Dagblaðið Vísir - DV - 19.04.1994, Qupperneq 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 19. APRÍL 1994
Spumingin
Lesendur
Gefurðu sumargjafir?
Haraldur Þorkelsson: Gef kannski
eina.
Elín Ýrr Halldórsdóttir: Gef bömun-
um sumargjafir.
Silja Agnarsdóttir: Nei, engar.
Benedikt Tómasson: Gef dulrænar
gjafir í litlum mæli.
Tómas Axel Ragnarsson og Hrafn-
kell Kristjánsson: Gefum sumar gjaf-
ir og aðrar ekki.
Dóra Halldórsdóttir: Nei, gef ekki
sumargjafir en mér finnst gaman að
fá sumargjafir.
Er f ulMnnsla sjávaraf-
urða raunhæfur kostur?
Konráð Friðfinnsson skrifar:
í dag er eðlilega spurt hvort at-
vinnuleysi sé komið hér til að vera.
Tekst mönnum að hrekja það burt?
Auðvitað er útilokað að festa at-
vinnuleysi hér til frambúöar. En
hvað er til bjargar? Hvernig hyggjast
menn smyrja hjól atvinnulífsins
þannig að þau rúlh eðlilega á ný?
Um margt hefur verið rætt í þessu
samhengi. Ég minnist umræðunnar
um fullvinnslu sjávarafurða og sú
umræða skýtur enn upp kollinum
annað veifið. En hvers vegna er þá
ekki farið út í þessa framkvæmd ef
það má verða til þess að gera aflann
verðmætari? Ég held að ástæða þess
sé sú að hér ekki um einfalda aðgerð
að ræða. Málið er nefnilega þaö að
þeim störfum er við höfum skapað
erlendis með fiskútflutningi okkar
eru menn ekki tilbúnir að sleppa í
einu vetfangi. Segja má að það gæti
þýtt það sama fyrir okkur og að
vemdartollar einhvers konar ellegar
þá annars konar fyrirbæri yrðu sett
í gang sem kæmu sér illa fyrir ís-
lensk fyrirtæki er seldu vöm sína á
viðkomandi sölusvæðum.
En vissulega getur fullvinnsla sjáv-
arafla fært fjölda starfa inn í landið,
störf sem nú em unnin ytra. En það
vekur aftur upp spumingar, t.d.
hvernig framkvæma á þá hluti, og
hvað þetti muni kosta fyrirtækin og
þjóðfélagið í upphafi. Því fyrirsjáan-
legt er að mörg, ef ekki öll fyrirtækin
í þessari grein, þyrftu að fjárfesta í
nýjum og dýrum tækjum er henta
starfseminni. Jafnvel nýtt húsnæði.
Og hverjir ættu svo að sjá um þessi
störf? ÖÚ fiskvinnslufyrirtældn í
landinu, eða aðeins sum þeirra?
Kannski fáeinar verksmiðjur sem
sérhæfðu sig í þessari vinnslu? Og
enn er spurt: Á fullvinnslan að ná til
alls aflans er berst á land eða einung-
is til hiuta hans? Er ekki vaninn að
allir vilja taka upp eftir öðrum ef vel
tekst til? Væri það heppilegt í þessu
tilfelli? Þessum og fleiri spurningum
er nauðsynlegt að svara áður en lagt
er í frekari útfærslu.
Sannleikurinn er einfaldur: Það
vantar alla heildarstefnu í málinu.
Og það er einnig staðreynd að stjóm-
málamenn okkar hafa ekki sýnt mál-
inu nægilega mikinn áhuga. Þaö eitt
er víst að héðan fer ekki fullunnið
sjávarfang í neinum mæli á erlenda
markaði án undangenginna stífra
samninga við kaupendur. Samninga
sem hugsanlega enduðu með milli-
ríkjasamningumum um gagnvkæm
viðskipti. Mitt mat er að hér sé á
brattann að sækja en fyrirfram eigi
ekkert að útiloka.
„Vissulega getur fullvinnsla sjávarafurða fært fjölda starfa inn i landið," segir m.a. í bréfi Konráðs.
