Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1994, Síða 28
36
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1994
Trimm
Borðaðu minna
og lifðu lengur
- æskubrunnurinn fundinn
Hóflegt mataræði og regluleg hreyfing léttir öllum ellina.
Lífslíkur íslendinga eru með þeim
hæstu í heimi og deilum við þar topp-
sætinu yfirleitt með Japönum. Líf-
slíkur íslenskra kvenna eru um 81
ár en karla 76 ár. Til samanburðar
má geta þess að lífslíkur kvenna í
Afganistan eru 49 ár en karla 51 ár.
En flestir vilja lifa við heilbrigði
og hreysti eins lengi og kostur er.
Talið er að líffræðilega mögulegur
hámarksaldur mannsins sé um 120
ár. Vísindamenn hafa lengi rýnt í
eðli öldrunar og hrörnunar með það
fyrir augum að lengja ævi mannsins.
Hraði öldrunar er ákvarðaður af
erfðavísum en margt fleira kemur
til. Frumur líkamans tærast þegar
þær komast í samband við svokölluð
. sindurefni en það er efnahópur sem
hefur óparaða rafeind og er rokgjarn.
Sindurefni eru talin eiga þátt í mörg-
um illkynja sjúkdómum, s.s. parkin-
sonveiki, krabbameini og hjartasjúk-
dómum, auk þess að eyða fitu og
prótínum sem líkaminn þarf á að
halda. Sindurefni verða t.d. til þegar
frumur taka þátt í efnaskiptum og
þau verða til við ýmsa matreiðslu,
s.s. djúpsteikingu.
Leit vísindamanna að lengra og
betra lífi beinist einkum að því að
flnna og einangra þá erfðavísa sem
stjórna öldrun.
Minni matur
- lengra líf
Rannsóknir hafa sýnt að takmörk-
un á fæðuneyslu getur haft afgerandi
áhrif á langlífi. Vísindamenn í Little
Rock í Arkansas hafa sett fram þá
kenningu að nægilegt sé að neyta
1.600 hitaeininga á dag í stað 2.500.
Við minni neyslu hægist á efnaskipt-
um og minni framleiðslu á sindur-
efnum. Þetta aftur leiðir til aukins
langlífis. Þannig byggist kenningin á
því að óhóf Vesturlandabúa í matar-
æði leiði til ótímabærs dauödaga svo
æskubrunnurinn er í rauninni fund-
inn á matardiskinum þínum.
Enn hefur engin töfralausn fundist
sem lengir líf manna með sértækum
aðgerðum. Fleiri og fleiri rannsóknir
sýna að regluleg hreyfing eða iðkun
íþrótta ásamt hollu og hófsömu mat-
aræði og rósemi hugans eru þeir
þættir sem líklegastir eru til þess að
auka langlífi. Tilraunir með að
sprauta vaxtarhormóni í roskna
karlmenn leiddi í ljós ýmsar jákvæð-
ar breytingar á vöðavamassa, húð
og beinum. Það bendir til þess aö
ýmis slík hjálparefni geti hjálpað
mönnum að varðveita æskuna leng-
ur fram eftir aldri, þótt þau lengi
kannski ekki lifið sjálft.
(Byggt á Mens Fitness, Muscle and Fit-
ness og Lífsþrótti)
Lyftu og lifðu lengur
Þótt Rudy Sanchez se orðinn 81 ars
halda margir aö hann sé rúmlega
fimmtugur. Á yngri árum var hann
þekktur steppdansari, grínisti og
skemmtikraftur í næturklúbbum. Þá
lifði hann ekki heilbrigðu lífi heldur
þvert móti drakk, reykti og sukkaði
eins og berserkur. Um síðir sneri
hann frá villu síns vegar og tók að
lifa heilbrigöu lífi, hætti að reykja
og drekka og fór að iðka líkams-
rækt. Hann stundar lyftingar fjórum
sinnum í viku, auk annarrar hreyf-
ingar. Hann þjálfar og leiðbeinir öðr-
um og sér um sjónvarpsþátt um heil-
brigt líf. Auk þess að lyfta stundar
Rudy karate og fékk svarta beltið
sjötugur að aidri.
Rudy leggur áherslu á að fólk haldi
sér ungt í anda. „Gleymdu hvað þú
ert gamall og gerðu þaö sem þig lang-
ar til,“ segir hann. Þetta á þó ekki
við um allt sem hugur manna girnist
því aö Rudy leggur mikla áherslu á
hollt og fitusnautt mataræði með
áherslu á ávexti og grænmeti og
hreyfingu á hverjum degi, að
ógleymdri íhugunar- og slökunar-
stund daglega. Hann ráðleggur fólki
að minnka neyslu kjöts og forðast
áfengi og tóbak. „Sá sem fer eftir
þessu getur verið við hestaheilsu
fram yfir 100 ára aldur.“
Fjörutíu kaloríur í fullnægingu
Margir eru vanir að telja kaloríur og horfa þá aðallega á mat og hreyf-
ingu, s.s. skokk, hlaup eða sund. En margt smátt gerir eitt stórt. Litlar
athafnir eyöa líka kaloríum. Lítum á nokkur dæmi:
Koss: (aö kyssa tengdamömmu) 3 kaloriur.
