Dagblaðið Vísir - DV - 03.03.1994, Page 33
FIMMTUDAGUR 3. MARS 1994
45
oo
Auður Bjarnadóttir dansari.
Frumsýning
íslenska
dansflokksins
Listdanssýning eftir Auði
Bjamadóttur við flautukonsert
Atla Heimis Sveinssonar verður
frumsýnd í Þjóðleikhúsinu í
kvöld. Þetta er í fyrsta sinn sem
Listdans
Auður semur fyrir flokkinn og
gætir töluverðrar eftirvæntingar.
Auður starfaði áður sem dansari
í flokknum og var einn af stofn-
endum hans. Hún hefur hin síð-
ari ár fengist við danssmíðar og
er skemmst að minnast verksins
„Ertu svona kona?“ sem fært var
upp í Þjóðleikhúsinu á Lástahátíð
1992. Verkið „Skapanomimar"
samdi Auður fyrir Kvennaráö-
stefnu í Ósló 1988 og hún er með
eitt verk í smíðum, „Jörfagleð-
ina“. Það verk verður sýnt hjá
Svöluleikhúsinu sem Auður
stofnaði ásamt manni sínum,
Hákoni Leifssyni tónhstarmanni.
Fmmsýningin er kl. 20.00 í
Þjóðleikhúsinu. Sviðsmynd og
búningar em í höndum Karls
Aspelund.
Tryggvi Amason.
Aukninghjá
Jöklaferðum
Júlía Imslaiid, DV, Höfo;
Jöklaferðir hf. á Höfn verða níu
ára í maí næstkomandi. Umsvif
fyrirtækisins hafa aukist ört, sér-
staklega síðastliðin 5 ár.
„Það vom tveir á launaskrá hjá
fyrirtækinu í tvo mánuði fyrsta
árið,“ segir Tryggvi Ámason
framkvæmdastjóri, „og þá fórum
við með 250 manns upp á Skála-
fellsjökul en síðasthðið sumar
Glæta dagsins
vom starfsmenn 14 og um 7000
manns ferðuðust á vegum Jökla-
ferða. Á jöklinum er boðið upp á
sjávarréttahlaöborð á ísborðum á
jöklinum."
Jöklaferðir hafa boðið upp á
hvalaskoðunarferðir með fiski-
bátum ásamt ferð á jökuhnn og
er orðin mikil eftirspum eftir
þeim.
„Miðað við pantanir í ár verður
mikil aukning frá síöasta ári og
í sumar veröa 20 manns fastráðn-
ir. Fyrstu árin vora viöskiptavin-
ir Jöklaferða um 90% erlendir
ferðamenn en í fyrra var hlutur
íslendinga kominn í 30%,“ segir
Tryggvi.
Færðá
vegum
Á Vestfiörðum er verið að moka
Breiðadals- og Botnsheiðar og á
Austfiörðum er verið aö moka Vatns-
Umferðin
skarð eystra. A sunnan- og vestan-
verðu landinu hefur gengið á með
snjóéljum og þvi hálka mjög víða á
vegum. Færð er að öðm leyti góð á
öhum helstu þjóðvegum landsins.
Astand vega c'ÍSlj /
ki 1' .Woé ú vL i
> feá .X Áí'' ./%< ím»—\ J73K|
%rjd
K 4x3Í
níh
G3 Hálka og snjór ® Vegavinna-aðgát S Öxulþungatakmarkanir
Blúsbarinn:
Blúsbarmn býður gestum sinum
upp á tónleika með KK-bandinu í
kvöld. Ekki er langt siðan KK-
bandið tróð síðast upp á Blúsbam-
um en venjulega er barinn troðfuh-
ur þegar þeir koma fram.
Á þessum tónleikum mun KK-
bandið spila lög af nýjum og göml-
umplötum sínum, Lucky One, Bein
leið og Hotel Föroyar.
En það er ekki bara tónlist af plöt-
unum sem trekkir heldur sú góöa
blússtemning sem þeir félagar ná
upp þegar þeir taka úrvalið frá
bandarískum blúsuram.
Fyrir utan forsprakkann, Krist-
KK-bandið með Kristján i fararbroddi.
ján Kristjánsson, skipa KK-bandið
þeir Kormákur Geirharðsson, Þor-
leifur Guðjónsson og síðast en ekki
síst Björgvin Gíslason.
