Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1994, Side 12
12
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1994
Erlend bóksjá
Metsölukiljur
Bretland
Skáldsögur:
1. Clare Francis:
Deceit.
2. lain Banks:
Complicíty.
3. Michaei Crichton:
Disclosure.
4. William Boyd:
The Blue Afternoon.
5. Joanna Trollope:
A Spanísh Lover.
6. Daníelle Steel:
Vanished.
7. Patricia Cornwell:
Bruel and Unusual.
8. Tom Clancy:
Clear and Present Danger.
9. Sebastian Faulks:
Birdsong.
10. Tom Clancy:
Without Remorse.
Rit almenns eólis:
1. Andy McNab:
Bravo Two Zero.
2. Jung Chang:
Wild Swans.
3. Terry Waite:
Taken on Trust.
4. W.H. Auden:
Tell Me the Truth about Love.
5. Ranulph Fiennes:
Mind over Matter.
6. J. McCarthy & J. Morrell:
Some Other Rainbow.
7. Alan Clark:
Diaries.
8. Bill Bryson:
Neither here nor there.
9. Brian Keenan:
An Evil Cradling.
10. Russell Davies:
The Kenneth Wíllíams Diaries.
(Byggt á The Sunday Times)
Danmörk
Skáldsögur:
1. Johannes Mollehave:
Læsehest med æselorer.
2. J. Campion 8r K. Pullinger:
The Piano.
3. Peter Hoeg:
Froken Smillas
fornemmelse for sne.
4. John Grisham:
Klienten.
5. Paul Orum:
Af hjertens grund.
6. Dan Turóll:
Vrangede billeder.
7. Herbjerg Wassmo:
Dinas bog.
(Byggt á Politiken Sendag)
Skáldsögur
frægs fólks
Þaö er aö komast í tisku í Bandaríkj-
unum og Bretlandi að frægt fólk
sendi frá sér skáldsögur. Oft er þaö
aö frumkvæði útgefenda eöa um-
boðsmanna sem telja aö þekkt nafn
geti selt hvað sem er. Hvort viðkom-
andi kann að skrifa skiptir hins veg-
ar litlu máli; það er alltaf hægt að
kaupa einhvern rithöfund til að af-
greiöa textann. Aðalatriðið er að hið
fræga nafn sé á kápusíðunni.
Nýjasta dæmið um þetta er ein
kunnasta fyrirsæta samtímans. Sú
heitir Naomi Campbell og hefur öðl-
ast frægð fyrir hkamlegt frekar en
andlegt atgervi. Henni voru boðnar
um það bil tíu milljónir króna í fyrir-
framgreiðslu fyrir skáldsögu sem
bæri nafn hennar. Auðvitað sló hún
til og fékk enskan rithöfund til aö
skrifa fyrir sig textann - þótt þess sé
reyndar hvergi getið í bókinni.
Swan heitir þessi skáldsaga eftir
söguhetjunni. Þar segir frá ástum og
ævintýrum í fyrirsætuheiminum og
eru lýsingarnar vafalaust að hluta til
byggðar á reynslu „höfundarins".
Gagnrýnendur hafa hakkað söguna
í sig eins og vænta mátti - en því er
spáö aö hún muni seljast vel.
Tennisstjarnan
Navratilova
Aö undanfórnu hafa komið út í
Bretlandi skáldsögur eftir fólk sem
er vel þekkt þar í landi vegna fram-
göngu í sjónvarpsþáttum. Þetta á við
um Addicted eftir Jill Gascoine, De-
pendence Day eftir Robert Newman
og The Hairdressers of St. Tropez
Naomi Campell - fyrirsæta og „höf-
undur“ skáldsögunnar Swan.
Umsjón
Elías Snæland Jónsson
eftir Rupert Everett. Sá er þó munur
á að þetta fræga fólk hefur sjálft
skrifað bækurnar - og sumt með
nokkuð góðum árangri ef marka má
gagnrýnendur.
Martina Navratilova, tenniskapp-
inn kunni, þurfti hins vegar aðstoð
við ritun skáldsögunnar The Total
Zone - en fyrir hana fékk hún að
sögn marga tugi milljóna í fyrirfram-
greiðslu. Þetta er spennusga um
morð og eltingaleik. Navratilova
gengur sem fyrr hreint til verks;
nafn aðstoðarmanns hennar er einn-
ig skráð á kápusíðu bókarinnar.
Enski leikarinn góðkunni, Dirk
Bogarde, hefur sem kunnugt er sent
frá sér fjölda bóka. Fyrst skrifaði
hann ævisögu í mörgum bindum og
það með miklum ágætum. Síðan hóf
hann ritun skáldsagna sem einnig
hafa fengið ágæta dóma.
