Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1994, Qupperneq 6
6
LAUGARDAGUR 8. OKTÖBER 1994
Utlönd
Stuttar fréttir
Æringi í Antwerpen í Belgíu hefur fundið fylgispakan frambjóðanda:
Býður gamlan hund
fram í borgarstjórn
- auk þess eru hóra, fryst kona, litli maðurinn og tvær 93 ára konur í framboði
„Frambjóðandi minn hefur alla
sömu kosti og hinir frambjóðendurn-
ir. Það er útlokað að skilja hann,
hann er latur, sefur alla daga og étur
eins og skepna," segir blaðamaöur
nokkur sem boðið hefur gamla hund-
inn sinn, hann Bangsa, fram til borg-
arstjórnar í Antwerpen í Belgíu.
Kosið verður á morgun og þá kem-
ur í ljós hvemig Bangsa hefur gengið
að smala atkvæðum. Að vísu má
ekki bjóða hunda fram þannig að eig-
andinn er skráður fyrir framboðinu.
Bangsi gamli sér hins vegar um
kosningabaráttuna og trónir nú á
stórum auglýsingaspjöldum um alla
borg.
Ein hóra
og litli maðurinn
Bangsi verður að bítast um at-
kvæðin við marga aðra líklega keppi-
nauta. Þar á meðal er hóran Natasja
og maður nokkur sem býður fram í
nafni konu sinnar. Hún lést fyrir
nokkurm árum en er vel varðveitt í
frysti. Frambjóðandinn segist geyma
hana til vonar og vara langi hann til
að hitta sína elskuðu á ný.
Þá er htli maðurinn í kjöri og einn-
ig Einkageiraflokkurinn, lítt frum-
legur tlokkur sem lofar skattalækk-
unum. Einnig hafa tvær 93 ára gaml-
ar konur boðið fram lista gamla
fólksins. Þrír náungar sem allir heita
Gay bjóða fram þrjá gæja og svo
mætti lengi telja. Alls eru 18 mis-
fyndnir listar í boði.
Stjórnmálaskýrendur hafa veitt
flokkaflórunni í Antwerpen athygh
og komist að þeirri niðurstöðu að
almenningur sé orðinn afar þreyttur
á stjórnmálunum. Almenningur
þekki ekki lengur mun á gömlu
flokkunum og kjósi bara hvað sem
er. Því megi búast við að einhver
furðuflokkanna komi mönnum í
borgarstjórn og jafnvel að seppinn
Bangsi taki þar sæti á næsta kjör-
tímabili. Enn er þó óráðið hvað gert
verður ef seppi mætir til fundar.
Reuter
Saddam við
Bih Clinton Bandaríkjaforseti
hefur varað Saddara Hussein ír-
aksforseta við að ögra Kúveitum
með flutningum á herliði í átt að
landamærunum.
í allan gærdag voru hersveitir
á ferð og flugi í frak en ekki var
vitað hver var tilgangurinn með
þessum ferðalögum.
Loftmyndir sýndu að liðsaflinn
var mun minm en þegar írakar
réðust inn í Kúveit árið 1990. Nóg
var þó aö gert til að auka spennu
á svæðinu og var varnarlið Kú-
veita í viöbragðsstöðu.
Nokkrar vélaherdeildir eru í
liði írakanna og er talið að her-
menn í sveitum þessum skipti
þúsundum.
Einar Hepsöreið-
uríslendingum
og Gro Harlem
Einar Hepsö,
formaður
Norges fiskar-
lag, lét í gær í
ljós reiöi sinni í
garö íslendinga
og Gro Harlern
Brundtland for-
sætisráðherra
vegna Smugu-
veiðanna. Einar talaði á lands-
fundi norska Verkamannaflokks-
ins. Hann sagði að norsk stjórn-
völd hefðu ekki gengið nógu hart
fram í að stöðva rányrkju íslend-
inga í Barentshafi og að íslend-
ingar væru með óafsakanlegan
yfirgang á miðunum.