Þessi myndarlegi drengur fædd- grömm við fæðingu og mældist 53
ist á Landspítalanum klukkan 9.00 sentímetrar. Foreldrar hans era
að morgni 1. mars. Hann vó 4.130 Bryndis Hulda Kristinsdóttir og
----------------- Snorri Guðmundsson. Hann á eina
eldri systur sem heitir Snædís og
erfimmára.
Jakob Ingimundarson sem
Mörður Hallstað.
Kaoskvöld á
Bíóbamum
Á Bíóbamum í kvöld ætlar
kvikmyndafélagið Kaos að
standa fyrir svoköhuðu Kaos-
kvöldi þar sem framsýndar verða
þijár stuttmyndir.
Kaos samanstendur af tíu aðil-
um sem allir eiga það sameigin-
legt að hafa áhuga á kvikmynd-
um og gerð þeirra. Ætlunin hjá
þeim Kaosmönnum í framtíðinni
Bíóíkvöld
er að standa fyrir Kaoskvöldum
þar sem afrakstur félagsmanna
verður sýndur. Myndimar þrjár,
sem sýndar verða, era: Harðsoð-
in, grínspennumynd undir leik-
stjóm Óskars Þ. Axelssonar;
Kafii, spjah og sígarettur, mynd
sém byggð er á sönnum atburð-
um og leikstýrt af Þóri S. Sigur-
jónssyni, og The Story of little
Albert sem er sálfræðileg
spennumynd eftir Vihjálm A.
Halldórsson.
Nýjar myndir
Háskólabíó: í nafni föðmins
Stjömubíó: Fleiri pottormar
Laugarásbíó: Dómsdagur
Bíóhölhn: í loftinu
Bíóborgin: Hús andanna
Saga-bíó: Svalar ferðir
Regnboginn: Far vel, frilla mín
Gengið
Almenn gengisskráning Ll nr. 63.
03. mars 1994 kl. 9.15
Eining Kaup Sala Tollgengi
Dollar 72.330 72,530 72,670
Pund 108,220 108,520 107,970
Kan. dollar 53,400 53,610 53,900
Dönsk kr. 10,8210 10,8590 10.8210
Norsk kr. 9,7650 9,8000 9,7770
Sænsk kr. 9,0240 9,0560 9,0670
Fi. mark 13,0410 13,0930 13,0890
Fra. franki 12,4450 12,4880 12,4810
Belg. franki 2,0562 2,0644 . 2,0609
Sviss. franki 50,5400 50,6900 50,8600
Holl. gyllini 37,7400 37,8700 37,7700
Þýskt mark 42,3700 42,4900 42,4000
lt. líra 0,04290 0,04308 0,04297
Aust. sch. 6,0200 6,0440 6,0300
Port. escudo 0,4136 0,4152 0,4168
Spá. peseti 0,5166 0,5186 0,5209
Jap. yen 0,69670 0,69880 0,69610
irskt pund 103,660 104,080 103.740
SDR 101,41000 101,82000 101,67000
ECU 81,8700 82,1600 82,0600
Símsvari vegna gengisskráningar 623270.
Krossgátan
il 3 ri r U
& 1 9
IO j " j
iX 15“ J
w~ /‘f iL /? rr
I#
zo J
i -
Lárétt: 1 far, 5 saknæm, 8 þráður, 9
hrúga, 10 fijót, 11 varðandi, 12 veikir, 14
passi, 16 hrúga, 18 kofana, 20 eyri, 21
miklu.
Lóðrétt: 1 átvagls, 2 ör, 3 amboð, 4 hörm-
ungar, 5 hrasar, 6 keyrir, 7 smáherbergi,
13 stubb, 15 hlass, 17 námstimabil.
Lausn á síðustu krossgátu:
Lárétt: 1 mars, 5 ösp, 8 eljari, 9 skálk,
10 ha, 11 sultinn, 13 anda, 15 lak, 17 án,
18 urmul, 19 lagast
Lóðrétt: 1 messa, 2 alkunna, 3 ijál, 4 salt-
ara, 5 örk, 6 Si, 7 plan, 10 hnaut, 12 ilms,
14 dug, 16 kló, 17 ál.