Dagur - 20.12.1952, Síða 29
JÓLABLAÐ DAGS
29
Deginum er svo skipt milli svefns og
vöku, að til næturhvíldar eru ætlaðar 9
kl^tj, íá hv^rjum sólarhr., en 15 klst. til
dagíegrar iðju, þar af 3 til borðhalds en
12 til náms og vinnu. Iðjustundum
dagsins frá fótaferð til háttatíma er
varið þannig:
Kl. 7—8 til undirbúnings.
Kl. 8—9 til morgunverðar.
Kl. 9—11 til bóklegrar fræðslu.
Kl. 11—2 til kennslu í hannyrðum.
Kl. 2—3 til miðdegisverðar.
Kl. 3—7 til tilsagnar í hannyrðum.
Kl. 7.—8 til munnlegrar yfirheyrslu
eða undirbúnings.
Kl. 8—9 til kvöldverðar.
Ki. 9—10 til bóklesturs eða annarrar
gagnlegrar iðju.
2. grein. Kennslulag.
Kennslugreinir skólans eru þessar,
og kennslutíma í hverri grein hagað á
þessa leið:
I. Munnlegar námsgreinar.
1. Skrift er kennd, svo að stúlkur
læri að rita samanhangandi mál skýrt
og greinilega, og jafnframt að haga svo
skriftinni, að vel fari. Kennslunni er
svo til hagað, að námsmeyjar eru látn-
ar laga hönd sína eftir forskrift eða fyr-
irmynd.
2. Reikningur: Samlagning, frádrátt-
ur, margföldun og deiling, bæði eins
konar og margs konar talna, og enn-
fremur, ef tími er til, einföld þríliða.
Reikningur er kenndur á þann hátt, að
stúlkurnar eru látnar læra almennar
reglur eftir prentaðri bók og reikna svo
dæmi ýmist í huganum eða á spjaldi.
3. Réttritun skal kennd svo, að stúlk-
unum lærist að Varast málleysur
og rangar beygingar orða. —
Svo er þeim og sagt til um auðvelda
stafsetning. Tilsögninni er svo fyrir
komið, að fyrst eru þær látnar rita sam-
anhangandi mál, annað hvort eftir því,
sem þeim er lesið fyrir, eða þær sjálfar
þýða úr dönsku, og síðan er ritháttur
þeirra leiðréttur og þannig sé þeim um
leið beint á það, sem rangt er ritað.
4. Danska er kennd svo ,að stúlkum
geti skilizt einfalt mál. Um leið og þeim
er hjálpað til að komast fram úr því,
sem þeim er fyrir sett að nema, er þeim
kennt að nota orðabók.
5. Landafræði og saga. Ýfirlit yfir
landaskipun og ágrip af merkustu þátt-
um mannkynssögunnar.
í þessum námsgreinum eru tvær
kennslustundir að morgni dags,' og er
svo til ætlazt, að annan daginn sé kennt
skrift og reikningur, en hinn daginn
réttritun og danska. Til yfirheyrslu í
landafræði og sögu og til undirbúnings
undir kennsluna í hinum munnlegu
námsgreinum er ætlaður tíminn eftir 7
að kveldi dags. Kennslubækur eru
valdar af forstöðunefnd skólans.
II. Verklegar námsgreinar.
1. Fatasaumur. Að sauma almennan
íverufatnað karla og kvenna, einnig
sníða hann og laga svo að vel fari.
2. Útsaumur. Að skattera og baldýra,
krossauma, bródera og hekla, og eink-
um það, er til heyrir að sauma íslenzk-
an faldbúning.
3. Tóvinna. Að vefa og próna.
4. Matreiðsla. Að búa til mat, breytt-
an og óbreyttan; og vanda með hrein-
læti alla meðferð hans, tilbúning, fram-
reiðslu og geymslu. Ef atvik leyfa verð-
ur einnig sagt til um mjólkurmeðferð,
smjörgerð og ostatilbúning. Tilsögn í
matartilbúningi er veitt á þann hátt, að
stúlkurnar eru til skiptis látnar taka
þátt í matreiðslu eftir fyrirsögn
kennslukonu og samkomulagi við
skólahaldara.
5. Þvottur. Að þvo fatnað, slétta föt
og sterkja lín, einnig þvo gólf og þrífa
til í húsum.
Vinnustörfum þessum eru ætlaðar 7
stundir á dag, og er þeim svo hagað, að
til fatasaums sé varið fyrri hluta dags-
ins, en síðari hlutanum til hinna
óvandari verka. Að því leyti sem stúlk-
unum er ei ætlað að vera allan skóla-
tímann; eða þær eru undanþegnar að
Námsmeyjar á Laugalandi veturinn 1879—80.
Sitjniuli frá vinstri: 1. Guðrítn Blöndal frá Hofi, Skágntrönd. 2. Iijörg Einnrsdóttir
frá Mœlifelli. 3. Sigriður Gisladóttir frá Ytri-Jiœgisá. 4. I.árn Havstein, Syðra-Lauga-
landi. 5. Sigurlaug Arnadóttir frá Höfnum. Standandi: 1. Guótiý Sigfúsdóltir, Fagra-
dal, Iiólsfjöllum. 2. Kristin Kristjánsdótlir, Mjóadal, S.-Þing. 3. Guöný Friðbjarnar-
dóttir, Akureyri. 4. Herborg Eyjólfsdóttir, Egilsstöðum, Skriðdal. 5. Sigriður Daviðs-
dóttir, Heiði, Langnnesi. 'ó. Kristin Jónsdóttir, Ásger.ðarstöðum, Hörgárdal. 7. Arn-
jnúður Guðmundsdóttir, Hallgilsstöðum, Laiiganesi. S. Konkordia Zophoniasdóttir,
Laufási. 9. Halldóra Vigfúsdöttir, Ketilsst., Völlum. 10. Solveig Pélursdóttir, Reykjahlið.
11. Jakobina Bjarnadóttir, Vöglum, Fnjóskad. 12. Kristin Marteinsdóttir, Grimsstöðum,
Mýv. 13. Jakobina Gunnarsdótlir, Garði, Mýv. 14. Elinóra Jónsdóttir, Hvassafelli (systir
K. N. skálds). 15. Eleruí Þorsteinsdóttir, Grýtubakiia.