Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1994, Side 19
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1994
19
„Léttar" vörur geta blekkt
- stundum með sama kaloríumagn og venjulegar fæðutegundir
Neytendur fitusnauðra eða „léttra"
fæðutegunda, sem margir eru aö
foröast kaloríur, eru stundum
blekktir. Létt-kex er í sumum tiifell-
um með nær sama magn af kaloríum
og venjulegt kex því sykurmagnið
hefur verið aukið. Það er því nauð-
synlegt að skoða vel innihaldslýsing-
ar vilji maður vita hvað maður lætur
í sig.
Það er ákveðið bragð að fitunni sem
neytendur hafa vanist og meðal þess
sem framleiðendur gera til aö bæta
úr því er að auka sykurmagnið í léttu
vörunni. Neytendur hafa hins vegar
tilhneigingu til að borða meira af
léttu fæðunni en þeir heföu gert af
venjulegri þar sem þeir standa í
þeirri trú að heildarkaloríumagnið
sé mun minna.
„Þetta getur verið mikil blekking
því fólk heldur að það sé að innbyrða
afurðir með helmingi minna kaloríu-
magn,“ segir Ólafur Sæmundsson
næringarfræðingur. Hann getur þess
að þetta eigi ekki bara við um afurð-
ir með sykri. „Það munar til dæmis
sárafáu í kaloríum í venjulegum
kartöfluflögum og léttum. í venjuleg-
um eru 500 til 525 kaloríur í hverjum
100 grömmum en í þeim léttu er kal-
oríumagnið 475. Þetta munar sára-
litlu þó fituhlutfallið sé minna.“
Létt-kex er i sumum tilfellum með nær sama kaloriufjölda og venjulegt kex því sykurmagnið hefur verið aukið.
íslendingar neyta
ofmikillarfitu
En þó að þeir sem eru að forðast
kaloríur séu blekktir er eftir sem
áður tahð nauðsynlegt að.minnka
fituneyslu. Samkvæmt manneldis-
markmiðum er ekki æskilegt að
fitukaloríur séu fleiri en 350 af hverj-
um 1000 kaloríum sem neytt er. „í
rauninni viljum við fá þessa tölu enn
neðar. Ef ég man rétt er fituhlutfall
í fæðu íslendinga að meðaltali um
40 prósent. Það þýðir að neysla ann-
ars efnis, það er kolvetna, er of lítil."
Ólafur segir að við fæöuval sé fjöl-
breytnin mikilvægust. „Maður á að
borða allan mat. Ég legg mikið upp
úr því að fólk falli ekki í þá gryfju
að fara að útiloka heilu fæðuflokk-
ana. Þá springur það á limminu eftir
smátíma. Það er auðvitað rétt að við
borðum of mikið af einstökum fæðu-
tegundum og þá ber okkur að draga
úr neyslu þeirra. Tvær afurðir sem
viö íslendingar neytum gjarnan of
mikils af eru kjötmeti og mjólkuraf-
urðir eins og ostar. Þaö er ekki þar
með sagt að þetta sé óhollt. Þetta er
þrælhollt á margan hátt en ofneysla
af öllu er óholl. Grænmetisneysla
getur líka farið út í öfgar.“
Megináherslu vill Ólafur leggja á
neyslu kornmetis og nefnir brauð,
matar- og mjólkurkex, hafrakex,
hrökkbrauð, flatkökur, kringlur, tví-
bökur og ýmsar tegundir morgun-
korns. Pasta og hrísgrjón, ávextir og
grænmeti eru líka fæðutegundir sem
Ólafur telur nauðsynlegt að auka
neyslu á.
Auðvelt aö minnka
vægi kvöldmáltíðar
í mörgum megrunarkúrum er lögð
áhersla á að kvöldmáltíðin megi ekki
vera stærsta máltíð dagsins.
„Viö búum í þjóðfélagi þar sem
kvöldmáltíðin er aðalmáltíð dagsins
hjá okkur flestum og við verðum að
sætta okkur við það. En við getum
minnkað vægi kvöldverðarins veru-
lega. Reglubundið mataræði er mik-
ilvægast. Um leið og fólk fer að sleppa
einhverjum máltíðum gefur það
augaleið aö það ræðst á matinn þegar
heim er komið, sýnir enga skynsemi
og étur yfir sig. í stað þess að éta
2000 kaloríur í kvöldmat er hægt að
minnka þær niður í 800. Auðveldasta
leiðin til þess er aö borða reglubund-
ið. Þá verður svengdartilfinningin
þegar heim er komið þægileg en ekki
æpandi.“
Hér á eftir fara nokkur ráð fyrir
þá sem vilja forðast kaloríur:
1. Sleppið ekki úr máltíðum yfir dag-
inn. Annars verður svengdartil-
finningin þegar heim er komið
æpandi og þá er hætta á ofáti um
kvöldið.
2. Poppkorn er ekki hættulaust fyrir
þá sem eru í megrunarkúr. Ef fólki
þykir poppkorn gott þá á að taka
létt-popp fram yfir venjulegt.
Venjulegt popp er oft á tíðum mjög
99*56*70
olíuríkt. Einn vinsælasti pakkinn
af venjulegu örbylgjupoppi gefur
um 500 kaloríur.
3. Það er skynsamlegt að fá sér af
salatbar ef magni salatolíunnar er
haldið í lágmarki. í einni matskeið
af olíu eru 115 til 120 kaloríur en
100 grömm af grænmeti eins og
gúrkum og kínakáli gefa ekki
nema 15 kaloríur.
4. Minnkið viöbitið og veljiö magurt
álegg.
5. Drekkið 5 til 8 glös af vatni á dag.
Vatnsdrykkja dregur úr matarlyst
og snakkáti milli mála. Vatn sval-
ar þorsta, aðstoðar við melting-
una, ber næringarefni til frumn-
anna, skolar burt úrgangsefnum,
kælir líkamann við áreynslu,
virkar sem „smurning" fyrir liða-
mót, dregur úr myndun nýrna-
steina og getur linað höfuðverk
sem oft stafar af vatnsskorti.
Veitingastaður hinna vandlátu
Kvöld verðartilboð
vikuna 7/10-13/10
*
Karrílögud sjdvarréttasúpa
*
Pönnusteikt lambarif
á grænpiparsósu
*
Gratid Marnier frauð
á kaffibaunasósu
Kr. 1.950
^ Borðapantanir í síma 88 99 67 f
PrnióíM 115.600t.
FlyghrM450.8001.
Mikið úrval af píanóum og
flyglum fyrirliggjandi á
ótrúlegu verði. Teg.:
GERTZ, BECHNER,
J. BECKER, HELLAS,
Ed. SEILER, PETROF
og ASTOR.
3ja-5 ára ábyrgð
Sérpöntum einnig.
Stuttur afgreiðslufrestur.
Opið: 0
Virka daga kl. 10-18
laugardaga kl. 11-14
RAÐGREIÐSLUR
HLJODFÆRASALA • STILLINGAR • VIDGERÐIR
®>l HLJÓÐFÆRAVERSLUNIN HF
Ármúli 38
II III II III II III II III II III II III II III II III II III II III Sími 91-32845
Opið í dag frá kl. 12:00 -16:00
SKÚLAGÖTU 59, REYKJAVIK S. 619550