Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Qupperneq 37

Dagblaðið Vísir - DV - 10.09.1994, Qupperneq 37
LAUGARDAGUR 10. SEPTEMBER 1994 45 Aróður gegn reykingum mikill í Bandaríkjunum: Er sígarettan að deyja? - tóbaksfyrirtækin leita til austurs með afurðir sínar Klemens Amaison, DV, Phoenix, Aiizona; { 400 ár hefur tóbak verið horn- steinn í bandarísku hagkerfi. Margar kynslóðir hafa haft viður- væri sitt af ræktun tóbaks og marg- ar milljónir manna hafa byrjað daginn á því að njóta þessarar af- urðar. En nú eru breyttir tímar. Tóbaksiðnaðurinn stendur núna andspænis stærstu þrengingum sem hann hefur oröið fyrir síðan 1964 þegar landlæknir tiíkynnti að sígarettur væru hættulegar heilsu manna. Á undanfórnum mánuðum hefur staðið yfir stanslaus áróðurs- herferð á hendur framleiðendum tóbaks. Segja má að herferðin hafi náð hámarki þegar sjónvarpsþátt- ur ABC, Day One, birti frétt mn að tóbaksframleiðendur bættu nikót- íni í sígarettur til þess að auka lík- ur á því að fólki yrði háð þeim og hætti því síður að reykja. Tóbaks- framleiðendumir Philip Morris, sem meðal annars framleiða Marl- boro og Benson & Hedges, kölluðu strax til fréttamannafundar þar sem þeir tilkynntu 10 billjón doll- ara meiðyrðamál á hendur ABC fyrir að fara rangt með staðreynd- ir. Nú nýlega hafa tvö fylki, Miss- issipi og Florida, farið í mál við tóbaksiðnaöinn í heild sinni til að fá endurgreiddan þann kostnað sem þau þurftu að borga til að sinna sjúklingum sem urðu veikir af völdum tóbaks. Ef fylkin vinna gæti það þýtt endalok tóbaksiðnað- arins eins og við þekkjum hann í dag. Nikótín David Kessler, yfirmaður Mat- væla- og lyfjaeftirhts Bandaríkj- anna (FDA), er lykilmaðurinn í þeirri herferð sem nú stendur yfir. Hann hefur lýst því yfir opinber- lega að ef þingið veiti honum ekki leyfi til þess að koma reglum yfir tóbaksiðnaðinn á svipaöan hátt og sölu lyfja muni hann banna sölu á sígarettum. Hann hefur farið fram á að framleiðendur geri grein fyrir öllum þeim 700 mismunandi efnum sem í sígarettum eru. Þar af hafa fimm tegundir efna veriö taldar skaölegar heilsu manna. Það sem hann leggur sérstaklega áherslu á er að upplýsa fólk um skaðsemi nikótíns. Um miðjan sjötta áratug- inn fóru tóbaksframleiðendur að framleiða sígarettur með minni tjöru og auglýstu þær upp sem mun héilsusamlegri afurð. Ástæðan er sú að tóbaksiðnaðurinn eyöir millj- ónum dollara árlega í markaðs- rannsóknir og þar vita menn að fólk reykir frekar sígarettur með lítilli tjöru því að almenningur tel- ur þær hættuminni. Gallup skoð- anakönnun frá síðasta ári rennir enn styrkari stoðum undir þessa kenningu því 48,6% aðspurðra héldu því sama fram. Þessar yfir- lýsingar tóbaksframleiöenda eru ein mesta blekking sem sögur fara af og einn stærsti áhrifavaldur í ónauðsynlegum dauða milljóna manna. Máhð er nefnilega það að nikótín er ekki síöri skaðvaldur. Þetta vissu vísindamenn hjá Phihp Morris árið 1983 þegar rannsóknir þeirra staðfestu að rottur, sem fengu nikótín, urðu háðar því. Vís- indatímarit komst á sínum tima yfir þessar