Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Page 31
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994 39 „Svefntruflanir eru næsta algengar, erfidir draumar og martraðir, órólegur svefn og árvaka. Svefninn veitir ekki þá hvíld sem sóst er eftir. Alkóhólisti í vanda staddur „Ekki veit ég hvað er að mér,“ sagði maður nokkur við Nökkva lækni og brosti vonleysislega. „Ég fór í áfengismeðferð fyrir sex mán- uðum og tók allan pakkann. Nú er ég búinn að vera edrú síðan og fer reglulega á AA-fundi en einhvem veginn finnst mér ég ennþá vera hálfruglaöur." Þeir stóðu saman með fullar körfur í langri röð viö kassa í Hagkaupi. „Ég er alltaf í vitlausri röö,“ sagði maðurinn skyndilega reiðilegri röddu. „Sjáðu, Nökkvi, allar hinar raðirn- ar ganga mun hraðar en þessi. Þetta er alveg ægilegt." Maöurinn var skyndilega orðinn ofsareiöur. Hann hélt langa ræðu um raða- menningu íslendinga og æsti sig upp út af verðlaginu og yfirgangi Norðmanna í Smugunni. „Svo er maður látinn standa endalaust í röð,“ sagði hann og byrsti sig á nærstadda. Allt í einu varð spenna stundarinnar manninum ofviða og hann fór að gráta. „Ég er líka svo djöfull viðkvæmur," sagði hann og snökti. Hann kom að kassanum og tók upp úr körfunni. Þá uppgötvaði maðurinn að hann haföi gleymt bæði ávöxtum, kryddi og nokkrum kexpökkum. Hann rauk til og hljóp af stað til að ná í þessar vörur. Þegar hann kom aftur spurði stúlk- an hann hversu marga poka hann vildi að fá. Þeirri spurningu gat hann ekki svarað umbúðalaust. Fyrst sagði hann einn poka, síðan tvo, en klykkti út með því að segja engan. Hann borgaöi fyrir vörurn- ar í miklu fáti og raðaöi þeim í pappakassa en þá tókst svo illa til aö hann missti eggjapakka í gólf- ið. Aftur missti hann stjórn á skapi sínu, varö ofsareiður og sparkaði eggjunum til hliðar, bölvaði ógur- lega og æddi á dyr. Hann kom að vörmu spori skömmustulegur á svip til að ná í kassann sem hann hafði gleymt í æsingnum. „Hvað getur eiginlega verið að mér,“ sagði maðurinn þegar þeir voru sestir inn á kaffihús skömmu síðar. Síðbúin fráhvörf Nökkvi svaraði að bragði: „Þú ert enn í síðbúnu fráhvarfi eða síð- hvörfum eftir áfengisneyslu. Heii- inn skaðast eitthvað þegar mikið er drukkið og heilafrumurnar eru nokkurn tíma að jafna sig og ná aftur fyrri starfsgetu. Menn héldu einu sinni að alkóhólistar væru fljótir að jafna sig þegar verstu timburmennirnir hefðu lagt hamra Á læknavaktLniú sína og tól til hhðar en svo er ekki. Heilinn er nokkra mánuði að ná sér. Einkennin má rekja til brengl- unar á hugsun og minni sem lýsir sér í einbeitingarörðugleikum og óeðlilegri gleymsku. Menn eiga erf- itt með að leysa einföldustu vanda- mál og margir kvarta undan mikl- um geðsveiflum. Pirringurinn og gráturinn í röðinni áðan eiga sér þannig skýringu í þessu ástandi. Sumir fmna fyrir tilfmningalegri deyfð og flatneskju. Erfiðleikar í sambandi við skammtímaminni eru býsna algengir. Þú uppgötvaðir skyndilega að vörur vantaði í inn- kaupakörfuna sem rekja má til þessa." Maðurinn hafði hlustað af at- hygh. „Þetta er þá skýringin. Stundum hef ég tahð að ég væri að fá Alsheimer eða missa vitið. Ég á erfitt með að muna einfóldustu hluti.“ „Já,“ sagði Nökkvi. „Það stafar bæði af eituráhrifum áfengis á minnið og lélegri einbeitingu." Hann hélt áfram: „Svefntruflanir eru næsta algengar, erfiðir draum- ar og martraðir, órólegur svefn og árvaka. Svefninn veitir ekki þá hvíld sem sóst er eftir. Auk þess finna margir fyrir klaufaskap. Þeir eiga erfitt með að samhæfa hreyf- ingar útlima svo að vel sé, detta, missa hluti, brjóta. Mér varö hugs- að til þessa þegar þú misstir eggja- pakkann og fylltist sfðan ofsareiði og vanmætti. En alvarlegast er þó lítið streituþol. Þegar streitan eykst versna þessi einkenni til mikilla muna. Menn missa oft öll tök á hugsuninni, gleyma einfóldustu hlutum, sveiflast öfganna á milli, gráta eða hlæja og lenda í alls kon- arsmáóhöppum." Meöferð Það var greinilegt að manninum hafði létt mjög við þessa ræðu. Hann hafði fengið viðhhtandi skýr- ingu á einkennum sem valdið höföu miklum áhyggjum. „En hvað á ég að gera,“ sagði hann. „Aðal- máhö er að þú haldir áfram að vera edrú,“ sagði Nökkvi, „og farir á AA-fundi og lærir aö