Reuter og NTB
Fyrirsætan Caroline Charles sýndi í Náttúrugripasafninu í Lundúnum i gær föt frá hönnuðinum John Galliano. Sá
var útnefndur hönnuður ársins fyrir þessi klæði. Margur hefur áður látið sér fljúga í hug að sniða föt svona en
enginn látið af því verða fyrr. Símamynd Reuter
Lækkun í Wall Street:
Óttivið
vaxtahækkun
Hlutabréf í Wall Street lækkuðu
nokkuð í veröi á fimmtudag. Fjár-
festar höfðu áhyggjur af því að vext-
ir myndu hækka í kjölfar atvinnu-
leysisskýrslu sem kynna átti í gær.
Af öörum kauphöllum er það helst
að frétta að DAX-30 hlutabréfavísital-
an í Frankfurt hefur verið á hraðri
niðurleið. Stórir fjárfestar hafa hald-
ið að sér höndum og þær fregnir,
ásamt komandi kosningum í Þýska-
landi, hafa lækkað verð hlutabréfa.
Olíur eru að hækka í verði erlend-
is. Kólnandi veður á norðurslóðum
hefur þar töluverð áhrif. Eftirspum-
in eykst og verðið hækkar um leið.
Þetta hefur ekki'haft svo mikil áhrif
á bensínið. Kaffið á Londonmarkaði
heldur enn áfram að hækka, komið
í 204 cent pundið.
Kínverjar minna á sig
Talið er að Kínastjórn haíi vilj
að minna á stöðu sína sem kjarn
orkuveldis með því að sprengja
kjarnasprengju í gærmorgun.
LýsfieftirLucJourei
Svissneska
lögroglan hefur
gefið út hand-
tökuskipun á
hendur rniar-
leiðtoganum
Luc Jouret
vegna morð-
anna í Sviss nú
í vikunni. Annar maður er og eft-
irlýstur. Lík þriggja trúbræðra
fundust í Sviss í gær.
ReknirfráSarajevo
Gæsluliðar SÞ ráku hersveitir
íslama frá hæðunum við
Sarajevo í gær. Serbar hótuðu
áður að gera það sjálfir.
Stjórnarandstæðingar á rúss-
neska þinginu mættu ekki við
setningu þings í gær til að mót-
mæla stjórn Jeltsíns.
Óhæfir í Evrópuráðið
Búið er að úrskurða að Rússar
uppfylli ekki öll skilyrði til að
ganga i Evrópuráðið.
Ráðhenra rannsakaður
ítalska lög-
reglan rann-
sakaði. i gær
höfuðstöðvar
íjölmiðlafyrir
tækis Berslusc-
onis forsætis-
ráðherra.
Hann er grun-
aður um Qármálamisferli og á nú
mjög undir högg að sækja.
Iraksstjórn hefur látið þau boð
út ganga að fáist ekki heimild til-
að selja olíu muni fólk i landinu
svelta heilu hungri.
Frakkarhuglausir
Franska stjórnin liggur nú und-
ir ámæli fyrir kjarkleysi vegna
þess að andófsrithöfundurinn
Taslima Nasrin fékk ekki land-
vist þar.
Kóngurkomogfór
Mikael, fyrrum Rúmeníukon-
ungur, kom í skyndiheimsókn til
fóðurlandsins í gær og stóð við í
klukkutíma.
Kóreumenn vilja semja
Tahð er að Kóreustjóm vilji i
alvöru ná sátt við umheiminn um
stefnuna i kjarnorkumálum.
Liðsmenn Aristides Haítifor-
seta gengu um höfuðborgina
Port-au-Prince í gær og mót-
mæltu uppgjöf saka herforingja-
stjórninni til handa.
Kohlslærúrogí
Kohl, kansl-
ari Þýskalands,
gaf í gær í skyn
að hann rnyndi
senn hætta
þátttöku í
stjórnmálum.
Hami sagðist
þó ætla að sitja
út
næsta kjörtímabil. Þegar upphóf-
ust vangaveltur um eftirmann
kanslarans.
Minna er nú um loðnu í Bar-
entshafi en verið hefur í mörg ár.
Tahð er að mn fjórðungur sé eftir
af hrygningarstofninum.
Ferjastöðvuð
Norðmenn hafa stöðvað eina
ferju vegna gaha í stafnhlera.
Reuter og NTB