rannsóknir og ætlaði að birta þær en fyrirtækið kom í veg fyrir það. Tóbaksiðnaðurinn og blekkingar Tóbaksiðnaðurinn hefur í gegn- um tíðina notað margar miður heiðarlegar aðferðir til þess að varðveita og ná í nýja viöskipta- vini. Það eru t.d. 16 mismunandi tegundir af Marlboro seldar og 17 veggspjöldum sem prýða umhverf-. ið á ótrúlega mörgum stöðum. Á undanförnum árum hafa tópaks- fyrirtækin verið staöin að því að borga kvikmyndaframleiðendum til þess að láta söguhetjur kvik- myndanna reykja ákveðnar sígar- ettutegundir. Þessum óbeinu aug- lýsingum er beint sérstaklega að unglingum og eru gerðar til þess að ýta undir þá ímynd aö reykingar séu „töfT'. Rannsóknir sýna að 3000 unghngar byrja að reykja á degi hverjum eða rúmlega 1 mihjón á ári hverju. Fyrir tóbaksiðnaðinn eru þessir unglingar lífsnauösyn- leg endurnýun á viðskiptavinum. Hver árgangur af nýjum þjóðfé- lagsþegnum fer ört stækkandi og ef tóbaksiðnaðurinn nær að halda svipaöri prósentutölu og í dag ætti sígarettunotkun að aukast. Útflutningur tóbaks Á meðan fólk á Vesturlöndum gerir sér enn betur grein fyrir því hversu tóbak sé skaðlegt eru bandarísk stjórnvöld að hjálpa tób- aksframleiðendum að komast yfir markaði erlendis og þá sérstaklega í Asíu. Dan Quayle, fyrrum vara- forseti Bandaríkjanna, sagði í ræðu árið 1990 að auka ætti útflutning á tóbaki sökum minnkandi sölu á heimamarkaði. Nú nýlega, þegar endumýja átti aðild Kína að hópi þeirra landa sem njóta bestu við- skiptakjara við Bandaríkin, voru mannréttindamál ofarlega á baugi. Háværar raddir voru uppi um aö bandarísk stjórnvöld ættu að setja kínverskum stjórnvöldum stóhnn fyrir dyrnar þar til að þau bættu ráð sitt í mannréttindamálum. Það var ekki gert heldur var farið fram á aðgang tóbaksframleiðenda að einum stærsta sígarettumarkaði í heiminum. Kínverjar létu undan að lokum og nú eru bandarískar sígarettur komnar inn á velflesta markaði í Asíu. Aðalmarkhópur- inn í Asíu eru unghngar og kemur þaö ekki mikið á óvart. Fijálslegri reglur eru í velflestum þessara landa í sambandi við auglýsingar og notfæra tóbaksframleiðendur sér það til hins ýtrasta. Aðalplötu- búðin í Kuala Lumpur, Malasíu, er Salem Power Center og velflest di- skótekin eru í eign tóbaksfyrir- tækja. Poppstjörnur eins og Phil Colhns, Madonna og Paula Abdul hafa tekið þátt í stórtónleikum sem styrktir eru af tóbaksframleiðend- um. Þegar inn var komiö var sígar- ettum dreift ókeypis til þeirra sem vildu. Til aö bæta upp minnkandi sölu á heimamarkaði hefur Philip Morris aukiö alþjóðlega sölu um næstum helming. Árið 1989 var salan 8,7 mhljarðar dohara en 1993 er salan 15,7 mihjarðar. Nýir mark- aðir hafa opnast í Rússlandi, Tékk- landi, Litháen, svo að eitthvað sé nefnt. Það eru því bjartir tímar framundan á alþjóðamarkaði þótt yfirhtið sé frekar dimmt á heima- markaði. Árið 1989 bað alþjóðlega heh- brigðisstofnunin sérfræðinga um að reikna út hversu margir mundu deyja í heiminum ef reykinga- mynstur héldist eins og það er í dag. „Af þeim mihjörðum barna sem nú eru lifandi í heiminum munu 800 mhljónir reykja. Um 25% af þeim sem reykja deyja af völdum tóbaks og erum við því aö tala um 200 mihjónir manna,“ sagði dr. Ric- hard Pele, talsmaður sérfræðing- anna. Þegar hlutirnir eru skoðaöir frá þessum sjónarhóh er það held- ur kaldhæðnislegt að bandarísk stjórnvöld séu aö beijast við tób- aksiðnaðinn heima fyrir en hjálpi honum svo á erlendri grundu. Heimildir. U.S. News & World Report. 