 2
B-riðiU:
AC Milan - Werder Bremen..2-1
Anderlecht -Porto.........1-0
ACMilan.......3 2 1 0 5-1 5
Anderlecht....3 1114-53
W.Bremen....3 1 0 2 8-8 2
Porto.......3 1 0 2 3-6 2
Evrópukeppni bikarhafa
Torino - Arsenal.......0-0
UEFA-btkarinn
Boavista - Karlsruhe...1-1
í kvöld
Visadeildin í körfuknattleik:
Keflavík - Skallagrímur....kl. 20
Handbolti - 2. deild, úrslit:
HK-ÍH...................kl. 20
Frafti - UBK............kl.20
Grótta - Fjölnir........kl.20
Ólafur með trimmhornið
ísland sigraði í norrænni trimmlandskeppni fatlaðra og aldraðra 1993 eins
og DV hefur áður sagt frá. Flugleiðir gáfu á sínum tíma veglegan verðlauna-
grip, trimmhornið, sem Ólafur Jensson, (ormaður íþróttasambands fatl-
aðra, sýnir á myndinni. DV-mynd Brynjar Gauti
Úrslitin
um sæti í
1. deilcfl
- þrír leikir 1 kvöld
Slagurinn um 1. deildar sæti í
handboltanum hefst í kvöld en þá
fara fram fyrstu leikirnir í úrslita-
keppni 2. deildar karla.
HK tekur 4 stig meö sér í úrslita-
keppnina, ÍH 2, Grótta 1 og Breiða-
blik, Fram og Fjölnir fara ekki með
stig með sér.
„Við erum óneitanlega með góða
stöðu en það má ekkert út af bera.
Við erum staðráðnir í að komast aft-
ur í 1. deildina en til þess að það tak-
ist þurfum við á öflugum stuðningi
áhorfenda aö halda í kvöld og í þeim
leikjum sem framundan eru,“ sagöi
Rögnvaldur Guðmundsson, formað-
ur handknattleiksdeildar HK, í sam-
tah við DV.
HK mætir ÍH í Digranesi í kvöld,
Grótta mætir Fjölni á Nesinu og
Fram leikur gegn Breiöabliki í Laug-
ardalshöll. Allir leikirnir hefjast
klukkan átta.
-SK
8-liða úrslit Evrópumóta félagsliða 1 knattspymu:
Góð staða hjá Milan,
Monaco og Barcelona
AC Milan, Monaco og Barcelona
stefna hraðbyri í íjögurra höa úrslit
Evrópukeppni meistarahða í knatt-
spymu þegar riðlakeppni 8-liða úr-
shtanna er hálfnuð. Anderlecht,
Bremen og Porto virðast ætla að bít-
ast um fjórða sætið.
Monaco tók forystuna í A-riðlinum
með 3-0 sigri á Galatasaray frá Tyrk-
landi. Enzo Scifo, Youri Djorkaeíf og
Júrgen Klinsmann skoraðu mörkin
á 16 mínútum í kringum leikhlé.
Barcelona er í öðru sæti eftir að
hafa misst niður tveggja marka for-
skot gegn Spartak í níu stiga frosti í
Moskvu. Christo Stoichkov og Rom-
ario komu Barcelona í 0-2 en á síð-
ustu 13 mínútunum náðu Sergei
Rodionov og Valeri Karpin að jafna,
2-2, fyrir Spartak.
Savicevic tryggði
AC Milan sigurinn
AC Milan er með tveggja stiga for-
ystu í B-riðlinum og sigraði Werder
Bremen frá Þýskalandi, 2-1, í Mílanó.
Paolo Maldini kom Milan yfir en
Mario Basler jafnaði fyrir Bremen
aðeins sex mínútum síðar. Svartfell-
ingurinn Dejan Savicevic skoraði
síðan sigurmark ítalanna á 68. mín-
útu eftir mikil mistök í þýsku vörn-
inni.
Anderlecht komst í annað sætið
með 1-0 sigri á Porto í Brussel. Luc
Nilis var hetja heimamanna því hann
skoraði sigurmarkið aðeins tveimur
mínútum fyrir leikslok.
Góð úrslit hjá Arsenal
Arsenal náði góðum úrslitum gegn
Torino á Ítalíu, 0-0 jafntefli, í Evr-
ópukeppni bikarhafa og var nær
sigri ef eitthvað var. Arsenal stendur
þar með ágætlega að vígi fyrir síðari
leikinn í London.
