Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1994, Síða 2
2
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1994
Fréttir
KU.L 1
THE 6
WHALES
Einmana
Vísaðtilhafnar:
íþriðjasinn
Landhelgisgæslan haíði aí'-
skipti af 108 tonna eikarbáti í
gær. Við könnun á réttindum
skipveija kom i ljós að aöalvél-
stjóri var skráður í fríi. Er þetta
í þriðja skiptið frá því á seinasta
ári sem varðskipsmenn fara um
borð í umrætt skip. í ekkert skipt-
anna hefur aðalvélstjóri verið um
borö og hann alltaf skráður í fríi.
Skipinu var skipað til hafnar.
mæBas
Hvalveiðibann undanfarinna ára
hefur mæft andstöðu hér á landi
en stjórnvöld hafa þó ekki treyst
sér til að hefja veiðar af ótta við
hörð viðbrögð umhverfisvernd-
arsinna úti í heimi. Þessi Hafn-
firðingur er þó ekki á því að
gefast upp í baráttunni og hélt út
í hólma á Hafnarfjarðarlæk síð-
degis i gær með mótmælaskiltl.
Eins og sjá má á myndinni vill
þessl hainfirskí baráttumaður
hefja nú þegar hvalveiðar. Fáir
voru hins vegar til að taka undir
meö honum því einn stóð hann
i þessum aðgerðum fram á
kvöld. DV-mynd BG
Eldtungurnar stóðu
marga metra upp í loft
- segir Hallgrímur Matthíasson sem slapp ómeiddur
„Eg sá einhverja gufu fyrst og hélt
að það væri farið að sjóða á vélinni.
í því verður bara sprenging, það
sprautaðist olía aftan á húsið á vél-
inni og eldtungurnar stóðu marga
metra upp í loftið. Ég var með dyrnar
opnar og stökk út úr vélinni og stuttu
síðar voru rúöurnar farnar í hús-
inu,“ sagði HaUgrímur Matthíasson,
vinnuvélastjóri hjá Steypustöðinni.
Hallgrímur var við vinnu sína í
gær í Kollafirði þegar eldtungurnar
stóðu upp úr ámokstursvél hans.
Honum tókst naumlega að forða sér
úr vélinni áður en eldurinn náði til
hans.
Taliö er að glussaslanga hafi gefið
sig og sprautast úr henni yfir heita
vélina og pústið en vélin hafði verið
í fullri vinnslu í töluvert langan tíma.
Vinnufélagar Hallgríms brugðust
skjótt við þegar þeir sáu hvað verða
vildi og beittu nokkuð nýstárlegum
aðferðum við að slökkva eldinn.
Önnur ámokstursvél var á vinnu-
svæöinu og fylltu þeir skóflu hennar
af sandi og mokuðu yfir eldinn en
ekki sló á logana. Þá var fariö í nær-
liggjandi skurð, sem var fullur af
vatni, og skóflunni dýft ofan í og
ausið yfir brennandi vélina. Það
hreif og beið því lítið starf slökkvi-
liösmanna þegar þeir komu á. vett-
vang.
Sexhandteknir:
Fíkniefnifund-
ustíhúsleit
Fíkniefnadeild lögregiunnar
handtók sex manns á miðvikudag
í kjölfar húsleitar í heimahúsi.
Viö leit í húsinu fannst 21 gramm
af hassi og amfetamín. Öllum
hinum liandteknu var haldiö yfir
nótt og þeir yfirheyrðir. Á
fimmtudag var farið i aðra hús-
leit og fannst þá einnig hass og
amfetamín, auk áhalda til neyslu.
Samkvæmt heimildum DV var
eiirn hinna handteknu annar
tveggja mannanna sem nýlega
hlaut dóm í stóru LSD-máli. Hann
gengur þó enn laus þrátt fyrir
fangelsisdóm.
Hallgrímur Matthíasson vinnuvélastjóri við gröfuna sem kviknaði í.
Sprenging 1 vinnuvél í Kollaíirði:
DV-mynd Sveinn
Hæstiréttur:
Síbrotamenn skulu frjálsir
Hæstiréttur hefur fellt úr gildi skurðaðir í gæsluvarðhald í sein- ljósi mikils brotavilja piltanna og
gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs- ustu viku vegna fjölda innbrota var ætiunin að ljúka meðferð mála
dóms Reykjavíkur yfir 2 piltum á sem þeir höfðu framið. Um var að þeirra áður en þeim yrði sleppt aft-
tvítugsaldri. Pfitarnir voru úr- ræða svokallaða síbrotagæslu í ur frjálsum.
Sigurður Pétursson um nýjan jafnaðarmannaflokk:
Stef num að framboði
í öllum kjördæmum
- Jón Sæmundur Sigurjónsson í hópi stuðningsmanna Jóhönnu Sigurðardóttur
„Flokksstofnunin er komin af stað
og undirbúningsvinna hafin. Meðal
annars er byijað að semja stefnu-
skrá. Vinnuhópar eru byrjaðir að
vinna. Við stefnum að því að bjóða
fram í öllum kjördæmum í næstu
þingkosningum og erum komin með
tengiliði í öllum kjördæmunum,"
sagöi Siguröur Pétursson, oddviti
Jafnaðarmannafélags íslands og
stuðningsmaður Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, varðandi stofnun jafnaðar-
mannaflokks sem Jóhanna og stuðn-
ingsmenn hennar eru að vinna að.
