Dagur - 20.12.1952, Page 4
4
JÓLABLAÐD AGS
Kvennaskólinn á Laugalandi 1877-96
Þáttur um aðdraganda skólahalds og upphaf
eftir séra BENJAMÍN KRISTJÁNSSON
Séra Benjamín Kristjánsson á
Laugalandi hefur ritað sögu
kvennaskólans á Laugalandi hins
eldra, 1877—1896. Er þar skráður
merkur þáttur úr menningarsögu
Eyjafjarðarhéraðs. — Dagur hefur
leyfi höfundar til að birta þessa
sögu, og fer hér á eftir upphaf frá-
sagnarinnar, aðdragandi skóla-
stofnunar og fyrsta skólahald. En
framhald sögunnar verður birt í
blaðinu eftir nýjár.
INNGANGUR.
Þjóðhátíðin 1874 kom miklu róti á
hugi íslendinga. Með stjórnarskrá
Kristjáns konungs IX. fékk Alþingi
loksins umráð yfir fjármálum landsins,
og þá vöknuðu forystumenn þjóðarinn-
ar fyrst fyrir alvöru til umhugsunar um
það, hve margvísleg málefni biðu úr-
lausnar. Þessi vorhugur breiddist út
um allar sveitir og ólgaði í hverju
byggðarlagi. Framfarafélög voru stofn-
uð, sem höfðu jarðrækt og alls konar
umbótamál á dagskrá sinni, ráðizt var í
að ryðja fjallvegi, brúa ár og byggja
fundahús. Aimennur áhugi ríkti að
hefjast handa um hvers konar viðreisn
þjóðfélagsins.
í umræðum um þessi mál kom fram
sterk trú manna á það, að aukin mennt-
un alþýðu væri éitt fyrsta og nauðsyn-
legasta skilyrðið fyrir vaxandi þjóð-
menningu. Kom jafnvel fram á þessum
árum svo stórhuga tillaga, að stofna
skyldi 9 gagnfræðaskóla og 9 kvenna-
skóla^ þannig, að gagnfræðaskóli og
kvennaskóli væri til skiptis í hverri
sýslu allt umhverfis land (Norðanfari
1876, bs. 61). En þrengri var þá fjár-
hagur þjóðarinnar en svo, að á þessa
tillögu væri litið, enda var fremur smátt
skammtað til menntamála næstu ár. Þó
sannaðist það hér, að viljinn dregur
hálft hlass. Upp úr þessum umræðum
spruttu fjórir skólar: Kvennaskólarnir
í Reykjavík, Laugalandi og Ytri-Ey og
gagnfræðaskólinn á Möðruvöllum.
Enginn efi er á því, að kvennaskól-
inn í Reykjavík, sem komið hafði verið
á fót fyrir ötula forgöngu frú Þóru
Melsteð, varð hvötin að stofnun hinna
norðlenzku kvennaskóla. Var hvort
tveggja, að erfitt var að sækja þangað
skóla fyrir stúlkur víðs vegar að af
landsbyggðinni, eins og samgöngum var
þá háttað, og auk þess var sú skoðun
ríkjandi, að æskilegra væri fyrir
sveitastúlkur að læra í skóla, sem sett-
ur væri í sveit. í þriðja lagi var einn
kvennaskóli vitanlega alls ófullnægj-
andi, ef gert var ráð fyrir almennri
menntun kvenna.
Skal nú gerð nokkur grein fyrir
stofnun kvennaskólans á Syðra-Lauga-
landi og því lýst, hvaða hugsjónir vöktu
fyrir hvatamönnum hans.
Undirbúningsfundir.
Á gamlaárskvöld 1874 var haldin
skemmtisamkoma að Espihóli í Eyja-
firði. Hana sóttu um 150 manns víðs
vegar að úr héraðinu. Helztu skemmti-
atriðin voru: ræðuhöld, söngur og álfa-
dans og var í sambandi við hann
brenna mikil fremst á Espihólnum. —
Þegar brennunni lauk, fóru allmargir
eldri og yngri menn heim að Espihóli
og var þar fundur settur. Dagskrármál-
ið var það að bindast samtökum til að
hrinda í framkvæmd einhverju menn-
ingarmáli í héraðinu til minningar um
þúsund ára byggð landsins. Skoðanir
I
Kvennqskólinn á Laugalandi. Smiði lians var loliið 1879. Stóð til 1896.