Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1994, Side 10
10
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1994
„Mér finnst ég vera ómótuö, er
enn að læra og stíga mín fyrstu
skref. Ég er feimin og oft svo stress-
uö áður en ég fer á svið að ég fæ
blóðnasir. En um leið og ég byrja
að syngja gleymi ég mér,“ segir
nýjasta söngstjama íslendinga,
Emiliana Torrini, 17 ára mennta-
skólastúlka úr Kópavogi. Emiliana
söng eitt af vinsælustu lögum sum-
arsins, Tabu, sem kom þó aldrei
út á hljómplötu. Eftir mánuö kem-
ur út fyrsta plata Emiliönu og
hljómsveitarinnar Spoon og hin
unga söngkona er full tilhlökkunar
vegna þess. „Platan er öðruvísi og
ég er viss um að hún á eftir aö
koma fólki skemmtilega á óvart.
Það eru að minnsta kosti fjögur lög
sem ég reikna með að verði vin-
sæl,“ segir hún.
Rödd Emiliönu þykir ákaflega
sérstök og DV hefur heimildir fyrir
því að aöilar frá einu stærsta út-
gáfufyrirtæki í Bretlandi hafi boðið
henni plötusamning. Emiliana vill
ekkert ræða það mál núna. Tilboð
sem þetta er þó mjög stórt tækifæri
fyrir ungan tónlistarmann og verð-
ur því spennandi að fylgjast með
framhaldi málsins. „Ég vil bara
láta hvern dag ráðast, ekki vera
með einhverjar væntingar."
Hálfítölsk
Emiliana er hálfítölsk, dóttir
hjónanna Salvadori Torrini og
Önnu Stellu Snorradóttur. Hún er
skírð í höfuðið á báðum ömmum
sínum sem hétu Emilía og Anna.
Fjölskyldan hefur alla tíð búið á
íslandi fyrir utan tvö ár í Þýska-
landi. Emiliana byrjaði ung í kór
Kársnesskóla og starfaði með hon-
um þar til hún flutti til Þýskalands
11 ára gömul. „Ég hef alla tíð sung-
ið mikið," segir hún. Nokkur tón-
listaráhugi er í báðum ættum og
hinn kunni píanóleikari Aage Lor-
ange er náskyldur henni. „Pabbi
er mjög góöur söngvari þó hann
Emiliana Torrini með heimilisköttinn. Emiiiana teiur að ungir tónlistarmenn á Islandi fái ekki nógu mörg
tækifæri. DV-mynd ÞÖK
viö starf hennar sem söngkonu
Spoon og sérstaklega eftir að mið-
nætursýningar hófust um helgar.
Gleðipopp er vinsælt
Þar sem Emiliana hefur haft mjög
mikið að gera undanfarið kemur
það óneitanlega niður á náminu í
MK. „Punktakerfið fer mjög í taug-
arnar á mér og ég fæ lítinn stuðn-
ing í skólanum. En ég reyni aö
standa mig og passa mig að missa
ekki úr námi.“
Emiliana segist þekkja mjög
marga en eiga fáa nána vini. „Ég á
bara tvær bestu vinkonur, annars
á ég frekar strákavini enda lék ég
aldrei með Barbie," segir hún.
„Strákarnir í hljómsveitinni eru
hins vegar góðir vinir mínir þó við
séum öll miklar frekjur en ég hef
lært mikið af þeim. Fyrir utan Hö-
skuld Örn Lárusson og Egil Lárus-
son eru í hljómsveitinni Friðrik
Júlíus Geirdal, Gunnlaugur Hjört-
ur Gunnlaugsson og Ingi Snær.
Ákveðið var að hljómsveitin
kæmi út eigin hljómplötu og tók lán
til að standa straum af útgáfunni.
„Það er ekki auðvelt að komast inn
hjá útgáfunum og að mínu mati
leggja þær of mikla áherslu á þá
sem eldri eru í bransanum og gefa
ungu fólki því ekki tækifæri. Utgáf-
urnar eru of hræddar við það nýja
og óþekkta," segir Emiliana.
„Það er ofboðslega stressandi að
koma út plötu því maður veit ekk-
ert hvað fólk vill. Gleðipopp er
mjög vinsælt á íslandi núna en við
erum kannski ekki nema að litlu
leyti inni á því. Ég hlakka mest til
að heyra viðbrögðin við lagi sem
heitir Tomorrow," segir Emiliana.