Mat á stjórnmálaferli Ingibjargar
Halldór Guðmundsson skrifar:
Það hefur vakið athygli mína og
fleiri hvemig vissir fjölmiðlar hefja
persónu Ingibjargar Sólrúnar Gísla-
dóttur til skýjanna sem borgarstjóra-
efni R-listans algjörlega gagnrýni-
laust, rétt eins og þeir væru ráðnir
til þess arna. Er það óvanalegt að
farið sé slíkum silkihönskum um
persónur stjómmálamanna hér á
landi. Hvað hefur borgarstjóraefnið
unnið til þessarar sérmeðferðar? -
Ekkert að minni hyggju.
Ingibjörg verður ekki dæmd af
verkunum því að þau em engin. Hún
hefur verið í þeirri aðstöðu í rúman
áratug að láta móðan mása í afskap-
lega neikvæðum tón um allt og alla.
Sumum stjómmálamönnum líður
ávailt best í andstöðu þar sem þeir
geta tekið stórt upp í sig og firrt sjálfa
sig ábyrgð. Þar eiga þeir heima og
leyfum þeim aö sitja þar sem fastast.
- Þannig met ég stjómmálaferil Ingi-
bjargar.
Borgarstjóraefni vinstri flokkanna
virðist líka njóta sérstöðu út á það
eitt að vera kona. Þetta kom mér í
hug þegar hún talaði niður til mót-
heija síns í sjónvarpi á dögunum og
ávarpaði hann „Ami rninn". Hjá öðr-
um stjómmálamönnum hefði þetta
verið túlkað sem hroki. Hvað hefði'
fólk sagt um Áma Sigfússon hefði
hann ávarpaö keppinautinn: „Sólrún
mín“? Ég sé fyrir mér viðbrögð
þeirra í Kvennalistanum: „Hvílík
kvenfyrirlitning, hvílíkur hroka-
gikkur!"
Mér fmnst satt að segja tími til
kominn að geislabaugurinn sé tekinn
af Ingibjörgu. Hann fer henni ekki
vel.
Enginn alvöru varaflugvöllur á íslandi?
Sigurður Gunnarsson skrifar:
I Morgunblaðinu hinn 13. apríl sl.
las ég grein eftir flugstjóra einn,
Kristján Benediktsson, sem starfar
hjá Cargolux í Lúxemborg. Hann
sagði Keflavíkurflugvöll vera einn
besta flugvöll í heiminum en jafn-
framt minnst nýtta flugvöllinn. Þetta
má áreiðanlega til sanns vegar færa
og er ljóst jafnvel leikmanni sem oft
hefur þurft aö fara þama frá landinu
og koma aftur.
Það sem mér fannst merkilegast í
þessari grein flugstjórans var þó ekki
þessi þekkta ábending, heldur hitt
að svo lítil nýting Keflavíkurflugvall-
ar stafaði ekki síst af því að hér á
landi væri - að því mér skildist af
greininni - enginn alvöru varaflug-
völlur. Þess vegna fljúga flestar ef
milli kl. 14 og 16
-eða skrifíð
Nafn og símanr. veróur að fylgja bréfum
ekki allar vöruflutningaflugvélar
fram hjá og nota flugvelli á megin-
landinu í þessu skyni, m.a. í
PresMck á Skotlandi.
Flugstjórinn upplýsir það sem sé
að EgilsstaöaflugvöÚur, sem margir
halda að hafi verið endurgerður til
þess að nýta hann sem fullkominn
varaflugvöll m.a. fyrir stórþotur, sé
í raun enginn varaflugvöllur þegar
til kemur. Lengd flugbrautanna sé
þannig ekki nægileg til að nýtast hin-
um stóru flugvélum.
Hafa viðkomandi ráðamenn ekkert
við þetta að athuga eða segja? Er
ekki enn verið að láta kanna hvort
hér á landi eigi að koma fríverslunar-
svæði? Hvaða erindi halda menn að
stórar fragtflugvélar eigi hingað með
engan varaflugvöll á landinu? - Þetta
er stórmál sem enn hefur litia um-
ræðu fengið.
