Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1994, Page 31
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1994
43
Fjölmiðlar
Eróbikkið
er lausnin
Samkvæmt venju var umræöu-
þáttur Völu og Ingós í gærkvöldi
í hughreystandi og upplýsandi
stíl fyrir áhorfendur. Hópurinn
sem var í þættinum var heldur í
fjörugra lagi og umræðurnar
ekki mjög formlegar og stífar eins
og stundum verður en það skap-
ast af feimni þátttakenda við að
láta Ijós sitt skina án þess aö vera
beinlínis spurðir. En það var í
samræmi við hugsunarhátt mjög
margra okkar íslendinga hve
fólkið í gærkvöldi var lengi að
komast að niðurstöðu um um-
ræðuefnið sem var ofíltuvanda-
mál - regluleg hreyfing og sæmi-
iega skynsamlegt mataræöi hlýt-
ur að teljast lausnin fyrir þá sem
eru eitthvað ósáttir viö sjálfa sig
- ekki megrunarkúrar, patent-
fæði eða fitusog. Heilsumolinn
Ragnar Tómasson, sem nýlega
gaf út bók um líkamsrækt og
hreysti, helði sómt sér vel í þætt-
inum í gærkvöldi. Hann er sá
fyrsti sem rýnir hefur heyrt segja
lausnina á einfaldan hátt: Menn
eru eins og dýrin skapaöir til þess
að hreyfa sig og teygja.
óttar Sveinsson
Jardarfarir
Guðmundur Björgvin Kristinsson
lést af slysförum aðfaranótt 27. fe-
brúar. Jarðarförin fer fram frá
Garðakirkju föstudaginn 4. mars kl.
10.30.
Kristjón Guðbrandsson, Skaftárvöll-
um 13, Kirkjubæjarklaustri, varð
bráðkvaddur 26. febrúar. Jarðsett
verður frá Prestbakkakirkju á Síðu
laugardaginn 5. mars kl. 14.
Gíslína S. Gísladóttir, Vallargerði 27,
áður Einholti 11, lést 20. febrúar í St.
Jósefsspítala í Hafnarfirði. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Aðalheiður Magnúsdóttir, Hjallavegi
31, verður jarðsungin frá Áskirkju á
morgun, föstudaginn 4. mars kl. 15.
Bergljót Guðmundsdóttir, Kársnes-
braut 66, Kópavogi, verður jarðsung-
in frá Kópavogskirkju föstudaginn
4. mars kl. 15.
Pétur Kristjánsson, fyrrverandi
kaupmaður, verður jarðsunginn frá
Dómkirkjunni föstudaginn 4. mars
kl. 15.
Björgvin Sigurðsson hæstaréttarlög-
maður verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni föstudaginn 4. mars kl.
13.30.
Þorleifur Árni Reynisson, Miðskóg-
um 24, Álftanesi, verður jarðsunginn
frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
föstudaginn 4. mars kl. 13.30.
Regina Gunnarsdóttir, Fannborg 7, ■
Kópavogi, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju föstudaginn 4. mars
kl. 13.30.
Andlát
Jóhannes Fr. Sigurðsson húsasmið-
ur, Löngumýri 57, Garðabæ, lést í
Landspítalanum sunnudaginn 27.
febrúar.
Jón Sævar Arnórsson skipstjóri,
Engjaseli 83, varð bráðkvaddur 28.
febrúar.
Kúrt Sonnenfeld tannlæknir,
Munkaþverárstræti 11, Akureyri,
léstað kvöldi28. febrúar í Fjórðungs-
sjúkrahúsinu á Akureyri.
Erlendur Ólafsson frá Jörfa, Stiga-
hlíð 12, er látinn.
694100
Tókstu eftir því að ég gaf þér koffeinlaust kaffi
í morgun?
Lalli og Lína
Slökkvilið-lögregla
Reykjavík: Lögreglan sími 11166 og
0112, slökkvilið og sjúkrabifreið sími
11100.
Seltjarnarnes: Lögreglan s. 611166,
slökkvilið og sjúkrabifreið s.11100.
Kópavogur: Lögreglan sími 41200,
slökkvilið og sjúkrabifreið sími 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan sími 51166,
slökkvilið og sjúkrabifreið simi 51100.
Keflavík: Lögreglan s. 15500, slökkvilið
s. 12222 og sjúkrabifreiö s. 12221.
Vestmannaeyjar: Lögreglan s. 11666,
slökkvilið 12222, sjúkrahúsið 11955.
Akureyri: Lögreglan s. 23222, 23223 og
23224, slökkvilið og sjúkrabifreið s.
22222.
Ísaíjörður: Slökkviliö s. 3300, brunas.
og sjúkrabifreið 3333, lögreglan 4222.
