Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1994, Síða 14
14
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1994
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11,
blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00
FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99
GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Áskrift: 99-6270
AKUREYRI: STRANDG. 25. SlMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613.
FAX: (96)11605
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ARVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1400 kr. m/vsk.
Verð I lausasölu virka daga 140 kr. m/vsk. - Helgarblað 180 kr. m/vsk.
Róttækra breytinga þörf
Heilbrigðis- og tryggingaráðuneytið hefur verið í sér-
stöku kastljósi íjölmiðla að undanfórnu. Fyrst vegna
mjög umdeildra embættisverka Guðmundar Áma Stef-
ánssonar þann stutta tíma sem hann stýrði því ráðu-
neyti. Síðan vegna ótrúlegra launakjara skrifstofustjóra
ráðuneytisins. Hvað kemur næst upp úr þessu opinbera
myrkviði? Þannig spyrja menn að ríkulega gefnu tilefni.
Síðustu daga hefur DV rakið í smáatriðum efni þess
samkomulags sem Guðjón Magnússon, skrifstofustjóri
heilbrigðisráðuneytisins, virðist hafa náð á sínum tíma
við yfirmenn sína í ráðuneytinu, þar á meðal væntanlega
við ráðherrann sem á þeim tíma var Guðmundur Bjarna-
son, þingmaður Framsóknarflokksins. Samkvæmt þessu
sérstaka samkomulagi fékk skrifstofustjórinn mun hærri
greiðslur ffá ríkinu en kjarasamningar lækna gera ráð
fyrir - og hafa þó læknar lengi verið taldir hafa rífleg
kjör samanborið við flestar aðrar starfsstéttir í landinu.
Skrifstofustjórinn hafði, eins og fram hefur komið í
DV, hátt í átta milljónir króna í laun, dagpeninga og
aðrar greiðslur á árinu 1991. Þá var hann í svokölluðu
námsleyfi frá störfum sínum í ráðuneytinu mestallt árið,
eða í 145 daga. Hann hélt samt fullum taxtalaunum, auk
þess sem ráðuneytið greiddi honum um 2,3 milljónir
króna í ferðadagpeninga og það þrátt fyrir að hann not-
aði leyfið til að gegna launuðu starfi í tíu mánuði við
erlenda menntastofnun en fyrir það fékk hann greiddar
um þrjár milljónir króna auk staðaruppbótar. Skýrt er
tekið fram í kjarasamningum lækna að ef sérfræðingur
fái laun erlendis frá í námsleyfi sem þessu skuli þau
koma til frádráttar greiddum ferða- og dvalarkostnaði
og launum. Eftir því var ekki farið og skrifstofustjóranum
því greiddar þrjár milljónir króna umfram það sem kjara-
samningur kveður á um. Til viðbótar var skrifstofustjór-
inn svo í námsleyfi frá öðru starfi hjá ríkinu og hélt einn-
ig óskertum launum úr þeirri áttinni.
Hér er ekki um neitt einkamál embættismanna að
ræða. Þetta er augljóst dæmi um þá kæruleysislegu með-
ferð opinbers íjár sem einkennir íslenskt stjómarfar og
hrein ósvífni gagnvart því heiðvirða launafólki sem
stendur skil á stórum hluta launa sinna í opinbera sjóði.
Það kemur satt best að segja ekki á óvart að þau svör
sem fengist hafa frá embættismönnum ráðuneytisins
benda eindregið til þess að þeim þyki fiáraustur af þessu
tagi til sinna manna 1 hinu besta lagi. Og ekki virðast
þeir hafa haft neitt aðhald frá a.m.k. sumum þeim sfióm-
málamönnum sem farið hafa með þetta ráðuneyti.
Hneykslismáhn í heilbrigðis- og tryggingaráðuneytinu
varpa ljósi á siðlausa meðferð á skattpeningum lands-
manna. Margt bendir til þess að vinnubrögð af þessu
tagi séu mun algengari í sfiómkerfinu en fram hefur
komið til þessa og þrífist meðal annars í skjóh þess að
æðstu embættismenn ráðuneytanna em jafnvel áratug-
um saman í valdastöðum sínum.
Á því þarf auðvitað að gera róttækar breytingar. Eitt
skref í þá átt væri að koma í veg fyrir að æðstu embætt-
ismenn ráðuneytanna, ekki síst ráðuneytissfiórar, séu í
reynd æviráðnir. Annað skref væri að tryggja upplýs-
ingaskyldu um launakjör og bithnga embættismanna.