Koss: (maki eöa ástvinur) 11 kaloríur.
Holdris: 1 kaloría
Smokkur settur upp: 3 kaloríur
Hefðbundnar samfarir: 130 kaloríur (á klukkustund).
Fullnœging: 40 kaloríur.
Rólegt skokk: 100 kaloríur á 10 mínútur.
Að standa upp á endann og masa í símann: 140 kaloríur á klst.
Elda mat: 100 kaloríur á klst.
Bursta skóna: 32 kaloriur á 10 mínútum.
Ryksuga: 50 kaloríur á 15 mínútum.
Strauja föt: 60 kaloríur á 30 mínútum.
Tyggja tyggigúmmí: 8 kaloríur á klst
Ganga og tyggja tyggigúmmi samtímis: 109 kaloríur á 30 mínútum.
Fæstir trúa því að Rudy Sanchez sé orðinn 81 árs.
Á hverju
hleypur
þú?
Hjarta hlauparans er í fótunum
og þar af leiðandi í skónum. Flest-
ir skokkarar og hlauparar vilja
vera í þeim bestu skóm sem völ
er á til að tryggja hámarksárang-
ur og lágmarksálag og meiðsli.
Mörg mismunandi merki eru í
boði og hver verður því að velja
sjálfur það sem honum kann aö
henta. Trimmsiðan komst yfir
niðurstöður úr skókönnunum
sem gerðar voru í þremur heims-
frægum maraþonhlaupum, þ.e. í
Hamborg, Munchen og London. í
Hamborg hlupu 45% á Asics, 14%
á Nike, 10% á Reebok, 8% á Adid-
as og 7% á Brooks. í Munchen
hlupu 31% á Asics, 17% á Nike,
16% á Adidas og 5% á Brooks. I
London hlupu 28% á Nike, 21% á
Asics, 11% á Reebok, 8% á Brooks
og 6% á Adidas.
í tengslum við skráningu í
Reykjavíkurmaraþoni 1994 var
gerð sams konar könnun á skó-
búnaöi þáttcakenda. Samkvæmt
bestu heimildum trimmsíðunnar
var svörun ríflega 50%. Niður-
stööurnar eru trúnaðarmál sem
verður ekki gefið upp að svo
stöddu.
Folk a
hlaupum
Fjórir íslendingar fóru til Lúx-
emborgar 25. september og tóku
þátt í hálfmaraþonhlaupi milli
Remich og Grevenmacher um
vínekrur í fögrum dölum. Hlaup-
ið heitir Route de vin eða vínleið-
in.
„Þetta var frábær upplifun,"
sagöi Árni Sigurðsson í samtali
við DV. Hann og Guðný Odds-
dóttir, Úlfar Hinriksson og
Bryndís Magnúsdóttir tóku þátt
í hlaupinu. Ami sagði að hitinn,
sem var 25 gráður, hefði veriö í
það mesta fyrir íslendinga en lof-
aði mjög allt skipulag og stemn-
ingu. Hlaupaleiðin er marflöt
meöfram Móselánni og lúöra-
sveitir og mýgrútur áhorfenda
sáu um að halda uppi stuðinu.
„Þetta er í fyrsta skipti sem við
förum til útlanda að hlaupa en
örugglega ekki það síðasta,“ sagði
Árni.
Nokkrir íslendingar, þar á með-
al Jón Jóhannesson og Daníel
Smári Guðmundsson, tóku einn-
ig þátt í maraþonhlaupi í Amst-
erdam sem var um svipað leyti
og þar var einnig mjög heitt.
Trimmsiðan hefur fyrir satt að
Ragnar Tómasson, höfundur
bókarinnar Hristu af þér slenið,
sé í Bandaríkjunum að keppa í
hálfmaraþoni, Vöggur Magnús-
son og Öm Þorsteinsson munu
ætla að taka þátt í maraþonhlaupi
í Dublin í lok október og ætla að
hlaupa heilt maraþon. Það er
nefnilega hægt að gera fleira en
versla á írlandi.
Ekki
drekka
kaffi
Prófessor við háskóla í New
York hefur rannsakað áhrif kaffi-
drykkju á þá sem stunda likams-
rækt og komist að þeirri niöur-
stöðu að kaffi hækki blóöþrýsting
og sé því óæskilegt fyrir þá sem
leggja stund á íþróttir og reyna
mikið á hjartað. Hann ráðleggur
þeim sem neyta koffins í ein-
hverju formi að sleppa því 3
klukkustundir fyrir æfingu.
Umsjón
Páll Ásgeirsson