Apótek
Nætur- og helgidagaþjónusta apótekanna
í Reykjavík 25. febr. til 3. mars 1994, að
báðum dögum meðtöldum, verður í
Reykjavikurapóteki, Austurstræti 16,
sími 11760. Auk þess verður varsla í
Borgarapóteki, Álftamýri 1-5, sími
681251, kl. 18 til 22 virka daga.
Upplýsingar um læknaþjónustu eru gefn-
ar í síma 18888.
Mosfellsapótek: Opið virka daga frá
kl. 9-18.30, laugardaga kl. 9-12.
Apótek Garðabæjar: Opið mánudaga-
föstudaga kl. 9-18.30 og laugardaga kl.
11-14. Sími 651321.
Apótek Kópavogs: Opið virka daga frá
kl. 9-19, laugardaga kl. 9-12.
Hafnarfjörður: Noröurbæjarapótek
opið mánud. til fimmtud. kl. 9-18.30,
Hafnaríj arðarapótek kl. 9-19. Bæði hafa
opið fostud. kl. 9-19 og laugard. kl. 10-14
og til skiptis helgidaga kl. 10-14. Upplýs-
ingar í símsvara 51600 og 53966.
Apótek Keflavíkur: Opið frá kl. 9-19
virka daga, aðra daga frá kl. 10-12 f.h.
Nesapótek, Seltjarnarnesi: Opið virka
daga kl. 9-19 nema laugardaga kl. 10-12.
Apótek Vestmannaeyja: Opið virka
daga kl. 9-12.30 og 14-18. Lokaö laugar-
daga og sunnudaga.
Akureyrarapótek og Stjörnuapótek,
Akureyri: Á kvöldin er opið í því apó-
teki sem sér um vörslun til kl. 19. Á
helgidögum er opiö kl. 11-12 og 20-21. Á
öðrum tímum er lyfjafræðingur á bak-
vakt. Upplýsingar í síma 22445.
Heilsugæsla
Slysavarðstofan: Sími 696600.
Sjúkrabifreið: Reykjavík, Kópavogur
og Seltjamames, sími 11100,
Hafnarfjörður, sími 51328,
Keflavík, sími 20500,
Vestmannaeyjar, sími 11955,
Akureyri, sími 22222.
Krabbamein - Upplýsingar fást hjá fé-
lagsmálafulltrúa á miðvikudögum og
fimmtudögum kl. 11-12 í síma 621414
Læknar
Læknavakt fyrir Reykjavík, Seltjarn-
arnes og Kópavog er í Heilsuvemdar-
stöð Reykjavíkur alla virka daga frá kl.
17 til 08, á laugardögum og helgidögum
allan sólarhringinn. Vitjanabeiðnir,
símaráðleggingar og tímapantanir í
simi 21230. Upplýsingar um lækna og
lyfjaþjónustu í símsvara 18888.
Borgarspítalinn: Vakt frá kl. 8-17 alla
virka daga fyrir fólk sem ekki hefur
heimilislækni eða nær ekki til hans (s.
696600) en slysa- og sjúkravakt (slysa-
deild) sinnir slösuöum og skyndiveik-
um allan sólarhringinn (s. 696600).
Seltjarnarnes: Heilsugæslustöðin er
opin virka daga kl. 8-17 og 20-21, laugar-
daga kl. 10-11. Sími 612070.
Hafnarfjörður, Garðabær, Álftanes:
Neyöarvakt lækna frá kl. 17-8 næsta
morgun og um helgar, sími 51100.
Keflavík: Neyðarvakt lækna frá kl. 17-8
næsta morgun og um helgar. Vakthaf-
andi læknir er í síma 20500 (sími Heilsu-
gæslustöðvarinnar).
Vestmannaeyjar: Neyöarvakt lækna í
síma 11966.
Akureyri: Dagvakt frá kl. 8-17 á Heilsu-
gæslustööinni í síma 22311. Nætur- og
helgidagavarsla frá kl. 17-8, sími (far-
sími) vakthafandi læknis er 985-23221.
Upplýsingar hjá lögreglunni í síma
23222, slökkviliðinu í síma 22222 og
Akureyrarapóteki í síma 22445.
Heimsóknartíini
Landakotsspítali: Alla daga frá kl.
15-16 og 18.30-19. Bamadeild kl. 14-18,
aðrir en foreldar kl. 16-17 daglega. Gjör-
gæsludeild eftir samkomulagi.
Borgarspítalinn: Mánud.-föstud. kl.
18.30-19.30. Laugard.-sunnud. kl. 15-18.
Heilsuverndarstöðin: Kl. 15-16 og
18.30-19.30.
Fæðingardeild Landspítalans: Kl.
15-16 og 19.30-20.00.
