Dagur - 12.02.1943, Side 13

Dagur - 12.02.1943, Side 13
AFMÆLISKVEÐJUR FRÁ FYRRVERANDIRITSTJÚRUM JÓNAS ÞORBERGSSON útvarpsstjóri: Mér þykir skylt að verða við tilmælum Dags um að leggja fáein orð í belg á þessum tímamótum í æfi hans. Við vor- um um sjö og hálfs árs skeið samrýmdir eins og bezt má verða. Og þótt um okkur megi segja, að týnst liafi gata til gengins vinar, þá berum við báðir menjar sam- starfs okkar. Á þeim árum gerði Dagur átak til vaxtar sér og áhrifa og í samstarfi við hann lilaut ég mikið af þeim starfs- þroska, sem mér hefir veitzt. Mér er það minnisstætt, er fornvinur minn, Bergsteinn Kolbeinsson bóndi í Kaupangri, gerði sér ferð rakleiðis á fund minn austur í Þingeyjarsýslu snemma á árinu 1920, til þess að semja við mig um það, að ég tæki að mér rit- stjórn blaðsins. Ég átti úr vöndu að ráða. Ég hafði lítið fengist við það að rita um almenn mál; hafði ritað nokkrar dreifð- ar greinar í blöð íslendinga vestan hafs, meðan ég dvaldist þar, en því nær ekk- ert eftir að ég hvarf heim haustið 1916. En ég hafði hrifist með þeirri öldu, sem þá var að rísa í landsmálum, sókn Fram- sóknarflokksins til nýrra átaka í skipu- lagslegum efnum og í framkvæmdum. — Ég hafði fyrr lagt á ókunnar leiðir við lítil farefni en átti mér, eins og þá var komið högum, fárra kosta völ. Ég afréð því að leggja út í æfintýrið og setti það eitt skilyrði, að blaðið yrði stækkað frá því sem það var þá á byrjunarskeiði sínu. Um ritstjórn mína og þátt minn í gengi Dags ber mér ekki að dæma. Blað- ið hlaut allmjög aukna útbreiðslu á þeim árum og átti sinn þátt í sókn flokks- ins einkum í þeim landshlutum, sem það vegna staðhátta hlaut til yfirsóknar, allt úr Skagafirði í Múlasýslur. Ég var þar, í allsherjarsókn Framsóknarflokksins, að- eins róðrarmaður á langskipi eða merk- isberi í fylkingararmi, ef svo má að orði komast. — Hitt get ég vottað, að Dagur átti alhug minn, að ég lagðist á árar, eftir því sem orkan leyfði og mér var óljúft að láta hlut minn við hvern sem var að skipta. Það er kannske rétt að ég láti þess getið hér, að þessi ár í starfsæfi minni eru mér á ýmsan hátt ljúfust í endurminning- unni. Ég átti um þær mundir ótvíræða samleið með frumherjum flokksins, trúði hiklaust á málstað hans, einkum vörn hans og sókn í samvinnumálum. Ég hafði löngun og aðstöðu, til þess að gera Jónas Þorbergsson. Dag að sjálfstæðu málgagni flokksins í Norðlendingafjórðungi. Á þessum árum náði flokkurinn því marki, sem allir stjórnmálaflokkar stefna að; hann hlaut yfirráðaaðstöðu í löggjöf og stjórn. Og um mál Norðlendinga hygg ég rauplaust að segja það eitt, að Dagur átti meginþátt í að hrinda fram heilsuhælismáli Norð- urlands. Valdataka Framsóknarflokksins varð og bein orsök þess að ég hvarf burt frá Degi. Mér varð því um þær mundir, sem ég að loknum áfanga léti upp í nýja ferð. Og burtförin varð mér ekki alls kostar sársaukalaus. Mér þótti sem ég væri með nokkrum hætti að svíkja vin minn í tryggðum. En síðan þetta gerðist eru bráðum lið- in fimmtán ár og það hefir fennt í spor- in. Viðhorfin