Dreyfuss í
fótspor Bogarde
Nú ætlar annar kunnur leikari að
feta í fótspor hans og semja skáld-
sögu. Það er Richard Dreyfuss sem
hefur farið með aðalhlutverk í fjöl-
mörgum vinsælum Hollývúddkvik-
myndum.
Dreyfuss hefur hins vegar ekki
skáldskaparhæfileika Bogarde og
hefur því fengið rithöfund til liðs við
sig. Skáldsagan þeirra nefnist Two
Georges og mun væntanleg á næsta
ári.
Af öðru frægu fólki sem skyndilega
hefur gerst bókmenntalega sinnað
má nefna leikkonuna Jane Asher.
Fyrsta skáldsaga hennar heitir Bear-
ing Down mun koma út fljótlega.
Talsmaður eins stærsta forlags í
Bretlandi var að því spurður hvort
frægt nafn væri nóg til að selja skáld-
sögur. Hann svaraði því til að fræg
persóna gæti haft gífurleg áhrif á
sölu fyrstu bókar ef markaðssetning-
in væri í lagi. En það væru takmörk
fyrir öllu og skýr dæmi um að slíkar
bækur hefðu ekki selst. Þar voru
nefndar til sögunnar skáldsögur eftir
leikkonuna Britt Ekland og Ivana
Trump sem er fræg fyrir það eitt að
hafa verið eiginkona umdeilds amer-
ísks íjármálamanns.
Metsölukiljur
Bandaríkin
Skáldsögur:
1. Michael Crichton:
Disclosure.
2. V.C. Andrews:
Pearl tn the Mist.
3. Dean Koontz:
The Door to December.
4. Kevín J. Anderson:
Champions of the Force.
5. Winston Groom:
Forrest Gump.
6. E. Annie Proulx:
The Shipping News.
7 Tom Clancy
Without Remorse.
8. Danielle Steel:
Vanished.
9. Laura Esquível:
Like Water for Chocolate.
10. Phillip Margolín:
Gone, but not Forgotten.
11. Peter Hoeg:
Smilla's Sense of Snow.
12. Stephen King:
Níghtmares 8i Dreamscapes.
13. Sandra Brown:
Hidden Fires.
14. Michaei Crichton:
A Case of Need.
15. Nora Roberts:
Born in Fire.
Rit almenns eðlis:
1. B.J. Eadie 8t C. Taylor:
Embraced by the Light.
2. Howard Stern:
Private Parts.
3. Thornas Moore:
Care of the Soul.
4. Karen Armstrong:
A History of God.
5. M. Scott Peck:
The Road Less Travelled.
6. M. Hammer 8i J. Champy:
Reengineering the Corporation.
7. Joan W. Anderson:
Whete Angels Walk.
8. Ann Rule:
You Belong to Me.
9. Maya Angelou:
I Know why the Caged Bird Sings.
10. Susanna Kaysen:
Girl, Interrupted.
11. Bailey White:
Mama Makes up Her Mind.
12. Peter D. Kramer:
Listening to Prozac.
13. Kathleen Norris:
Dakota.
14. Delany, Delany 8t Hearth:
Havíng Our Say.
15. Sophy Burnham:
A Book of Angels.
(Byggt á New York Ttmes Book Review)
Vísindi
Brjóstastækkanir draga úr hættunni á krabbameini:
Silíkonið er meinhollt
Nýjustu rannsóknir benda til að silikon dragi úr likum á brjóstakrabbameini.
Týndi hlekk-
urinn enn
ófimdinn
Þróunarfræðingar deila nú um
hvort sönnur hafi verið færöar á
að menn séu komnir af öpum.
Fyrir skömmu fannst steingerö
beinagrind af nýrri mannveru í
Eþíópíu og styttist þar meö bilið
miUi manns og apa um hálfa
milijón ára. Nýi apamaðurinn er
skyldari öpum en mönnum en
samt ekki api.
Eftir sem áður hefur ekki tekist
að skýra út hvemíg þróunin var
í fjórar milljónir ára. Týndi
hlekkurinn í þróunarsögu
mannsins er því enn ófundinn
þótt vart farí milli mála að apai’
og menn eigi sér sömu forfeður.
En kenning Darwins er víst enn
ósönnuö.
Veira gegn
kanínum
Ástralskir vísindamenn eru að
prófa nýja veiru til að drepa kan-
ínur. Veira þessi er bráðsmitandi
og veldur óstöðvandi blæðingum.