Sængurkvennadeild: Heimsóknartími
frá kl. 15-16, feður kl. 19.30-20.30.
Fæðingarheimili Reykjavíkur: kl.
15-16.30
Kleppsspítaiinn: Kl. 15-16 og 18.30-
19.30.
Flókadeild: Kl. 15.30-16.30.
Grensásdeiid: Kl. 16-19.30 virka daga
og kl. 14-19.30 laugard. og sunnud.
Hvítabandið: Frjáls heimsóknartími.
Kópavogshælið: Eftir umtali og kl.
15-17 á helgum dögum.
Sólvangur, Hafnarfirði: Mánud.-laug-
ard. kl. 15-16 og 19.30-20. Sunnudaga
og aðra helgidaga kl. 15-16.30.
Landspítalinn: Alla virka daga kl. 15-16
og 19-19.30.
Barnaspítali Hringsins: Kl. 15-16.
Sjúkrahúsið Akureyri: Kl. 15.30-16 og
19-19.30.
Sjúkrahúsið Vestmannaeyjum: Kl.
15-16 og 19-19.30.
Sjúkrahús Akraness: Kl. 15.30-16 og
19-19.30.
Hafnarbúðir: Kl. 14-17 og 19-20.
Vífilsstaðaspitali: Kl. 15-16 og 19.30-20.
Geðdeild Landspítalans Vífilsstaða-
deild: Sunnudaga kl. 15.30-17.
Söfnin
Ásmundarsafn við Sigtún. Opið dag-
lega kl. 13-16.
Ásgrímssafn, Bergstaðastræti 74: Op-
ið daglega nema mánudaga kl. 13.30-16.
Árbæjarsafn: Opiö í júní, júlí Og ágúst.
Upplýsingar í síma 84412.
Borgarbókasafn Reykjavikur
Aðalsafn, Þingholtsstræti 29a, s. 27155.
Borgarbókasafnið í Gerðubergi 3-5, s.
79122.
Bústaðasafn, Bústaðakirkju, s. 36270.
Sólheimasafn, Sólheimum 27, s. 36814.
Ofangreind söfn eru opin sem hér segir:
mánud.-fimmtud. kl. 9-21, fóstud. kl.
9- 19, laugard. kl. 13-16.
Aðalsafn, lestrarsalur, s. 27029. Opið
mánud.-laugard. kl. 13-19.
Grandasafn, Grandavegi 47, s.27640.
Opið mánud. kl. 11-19, þriðjud.-fóstud.
kl. 15-19.
Seljasafn, Hólmaseb 4-6, s. 683320.
Bókabílar, s. 36270. Viðkomustaðir viðs
vegar um borgina.
Sögustundir fyrir böm:
Aðalsafn, þriðjud. kl. 14-15. Borgar-
bókasafnið í Gerðubergi, flmmtud. kl.
14-15. Bústaðasafn, miðvikud. kl.
10- 11. Sólheimar, miðvikud. kl. 11-12.
Lokað á laugard. frá 1.5.-31.8.
Vísir fyrir 50 árum
Fimmtud. 3. mars
Flugvirki ráðast á Berlín.
______________Spakmæli___________________
Maðurinn getur ekki frekar lifað án andlegs lífs
en kertið brunnið án logs. Andinn dvelur í brjósti
allra, en það eru ekki allir sem gera sér grein
fyrir því.
Brahmafræði.
Kjarvalsstaðir: opið daglega kl. 11-18.
Listasafn íslands, Fríkirkjuvegi 7:
er opið daglega nema mánud. kl. 12-18.
Listasafn Einars Jónssonar. Opið
laugardaga og sunnudaga kl. 13.30-16.
Höggmyndagarðurinn er opinn alla
daga.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar á
Laugarnesi er opið mánud.-fimmtud.
kl. 20-22 og um helgar kl. 14-18. Kaffi-
stofan opin á sama tíma.
Náttúrugripasafnið við Hlemmtorg:
Opið sunnud., þriðjud., fimmtud. og
laugard. kl. 13.30-16.
Norræna húsið við Hringbraut: Sýn-
ingarsalir í kjallara: alla daga kl. 14-19.
Bókasafn Norræna hússins: mánud. -
laugardaga kl. 13-19. Sunnud. kl. 14-17.
Sjóminjasafn tslands er opiö daglega
kl. 13-17 júní-sept.
J. Hinriksson, Maritime Museum, Sjó-
og vélsmiðjuminjasafn, Súöarvogi 4, S.
814677. Opiðkl. 13-17þriðjud.-laugard.
Þjóðminjasafn íslands. Opið daglega
15. maí - 14. sept. kl. 11-17. Lokað á
mánudögum.
Stofnun Árna Magnússonar: Hand-
ritasýning í Ámagarði við Suðurgötu
opin virka daga kl. 14-16.