Þar gengur kerfið nú á undan í feluleik. Lítið dæmi þar
um er sú staðreynd að ekki er lengur gefið út árlegt yfir-
ht um þá sem sifia í nefndum og ráðum á vegum ríkisins
og greiðslur til þeirra. Sumir dirfast jafnvel að svara því
til að shkar greiðslur af opinbem fé séu einkamál.
Ehas Snæland Jónsson
Ættbálkaerjur,
ófriður og
olíuhagsmunir
Fyrir rúmu ári hófst Geidar Alij-
ef, kommúnistaforingi frá dögum
Brésnevs, á ný til valda í Az-
erbajdzhan, ríki íslamskrar þjóðar
við suðvestanvert Kaspíahaf. Áður
hafði ævintýramaður hrakið frá
völdum fyrsta forseta sjálfstæðs
Azerbajdzhans eftir upplausn Sov-
étríkjanna, en her Asera hafði þá
farið hrakfarir fyrir Armenum í
héraðinu Nagomo-Karabakh. Úr-
ræði þingsins í Bakú til að stöðva
innanlandsátök var að kalla Alijef
til valda á ný.
Eins og í öðrum fyrrum sovétlýð-
veldum byggðum þjóðum sem að-
hyllast íslam og mæla á tungur
skyldar tyrknesku náði sovét-
skipulagið aldrei að veröa annað
en yfirbreiðsla á foma ættbálka-
skipan í Azerbajdzhan. Fomstu-
menn ættbálka gera bandalög og
svo takast þau á um völdin.
Um síðustu helgi sauð enn upp
úr í höfuðborginni Bakú. Upphaf
þeirrar rimmu var að tveir nánir
samstarfsmenn Alijefs forseta
fundust myrtir. Saksóknarinn sem
rannsakaði málið, Alí Úmarof,
komst að þeirri niðurstöðu að þrír
menn úr víkingasveit innanríkis-
ráðuneytisins OPON væm valdir
að morðinu og lét handtaka þá.
Varð það til að sveit úr ÓPON
hertók bækistöð saksóknara, hélt
honum fongnum og krafðist þess
að félagar sínir sem bornir vora
morðsökum væra látnir lausir.
Alijef forseti svaraði með því að
stefna hernum gegn víkingasveit-
inni og víkja Rovshan Javadof að-
stoðarinnanríkisráðherra úr emb-
ætti, en hann var tahnn standa að
baki uppreisn undirmanna sinna.
Eftir viðsjár í nokkra daga, þar
sem saksóknaranum var sleppt illa
á sig komnum eftir meðferð vík-
ingasveitarmanna, hefur Alijef lýst
yfir fullum sigri sinna manna, og
að í átökunum hafi einungis fallið
þrír af víkingasveitarmönnum.
Kom Alijef fram ásamt Surat
Husejnof forsætisráðherra, sem
hann hafði þó skömmu áður gefið
í skyn að stæði að baki vaidaráns-
tilraun gegn sér.
Valdabarátta forastumanna ætt-
bálka í landi sunnan Kákasusfjalla
eða í Mið-Asíu þarf ekki að sæta
miklum tíðindum, en um Az-
erbajdzhan gegnir öðra máli að
þessu sinni. Því veldur einkum
tvennt. Annað er að nú voru loks
horfur á að takast mætti að stöðva
áralangan ófrið Asera og Armena.
Hitt er að nýlega var undirritaöur
í Bakú samningur um stórátak
undir forustu vestrænna olíufélaga
til að hagnýta auðug olíusvæði
undir botni Kaspíahafs.
Héraðið Nagomo-Karabakh er
frá fomu fari byggt Armenum, en
Stalín innlimaði það í Azerbajdz-
han til að launa Áserum liðveislu
þeirra við að brjóta sjálfstæða
Armeniu undir Sovétríkin. Þegar
harðstjórn linnti á valdaskeiði
Gorbatsjovs tóku héraðsbúar að
krefjast aukinna réttinda. Við-
brögð Asera voru fjöldamorð á
Erlend tídindi
Magnús Torfi Ólafsson
Armenum í borgunum Sumgait og
Bakú.