Jóhanna Sigurðardóttir lýsti því
yfir í umræðum á Alþingi síðastliðið
þriðjudagskvöld að hún og stuðn-
ingsmenn hennar væru að stofna
stjórnmálasamtök sem ætluðu aö
bjóða fram í næstu kosningum.
Jón Sæmundur Siguijónsson, fyrr-
um alþingismaður, er í hópi stuðn-
ingsmanna Jóhönnu Sigurðardóttur.
„Mér hefur alltaf verið vel til Jó-
hönnu. Þegar ég hef verið spurður
þeirrar spurningar hvort ég sé stuðn-
ingsmaður hennar hef ég alltaf sagt
já. Ég er stundum spaugsamur og
menn hafa tekið svar mitt eftir því.
En þú mátt hafa það eftir mér að öllu
gamni fylgi nokkur alvara,“ sagði
Jón Sæmundur þegar DV spuröi
hann um stuðning hans við Jóhönnu.
Sigurður Pétursson sagði að mjög
margt fólk úr Alþýðuflokknum og
úr flestum kjördæmum hefði haft
samband við Jóhönnu Sigurðardótt-
ur og talsmenn Jafnaðarmannafé-
lags Islands og lýst yfir stuðningi við
þessa flokksstofnun. Búast má við
að nú, þegar Jóhanna hefur tekið af
skarið með flokksstofnunina opin-
berlega, fjölgi þeim krötum sem
koma til samstarfs viö hana og henn-
ar fólk.
Stuttarfréttir
Lagafrumvarp um sameiningu
Sléttuhrepps við ísafjörð var
kynnt í ríkisstjórninni í gær.
Kosning getur ekki farið fram því
lireppurinn er mannlaus.
Vigdís Finnbogadóttir forseti
hitti Bill Clinton í Hvíta húsinu í
gærkvöldi. Á eftir fór hún á kvik-
myndahátíð.
Krónan aldrei lægri
Gengi krónunnar hefur aldrei
veriö skráð jafn lágt og um þessar
mundir, Gengið hefur stöðugt
lækkað síðan í september.
Sefiðáuppiýsingum
Menntamálaráðherra hefur
veitt einstaklingum og samtökum
samtals 6,3 milljónir í styrki af
því ráðstöfunarfé sem Alþingi
úthlutaði honum í ár. Sundurllð-
un upphæðarínnar hefur ekki
fengist gefin upp.
Heimdallurmótmæiir
Stjóm Heimdallar hefur mót-
mælt þeim tiiraunum ríkisvalds-
ins að grípa inn í daglegt líf fólks
meðnýjum fiöibýlislögum. Heim-
dellingar segja kattaákvæöí lag-
anna rýra verðgildi íbúða.
Frystiskip frá Hafnarf örði
Dótturfyrirtæki Skagfirðings,
Djúphaf hf„ hefur keypt frysti-
skipið Sjóla frá Hafnarfirði. Sam-
kvæmt RÚV fylgir lítill hluti
kvótans með í kaupunum. -
Batnandiafkoma
Eignarhaldsfélag Alþýðubank-
ans skilaði 80 milljóna króna
hagnaði af rekstri fyrstu 8 mán-
uði ársíns. Á öllu síðasta ári var
tap félagsins 259 milljónir.
Sijórn Verkaiýðsfélags Húsa-
víkur mótmælir öllum hugmynd-
um um hækkun skatta, hvort sem
þær felast í hækkun bensíngjalds
eða eru með öðrum hætti. Slíkar
hækkanir komi einfaldlega niður á
kaupmætti launafólks.
Stúdentar álykta
Niöurskurður til.menntamála
er alröng stefna í höröu ári og
fjöldatakmarkanir leysa engan
vanda. Stúdentaráð ályktaöi á
þennan veg vegna framkomins
íjárlagafrumvarps.
Skóiakönnun Gallups
Könnun Gallups leiöir í ijós að
57% landsmanna telja að rekstur
grunnskólans eigi að vera í hönd-
um ríksins, Tæplega 51% er
hlynnt fiölgun samræmdra prófa.
Hagnaður hjá HB
Haraldur Böðvarsson hf. á
Akranesi hagnaðist um 81 milljón
króna fyrstu 8 mánuði þessa árs.
Fyrirtækið hyggst skrá hlutabréf
sín á Verðbréfaþinginu.
Nýþjónustumiðstöð
í gær var fyrsta skóflustungan
tekin að nýrri þjónustumiöstöð í
Kópavogi íýrir eldri borgara.
Miðstöðin verður tæplega 700 fer-
metrar og er staðsett viö Gull-
smára 13.
Vinnuvélaeigendur hafa sent
frá sér ályktun þar sem tillögum
forsætisráðherra um auknar
vegaframkvæmdir er fagnað.
Áformum fjármálaráðherra um
innheimtu þungaskatts af vinnu-
vélum er hins vegar mótmælt.
I tilefni 90 ára aftnælis Iðnskól-
ans hefur ÍSAG A hf, gefið skólan-
um gasdreifikerfi til notkunar í
grunndeildum málmiðna.
Sundiaugaverðir í próf
Nýjar reglur um sundstaði gera
strangar kröfur til sundlauga-
varða. Framvegis verða ailir
starfsmenn sundstaða að gangast
undir erfið próf á hverju ári.
Bylgjan skýrði frá þessu.