Dagur


Dagur - 12.02.1943, Qupperneq 15

Dagur - 12.02.1943, Qupperneq 15
Jóhann Frímann FEGINSLÚÐRAR OG SNÚDGASTEINAR Þættir um Prentverk Odds Björnssonar á Akureyri „Leééjum lúðra, léttum steinum". (Úr Gróttasöng hinum forna). Oddur Björnsson. I. jþAÐ MUN hafa verið vorið 1919, að eg kom inn í prentsmiðju í fyrsta skipti á æfinni. — Eg var þá nýkom- inn hingað til bæjarins til náms vestan úr dölum, hafði aldrei áður að kalla far- ið að heiman og því lítið séð ennþá af stórmerkjum veraldarinnar. Eg hafði t. d. naumast séð nokkra meiriháttar vél, er því nafni mætti nefnast, og mun því naumast hafa gert mér stórum ljósari hugmyndir um töfraheima hinnar nýju tækni- og vélaaldar, er hélt þá sem óðast innreið sína í þetta land, en hinn frum- stæðasti steinaldarmaður. — Annar piltur, jafnaldri minn og sveitungi, var í för með mér, og var svipaða sögu að segja um kunnáttu okkar beggja og reynslu í iðnfræðilegum efnum. Það munu því hafa verið allfávíslegir og heimskir heimalningar, sem knúðu hurðir Odds prentmeistara Björnssonar þennan vordag og báðu leyfis að mega kanna kynjaheima þá, þar sem svo mörg blöð og bækur, er við höfðum lesið heima í fásinnninu, voru til orðnar í sinni áþreifanlegu, sýnilegu og marg- földuðu mynd. Leyfið var auðsótt, og fylgdi hinn gjörvilegi og stórbrotni prentsmiðjueig- andi, Oddur Björnsson, okkur sjálfur um húsakynni prentsmiðjunnar, sýndi okkur vélar og áhöld og skýrði jafnvel fyrir okkur hið helzta, sem við höfðum annars nokkur skilyrði til að skilja og átta okkur á, viðvíkjandi daglegum vinnubrögðum þjóna og meistara hinn- ar göfugu íþróttar, prentlistarinnar. — Eg man, að eg undraðist mjög allar þess- ar vélar, sem mér fundust harla flóknar og hugvitsamlega gerðar. Einkum er mér þó í minni, hve mikið mér þótti til „hraðpressunnar“ koma, er eg sá hana fletta stórörkunum af blekvelinum, eins og lifandi og skyni gædd vera væri þar að verki og fletti sem óðast blöðun- um í einhverri heljarmikilli húspostillu. Hraðpressa þessi er ennþá við líði og í sæmilegu lagi, enda notuð enn við ýmis konar prentun i hinni nýju prent- smiðju þeirra feðga, Odds og Sigurðar prentsmiðjustjóra, sonar hans og eftir- manns. En harla lítið mun þó þykja til hennar koma nú orðið, og vélin allgam- aldags, seinvirk og ófullkomin, við hlið hinnar nýju stallsystur sinnar, sem nú er setzt í hið forna öndvegi pressunnar gömlu, og hamast þar með margföldum afköstum og nýtízkum tilburðum. Albert J. | Finnbo£ason starfar að „upp■ \ setnin£u“ stórlet-, ursvélarinnar nýjv síðastliðið sumat., Snorri Askelsson fjær á myndinni.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.