Karlsruhe frá Þýskalandi, sem
leikur í fyrsta skipti í Evrópukeppni,
náði 1-1 jafntefii gegn Boavista í
Portúgal í UEFA-bikamum. Ricky
Owubokiri kom Boavista yfir en Mic-
hael Wittwer jafnaði fyrir Karlsruhe
með glæsilegu marki.
-ÞS/VS
Ásgeir aftur með 300
- felldi allar keilumar öðru sinni á skömmum tíma
Ásgeir Þórðarson náði þeim frá- að fella hverja einustu keilu í ein- kvöldi en þá fór íram fyrsta umferð
bæra árangri i gærkvöldi að ná 300 um leik. , 1 íslandsmóti einstaklinga.
stigum í keilu og er þetta í annaö Þessum einstaka áfanga náði Ás- -SK
sinn á stuttum tiraa sem hann nær geir í Keilulandi í Garðabæ i gær-
Jordanvillstyrkja
Joe Jordan, framkvæmdastjóri
enska knattspyrnuliðsins Stoke
City, vill styrkja lið sitt enda er
félagið komiö í hóp efstu hða í 1.
deildinni og í baráttuna um úr-
valsdeildarsæti. Jordan hefur
augastað á Paddy Connolly, leik-
manni frá Dundee Utd.
Warhurstaðkomatil
Paul Warhurst hjá Blackburn
Rovers, sem fótbrotnaði fyrir
fimm mánuðum, er allur að koma
til og svo gæti farið að hann léki
með Blackbum gegn Liverpool
um næstu helgi.
850þúsundáviku
Peter Schmeichel, markvörður
Manchester United, sem af mörg-
um er talinn besti markvörður
heims, er sagður fá í laun sem
svarar 850 þúsund íslenskum
krónum á viku skrifi hann undir
nýjan samning við félagið. Samn-
ingurinn gildir til ársins 1998 og
skrifi Daninn snjalh xmdir samn-
inginn er hann orðinn hæst laun-
aði markvörður heims.
83 leikir í röd
Á laugardaginn, þegar United
gerði 2-2 jafntefli við West Ham,
lék Schmeichel sinn 83. leik í röð
í marki United sem er met á þeim
bænum en gamla metið átti Alex
Stepney. Síðan Daninn var keypt-
ur frá Bröndby árið 1991 hefur
hann haldið marki United hreinu
í 65 leiki.
Andersen tekin í sátt
Anja Andersen, sem rekin var
úr danska kvennalandsliðinu í
handbolta eftir heimsmeistara-
keppnina, hefur verið tekin í sátt
og er farin að leika að nýju.
TorvilleogDean
Breska skautaparið Jayne Tor-
vill og Christopher Dean, sem
varð í þriðja sæti á ólympíuleik-
unum í Lillehammer, ætlar ekki
aö vera með á heimsmeistara-
mótinu sem hefst í Japan í næsta
mánuði. Þau ætla þess í stað að
einbeita sér að atvinnumanna-
ferli sínum í íþróttinni.
Forsala hjá FH-ingum
FH-ingar eru með forsölu vegna
bikarúrslitaleiksins gegn KA sem
fram fer á laugardaginn. Forsal-
an er í Kaplakrika frá klukkan
16 til 22. Þá ætla Hagvagnar að
vera með fríar feröir á bikarleik-
inn klukkan 15.30 frá Kaplakrika.
Stuðningsmenn FH
Stuðningsmannaklúbbur FH
ætlar að hittast í veitingahúsinu
A. Hansen á laugardaginn klukk-
an 13. Rúta kemur síðan og sækir
hópinn. Allir stuðningsmenn FH
eru minntir á að mæta á völlinn
í félagalitunum.
Badmintonlandslið U-18
Norðurlandameistaramót U-18
ára í badminton fer fram í Bergen
í Noregi um helgina. íslenska
landsliðið er skipað eftirtöldum:
Vigdís Ásgeirsdóttir, TBR,
Margrét Dan Þórisdóttir, TBR,
Brynja Pétursdóttir, ÍA, Tryggvi
Nielsen, TBR, Njörður Ludvigs-
son, TBR, og Orri Örn Ámason,
TBR. Þjálfari liðsins er Karsten
Thomsen.
FremogB1909út
Frem og B1909, tvö af þekktustu
knattspymufélögum Danmerk-
ur, hafa verið rekin úr deilda-
keppninni vegna fjárhagsörðug-
leika og verða að byrja upp á
nýtt í héraðsdeildum.
St. Johnstone áfram
St. Johnstone sigraði Stirling
Albion, 0-2, í skosku bikarkeppn-
inni í knattspyrnu í gærkvöldi.
-GH/VS