Liður Kefla víkurflugvöllur fyrir skort á varaflugvelli annars staðar á landinu?
60áraogeldri
getihættstörfum
Rúnar skrifar:
Ég er einn þeirra sem vildi geta
hætt störfum fyrr en nú er lög-
boðið, eða fyrr en við 70 ára ald-
ursmörkin, sem eru þau mörk
sem maður fær mest greitt frá
lífeyrissjóði sínum - a.m.k. hin-
um almennu sjóðum. Væri ekki
rétt að rýma til fyrir yngra fólki
með því að gera því kleift sem
vilja ljúka störfum fyrr að gera
það? En það yrði aö gera með
þeim hætti að menn fengju fullar
greiðslur úr sjóðum sínum við
starfslok. Best væri aldursmark-
íð viö 60 ára aldur en með mála-
miðlun 65 ára. 70 ára aldursmark-
ið er svíviröa fyrir þá sem eiga
sitt fé inni og fá kannski aldreí
neitt ef þeir bíöa svo lengi.
Ætlasjómenn
ennafstað?
Öm skrifar:
Sjómenn eru enn komnir af
stað. Þeir vilja gera allt klárt fyr-
ir haustiö, segja þeir, verði
Aþingi ekki búið aö ganga frá lög-
um um afnám kvótakaupaskyldu
og fleiri atriði henni samfara. Ég
er ekki viss um að nokkur önnur
skipan verði ásættanlegri. Þetta
ættu sjómenn almennt aö skoða
betur. Það er nefnilega að koma
sá tími að við verðum að taka öll
lög sem snúa að sjávarútvegi,
gerumst við aðilar að ESB. Þá
verður gott tækifæri að koma
með nýjar tillögur og þá ætti að
ráögast viö sjómenn um hina
nýju lagagerð.
Haustkosningar
Gísli Guðmundsson skrifan
Mér er tjáð af góðum og gegnum
alþingismanni, sem ég hef nokk-
uð haft samband við, að ekki
verði komist hjá því að halda
haustkosningar. Ef sjálfstæðis-
menn missa Reykjavík verði nú-
verandi formaður að halda kosn-
ingar sem allra fýrst því þá ríði
á að sjálfstæðismenn nái forystu
eða að minnska kosti stjórnar-
setu í nýrri ríkisstjóm. Vinnist
borgin hins vegar sé minni þörf
á kosningum til Alþingis. Þetta
er það, segir heimildarmaður
minn, sem ríkisstjómin glímir
viö þessa dagana, ekki sijómar-
störf. Alþýðuflokkurinn á undir
högg að sækja og hann verður því
að flýta flokksþingi sínu verulega
til að geta leikið með í næstu lotu.
Áfengisauglýsingar
eru ekki skaðlegar
Jón Karlsson skrifar:
Pinnst ykkur ekki lesendur
góðir það vera skömm og niður-
læging að erlend tímarit og dag-
blöð sem hér eru seld skuli vera
full aö auglýsingum á víni og tób-
aki á meðan okkar íjölmiðlum
sömu tegundar er bannað að aug-
lýsa sömu vömr? Ég vil hins veg-
ar ekki að við auglýsum tóbak
og það á ekki að leyfa sölu hér á
erlendum timaritum sem það
auglýsa. En vínauglýsingar era
ekki skaölegar og það ætti skil-
yrðislaust að afhema bann á vin-
auglýsingum hér.
Gunnar Sigurjónsson hringdi:
Mér hefur aÚtaf þótt Ólina Þor-
varðardóttir vera hin skellegg-
asta kona og frambærileg er hún
í besta lagf Nú er hún enn á ferð
og er að gera eöalkrötum mikla
skráveifu með því aö stofna til
nýs ílokks. Þetta er róttækt fram-
tak hjá henni og hennar fylgis-
mönnum. Þaö er spennandi að
fylgjast með árangrinum. Hún
ætti hins vegar lika að leggja út
í kosningslaginn í borgarstjórn-
arkosningunum. Ég er viss um
að hún fengi mörg atkvæði.