Enskan er betri
ÖO lögin á plötunni eru flutt á
enskri tungu og segir söngkonan
að það sé miklu betra. „Mér finnst
eins og ég beiti röddinni betur á
ensku. Ég hlusta sjálf eiginlega
Erlend plötuútgáfa fylgist með nýjustu söngstjömu íslendinga:
Er að stíga
mín fyrstu spor
- segir Emiliana Torrini, söngkona hljómsveitarinnar Spoon, sem vakið hefur mikla athygli að undanfömu
syngi bara í baði.“
Þegar fjölskyldan kom aftur tO
íslands hóf Emihana nám í undir-
búningsdeild Söngskólans í
Reykjavík og síðan var hún um
tveggja ára skeið í einkatímum hjá
Þuríði Pálsdóttur. „Þuríður er al-
veg frábær,“ segir hún.
Þegar Emifiana var í tíunda bekk
byijaði hún söngferil sinn með
hljómsveitinni Charlez Gizzur og
tók m.a. þátt í Músíktilraunum
Tónabæjar. „Okkur gekk ágætlega
því við náðum öðru sæti. Ég hef
nú samt aldrei skammast mín eins
og þá því ég var virkOega óánægð
með frammistöðu mína. Ég söng
of djúpt og lét ekki röddina njóta
sín enda var ég með kórröddina
enn þá. Ég var síðan rekin úr þess-
ari hljómsveit enda gekk samstarf-
ið ekki,“ útskýrir söngkonan.
Með Pláhnetunni
Hljómsveitin Spoon var búin að
vera starfrækt í tvö ár þegar Emfl-
iana gekk til liðs við hana og hafði
meðal annars verið upphitunar-
band fyrir Nýdanska. Hljómsveitin
varð þó ekki þekkt fyrr en í sumar
er lagið Tabu fór að hljóma á öldum
ljósvakans. „Ég heyrði fyrst í
hljómsveitinni á óháöu listahátíð-
inni en þá var Höskuldur Örn Lár-
usson aðalsöngvari og hann syngur
reyndar enn þá. Þeir fréttu af mér
í Söngskólanum og buðu mér að
koma og prófa aö syngja með á
einni æfingu og það varð úr að ég
hélt áfram með þeim. Höskuldur
samdi síðan lagið Tabu og Egill
bróðir hans samdi texta við það.
Við vfldum ekki setja lagið á safn-
plötu heldur dreifðum því bara á
útvarpsstöðvarnar á DAT-spólu en
áttum aldrei von á þessum við-
brögðum. Lagið vakti athygli á
hljómsveitinni og í kjölfar vinsæld-
anna fengum við nóg að gera,“ seg-
ir EmiOana.
Spoon hefur mikið spilað í félags-
miðstöðum og á kaffihúsum borg-
arinnar en einnig fylgdi hljóm-
sveitin Pláhnetunni um landið í
sumar. „Það var frábært, alveg
æðislegt," segir Emiliana sem fékk
stundum að taka lagið með Stefáni
Hilmarssyni.
Emfliana setur einnig svip sinn á
söngleikinn Háriö þar sem hún
kemur fram í einu atriði. Vinsældir
hennar hafa verið mjög miklar þar
og nötrar salurinn þegar hin unga
söngkona hefur upp raust sína.
„Mig hefur alltaf langað tfl að vera
með í söngleik og það hefur bæði
verið skemmtflegt og lærdómsríkt
að taka þátt í uppfærslunni," segir
Emfliana en hún þvertekur fyrir
að hafa viljað stærra hlutverk.
„Mér finnst bara gaman að vera
meö.“ í sýningunni situr Emiliana
á svölum og lítið fer fyrir henni í
byrjun. Hún segist hafa gott tæki-
færi til að skoða áhorfendur. „Ég
er enginn sérstakur dansari eða
sportisti og er því bara fegin að
geta setið þarna róleg.“ Undanfarið
hafa sýningar Hársins þó rekist á
ekkert á íslenska tónhst. Mínar
uppáhaldshljómsveitir núna eru
Wright og Cure en ég fila pönk og
nýbylgju mjög vel.“
EmiOana segist alltaf hafa farið
sínar eigin leiðir í fatastíl og þegar
hún er spurð hvort hún sé hrifin
af Björk Guðmundsdóttur svarar
hún; Björk er æðisleg en ég hef
aldrei mátt vera að þvi að hlusta á
tónlist hennar eða Sykurmolana."
Talsverð uppsveifla er 1 tónOst
ungs fólks hér á landi um þessar
mundir og margar nýjar ungar söng-
konur hafa komið fram á sjónarsvið-
ið. EmiOana segist vilja sjá fleiri
hljómsveitir og fleiri karlsöngvara.
„Það mætti vera meiri samkeppni þvi
það er af hinu góöa,“ segir þessi unga
og efhflega söngkona.