Dagur - 29.08.1987, Page 22

Dagur - 29.08.1987, Page 22
Akureyri 125 ára Brot úr endurminningum: ,/ddrei veitd séra Matthías okkur ákúrur fyrir slagsmá, nerna honum þættu þau cbufleg“ Ævisögur og endurminningabœkur eru oft hinn merkasti fróðleik- ur um liðna tíma og skemmtilegar heimildir. Margir hafa rakið bernskuminningar sínar og œvi frá afmœlis- kaupstaðnum Akureyri og kennir þar ýmissa grasa, skopleg atvik, lifandi fróð- leikur og óvœntar upplýs- ingar. A þessum tímamót- um vœri ekki úr vegi að skyggnast ofurlítið í nokkrar af þeim bókum sem til eru afþessu tagi og freista þess að draga ýmis skemmtileg atvik fram í dagsljósið. Sigurjóna Jakobsdóttir var í þennan heim borin áriö 1891 og segir frá ævi sinni í bókinni Björtu hliðarnar, sem Gylfi Gröndal skráði og kom út 1983. Þar má t.a.m. finna þessa lýs- ingu: „Já, þetta voru eins og tvö ríki, Akureyri og Oddeyrin - og rígur á milli þeirra. „Ég er enginn fjandans Akureyringur. Ég er Oddeyringur," sagði Jóhannes á Borg, en hann var uppalinn í húsi, sem hét Gamli-Lundur og stóð skammt frá þar sem ég átti heima - og stendur þar enn. Ég lék mér oft við systur hans, tví- burana Jakobínu og Guð- nýju.“(bls. 57) Lokaðir Akureyringar Löngum hefur þeirri þjóðsögu verið haldið á lofti að Akureyr- ingar séu lokaðir og taki að- komumönnum ekki beinlínis opnum örmum. En lítum á hvað séra Matthías Jochumsson segir um viðtökurnar sem hann fékk: „Að vísu fannst mér í fyrstu fátt um viðtökurnar hér á Akureyri, og ekki sízt undraði mig, hvað linlega bæjarbúar sóttu kirkju og virtust meta lítið ræður mín- ar...“ (Sögukaflar af sjálfum mér, Rvík. 1959, bls. 335) En viðmót bæjarbúa átti aldeil- is eftir að breytast: „Svo fór að lokum, að ég naut hér á Akureyri meiri mannhylli yfirleitt en nokk- urs staðar áður - eins og opinber- lega sýndi sig á 80. afmæli mínu. Og fyrir löngu síðan hefur nálega allt bezta og helzta fólki hér og í nálægum sveitum auðsýnt mér svo mikla velvild og velgerðir, að mig hefur stórum undrað, og mér fundizt sem ég hafi ekki verð- skuldað nema lítinn hluta þeirrar blessunar." (bls. 341-342) Lestrarkunnáttu ábótavant Akureyri hefur verið kallaður skólabær, en lítum á hvernig Snorri Sigfússon leit á menntun skólabarna er hann tók að sér kennslu á Akureyri: „Á því furð- aði mig, er eg kynntist skólabörn- unum á Akureyri, hversu lestri þeirra var ábótavant. Hafði eg þar glöggan samanburð við börm Ekki lét ég mér segjast við það, þótt danskur sjóliði álasaði mér fyrir það að nota íslenzk glímubrögð í áflogum, heldur sperrti ég bein fyrir manninn öðru sinni með sama árangri. Hann valt eftir moldargöt- unni.“(bls. 63) Mykjuhaugur sprengdur Jóhannes Snorrason flugstjóri, sonur Snorra Sigfússonar sem áður er nefndur, segir frá ýmsum skemmtilegum uppátækjum sem hann tók upp á með félögum sín- um á Akureyri: „Þegar nálgast tók áramótin, fórum við strák- arnir á brekkunni að undirbúa gamlárskvöldið, sem skyldi verða eftirminnilegt. Við keyptum mik- ið af púðri, sem við settum í blikkdunk, festum við hann kveikjuþráð alllangan, og 'síðan var dunkurinn margvafinn með snærum og lím borið yfir hvern vafning. Við stóðum að þessu fjórir nágrannar á svipuðu reki, Orlygur Sigurðsson, Steindór Jónsson og Björgvin Júníusson. Allstór mykjuhaugur var á tún- inu andspænis húsi okkar, en það tún tilheyrði Sólheimum, heimili Steindórs. Frost hafði verið all- lengi og haugurinn því harður sem grjót. Við boruðum gat á hauginn niðri við jörð og rennd- um dunknum inni í hann miðjan með priki, en gættum þess að fela kveikjuþráðinn vel og verja bleytu. Var ákveðið að sprengja á miðnætti á gamlárskvöld, og var mikill spenningur að sjá, hvað yrði um hauginn. Svo þegar líða tók á kvöldið höfðum við ekki eirð í okkar beinum, og um klukkan ellefu bárum við eld að þræðinum. Við hlupum allir í skjól og biðum átekta. Það kvað við ógurlegur dynkur og haugurinn hófst á loft, kleprarnir flugu um nágrennið og innihald haugsins, sem var ófros- ið, málaði húsveggi og glugga. Stór stykki flugu alla leið að íþróttahúsi Menntaskólans og skólasveinar hlupu út í glugga til að sjá, hvað um væri að vera. Við vorum í felum fyrst í stað, en þegar við sáum að ekkert tjón hafði hlotist af uppátækinu, kom- um við roggnir á kreik, og Örlyg- ur hafði orð á, að við ættum að fá einkaleyfi á þessari aðferð við mykjudreifingu á tún bænda!