Dagur - 29.08.1987, Side 11

Dagur - 29.08.1987, Side 11
Akureyri 125 ára Raforkusaga Akureyrar - Glerárvirkjun og Laxárvirkjanir Hugmyndir um að virkja vatnsfall til raflýsingar á Akureyri komu fyrst fram skömmu fyrir síðustu aldamót. Um þetta leyti voru tóvélarnar við Glerá að taka til starfa og uppi voru áform um að byggja stíflu í Glerá og nota vatn- ið til þess að knýja tóvél- arnar. Framsýnir menn skutu þeirri hugmynd á loft hvort ekki vœri hœgt að virkja Glerárfoss og leiða rafmagn til bœjarins. Virkjunarmálin voru ofarlega á baugi í umræðu fólks á fyrstu árum 20. aldar og árið 1913 var kosin rafljósanefnd sem var undanfari rafveitunefndar. Tveimur árum síðar var lagt fyrir bæjarstjórn erindi um rafhitun, en fáir trúðu því að rafmagn gæti verið samkeppnisfært við kol og olíu til húshitunar. Miklar umræður voru um raf- veitumálin næstu ár og ýmsar áætlanir gerðar. Svo við förum fljótt yfir sögu þá var ákveðið að virkja Glerárfoss árið 1920 og framkvæmdir hófust árið eftir. Þann 1. september 1922 var Knut Otterstedt ráðinn rafveitustjóri og 30. sept. var rafstöðin opnuð og straumi hleypt á þau hús sem búið var að tengja, en þau voru örfá. Daglega fjölgaði raflýstum húsum en fljótlega fór að bera á rafmagnsskorti á veturna enda ónógt vatn til miðlunar. Árið 1931 var komið upp dísilrafstöð til að bæta ástandið yfir vetrar- mánuðina en álagið jókst og þá varð að keyra stöðina árið um kring. Laxárvirkjun Árið 1934 var farið að skyggnast um eftir nýjum virkjunarstað og voru ýmsir möguleikar kannaðir, s.s. Skjálfandafljót, Fnjóská, Djúpadalsá og Öxnadalsá. Goða- foss og Barnafoss í Skjálfanda- fljóti voru um skeið taldir væn- legustu virkjunarkostirnir en um 1936 kom Laxá í Aðaldal inn í myndina og árið 1937 var lagt fram á Alþingi frumvarp til laga um Laxárvirkjun. Eftir stímabrak sem ekki verð- ur rakið hér hófust framkvæmdir við Laxá og var straumi hleypt á línuna 14. okt. 1939 með mikilli Laxárvirkjun. Aldur myndarinnar óviss. (Myndas. Dags) viðhöfn. Seinna um veturinn fór að bera á rafmagnstruflunum á Akureyri vegna krapa og árið 1944 var talið nauðsynlegt að virkja á nýjan leik við Laxá. Laxá eitt þjónaði aðeins Akur- eyri fyrstu árin og það var ekki fyrr en árið 1947 að hluti Þing- eyjarsýslu komst í samband. En nú var stefnt að Laxá tvö og var viðbótarvirkjun samþykkt á árinu 1947. Þann 17. maí 1949 voru samþykkt ný lög um Laxár- virkjun og án þess að geta um áralangar deilur um þessi mál gerist það helst aó tramkvæmdir við Laxá tvö hefjast árið 1950 og 10. okt. 1953 var straumi hleypt á nýju línuna til Akureyrar. Ný lög um Laxárvirkjun voru samþykkt árið 1965 og jafnframt veitt heimild til að reisa nýtt raf- orkuver, Laxá þrjú, en heimildin tók formlega gildi árið 1967. Deilur urðu um nýju virkjunina og hugsanleg náttúruspjöll. Næstu ár var mikið fundað og rætt um virkjunina en fram- kvæmdir hófust árið 1970. Þegar Laxárdeilan er í rénum í kringum 1974 hefjast umræður um Kröflu en hér verður ekki far- ið lengra í raforkusögu Akureyr- ar. Laxárvirkjun og Landsvirkj- un voru sameinaðar árið 1983. Heimild: Gísli Jónsson: Saga Laxár- virkjunar, Landsvirkjun 1987. hefur þjónað Akureyri og flotanum í yfír 30 ár með kostgæfni, og vonast til að svo verði áfram. Hljómver óskar Akureyringum til hamingju með afmælið. Súkkulaðiverksmiðjan JLinda sendir Akureyringum bestu hamingjuóskir með afmælið og býður alla velkomna á sýningarbás nr. 20 á iðnsýningunni í íþróttahöllinni. Utvalið er í Bókval Tölvur Prentarar Hugbúnaöur Hljóðdeyfar Skrifstofuhúsgögn Skjalaskápar Tölvuborö Pappírstætarar Póststimplunarvélar Telefax Innbindivélar Skrifstofustólar Ferðatöskur Tölvuvogir Ljósritunarþjónusta og m.fl. Bækur Ritföng Skólavörur Teiknivörur Ritvélar Blöö og tímarit Skrifborðslampar Tölvurekstrarvörur Reiknivélar Ljósritunarvélar Skáktölvur Afgreiðslukassar ’Símar og símkerfi 'Stimpilklukkur Myndvarpar Skjalatöskur Kaupvangsstræti 4 Akureyri Sýnum nútíma skrifstofu á iðnsýningunni Sýningartilboð: 10-20% afsláttur á tölvum Verið velkomin Sendum Akureyringum innilegar hamingjuóskir meö 125 ára afmælið Laugardagur 29. ágúst 1987 DAGUR-11

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.