Jafnframt var her stefnt gegn Nag-
orno-Karabakh, en Armenar þar
snerast til vamar og nutu liðsinnis
landa sinna í Armeníu. Er nú svo
komið að Armenar hafa hertekið
fimmta hluta Azerbaj dzhans og Aser-
ar flúnir frá heimkynnum sínum
skipta hundraðum þúsunda.
Fyrir milligöngu Rússlands-
stjómar hefur komist á vopnahlé,
en ráðstafanir til að festa það í sessi
hafa strandað á því að stjórn Az-
erbajdzhan vill ekki samþykkja
friðargæslu af hálfu Rússa, sem
hún telur draga taum kristinna
Armena.
í síðustu viku tókst samkomulag
á vegum Ráðstefnunnar um öryggi
og samvinnu í Evrópu á þá leið að
1500 manna friðargæslulið undir
yfirstjórn hennar kæmi á vettvang,
og yrði ekki meira en þriðjungur
þess Rússar. Framkvæmd þessa
samkomulags er í óvissu eftir síð-
ustu atburði í Bakú.
Undir botni Kaspíahafs eru kunn
olíusvæði sem ekki hafa verið nýtt
nema að litlu leyti til þessa. í síð-
asta mánuði undirrituðu stjórn
Azerbajdzhans og samsteypa olíu-
félaga samning sem nemur átta
milljörðum dollara um olíuvinnslu
fyrir strönd Azerbajdzhans. Vest-
ræn olíufélög eiga fjóra fimmtu fyr-
irtækisins og gert er ráð fyrir að
vinnslan verði komin upp i 600.000
olíufót á dag innan fjögurra ára.
Vandinn er að koma olíunni á
markað. Vestrænu olíufélögin vilja
leggja olíuleiðslu um*Tyrkland, en
Rússlandsstjórn krefst að hún
verði lögð til Novorossisk við
Svartahaf. Þar aö auki segja Rússar
eftir að afmarka hvernig botn
Kaspíahafs skiptist milli fyrrum
sovétlýðveldanna fjögurra sem
eiga land að því. Olli þetta getsök-
um um rússneskan undirróður
þegar upp úr sauð í Bakú um síð-
ustu helgi.
Aserar í borginni Addam lýsa stuðningi við Geidar Alijef forseta og
hampa mynd af honum. Simamynd Reuter
Skoðanir annarra
Ekki hjálpar CIA
„Það er engin glóra í því að gera innrás í land til
að tryggja borguram þess pólitískan sjálfsákvörðun-
arrétt og sleppa síðan leyniþjónustunni CLA á þá til
að skipta sér af sfjórnmálum þjóðarinnar. Það er það
sem stjórn Clintons er að gera á Haítí. Það er aftur-
hvarf til þess hroka sem einkenndi afskiptasemi
Bandaríkjanna í kalda stríðinu."
Úr forustugrein New York Times 3. október.
Gefur og tekur
„Sigbjöm Johnsen fjármálaráðherra (Noregs) gef-
ur meö annarri hendi en tekur meö hinni. í fjárlaga-
frumvarpinu fyrir 1995 lofar hann Norðmönnum 6,5
milljörðum norskra króna til að versla fyrir. En um
leið og ESB-þjóðaratkvæðagreiðslunni lýkur tekur
hann Qóra til fjóra og hálfan milljarð til baka. Prett-
imir stafa af því að virðisaukaskatturinn hækk-
ar á næsta ári, óháð því hvort Noregur gengur í ESB
eða ekki. Ríkisstjómin hefur haldið hinni háu virðis-
aukaskattshækkun utan við fjárlagafrumvarpið."
Úr forustugrein Dagens Næringsliv 5. október.
Hin eina sanna rödd
„Flokksþing Verkamannaflokksins er rétt byrjað
en þegar hafa brestir komið í ljós í þeirri ímynd ein-
ingar sem hefur verið haldið á lofti. Það er formann-
inum Tony Blair vafalaust ekki mjög að skapi að
herskár varaformaður hans, John Prescott, hefur
lýst því yfir að undir stjórn Verkamannaílokksins
mundu hinir ríku greiða „umtalsvert meiri“ tekju-
skatt. Orð Prescotts eru líklega jákvæðasta stefnu-
mörkunin af hálfu flokks sem hefur verið heldur
loðinyrtur um grundvallarstefnu sína.“
Úr forustugrein Daily Express 3. október.