Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1994, Page 11
ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1994
11
Sviðsljós
í hringiðu helgarinnar
Magnús Þorlákur Sigsteinsson, forstöðumaður byggingarþjónustu Búnað-
arfélags íslands, Blikastöðum, Mosfellsbæ, hélt upp á fimmtugsafmæli
sitt sl. laugarardag. Hér sést hann ásamt foður sínum, syni og sonar-
syni. Frá v. Sigsteinn Pálsson, fyrrverandi bóndi á Blikastöðum og hrepp-
stjóri til margra ára, Sigurður Magnússon, Heiðar Snær Sigurðssonog
Magnús Þ. Sigsteinsson.
Unnur Sigurðardóttir, 28 ára spjótkastari, bar sigur úr býtum í keppn-
inni Sterkasta kona íslands sem haldin var í Kaplakrika um helgina.
Þátttakendur voru alls 6 og var keppnin hörð. Unnur, sem er 175,5 cm og
75 kg, sigraði einnig í þessari sömu keppni í fyrra.
Skákmót fyrir grunnskólanemendur var haldið í samvinnu Taflfélags
Reykjavíkur og Háskólabíós á laugardaginn. Mótið bar yfirskriftina „Leit-
in að Bobby Fischer" og voru þátttakendur alls 207 á aldrinum 6 til 16
ára. Á myndinni sjást þeir Jón Viktor Gunnarsson, Hvassaleitisskóla, og
Amar E. Gunnarsson, Æfingaskóla KHÍ, tefla til úrshta í flokki 13 til 16
ára. Amar sigraði í sínum flokki með 7 vinninga af 7 mögulegum og var
Jón Viktor í öðru með 6 vinninga.
Art-Hún hópurinn, sem samanstendur af 5 hstakonum, opnaði sýningu
á verkum sínum sl. laugardag. Hópurinn hefur um þessar mundir starfað
saman í 5 ár og er þetta 5. sameiginlega sýning þeirra. Frá v. Erla B.
Axelsdóttir hstmálari, Sigrún Gunnarsdóttir keramikhstamaður, Helga
Ármannsdóttir grafíkhstakona, Elinborg Guðmundsdóttir, sem vinnur í
leir, jám, ál og gler, og Margrét Salóme Gunnarsdóttir sem vinnur mest
í steinleir og postulín.
Meiming
Biblían og Biblíustúdían
Stefanía A. Georgsdóttir var trúuð austfirsk
kona en einhvern veginn komst Bibha hennar
í hendur myndhstarmannsins Steingríms Ey-
fjörð. Þar með varð þessi prívateign austfirsku
bamfóstrunnar að einhveiju öðra - að heimild
sem um leið er hráefni til úrvinnslu.
Á sýningu Steingríms sér áhorfandinn nokkr-
ar ljósritaðar opnur úr Bibhu Stefaníu ásamt
minnismiðum og bréfum sem hún sjálf ritaði
um Biblíulestur sinn. Listamaðurinn hefur htið
annað gert en aö setja þessa heimld upp fyrir
áhorfandann og merkja hana stimplum sínum,
likt og skjöl og játningar vom innsigluð áður
en tími fjölföldunarinnar gekk í garð.
Það er líklega fátt meira prívat en akkúrat það
hvernig trúuð manneskja les Bibhuna sína -
einkum Gamla testamentið. Hvaða skilning
leggur maður í Esekíel eða Habakúk? Það ræðst
Myndlist
auðvitað af svo mörgu og það er líklega flest af
þeim toga að maður vildi síst bera það óundirbú-
inn á borö. En hér sjáum við hugrenningar Stef-
aníu á veggjunum, undirstrikanir hennar og
athugasemdir. Þannig kynnumst við Stefaniu
betur en við gætum líklega gert þótt hún stæði
ljóslifandi fyrir framan okkur.
Steingrímur hefur lengi fengist við skráning-
arverkefni af þessu tagi. Eitt sinn reyndi hann
að skrá almenna reynslu - til dæmis reynslu
neytandans af neyslunni - en í seinni tíð hafa
verk hans verið persónubundnari, líkt og verkið
Horft á Parsífal sem Reykjavíkurborg keypti og
er nú til sýnis í Gerðubergi. Þessi verk eru eins
konar dokúment - eins og svarblöð úr skoðana-
könnun - en em um leið einstök og bera vitni
um næma tilfinningu fyrir þeirri daglegu
reynslu sem við þekkjum öh; hógvær verk sem
eru með því merkasta sem gert hefur verið í
myndhst síðustu tveggja áratuga.
Jón Proppé
Elva Ósk Ólafsdóttir leikkona var
ein af þeim sem mættu á niðjamót
Járngerðarstaðaættarinnar á Hótel
íslandi á föstudagskvöldið. Elva er
hér að flytja atriði úr leikþættinum
„Innleiðing ætternisins".
Verkfæri - lagerverð
%R0T
Kaplahrauni 5,220 Hafnarfjörður
simi 653090 - fax 650120
Hieðsluborvél 9,5V 5.999
m/aukarafhlöðu, 8.499
Meitka-úrreksett, 14 stk., 783
Búkkar, 2 tonn,
1.183 settið
Skralllyklasett, 6 stk,
6-22 mm, 1.995
Vasahnífur, 11 hluta, 395
REYKVIKINGAR!
NÚ ER KOMINN
NAGLADEKKIN
FYRIR SUMARDEKKIN
SUMARDEKKIN Á
GATNAMÁLASTJÓRI