Lækningaminjasafnið í Nesstofu á Sel-
tjamamesi: Opið kl. 12-16 þriðjud.,
fimmtud., laugard. og sunnudaga.
Bilanir
Rafmagn: Reykjavík, Kópavogur og
Seltjamarnes, sími 686230.
Akureyri, sími 11390.
Keflavík, sími 15200.
Hafnarfjörður, sími 652936.
Vestmannaeyjar, sími 11321.
Hitaveitubilanir:
Reykjavík og Kópavogur, sími 27311,
Seltjarnarnes, sími 615766.
Vatnsveitubilanir:
Reykjavík sími 621180.
Seltjamarnes, sími 27311.
Kópavogur, sími 985 - 28078
Akureyri, sími 23206.
Keflavík, sími 11552, eftir lokun 11555.
Vestmannaeyjar, símar 11322.
Hafnarfjörður, sími 53445.
Símabilanir: í Reykjavík, Kópavogi,
Seltjamarnesi, Akureyri, Keflavík og
Vestmannaeyjum tilkynnist í 05.
Bilanavakt borgarstofnana, simi
27311: Svarar alla virka daga frá kl. 17
síödegis til 8 árdegis og á helgidögum
er svarað allan sólarhringinn.
Tekið er viö tilkynningum um bilanir á
veitukerfum borgarinnar og í öðrum
tiifellum, sem borgarbúar telja sig þurfa
að fá aðstoð borgarstofnana.
Tilkyniiingar
AA-samtökin. Eigir þú við áfengis-
vandamál að stríða, þá er sími samtak-
anna 16373, kl. 17-20 daglega.
Leigjendasamtökin Hverfisgötu 8-10,
Rvík., sími 23266.
Liflínan, Kristileg símaþjónusta. Sími
91-683131.
Stjömuspá
Spáin gildir fyrir föstudaginn 4. mars
Vatnsberinn (20. jan.-18. febr.):
Sumir atburðir dagsins hafa sem betur fer minni þýðingu en í
fyrstu virðist. Mótaðu stefnu þína og verk staðfastur. Happatölur
eru 10, 21 og 32.
Fiskarnir (19. febr.-20. mars.):
Þú nærð betri árangri en þeir sem næstir þér standa. Þú lætur
því ljós þitt skína og hlýtur lof fyrir. Nýtt þér stöðuna sem best
þú getur.
Hrúturinn (21. mars-19. apríl):
Hagsmunir annarra verða ofan á. Þú verður að sætta þig við þá
leið sem þeir velja. Leyndardómsfullt mál upplýsist.
Nautið (20. apríI-20. maí):
Spenna er í loftinu. Þú verður beittur þrýstingi og hefur ekki
nægan tíma fyrir það sem gera þarf. Einhver fer í taugamar á þér.
Tvíburarnir (21. maí-21. júní):
Þú verður að vera staðfastur til þess að ná árangri. Aðrir slá slöku
við. Þú nýtur þess að hafa gert ákveðnum aðila greiða fyrir
nokkru.
Krabbinn (22. júni-22. júlí):
Reyndu að leysa þau vandamál sem þú átt við að stríða. Taktu á
þeim málum sem eriiðast hefur verið að leysa og reyndu að ná
samkomulagi.
Ljónið (23. júIi-22. ágúst):
Aðstæður allar eru í jafnvægi. Það gefst því tími til að sinna
tengslum við þá sem standa þér næst. Happatölur eru 5,16 og 25.
Meyjan (23. ágúst-22. sept.):
Allt er heldur rólegt hjá þér. Ljúktu hefðbundnum málum svo
þú hafir tíma fyrir nýjar hugmyndir sem snerta heimilið.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
Þróun sem hefur valdið þér vonbrigðum snýst nú til betri vegar.
Þú byrjar upp á nýtt og bætir samband þitt við aðra.
Sporðdrekinn (24. okt.-21. nóv.):
Ýmislegt er að gerást án þess að þú náir að hafa áhrif þar á. Þessi
þróun verður þér engu að síður hagstæð. Þú hugleiðir ferðalag.
Bogmaðurinn (22. nóv.-21. des.):
Framþróun mála er hæg fyrri hluta dags. Aðrir virðast annars
hugar og lítið á þeim að græða. Ástandiö batnar síðdegis.
Steingeitin (22. des.-19. jan.):
Dagurinn verður þér hagstæður. Þú treystir á sjálfan þig og nærð
árangri. Lítið þýðir að treysta á aðra. Hegðun ákveðins aðila er
sérkennileg.
Ný stjörnuspá á hverjum degl. Hringdu! 39,90 tr. mínútan
Ijóuié 23. |úlí ■ 22. ágúst
Teleworld ísland
.
■?