“ (Skrifað í skýin, AB, Rvík, 1981, bls. 58-59) „Punnur í kollinum“ Lítum næst á tvö brot úr spjalli Erlings Davíðssonar við Nóa bátasmið, sem birtist í bókinni Aldnir hafa orðið I og kom út hjá Skjaldborg 1972: „Rann mér hálfpartinn í skap, þegar ég hafði lagt saman tvo og tvo, bankaði upp á hjá karli, sótti stúlkuna mína, fóstri, engin hálfvelgja á því. Mótmælum var ekki hreyft og ekki mikið skrafað, það ég man. Ég tók hana bara inn til mín og skilaði henni svo á sama skemmtistaðinn og ég fékk hana næsta kvöld. Allt kontant, klapp- Mynd: Hallgrímur Einarsson. stæla vöðvana. Stefán Jónsson skráði minningar kappans og kom bókin út í Rvík. 1964. Lít- um á sýnishorn, þar sem Jóhann- es segir frá séra Matthíasi: „Og Matthías lét ekki við það sitja að kenna okkur almenn lífs- sannindi með háleitri speki og blása í okkur hetjumóð í staðinn fyrir biblíusögustaglið, - heldur lagði hann það á sig að kenna okkur skylmingar. Líklega hefur hann lært skylm- ingar í Kaupmannahöfn. Þær taldi hann göfuga íþrótt. Þeir brugðu oft á leik Páll Árdal og hann og skylmdust. Matthías var samanrekinn maður og rammur að afli, en nokkuð tekinn að reskjast þá og orðinn þungur. Páll var grannur maður og léttur og skondraði eins og gimbill í kringum séra Matthías, sem vatt sér við af ótrúlegum snarleik. Korðarnir glömpuðu, gólfið gekk í bylgjum undir þeim og kennslu- stofan dundi af eggjunarópum okkar krakkanna.“(bls. 42) „Aldrei veitti séra Matthías okkur ákúrur fyrir áflog, nema honum þættu þau daufleg. Hann tók ekki heldur hart á vankunn- áttu, en heimska þótti honum leiðinleg.“(bls. 43) Jóhannes var rétt um fermingu þegar hann var farinn að berja á dönskum sjóliðum: „Ég stökk á móti honum, og áður en hann hefði áttað sig á því hvað þessi köttur hygðist fyrir, hafði ég brugðið honum á hælkrók svo að hann lá kylliflatur á götunni. Strákarnir lustu upp miklu ópi, en Daninn spratt snarlega á fætur aftur og var svo reiður að hann gaf sér ekki tíma til að dusta moldina af landgöngubúningi sínum, heldur greip til mín og æpti um leið: Du spærrer Ben dit Svin! - Þú bregður með fætinum, svínið þitt. Jóhannes Snorrason í flugtaksstöðu á Grunau 9, 1938. (Skrifað í skýin) einna greinilegast hafa orðið var við. En aldrei áttum við samræð- ur um það um veturinn, að stefnt væri í átt til úrbóta. Enginn sam- eiginlegur fundur með kennurum var haldinn og til einskis sam- starfs stofnað, hvorki um þetta né annað, og furðaði mig á því. Hver hugsaði aðeins um sig og paufaði í sínu horni.“ (Ferðin frá Brekku, Iðunn, Rvík. 1969, bls. 261-262) „Du spœrrer Ben dit Svin!“ Glímukappinn Jóhannes á Borg fæddist árið 1883 á Barði, sem þá var mitt á milli Oddeyrar og Akureyrar, þó heldur nær Odd- eyri. Hann ólst upp í Gamla- Lundi og byrjaði snemma að Horft norður Brekkugötu um 1930. in á Flateyri í huga, er jafnan komu læs í skólann við 10 ára aldur. Hér voru fjölda mörg börn 10 og 11 ára, og sum eldri, sem voru illa læs. Mun slíkt raunar hafa lengi verið slæmur fylgifisk- ur skólans, og komst eg síðar að því. En slíkt ástand var að sjálf- sögðu óhæft og tafði verulega fyr- ir náminu. Var skólaskyldan þar sem annars staðar bundin við 10 ára aldur og hafði jafnan verið. Hins vegar tók skólinn við yngri börnum gegn sérstöku gjaldi. Voru það þá einkum börn hinna efnaðri borgara, sem þess nutu, en hinir efnaminni létu hitt venjulega nægja, og komu því mörg börn lítt eða ekki læs inn í skólann um 10 ára aldur. Oft heyrði ég kennara kvarta yfir þessu ástandi, sem eg mun þó 22-DAGUR Laugardagur 29. ágúst 1987

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.