Undanfarin ár hefur önnur veira
verið notuð í sama tilgangi en nú
eru kanínurnar orðnar ónæmar
fyrir henni.
Kanínur em mikil plága í Ástr-
alíu. Dýrin voru flutt tíl landsins
á 19. öld og hafa síöan íjölgað sér
óhindrað, öllum til ama og leið-
inda. Engin leið hefur fundist til
að hemja pláguna. Veiðar eni of
seinvirkar til aö skila umtals-
verðum árangri og því gera raenn
sér vonir um að fmna sjúkdóm
sem drepur allan stofninn.
Nýjar rannsóknir benda til að kon-
ur, sem hafa látið stækka brjóst sín
með silíkoni, fái síður krabbamein í
brjóstin en aðrar konur. Málið var
kannað í Bandaríkjunum þar sem
brjóstastækkanir em mjög vinsælar.
Læknar höfðu veitt því athygli að
konur meö stækkuð brjóst greindust
sjaldan með krabbamein og því var
ákveðið að skoöa máhð nánar. í ljós
kom að 30 til 45% minni líkur eru á
að konur með silíkon í brjóstum fái
krabbamein en þær sem ekki hafa
látið auka við barm sinn.
Ákveðið var að kafa dýpra í máhð
og nú var blóð úr konum, sem höfðu
haft silíkon í brjóstum sínum í tíu
ár, smitað með krabbameinsfrum-
um. Niðurstöðurnar komu enn á
óvart: Á einni viku drápust allar
krabbameinsfrumumar.
í sams konar tilraun meö blóð úr
konum, sem ekki höfðu silíkon í
brjóstunum eða höfðu aðeins haft
það skamma stund, lifðu krabba-
meinsfrumumar af. Af þessu er
ályktaö að efni úr silíkoninu berist
út í blóðið á löngum tíma. Þetta efni
viröist vinna bug á krabbameini.
Styrkir
ónæmiskerfið
Læknar eru raunar ekki á einu
máli um hvað valdi. Sumir halda því
fram að silíkonið valdi stöðugu áreiti
á ónæmiskerfið. Líkaminn reyni með
öllum ráðum að vinna bug á aðskota-
efninu. Við það styrkist ónæmiskerf-
ið og verði á endanum svo virkt að
þaö ráði niðurlögum krabbameins.
Enn á eftir að ganga úr skugga um
hvað veldur því aö nóg virðist vera
að ganga með vænan skammt af sih-
koni í líkamanum til að verjast
krabbameini. Þetta verður rann-
sóknarefni næstu ára.
Nú er einnig verið aö rannsaka
hvort silíkon dregur úr líkum á að
fólk fái aðrar tegundir krabbameins.
Einkum hafa læknar áhuga á að vita
hvort með þessu móti megi draga úr
líkum á krabbameini í blöðruháls-
kirtli. Þannig mætti hugsa sér að
koma silíkoni fyrir á völdum stað í
körlunum og sjá svo hvaö gerist.
Raunar hefur þeirri hugmynd verið
varpað fram að í leiðinni mætti
stækka ákveðinn hkamspart og slá
þannig tvær flugur í einu höggi.
Rottur og
flærviðhalda
plágunni
Með lyijum og læknisráðum
hefur tekist aö koma í veg fyrir
að plágan mikla, svartidauði,
breiðist út um Indland og nálæg
ríki. Án lyfja má gera ráð fyrir
að helmingur Indverja félli í val-
inn. Slík er í það minnsta reynsla
fyrri alda af plágunni.
Rottur og flær, sem á þeim lifa,
sjá um að dreifa sýklinum. Venj u-
lega eru það flærnar sem bíta
mennina og þeir sýkjast. Sjúk-
dómurinn herst síðan mann frá
manni líkt og kvef.
Svartidauði hafði ekki gert
verulegan usla í meira en 600 ár
þegar hann náði skyndilega að
grafa um sig á Indlandi. Plágan
þrífst bara þar sem aðbúnaöur
manna er slæmur og óþrif mikil.
Notagagns-
laus lyf
Könnun i Bandaríkjunum hef-
ur leitt i ljós að um 70% lyfja, sem
börn á forskólaaldri fá, eru meö
öllu gagnslaus og i sumum tilvik-
um hættuleg. Þá hefur og komiö
í Ijós að vel menntað fólk og ríkt
gefur börnum sínum helst gervi-
lyfin. Læknar vilja vara við þessu
og segja að engin lyf dugi á al-
genga barnasjúkdóma eins og
kvef og væg hitaköst.
- <r *r • r
Umsjon
Gísli Kristjánsson