Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1994, Blaðsíða 28
40
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1994
Fréttir
Fjárhagsáætlun Selfoss:
Framkvæmt fyrir
eigið fé á árinu
Kristján Einarsson, DV, SeUossi:
Á fundi bæjarstjómar Selfoss í lok
febrúar var lögð fram til fyrri um-
ræðu tillaga að fjárhagsáætlun Sel-
fossbæjar fyrir 1994. Áætlaðar skatt-
tekjur era kr. 400,4 millj. og nettó
rekstur málafokka án fjármagns-
tekna og gjalda nemur kr. 290,7 miUj.
Að teknu tilliti til greiðslubyrði
lána er áætlaður afgangur til fram-
kvæmda og fjárfestinga 73,7 millj. kr.
Samkvæmt tiUögunni verða ný lán
sama upphæð og afborganir lána
þannig að í raun verður skuldastöð-
unni haldið óbreyttri og framkvæmt
er fyrir eigið fé.
HeUdarframkvæmdir og fjárfest-
ingar nema kr. 92,3 miUj. Stærsta
fjárveitingin er kr. 24,5 miUj. tíl að
ljúka byggingu þjónustuíbúða fyrir
aldraða við Grænumörk. Þar eru 24
íbúðir sem komast í gagnið ásamt
tæplega 1000 m2 þjónusturými í vor.
TU byggingar 2. áfanga Fjölbrauta-
skóla Suöurlands verður varið 13,7
miUj. kr. og tU lagningar bundins sUt-
lags, gangstétta- og gatnagerðar-
Karl Björnsson bæjarstjóri.
framkvæmda 18,1 miUj. kr.
Að sögn Karls Bjömssonar bæjar-
stjóra er gætt aðhalds við rekstur
bæjarfélagsins og leitast við að fram-
kvæma fyrir eigið fé í ár. Undantekn-
ing frá þeirri reglu var á síðasta ári
þegar ráðist var í miklar fram-
kvæmdir sem fjármagnaðar voru að
hluta með lántökum. Það var gert tíl
að eUa atvinnu í bænum og skapa
störf á vegum bæjarfélagsins.
„Þetta var mögulegt á síðasta ári
vegna þess að árin á undan höfðum
við greitt lán bæjarins niður um tugi
miUjóna króna og var því lántöku-
geta bæjarsjóðs fyrir hendi. Slikt er
þó ekki unnt að endurtaka núna svo
við verðum að sætta okkur við tak-
markaðar framkvæmdir í ár,“ sagði
Karl.
Þess má geta að mikUl uppgangur
hefur verið hér undanfarin ár og
mikið hefur verið byggt á vegum
einkaaðUa og þess opinbera, bæði
íbúðarhúsnæði og skrifstofu-, þjón-
ustu- og iðnaðarhúsnæði. Fólksfjölg-
un hefur verið stöðug og búa nú um
4000 íbúar í þessum höfuðstað Suður-
lands; miðstöð verslunar, stjómsýslu
og þjónustu í landshlutanum.
Síðari mnræða um fjárhagsáætlun
verður 9. mars og bjóst bæjarstjóri
ekki við miklum breytingum.
Ferðamálafélag í Mýrdalshreppi
Páll Péturssan, DV, Vik í Mýrdal:
Ferðamálafélag Mýrdalshrepps
var nýlega stofnað á fundi áhuga-
fólks um ferðamál í Víkurskála í Vík
í Mýrdal.
Félagið mynda einstaklingar, fyrir-
tæki og stofnanir í Mýrdalshreppi og
hefur þann tilgang að treysta undir-
stöðu ferðaþjónustu í hreppnum með
samvinnu og samstarfi þeirra aðila
sem sinna þjónustu við ferðamenn
og standa vörð um hagsmuni þeirra.
Eitt af því sem félagsmenn stefna
að er að efla umræðu meðal
hreppsbúa um mikilvægi þess að
vemda undirstöðu ferðaþjónustu,
hreint og ósnortið land, sögulegar
minjar, náttúruminjar og sérkenni í
framleiðslu og rnenningu Mýrdæl-
inga.
A fundinum kynnti Erla Ivarsdótt-
MOULINEX
örbylgjuofnar með
snúningsdiski létta
heimilisstörfin í ys og erli
dagsins.
MOULINEX
örbylgjuofnar hraðvirk
heimilisaðstoð.
Pppst í nosstu
ranÍkia^rs!^
UMBODS OQ HErt.DVfcRSt.UN‘
SlMI 91-24020 FAX 91-623145
ir, formaður Ferðamálafélags Skaft-
árhrepps, stefnumótunarvinnu í
ferðaþjónustu sem unnin var í Skaft-
árhreppi 1992. Kynnti hvernig ferða-
þjónustuaðilar þar skoðuðu sína
möguleika markvisst og settu fram
stefnu í ferðamálum fyrir svæðið.
