Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Side 21
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994 Hin nýgiftu. Ekki er annað að sjá en Lisa Marie sé ánægð með lífið þessa dagana þó að eiginmaðurinn sé ekki alveg sáttur við líkama hennar. Hin nýgiftu Jackson-hjón: lisa Marie var of feit fyrir Michael - og gekkst því undir lýtaaðgerð Bruðkaup arsins, þeirra Lisu Marie Presley, 26 ára, og poppstjörn- unnar Michaels Jacksons, 36 ára, er líklegast það mest umtalaða til þessa. Nú eru farnar aö berast sögur af hin- um nýgiftu og meðal þeirra eru lýta- aðgerðir frú Jackson að undanförnu. Michael var nefnilega ekki alveg sáttur við kropp konu sinnar. Hún var með of slöpp brjóst, enda tveggja barna móðir, og lærin voru í þykk- asta lagi. En það er svo sem ekkert mál að laga slíka hluti ef fólk á pen- inga og Michael Jackson á nóg af þeim. Sagt er að Lisa Marie hafi erft útlit og vöxt íoður síns, Elvis Presleys, en hann þurfti sífellt að hugsa um auka- kílóin og flestir muna hvernig rokk- stjarnan leit út síðustu æviárin. Michael Jackson er hins vegar lítiö fyrir aukakíló og sagði frúnni að hún muni yngjast um mörg ár ef hún léti fitusjúga sig svolítið. Þess vegna mun Lisa Marie hafa heimsótt lýtasér- fræðinginn Edward Terino í Los Angeles til að fá loft í brjóstin og láta fitusjúga lærin. Lisa Marie var lögð inn á einka- sjúkrahús í Agoura Hills stuttu eftir ferðalag til Evrópu. Sagt er að hin nýgifta hafi verið lögð inn á fölsku nafni. Aðgerðin tók íjóra tíma og Lisa Marie fékk lögreglufylgd út af sjúkrahúsinu ef einhverjir skyldu hafa komist á snoðir um dvöl hennar þar. Það voru ekki minna en sex lög- reglubílar sem mættu á svæðið. Lisa Marie kom út vafm inn í gult teppi í fylgd hjúkrunarkonu sem hjálpaði henni inn í hvítan Mercedes Benz. Segja sögur að Michael sé ekki enn ánægður. Hann vill að kona sín gangi undir fleiri lýtaaðgerðir. Fékk ekki að ættleiða börnin Öll heimsbyggðin fylgdist með ferö þeirra Michaels og Lisu Marie til Evrópu og sérstaklega vakti athygli þegar þau dvöldu í Ungverjalandi. Það var einmitt þar sem Michael vann að nýju tónlistarmyndbandi. Lisa Marie geislaði af gleði og ham- ingju í ferðinni. Ef hún er ekki ást- fangin af honum er hún góð leikkona var sagt. Meðan Lisa Marie var gift rokkar- anum Danny Keough sást hún nær aldrei brosa. Það var því enginn hissa þegar þau skildu. Þau áttu tvö börn saman, Danielle, 5 ára, og Benjamín, 2ja ára. Þegar Danny fékk tilboð upp á sjötíu milljónir frá Michael Jackson, ef hann fengi að ættleiða börnin, harðneitaði hann. Hann sagði jafnframt að Michael muni aldrei fá að ráða yfir börnum sínum og móöir Lisu Marie, Priscilla Presley, studdi hann í því. Lisa Marie hefur alla tíð átt þann draum að verða söngkona. Þann 8. október mun draumur hennar að einhverju leyti rætast en þá ætlar hún aö troða upp í Memphis ásamt eiginmanninum en þá verða hcddnir miklir tónleikar í minningu Elvis Presley í heimabæ hans. Margar fleiri stjörnur munu troða þarna upp því Elton John mun að öllum líkind- um láta sjá sig, einnig Lyle Lovett, Bon Jovi og Willie Nelson m ðinn' i VtA .X eln^ega^1"' ei> ■a0°b Xa 4 W1 -Ainn'ver':,c*la°S ..leikár°ö' claáy,nS . nefna ÓPf. ' sív,níkatón" kla^1' ' ' í lífií " . verða1 Opnun“>^r 1 ft. -Asson ve verða Ga^'1 kunni porste /, rneó ó í. gfður P ofrtein3 Hlj^sveHandhata Rico fá SINFONIUHLJOMSVEITISLANDS B I ó m s t r a n d i h I j ó m s v e i t Háskólabíói v/Hagatorg, sími 622255 Marie og Michaels Jacksons. «- " iim wu Kennum suðurameríska, / standard-, barna- og gömlu dansana. Einkatímar í bobi. Systkina-, fjölskyldu- og staðgreiðsluafsláttur. Innritun og upplýsingar 1. -10. september kl. 10-22 í síma 64 1111. Opiö hús öll laugardagskvöld. . Kennarar og aðstoðarfólk í vetur: Sigurður, Óli Geir, Sólveig, Þröstur, Hildur Ýr, Edgar og Petrea, auk erlendra gestakennara. DANSSKÓLI , SIGURÐAR HAKONARSONAR AUÐBREKKU 17, KÓPAVOGI

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.