Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1994, Síða 20
20
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1994
Kvikmyndir____________________i>v
Svik og prettir
Nýlega bættist við enn einn mögu-
leikinn til að svala spilafýsn okkar
íslendinga þegar bingó hélt innreið
sína hjá Stöð 2. Viðtökumar virðast
góðar og markaðurinn nánast ómett-
anlegur ef boöiö er upp á veglegar
upphæðir og spennandi leik. Þetta
er viðbót við Lottóið og Víkingalottó-
ið þar sem vikuiega er sjónvarpað
yfir landslýð talnaröð sem getur gert
þann heppna að milljónamæringi á
einni nóttu. Það forvitnilegasta er
hvað sjónvarpiö er farið að leika
stórt hlutverk í þessum peningaleikj-
um. Sjónvarpið er auðvitað sterkur
fjölmiðiU og hefur gegnum árin gegnt
veigamiklu hlutverki í alls kyns pen-
ingaleikjum. Bandaríkjamenn hafa
líklega mesta reynslu á þessu sviði
enda hafa alls kyns spurningaþættir
þar sem rétt svör geta fært keppend-
um stórar upphæðir í vasann, verið
eitt vinsælasta sjónvarpsefnið þar
vestra. Enn eru þættir eins og Wheel
of Fortune og Jeopardy meðal vin-
sælasta sjónvarpsefnis með rúmlega
10% horfun.
Brögð í tafli
En þetta hefur ekki aUt verið dans
á rósum. Fyrir tæpum 40 árum kom
upp mikið hneykslismál í Bandaríkj-
unum þegar upp komst um svindl í
kringum einn vinsælasta spuminga-
leikinn á þeim tíma, Twenty-One.
Framleiðendur þáttanna voru staðn-
ir að því að hagræða úrsUtum til að
reyna að fá fleiri til að horfa á þátt-
inn. Nú er búið að gera kvikmynd
um þetta sannsögulega atvik sem var
mikiU áUtshnekkir fyrir sjónvarpið.
Myndin heitir Quiz Show og er leik-
stýrt af leikaranum Robert Redford.
Þótt Quiz Show íjalli aðeins um
nokkrar vikur í Ufi þriggja einstakl-
inga gerðust hinir raunverulegu at-
burðir á árunum 1956-1959. Hand-
ritahöfundurinn Attanasio ákvað að
þjappa efninu saman en hann byggir
söguþráðinn á bók sem var gefin út
1988 og bar titilinn Remembering
America: A Voice from the Sixties.
Höfundurinn, Richard Goodwin, er
einmitt einn þeirra sem myndin
snýst um en hann er lögfræðingur
aö mennt og sá um að rannsaka
málið á sínum tíma. Attanasio gerði
ekki bara handritið heldur leikur
hann einnig Herbert Stempels sem
tók að sér það vafasama hlutverk aö
tapa viljandi gegn mótherja sínum
Charles Van Doren.
Góðirdómar
Quiz Show hefur fengiö afskaplega
Það eru þeir Ralph Fiennes og John Turturro sem leika keppendurna í spurningaleiknum.
góða dóma og er spáð miklum vin-
sældum. Myndin þykir heiðarleg og
laus við Hollywood-væmni sem oft
vill einkenna myndir sem fjalla um
mannlega harmleiki. En það eru þó
ekki allir sáttir við myndina. Joseph
Stone, fyrrverandi dómari, sem vann
á sínum tíma hjá saksóknaranum
sem fjallaði um þetta hneykslismál,
telur hlut Goodwin í rannsókninni
ofmetinn og of lítið gert úr hlutverki
dómskerfisins. Goodwin er ekki á
sama máli og segist hafa sent hand-
ritið til dómarans og fengið síðan
athugasemdir sem hann hafi að hluta
tekið tillit til.
Quizz Show er aðeins fjórða mynd
Robert Redfords sem leikstjóri. Hann
á að baki óskarsverðlaunamyndina
Ordinary People, sem var hans fyrsta
mynd sem leikstjóri, ásamt The Mila-
gro Beanfield War og A River Runs
Through it. Hann er afskaplega
vandvirkur leikstjóri og leggur mikið
upp úr því að ná góðu sambandi við
leikarana og samverkamenn sína.
Hann er heldur ekki alveg ókunnur
svona spurningaleikjum því á sínum
Umsjón
Baldur Hjaltason
yngri árum, nánar tiltekiö 1959, kom
hann fram í Play Your Hunch ásamt
þáverandi eiginkonu sinni. Hann var
þá blankur og var að vonast til að
geta unnið eitthvað.
Stórkostlegur ferill
Þótt Robert Redford hafi tekið sér
góða hvíld frá kvikmyndaleik fyrir
þónokkrum árum virðist það ekki
hafa haft áhrif á vinsældir hans.
Hann lék í nokkrum vinsælustu
myndum áttunda áratugsins eins og
Jeremiah Johnson, The Sting og svo
The Way We Were. Hann varð
þreyttur á frægðinni og fluttist bú-
ferlum til Sundance í Utah-fylki.
