Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1994, Blaðsíða 18
18
LAUGARDAGUR 8. OKTOBER 1994
Dagur í lífl Höskuldar Jónssonar, forstjóra Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins:
Ný vínbúð opnuð
Að venju vaknaði ég um sjöleytið
og hlustaði á morgunfréttir. Þá tók
við hefðbundinn morgunmatur sem
er súrmjólk og mush. Ég fer alltaf í
sundlaugarnar áður en ég fer til
vinnu en á skrifstofuna er ég mættur
fimmtán mínútur fyrir níu. Skömmu
eftir að ég var kominn þangað átti
ég fund með formanni starfsmanna-
félags ÁTVR. Við ræddum hugsanleg
námskeið starfsmanna fyrirtækisins
sem tengjast kjarasamningum þeirra
en samhliöa þessum umræðum kom
pósturinn inn og hefur hann ýmis-
legt að geyma. Eftirtektarverðast var
bréf frá manni sem vinnur á heilsu-
gæslustöð í Svíþjóö og er að skrifa
ritgerð um áfengisneyslu. Þessi mað-
ur ætlar að koma hingað til lands í
byrjun nóvember og leggja fyrir okk-
ur spurningar og óskar svara við
þeim. Við reynum sjálfsagt að verða
við þeim tilmælum.
Fjárlagafrumvarpið lá á borði
mínu og í því sést hvaða rammi er
dreginn utan um starfsemi þessa fyr-
irtækis á næsta ári. Hér, eins og í
mörgum öðrum stofnunum, er
kannski ekki allsheijar ánægja með
þær tölur en það er víst ekkert nýtt
fyrir starfsmönnum ijármálaráðu-
neytisins. Síðan bárust mér tölur um
neyslu og sölu á áfengi og tóbaki
fyrstu níu mánuði ársins en við birt-
um þær ársfjórðungslega og koma
þær fyrst hingað til yfirlestrar áður
en við sendum þær fjölmiðlum.
Lesið yfir frumvörp
fíingað komu einnig þrjú frumvarp
frá ráðuneytinu um rekstur þessa
fyrirtækis og óskað eftir aö ég lesi
þau yfir og geri við þau athugasemd-
ir ef þarf. Þau símtöl sem bárust
hingað fyrir hádegi voru átta talsins
og kenndi þar ýmissa grasa allt frá
kvörtunun til hrósyrða fyrir góða
þjónustu svo við megum kannski
Höskuldur Jónsson, forstjóri Afengis- og tóbaksverslunar ríkisins, opnaði nýja vinbúð í Stykkishólmi þenn-
an dag. DV-mynd GVA
una meðaltahnu vel.
í hádeginu hitti ég samstarfsmenn
mína í Ferðafélagi íslands þar sem
rætt var um félagsheimih félagsins
og framkvæmdir við það. Ég þurfti
síðan aö koma frá mér bréfi strax
eftir hádegi sem tók nokkurn tíma.
Þar á eftir átti ég síðan, eins og marg-
ir aðrir, einkaerindi í banka og þurfti
því að bregða mér frá vinnu stutta
stund til að sinna því.
Haldið í Stykkishólm
Klukkan hálfþijú fór ég ásamt
nokkrum samstarfsmönnum vestur
í Stykkishólm þar sem var verið að
undirbúa opnun nýrrar vínbúðar
sem átti að heíja rekstur daginn eft-
ir. Við buðum gestum í heimsókn til
að skoða búðina sem er í húsakynn-
um Skipavíkur hf. í hjarta Stykkis-
hólmsbæjar. Þetta er 24. vínbúðin
sem ÁTVR opnar á landinu. Að venju
þurfti að flytja þar ávarp og aörir
tóku einnig til máls. Minnisstæðast
er mér ávarp hótelstjórans á staðn-
um sem sagðist fagna því að ÁTVR
hefði opnað verslun í Stykkishólmi,
það stytti óneitanlega leið milli
birgðastöðvar ÁTVR og hótelsins.
Hótelstjórinn tók það sérstaklega
fram að öll samskipti hótelsins og
ÁTVR hefðu verið með slíkum ágæt-
um til þessa að óvíða væri betri þjón-
ustu að fá. Með þessi orð í huga héld-
um við starfsmenn ÁTVR alsælir til
Reykjavíkur síðla kvölds og komum
í bæinn um miðnætti. Á leiðinni
stoppuðum við í veitingaskálanum
Ferstiklu og fengum okkur kvöld-
verð. Þegar heim var komið las ég
Morgunblaðið sem ég hafði ekki haft
tíma til um morguninn en fór síðan
fljótlega aö sofa. Þetta var að mörgu
leyti óvenjulegur dagur þar sem það
er ekki á hverjum degi sem ÁTVR
opnar nýja vínbúð.
Finnur þú fimm breytingar? 278
Myndirnar tvær virðast við fyrstu sýn
eins en þegar betur er að gáð kemur í ljós
að á myndinni til hægri hefur fimm atrið-
um verið breytt. Finnir þú þessi fimm at-
riði skaltu merkja við þau með krossi á
myndinni til hægri og senda okkur hana
ásamt nafni þinu og heimilisfangi. Að
tveimur vikum liðnum birlum við nöfn
sigurvegaranna.