liafa breytzt. Sem þjón- ustumaður Ríkisútvarpsins hefi ég tekið mér stöðu utan allra flokka. Og það hefi ég gert ekki einungis vegna þegnskyldu minnar gagnvart öllum flokkum jafnt heldur og vegna þess, að ég tel flokks- stjórnarskipulagið, eins og því nú er hátt- að á landi hér, vera komið að hruni. „Radikalismi" 19. aldar hefir svifið á okkur eins og áfengt vín við endurheimt ríkisréttar og stjórnskipulegs sjálfstæðis og við höfum ástundað frelsið án hófs og án fyrirhyggju. Þess vegna verður okkur það óhjákvæmilegt, að stíga spor til baka, ef okkur á að auðnast að bjarga í land þjóðfrelsi okkar og þegnfrelsi og tryggja mikla þátttöku borgaranna í traustu og réttlátu stjórnarfari. — Það er spá manna og ekki að ólíkindum, að þeir menn, sem að lokinni þessari styrjöld skipa málum manna og þjóða til nýrra hátta, telji máske lítils um vert þær rúmlega 100 þús. hræður, sem byggja eyju þessa og að við verðum að lúta sterku allsherjar skipulagi. Vel má svo fara, að við ráðum minna um stjórnarfarsleg örlög okkar en við kysum. Hitt verður víst, að er við komum til áhta fyrir augum alls heims- ins og innri mál okkar, að óbreyttu ástandi, verða krufin, þá munu núver- andi stjórnskipunarhættir ekki verða okkur haldsamir til trausts og álitsauka. Þess vegna skiptir það öllu máli að okk- ur auðnist að leysa þann stjórnskipulega vanda, sem okkur er á höndum á þann hátt, að hér rísi þjóðríki á rústum flokks- ríkis. Friðurinn og frelsið mun ekki vinnast í pólitískum borgarastyrjöldum. Framtíðin, sem rís yfir valkesti þessarar aldar og blóði litaðan sæ mun gera meiri kröfur um víðsýni, réttlæti og fórnfýsi manna og þjóða, en áður liafa verið gerðar á jörðu hér. En þótt skoðanir mínar hafi þannig við ný viðhorf breytzt svo mjög á liðnum fimmtán árum, að ég tel nú hiklaust flokksfylgi og flokksþjónustu ekki leng- ur dyggð heldur þjóðfélagslegt sjúk- dómsauðkenni, þá fer því mjög fjarri, að ég harmi fyrsta starf mitt í þjónustu Framsóknarflokksins og andlega sam- búð mína við Dag. Þvert á móti tel ég, að starf mitt í þágu blaðsins og flokksins hafi orðið mér mikill ávinningur til þroskunar, og að starf flokksins í hinni almennu landsmálaþróun hafi orðið þjóðinni mikill ávinningur. Með stofn- un og starfi Framsóknarflokksins er haf- in fyrsta pólitíska landsmálahreyfingin til viðreisnar og sóknar í innanlandsmál- um um þær mundir, sem hugur þjóðar- innar tekur að slakna við lok ríkisrétt- ardeilunnar við Dani. Flokkurinn hefir því markað sér vaianlegt spor í sögu landsins. Stofnun og barátta flokka varð ekki einungis eðlilegt heldur óhjákvæmilegt þróunaistig frá aldeyðu íslenzkrar lands- málahyggju um og eftir 1918. Hitt er og annað mál, að hin öra tækniþróun og hraðvaxandi þörf á raun- verulegum félagsháttum í skipun þjóð- félags- og mannfélagsmála sprengir fjötra eldri forma. Þess vegna er flokksræðið, eins og það hefir þróast hér á landi, ekki lengur stjórnhæft eins og reynslan hefir þegar vottað. Og ef okkur á að takast

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.