18/04/1994. New Statesman & Society 29/05/92. Washington Monthly 01/09/93 Því miður eru alltof margir unglingar sem byrja að reykja. Fyrir tóbaksiðnaðinn eru þessir unglingar lífs- nauðsynleg endurnýun á viðskiptavinum. $pf ð M LCONOMIC DAtLY «-8sœ m atærsti hluti auglýsinga tóbaksfyrirtækja eru i prentmiðlum, íþróttakost- in, eins og t.d. kappakstur, er einnig stór liður og ekki má gleyma vegg- •pjöldum sem prýða umhverfið á ótrúlega mörgum stöðum. af Merits. Þetta veldur því að reyk- ingamenn, sem ekki fylgjast nógu vel með, eru að reykja mismunandi tegundir þótt þær séu undir sama merki. Virginia Shm 100 Mentol Slim Light sígarettur eru með 8 mg af tjöru og 0,6 mg af nikótíni. Virginia Shm 120 Mentol Shm Light eru aftur á móti með 13 mg af tjöru og 1,1 mg af nikótíni. Ástæðuna segir framleiðandinn vera þá að Virginia Slim 120 er lengri og því með meira af efnum. En ef máhð er skoðað betur kemur í ljós að þótt þú fáir 20% stærri síg- arettu er hún með 70% meira af tjöru og nikótíni. Tóbaksiönaður- inn hefur notað svipaðar leiðir þeg- ar hann auglýsir harða sígarettu- pakka grimmt en dreifir síðan mest af mjúkum sígarettupökkum. Þeg- ar viðskiptavinurinn kemur inn og biður um haröan pakka segir af- greiðslumaðurinn að þeir séu bún- ir en mjúkir pakkar séu th. Munur- inn er sá að þótt sígarettumar í mjúku pökkunum séu 5% lengri er tjöru- og nikótínmagn þeirra 100% meira en í hörðu pökkunum. Þetta er allt gert til að gera sígarett- ur enn meira ávanabindandi. Reykingar í dag Á síðustu áratugum hefur reyk- ingamönnum farið fækkandi hér vestanhafs. Árið 1964 er tahð að 40% bandarísku þjóðarinnar hafi reykt en sambærhegar tölur í dag eru 25%. Ef glögglega er rýnt í þess- ar tölur kemur í ljós að þær segja ekki ahan sannleikann. Á þessum Bandaríkjamenn berjast af hörku gegn reykingum meðan tóbaksfyr- irtækin beina spjótum sínum að Asíu og Austur-Evrópu. 28 árum hefur þjóðinni flölgað tölu- vert en sala á sígarettum dregist saman um örfá prósent. Ein af ástæðum fyrir því að tób- aksiðnaðurinn stendur enn á föst- um grunni eru auglýsingar þótt bannað sé að auglýsa í kostnaðar- sömustu fjölmiðlunum, útvarpi og sjónvarpi, eyðir tóbaksiðnaðurinn tæplega 4 mhljörðum dohara ár- lega í auglýsingar. Til að varpa örlítið betra ljósi á þessa staðreynd má geta þess að hehdarinnkoma stærsta sígarettuframleiðandans, Philhp Morris, áriö 1993 var 9,3 mhljarðar dohara. Það er því aug- ljóst að stór hluti árlegrar veltu fer í auglýsingar. Stærsti hluti auglýs- inganna er í prentmiölum, íþrótta- kostun, eins og t.d. kappakstur, er einnig stór hður og ekki má gleyma

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.