Dagur


Dagur - 12.02.1943, Qupperneq 7

Dagur - 12.02.1943, Qupperneq 7
FYRSTA BLAÐIÐ 3 DAGUR kemur úl tvisvar í mán- uði og kostar 2 kr. árg. Gjáldd. 1. júlí. AFGREIÐSLU og innheimtumaður: ■ Ráðhússtíg 4. Lárus /. Rist. Talsími 31. ^>10 Ritstjóri: íngimar Eydal. I. ár. Akoreyri 12. febrúar 1918. 1. blað. 7/7 lesendanna. Til skamms tíma hafa íslendingar skipast í stjórnmálafiokka eftir af- stöðu þeirra til deiiumálanna við Dani. Á þeim dögum stóðu sam- bandsmál og stjórnarskrármál efst á blaði hjá forgöngumönnum flokk- anna. Á þessu hefir orðið breyting á allra síðustu árum. Pó að gömlu flokkanöfnin sjeu enn við líði,þá eru þau ekki annað en dauður bókstaf- ur, er enga þýðingu hefir fyrir stjórnmálalífið í landínu. Oömlu deilumálin eru úr sögunni, að minsta kosti fyrst um sinn. Fyrir rás víðburðanna er það verslunarmálið í víðustu merkingu, sem öðrum málum fremur es* orðið að þungamiðju í ræðu og rid. Rað mál sýnist ætla að veríja grundvöll- ur nýrrar flokkaskipunar í landinu, þó enn sjeu þeir flokkar ekki form- lega fastir. ^ Að nokkru leyti er pað styrjðld- in mikla, sem þessu veldur. Lands- verslunin, þetta nauðsynlega bráða- birgða fyrirkomulag, er til varð að grípa á þessum neyðartímum, er ein af afleiðingum ófriðarins. . f raun og veru eru exki nema tveir fiokkar hjer í landi nú sem stendur. Annarsvegar eru fiestir ■ kaupmenn og þeirra fylgifiskar í skoðunum, sem er illa við lands- verslunina og í nöp við samvinnu- stefnuna. Hinumegin eru þeir, er teija lands- versiunina þjóðamauðsyn, peðan stríðinu ekki slotar, og þeir sem unna samvinnuhugsjóninni. Þessar tvær ólíku hugarstefnur, sem hjer hefir verið vikið að, setja mót sitt á ineðferð og framkvæmdir flestra mála á þessum tímum, þó þau heyri ekki beint undir verslun- armálið. Má þar til nefna dýrtíðar- ráðstafanir og raargt fleira. Einhvemveginn hefir það atvik- ast þannig, að fiest blöðin hafa hneigst til fylgis við kaupmanna- stefnuna. Þar á meðal eru bæði Akureyrarblöðin. Ýmsir áhugasamir menn hjer norðanlands, sem ekki geta felt sig við hugsunarhátt kaupmanhasinna, hafa fundið sárt til þess, hve baga- legt það væri að eiga ekki ráð á blaði hjar á Akureyri, er þeir gætu birt skoðamr sínar í. Hefir þeim fundist þeir stæðu vamarlausir gegn árásum á stefnu þá, er þeir aðhyll- ast Sai?»tök hafa myndast í.því skyni að ráða bót á þessu. Árangur þeirra samtaka er blað það, er hér birtist Pað er ekki litlum vandkvæðum bundið að ráðast í útgáfu blaðs á þessum tímum. Verðfall þeninganna kemur niður á blöðunum ekki síð- ur en annarsstaðar. Páppír og prent- un hafa stigið gríðarlega í verði eins og vænta má. Til þess aðreisasjer ekki hurðarás um ðxl, hefir það ráð verið tekið að láta blaðið fyrst um sinn koma út á hálfsmánaðar fresti og hafa það í litlu forrai. Megn pappírsskortur veldur þó ekki minstu hjer um. Oanga má að því vísu, að margir muni meðal annars finna það að þessu blaði, hvað útgáfa þess sje í smáum stíl. Ea vel eru þeir sömu beðpir að athuga erfið- leikana, sern hjer er drepið á. Beðnir eru menn líka að. minnast blaðanna, er út voru gefin hjer á landi fyrir ekki lengri tíma en 20 til 30 árum. Pé voru þau ekki mikil fyrirferðar og ljetu menn sjer þó nægja. Menn verða að temja sjer nægjusemi nú á þessum erfiðu tímum. Nokkur huggun ætti það líka að vera les- endum blaðsins, að einhvernveginn iegst það í aðstandendur þess, að kaupmenn finni ekkr hjá sér sterka hvöt til að styðja það með auglýs- ingum, svo að rúm þess mun að mestu upp tekið af almennu iesmáii. Með þessu er þó alls ekki gefið í skyn, að tilgangur þessa blaðs sje sá að sýna kaupmannastjettinni neinn fjandskap, því það vill ræða hvert má! oféalaust, en þó með fullri hrein- skilni og einurð, hver sem í hlut á. Tékið skal það hjer fram, að svo virðist sem landstjóm sú, er nú sit- ur að völdum, verði á stundum fyrir mjög ónærgætnum, ómildum og jafnvel algerlega röngum dómum og ásökunum úr ýmsum áttum, fyrir framkvæmdir sínar og ráðstafanir. JÞetta verður að teijast illá farið, og .mun því blað þetta bera hönd' fyrir höfuð stjómarinnar, þegar hún er höfð fyrir rangri sök eða gerðir hennar rangfærðar eða lagðar út á verri veg. En átalið mun á hinn bóginn það, er henni ferst óhönd-* ulega. Að öðru feyti skal hjer ekki fjðl- yrt um stefnu blaðsins. Hún kemur smásaman f fjós í greinum þeim, er blaðið flytur. Lesendum mun Uka skiljast af því, sem nú er fram tek- ið, þver stéfnan muni vera um það, $r .flestum þykir mestu máli skifta nú sem stendur. F*að gefur að skilja, að rúm blaðs- ins leyfir ekki að flytja langar rit- M Nákvæm eftirlíking ai 1. tbl., sama stærð. Dagur er nú orðinn stærsta íslenzkt blað sem gefið er út utan Reykjavíkur oé vesturíslenzku blaðanna.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.