Dagur - 20.12.1952, Page 31
JÓLABLAÐ DAGS
i, nun&MPQPSr
31
?/<i Brauð og sælgæti til jóla
$*$»$>*$>*$*$*$*$*$*$*$*$*$*$*$* ^*^*^*^*^*^*^*^*^*^*^*^*^*^*^*
Nú fæst nóg af öllu í kökurnar, þar á
meðal möndlur, og þær eru til margra
hluta nytsamlegar, bæði í kökur og
sælgæti. Hér eru nokkrar uppskriftir.
Litlir jólahringir.
150 gr. smjör, 55 gr. sykur, 1
eggjarauða, 230 gr. hveiti.
Smjörið og sykurinn er hrært,
eggjarauðan er sett í hveitið og deigið
hnoðað. Sett í hakkavél og deigið látið
renna úr henni beint á plötuna og látið
mynda þar litla lu'ingi. Þeir eru smurðir
með eggjahvítu og hökkuðum möndlum
stráð yfir. Bakað við hægan hita í 8 mín.
Eru bragðgóðar.
Kanelpiitnar.
1 egg, 100.gr. sykur, 100 gr. hr.
smjör, 230 gr. hveiti, 3 tesk. kanel,
1 tesk. hjartarsalt, 1 tesk. negull.
Eggjum og sykri er hrært saman,
smjörið er hrært unzt það er lint og
eggjarauðan er þeytt saman við ásamt
kanelnum, hveitinu og negulnum. —
Deigið er hnoðað strax á eftir og rúllað
út í mjóa lengju, sem síðan er skorin
sundur í hæfilegum stærðum. Stykkin
eru smurð með eggjahvítu, og þeim er
velt upp úr kanel og sykri. Bakað við
hægan hita í 8 mín.
Jólabollur.
250 gr. hveiti, 80—125 gr. smjör,
25 gr. ger, 3 matsk. sykur, karde-
momma, 1 egg, hakkaður súkkat,
rúsínur, Vá dcl. volg mjólk.
HVeitið er sigtað, gerduftið er hrært
út fljótandi með sykrinum og síðan
hellt saman við hveitið og smjörið sett
saman við og því næst önnur upptalin
efni og mjólkin. En aðeins lítið 1 senn,
því að þannig samlagast það betur
hveitinu. Deigið er því næst hnoðað
vel og lagaðar 8—10 bollur, sem gjarn-
an mega vera mjúkar og rakar. Þær eru
látnar hefa sig í hlýjum stað í 20 mín.
Smurðar með eggi, stráð yfirþærhökk-
uðum möndlum og grófum sykri og
bakað í mjög heitum ofni í ca. 10 mín.
Jólakaka frá 1874. ,
2 egg, 5 matsk. sykur, 30 gr. ger,
100 gr. bráðið smjör, 1 desil. volgur
rjómi, rúsínur, súkkat, sítrónu-
börkur, kardemomma, 300. gr.
hveiti.
Eggin eru þeytt saman við sykurinn,
gerið er hrært út og sett í ásamt með
rjómanum, rúsínum, súkkat og karde-
mommum. Því næst er hveitið sett út í
og má deigið gjarnan vera rakt. Það er
því næst slegið rækilega með skeið. Því
næst látið í vel smurt mót og látið hef-
ast í 20 mín. Smurt með eggi og sykri,
. rúsínum og hökkuðum möndlum stráð
yfir. Bakað í ofni í 25—30 mín.
Atombombur.
1 matsk. smjör, 1 stór matsk.
síróp, 100 gr. púðursykur, 100 gr.
hakkaðar möndlur, eða 50 gr.
möndlur og 50 gr. haframjöl.
Sykurinn er bræddur í potti, ásamt
smjöri og sírópi og möndlunum því
næst bætt út í ásamt engifer á hnífs-
oddi — ef óskað er eftir því bragði. —
Þegar búið er að kæla þetta „deig“ er
það mótað í litlar kúlur, sem settar eru
á þurra plötu til þess að kólna. Geymt
í lokuðu íláti.
'Gamaldags marsípan.
200 gr. sætar möndlur, nokkrar
beiskar möndlur, 70 gr. sigtaður
flórsykur, 2 matsk. kalt vatn,
eggjarauða (hrá, óþeytt) og síðan
ca. 150 gr. sigtaður flórsykur til
þess að velta „massanum" upp úr.
Möndlumar eru hakkaðar í möndljr-
kvöm, og því næst blandað saman við
flórsykurinn og vatnið. Þetta er síðán
sett tvisvar í gegnum hakkavél, en því
næst e’r marsípan-massinn brotinn í
smástykki og látinn í pott, sem
er hitaður varlega, ásamt a. m. k. 2 hrá-
um cgsjahvítum. Þegar „massinn“' er
orðinn volgur, er hann hnoðaður upp
úr fiórsykri og srðan geymur í lokuðum
kpsea.
Jóla-kokktcill.
Cacao-likjör og rjómi blandað til
helminga og hrist saman — he'Izt í
„kokkteil-shakei-“. Gjaman drukkið
með söltum möndlum, ef til eru.