Dagur - 29.08.1987, Side 5
sál
voru yfirsmiðir þeir Sigtryggur
Jóhannesson og Jónas Gunnars-
son. Löngum var verslun á neðri
hæðinni að sunnanverðu. Vestan
megin við norðurgaflinn var
vörugeymsla en skrifstofa að
austan. Á efri hæðinni var íbúð
og herbergi í risinu.
Um 1940 voru óvenjulegir
gestir í Túliníusarhúsi, en það
var breska setuliðið á Akureyri
jók við húsakostinn. Páll Th.
Johnsen keypti verslunarhúsin
árið 1861 og byggði hann nokk-
urs konar turn austur úr íbúðar-
húsinu og var hann helsta ein-
kenni hússins. Pá reisti hann
myllu nyrst á lóðinni.
Páll var mikill framkvæmda-
maður en fór á hausinn og keypti
Carl Höepfner verslunarhús hans
árið 1867. Árið eftir stofnaði
Akureyri 125 ára
Hvert er elsta húsið á
Akureyri og hvenær
var það byggt?
í Schiöthshúsi eru fimm íbúðir.
Mynd: SS
Höepfnershús er glæsileg bygging.
Mynd: SS
Túliníusarhús, Hafnarstræti 18.
Mynd: SS
sem hafði afnot af því. Til stóð að
rífa húsið um 1975 því það var
komið í niðurníðslu en sem betur
fer var horfið frá þeirri hugmynd
og þess í stað hafist handa við
endurbætur. Viðgerð hefur stað-
ið yfir síðan með nokkrum
hléum.
Hafnarstrœti 20,
Höepfnershús
Petta er gamalgróið verslunarhús
og hin glæsilegasta bygging. Saga
þess er í stuttu máli sú að Carl
Höepfner byggði pakkhús á lóð-
inni árið 1893. Árið 1911 var hús-
ið rifið og nýtt verslunar- og
íbúðarhús byggt í staðinn og er
það húsið sem stendur enn.
Verslunin var kölluð hvíta búðin,
enda upplýst og ljósmáluð.
Árið 1913 byggði Höepfner
járnvarið timburhús nyrst á lóð-
inni fyrir vörugeymslur sínar en
það hús er löngu horfið. Austan
við pakkhúsið var bátaverkstæði
og milli þeirra húsa og íbúðar-
hússins voru fjós og hlaða úr
timbri.
Fyrstu árin eftir að verslunar-
húsið var byggt bjó Hallgrímur
Davíðsson verslunarstjóri á efri
hæðinni og seinna bjó þar Steinn
Steinsson bæjarstjóri. Akureyr-
arbær eignaðist húsið árið 1933
en Ari Hallgrímsson og Helgi
Pálsson keyptu það 1935. Frá
1939 hefur Fasteignafélagið
Alaska verið skráður eigandi
hússins.
Hafnarstræti 23,
Schiöthshús
Forsaga hússins er sú að árið
1934 keypti Wilhelmina Lever
jarðskika úr landi Eyrarlands,
byggði þar lítið hús og rak
verslun. Petta mun hafa verið
lóðin Hafnarstræti 23. Þorsteinn
Daníelsson frá Skipalóni keypti
eignir Wilhelminu árið 1846 og
l' |
Árið 1899 var Magnús Blöndal
eigandi hússins og um þær mund-
ir var vegurinn lagður milli Lækj-
argötu 4 og 6 og lóðin skert
nokkuð. Frá aldamótum hafa
fjölmargir verið skráðir eigendur
hússins en þar eru tvær íbúðir.
Skráðir eigendur nú eru Erla
Einarsdóttir (1964), Kristján
Frímannsson (1979) og Jóngeir
Magnússon (1971).
Lœkjargata 6
Akureyrarbær seldi Páli Árdal
húsgrunn fyrir ofan heyhlöðu
sýslumannsins árið 1885 og mun
það vera lóðin Lækjargata 6. Páll
fékk leyfi til að byggja hús á lóð-
inni árið eftir en hann mun hafa
selt lóðina þeim Pórði Thoraren-
Lækjargata 13. Mynd: ss
sen gullsmiði og Jakobi Gíslasyni
kaupmanni áður en af byggingu
varð. Jakob og Þórður byggðu
síðan húsið sem enn er á lóðinni.
geymsluskúr sem stóð vestan við
húsið. Skráður eigandi frá 1961
er Steingrímur Karlsson.
Samantekt: SS
Lækjargata 6.
hann fyrstu brauðgerð á Akur-
eyri í húsinu og fékk Hendrik
Schiöth og Önnu konu hans til
þess að veita henni forstöðu.
Brauðgerðarhúsið brann til
grunna árið 1903 og var nýtt hús
byggt á grunni þess sama ár, hús-
ið sem nú stendur á lóðinni. Axel
Schiöth, sonur Hendriks og
Önnu, tók við brauðgerðinni og
keypti húsið af Höepfner árið
1928.
Um 1940 var ölstofa í Schiöths-
húsi og var þar bruggað öl. Ekki
er ljóst hvenær hætt var að baka í
húsinu en frá 1964 eru skráðir
fjölmargir eigendur að húsinu
enda hafði því þá verið breytt í
fjölbýlishús og eru þar fimm
íbúðir.
Lœkjargata 13
Jónas Gottskálksson söðlasmiður
byggði fyrstur manna hús á þess-
ari lóð árið 1858. Árið 1863 bjó
þar Árni Árnason. Aðalsteinn
Jörundsson var eigandi hússins
um skeið og tók hann á leigu við-
bótarspildu við eignarlóð sína
árið 1943. Hallur Pálsson byggði
viðbót við húsið árið 1933 og árið
1942 breytti Jónas Jóhannsson
Mynd: SS
Árni Ingimundarson:
„Sem ennþá er við lýði? Ég er ekki
viss um aðég muni það. Hvað seg-
irðu, er það rækilega merkt? Nú
gerir þú mig alveg bit. Heyrðu
Nonni, komdu hérna," sagði Árni
og með hjálp Nonna kom svarið:
„Laxdalshús. Það er byggt 1795.“
Olga Ágústsdóttir:
„Er það ekki gamla húsið inni í
bænum sem var endurbyggt fyrir
nokkrum árum, ég er alveg viss um
það. Það heitir Laxdalshús. Hvenær
það var byggt? Ja, hvað er Akureyri
gömul, já ég giska á að húsið sé
byggt fyrir 125 árum. árið 1862."
Sigurður Árni Sigurðsson:
„Bíddu nú, elsta hús bæjarins og
hvenær það var byggt. Lundur?
Hérna, Gamli Lundur við Eiðsvöll-
inn, en ég veit ekkert hvenær hann
hefur verið byggður. Ég skýt á
Gamla Lund.“
Friðþjófur í. Sigurðsson:
„Elsta hús bæjarins? Er það ekki
Laxdalshús. Hvenær það var byggt?
Nei, nú stend ég alveg á rassgatinu.
Það er sautján hundruð og grænar
baunir, já það er sautján hundruð
og eitthvað.“
Laugardagur 29. ágúst 1987
DAGUB-5