nýta þér þá. Auk þess skiptir miklu að þú gætir vel að mataræði og sjáir th þess að borða reglulega hollan og næring- arríkan mat. Auk þess þarftu að minnka kaffidrykkju og hætta að reykja vegna þess að nikótín og koffeín auka streitu og gera ein- kennin mun verri. Þú hefur gott af því aö stunda einhveija líkams- rækt, hlaupa, synda, ganga eða hjóla reglulega og minnka þannig spennuna sem hleðst upp í líkam- anum. En mestu skiptir að þú lær- ir að fást við streitu; skipuleggir þig vel, færist ekki of mikiö í fang og sért með einhveija örygggis- ventla í kringum þig eins og fólk sem þú getur leitað til á öllum tím- um sólarhrings." Maðurinn horfði með aðdáun á lækninn. „Ég er þá ekki að verða geðveikur?" sagði hann brosandi og hellti kaffi í boll- ann sinn. Höndin var örugg og .stöðug eins og hjá heilaskurð- lækni. „Nei,“ sagði Nökkvi. „Þetta líður hjá eins og annað. Þú verður vita um þessi einkenni og læra að lifa meö þeim og ráða þannig við þau.“ ÓSKAST TIL LEIGU! ÓSKUM EFTIR HÚSNÆÐI TIL LEIGU Á JAÐARSVÆÐI R EYKJ AVÍ KU R(H ELST SÉRBÝLI Á MOSFELLSSVÆÐI). HÚSNÆÐIÐ MÁ PARFNAST LAGFÆRINGA. Er BYGGINGAMEISTARI að mennt og HEF STARFAÐ erlendis sl. tvö ár. VlNSAMLEGAST HAFIÐ SAMBAND VIÐ AUGLÝSINGAÞJÓNUSTU DV. MERKT H*775. KARATE fyrir alla Við bjóðum ÓKEYPIS NAMSKEIÐ í 3 mánuði fyrir byrjendur. Innritun daglega á staðnum kl. 19.30-21.30. Þjálfari: Sensei REYNIR Z. SANTOS 5 DAN. Karatedeild Ármanns, Sigtúni 10 Barnadansar - freestyle „Heyrðu“ U) p Dansskólinn er fluttur að Hamraborg 1, 3. hæð. B .44 Kennum einnig í Hjallaskóla. < æ O Sh Barnadansar og leikir, 3 1 ,,freestyle“, s» • i-H Ö samkvæmis- og gömlu dansar, 3 CO Sh tjútt og rokk, p t-á KO 0 salsa og suðrænir. 1 CfQ 1 Innritun stendur O: 3 oj CÆ yfir í síma 642535. ^ U d 'cö Fyrsti kennsludagur _ ] P- P er 13. sept. Dagný Björk 3 œ (g) Vy dunskennari P barnadansar - freestyle - tjútt - rokk Almennir flokkar - Frístundanám Bóklegar greinar: íslenska, stafsetning og málfræði. ítarleg yfirferð. íslcnska fyrir útlendinga I, II. III, IV (í 1. stigerraðaðeftir þjóðerni nemenda). íslensk málnotkun og huglök: Námskeið fyrir nýbúa á framhaldsskólaaldri sem þurfa að ná betri tökum á inálinu. Erlend tungumál: (byrjenda- og framhaldsnámskeið) Danska, norska, sænska. Enska, þýska, franska, ítalska, ítalskar bókmcnntir, spænska, spænskar bók- mcnntir. gríska, portúgalska, latína. Búlgarska, gríska, pólska, tékkneska, rússneska. Japanska, hebreska, arabíska. íranska. Verklegar greinar: Fatasaumur, bútasaumur, batik, myndvefnaður, skrautskrifl, postulinsmálun. bókband, skokk, handritsgerð, llugdrekagerð, stjörnuspeki, ieikræn tjáning, spuni. Myndlistarnámskeið: (byrjenda- og framhaldsnámskeið) Teikning, málun, inódelleikning, Teikning og litameðfcrð fyrir 13-16 ára. Umhvcrfisteikning. Aðstoð við skólafólk: Stærðfræði á grunnskóla- og framhaldsskólastigi. Nemendur mæla með eigið námsefni og fá aðstoð eftir þörfum. Fámennir hópar. Stafsetning og málfræði. ítarleg yfirferð. íslenska fyrir nýbúa á framhaldsskólaaldri. íslensk málnotkun og hugtök. Námskeið fyrir börn: Danska, norska, sænska, þýska. Fyrir börn, 6-10 ára, til að viðhalda kunnáttu þeirra sem kunna eilthvað fyrir í málunum. Ný námskeið: Handritagerð: Kveikjan að kvikmynd. Fjallað er um það sem hafa ber i huga við gcrð kvikmyndahandrita. Brot úr kvikmyndum skoðuð til skýringa. Flugdrckagerð: Leiðbeint um gerð stýridreka og beitingu þeirra. Stjörnuspeki: Leiðbeint um gerð stjörnukorta og túlkun þeirra. Leikræn tjáning - spuni: Spunatækni sem byggist á leikjum, æfingum og dýpri spunavinnu. Nemendur setja upp eigin sýningu í lok námskeiðsins. Þýska fyrir börn 6-14 ára: Kennsla sem áður fór fram í Hlíðaskóla verður nú á vegum Námsflokka Reykjavíkur. í almennum flokkum er kennt einu sinni til tvisvar í viku, ýmist tvær, þrjár eða fjórar kennslustundir í senn. Námskeiðin standa yfir í 4-11 vikur. Kennslugjald fer eftir stundaljölda og er haldið í lágmarki. Það skai greiðast við innritun. Kennsla fer fram í Miðbæjarskóla og Gerðubcrgi. Innritun fer fram í Miðbæjarskóla, Fríkirkjuvegi 1, dagana 14. og 15. septemb- er klukkan 17.00-20.00. Kennsla hefst 26. september.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.