Hann hefur komið sér þar vel fyrir
og stendur nú þar fyrir árlegri kvik-
myndahátíð sem kennd er við Sund-
ance sem er að verða ein mikilvæg-
asta bandaríska kvikmyndahátíðin
fyrir sjálfstæða kvikmyndagerðar-
menn. Út af frægðinni tekst honum
að fá blaðamenn til að yfírgefa stór-
borgirnar og heimsækja sig upp í
sveit og því fær hátíðin mun meira
umtal í íjölmiðlum en aðrar sam-
bærilegar hátíðir. Á síðustu fjórum
árum hefur Redford leikið í einum
þremur myndum. Fyrst var þaö Hav-
ana sem reyndist mislukkuð og náði
aldrei að höfða til fjöldans. Hins veg-
ar tókst Redford miklu betur upp í
spennumyndinni Sneakers og svo
var rúsínan í pylsuendanum Indec-
ent Proposal þar sem hann lék millj-
ónamæring sem greiddi milljón doll-
ara til hjónakoma fyrir að eyða einni
nótt með eiginkonunni.
Mikið framundan
Robert Redford var einnig búinn
að skrifa undir samning um að leika
í myndinni Crisis in the Hot Zone,
sem fjallaöi um víms sem hrellir
mannkynið þar sem engin mótefni
eru til gegn honum. Fox kvikmynda-
verið hætti við gerð myndarinnar á
síðustu stundu en Redford var ekki
lengi að segja já við tilboði Rob Rein-
er um að leika í rómantískri gaman-
mynd sem Rob ætlar að leikstýra og
ber heitið An American President.
Þar leikur hann forseta sem verður
ástfanginn af stjórnmálaráðgjafa sín-
um. Síðan er ætlunin að leika í
myndinni Up Close and Personal sem
fjallar um sjónvarpsfréttakonuna
Jessica Savitch. Ekki er búið að ráða
í kvenhlutverkið en heyrst hafa nöfn
á borð viö Michelle Pfeiffer og Robin
Wright. Robert Redford leikur ráð-
gjafa sem síðan verður einnig elsk-
hugi hennar. Aö lokum er uppi á
borðinu hjá Redford að sefjast aftur
í leikstjórastólinn síðla næsta árs og
kvikmynda The Education of Little
Tree sem er byggð á samnefndri
metsölubók frá 1991. Það er því nóg
að gera hjá þessum tæplega sextuga
leikstjóra og leikara næstu mánuð-
ina.
Ed Wood -
Þegar rætt er um lélegar
myndir er oft talaö um svo-
kallaðar B-myndir. Þetta
eru myndir sem lítið er lagt
í, þær eru sýndar I stuttan
tíma í kvikmyndahúsum ef
þær á annað borð ná svo
langt og enda síðan á mynd-
bandaleigum. Margir þekkt-
ir leikara og leikstjórar hafa
stigið sín fýrstu spor i og
með B-myndum eins og t.d.
Jack Nicholson. En ef B-
myndir eru svona slæmar,
hvemig ætli Z-myndir séu
þá. Þannig eru einmitt
myndir Ed Wood flokkaðar
en hann hefur þann vafa-
sama titil að vera kallaður
versti kvikmyndaleikstj óri
sem uppi hefur verið. Nú er
búið að gera stórskemmti-
lega mynd inn þennan sér-
stæða persónuleika sem
heitir einfáldlega Ed Wood.
Það er Johnny Depp sem
leikur Ed en sjálfur Tim
Burton leikstýrir, en hann
er þekktastur fyrir Batman
myndir sínar.
Furöufugl
Ed Wood er þjóðsagnaper-
sóna í Hollywood. Á rúm-
lega 25 ára ferli sínum sem
leikstjóri tókst honum aldr-
ei að gera neina góða mynd,
heldur röð af ömurlegum
myndum, sem voru hver
annarri verri, að fróðra
manna sögn. Ed var einnig
kynlegur kvistur, klæö-
skiptingur sem elskaöi hár-
kollur og skrautlega bún-
inga eins og margar myndir
hans endurspegla, saman-
ber Glen og Glenda sem
hann gerði 1953. Það var
ekki óvanalegt að sjá Ed í
hælaháum skóm í angóra-
peysu meðan á myndatöku
stóð.
Þekktastur er Ed Wood þó
fvrir myndina Plan 9 from
Outer Space, sem hann
gerði 1956. Sú mynd var kos-
in verst allra mynda í könn-
un sem gerö var um 1980 af
þeim Harry og Michael
Mcdved þegar þeir unnu að
gerö bókarinnar The Gold-
en Turkey Awards, Af öðr-
um ódauðlegum „listaverk-
um“ Eds má nefna Bride of
the Monster (1953), Jait Bait
; (1954) og Night ofthe Gho- !
uls (1960).
Bela Lugosi
í myndinni fáurn við að
fylgjast með Ed Wood við
vinnu sína sem leikstjóri.
Burton leggur einnig tölu-
vert upp úr vináttu Eds við
Ed Wood (Johnny Depp) að stðrfum. Bela Lugosi sem var farinn
. aöeldastogáttiviðeitur-
lyfjavandamál að stríða.
Þeir félagar voru einmitt að
vinna saman að gerð mynd-
arinnar Tomb of the Vamp-
ire þegar Lugosi lést. Ed
Wood er my nd sem aHir
kvikmyndaáhugamenn
verða að sjá, ekki síst þeir
sem stunduðu Hafnarbíó á
sínum tíma sem var Mekka
B-myndanna. Johnny Depp
leikur Ed og ferst verkið
einstaklega vel úr hendi.
Einnig koma fram í mynd-
inni ýmsar persónur sem
spíluðu stóra rullu í gömlu
myndunum eins og sköllótti
sænski fjölbragðaglímu-
kappinn Tor Johnson, fýlda
afgreiðslustúlkan Vampira
og kynskiptingurinn Bunny
Breckinridge. Sem sagt hin
ágætasta skeramtun.