Eitt af markmiðum nýja félagsins
er að vinna í samstarfi við sveitar-
stjóm að stefnumótun í ferðaþjón-
ustu í sveitarfélaginu, líkt og gert var
í Skaftárhreppi fyrir tveimur árum.
Stjórn félagsins skipa Þórir N.
Kjartansson, framkvæmdastjóri
Víkurpijóns, Kolbrún Hjörleifsdótt-
ir, eigandi gistihússins Ársala í Vík,
og Gísli D. Reynisson, framkvæmda-
stjóri Mýrdælings.
Menning
Athyglisverð sýning í óvenjulegu umhverfi sem smellpassar fyrir verkið.
Beðið
eftir...
Vörulyftan eftir Harold Pinter er leikrit sem sver sig í ætt við ýmis
önnur verk hans. Það er skrifað snemma á ferh hans, árið 1960, og lýsir
samskiptum tveggja náunga sem bíða eför þvi að leysa af hendi eitthvert
ótilgreint verkefni.
Þeir eru heldur ólánlegir og taugatrekktir, hafa greinilega orðið undir
í lífinu og reyna að bæta sér það upp með þvi að mikla fyrir sér hlutverk
sitt 1 þessu „verkefni". Áhorfandinn fær smátt og smátt skýrari mynd
af þeim í gegnum snjallan og vel saminn texta.
Pinter spilar líka á þagnirnar, til ________________________________
Leiklist
Auður Eydal
dæmis er langur upphafskafli án
orða. En einmitt þar byrja áhorf-
endur að kynnast þessum persón- _
um sem hægt og hægt fá sín ein-
staklingseinkenni. Jafnframt er __________________________________________
varpað ljósi á samband þeirra.
Upplýsingar um þá og hvað þeir eru yfirleitt að gera þarna eru annars
af skomum skammti. I loftinu liggur einhver óáþreifanleg ógn en samt
eru aðstæður þessara manna næsta skoplegar. Víða bregður fyrir kaldr-
analegum húmor, sérstaklega í fyrri hlutanum.
Eftir þvi sem hður á verkið skýrast línuraar nokkuð. Þegar upp er stað-
ið blasir við mynd af mannlegum samskiptum og meinlegum aðstæðum
sem í aðra röndina eru í hæsta máta fáránlegar.
Efni verksins og vaxandi spenna í andrúmsloftinu kemst vel til skila í
leikstjórn Péturs Einarssonar. íslenska leikhúsið færir verkið upp í eld-
húsi veitingahúss, þar sem eitt sinn var Þórskaffi. Umhverfið er gert
nöturlegt.og niðumítt og smehpassar fyrir verkið með smátilfæringum.
Gunnar Borgarsson sér um ágæta útfærslu á leikmyndinni og Hilmar
Örn Hilmarsson semur hljóðmynd sem undirstrikar óræða ógn verksins.
Hahdór Bjömsson leikur Ben. Hann reynir að breiða yfir óstyrk sinn
og spila sig töffaralegan. í samskiptunum við Gus þykist hann vera sval-
ur náungi og hafa í fuhu tré við hann þó að hann breytist í auðmjúka
undirlægju í samskiptum við aðra. Hahdór mótar persónuna ágætlega
og byggir upp ákveðna mynd en er þó óþarflega eintóna framan af. Þórar-
inn Eyfjörð leikur Gus. Hann er einfold og úthverf persóna og ennþá
trekktari en Ben. Þórarinn nær vel að draga upp mynd af manni á barmi
taugaáfahs þó að áherslumar megi ekki vera öhu sterkari á stundum.
Sýningin á Vörulyftunni er góð viðbót við fyrri sýningar á verkum Pint-
ers. Athyglisverð sýning í óvenjulegu umhverfi.
íslenska leikhúsið sýnir í Hinu húsinu:
Vðrulyftuna.
Höfundur: Harold Pinter.
Leikstjóri: Pétur Einarsson.
Þýóandi: Gunnar Þorsteinsson.
Leikmynd: Gunnar Borgarsson.
Lýsing: Sigurður Guðmundsson.
Hljóðmynd: Hilmar Örn Hilmarsson.
Þeir sem fa DV i postkassann neglulega geta
átt von á þrjátíu þúsund krána matarkðpfu
Áskriftargetraun DV
gefur skilvísum
áskrifendum, nýjum
og núverandi,
möguleika á að vinna
þrjátíu þúsund króna matar-
körfu að eigin vali. Sex matar-
körfur á mánuöi eru dregnar út,
hver að verömæti 30 þúsund
króna. Tryggðu þér DV í póst-
kassann á hverjum degi og þar
með greiðan aðgang að lifandi og
fjölbreyttum fjölmiðli og sjálfkrafa
þátttökurétt í áskriftargetrauninni.
DV - hagkvæmt blað.
632700