Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1994, Blaðsíða 40
48
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1994
Hjónaband
Þann 16. júlí voru gefin saman í hjóna-
band í Dómkirkjunni af sr. Jakobi Hjálm-
arssyni Fríða Björk Másdóttir og Gunn-
ar V. Ómarsson. Heimili þeirra er að
Unufelli 21, Reykjavík.
Ljósmyndast. Sigr. Bachmann.
Þann 16. júlí voru gefm saman í hjóna-
band í Dómkirkjunni af sr. Áma B Sigur-
bergssyni Svava Kristín Jensen og
Ólafur Kjartansson. Þau eru til heimil-
is að Keilugranda 10.
Ljósm.st. Nærmynd.
Þann 16. júni voru gefm saman í hjóna-
band í Kotstrandarkirkju af sr. Tómasi
Guðmundssyni Helena Kjartansdóttir
og Guðmar Jón Tómasson. Þau eru
til heimilis að Fossöldu 6, Hellu.
Ljósm. Jóhannes Long
Þann 9. júlí voru gefm saman í hjónaband
í Dómkirkjunni af sr. Jakobi Hjálmars-
syni Brynja Baldursdóttir og Ragnar
Þ. Valdimarsson.
Þann 23. júli voru gefin saman í hjóna-
band í Dómkirkjunni af sr. Lárusi Hall-
dórssyni María Óskarsdóttir og Andr-
és Magnússon. Þau eru til heimilis að
Grettisgötu í Reykjavík.
Ljósm. Sigr. Bachmann ,
Þann 16. júlí voru gefm saman í hjóna-
band í Seltjamameskirkju af sr. Solveigu
Lám Guðmundsdóttur Aldís Ingimars-
dóttir og örn Ingvi Jónsson. Þau em
til heimihs að Víkurströnd 16, Seltjamar-
nesi. Ljósmst. Rut
Þann 4. júni vom gefm saman í hjóna-
band í Akureyrakirkju af sr. Birgi Snæ-
bjömssyni Elín Ösp Sigurðardóttir og
Eiður Guðni Eiðsson. Þau era til heim-
ilis að Smárahlíð 9a, Akyreyri.
Ljósm. Norðurmynd - Ásgrímur
Andlát
Rudolf Thorarensen, Hamragarði 4,
Keflavík, lést miðvikudaginn 5. okt-
óber.
Jarðarfarir
Sigríður Elíasdóttir, Mýrargötu 13,
Neskaupstað, er lést í Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstað 3. okt-
óber, verður jarðsungin frá Norð-
fjarðarkirkju laugardaginn 8. októb-
er kl. 14.
Margrét Guðfmnsdóttir, Völusteins-
stræti 8, Bolungarvík, verður járð-
sungin frá Hólskirkju í Bolungarvík
laugardaginn 8. október kl. 14.
Unnur Guðmundsdóttir, Hólma-
grund 13, Sauðárkróki, verður jarð-
sungin frá Sauðárkrókskirkju laug-
ardaginn 8. október kl. 14.
Elsa Sigurbjörg Þorbergsdóttir, Suð-
urgötu 43, Siglufirði, verður jarð-
sungin frá Siglufiarðarkirkju laugar-
daginn 8. október kl. 13.30.
Jóhann Dalberg Sigurðsson, Birki-
teigi 23, Keflavík, sem lést fostudag-
inn 30. september, verður jarðsung-
inn frá Keflavíkurkirkju laugardag-
inn 8. október kl. 13.30.
Tilkyimingar
Silfurlínan
Sími 616262. Síma- og viðvikaþjónusta
fyrir eldri borgara alla virka daga.
Félag eldri borgara, Kópavogi
Spiluð verður félagsvist að Fannborg 8
(Gjábakka) sunnudaginn 9. okt kl. 15.
Allir velkomnir.
Félag einstæðra foreldra
Haldinn verður flóamarkaður í dag að
Skeljanesi 6, Skerjafirði, frá kl. 14-17.
Gott úrval af fatnaði á alla fjölskylduna
og margt, margt fleira.
Félag eldri borgara
í Rvík og nágrenni
Bridgekeppni sunnudag, fimmti og síð-
asti dagur í tvímenningskeppni kl. 13 í
Risinu. Annar dagur í fjögra sunnudaga
keppni í félagsvist kl. 14. Dansað í Goð-
heimum kl. 20 sunnudagskvöld. Lögfræð-
ingur félagsins er til viðtals fyrir félags-
menn funmtudag 13. okt. Panta þarf við-
tal á skrifstofu félagsins í síma 28812.
Baháíar í Reykjavík
bjóða á erindi með Bergsveini Birgissyni
laugardagskvöldið 8. október i Álfabakka
12 í Mjódd kl. 20.30. Allir velkomnir.
Kvenfélag Seljasóknar
Kvennakór Reykjavíkur verður í Selja-
kirkju sunnudaginn 9. október kl. 20.30.
Fjölbreytt dagskrá, einsöngvari Björk
Jónsdóttir og píanóundirleikari Svana
Víkingsdóttir. Gospel-systm- flytja negra-
sálma og Vox Feminae flytja Madrigala.
Stjómandi kórsins er Margrét Pálma-
dóttir.
Söngtónleikar í Hafnarborg
í Hafnarfirði þann 9. október kl. 20.30.
Flytjendur em Maren Finnsdóttir sópran
og meðleikari Lára S. Rafnsdóttir. Á efn-
isskrá em ítölsk lög, frönsk og þýsk ljóð,
ásamt óperaaríum.
Norræna húsið
Sunnudaginn 9. október kl. 14 verður
danska kvikmyndin „Hojda fra Pjort"
sem er byggð á sögu eftir Ole Lund
Kirkegaard sýnd í Norræna húsinu. Sag-
an gerist í framandi landi og snýst um
baráttu góðs og ills. Við kynnumst Hojda
sem flýgur á teppi ásamt vinkonu sinni
Smargad. Þau lenda í ýmsum ævintýr-
um. Kvikmyndin er rúm klst. að lengd
með dönsku tali. AUir em velkomnir og
er aðgangur ókeypis.
Gerðuberg
Úr sönglagasafninu er viðfangsefni er-
indis sem Trausti Jónsson veðurfræðing-
ur og Baldur Símonarson lífefnafræðing-
ur flytja í Menningarmiðstöðinni Gerðu-
bergi sunnudaginn 9. október kl. 14.
Hrafnhildur Guðmundsdóttir söngkona
og Guðríður St. Sigurðardóttir pfanóleik-
ari flytja jafnframt því lög eftir Einar
Markan, Elisabetu Einarsdóttur, Hösk-
uld J. Ólafssón, Jón Blöndal, Jón Laxdal,
Kristján Kristjánsson, Mariu Brynjólfs-
dóttur, Pétur Sigurðsson og Þorvald
Blöndal. Traust og Baldur kynna höfund-
ana og fjalla um verk þeirra. Sum lag-
anna hafa mjög sjaldan verið flutt og
ekki hafa þau öll komist á prent.
Bíósalur MÍR
Á morgun kl. 16 verður sovéska kvik-
myndin „Köllun" (Prizvanie) sýnd í bíó-
sal MÍR, Vatnsstig 10. Þetta er gömul
mynd, gerð áriö 1957, og segir í henni
m.a. frá ungum og hæfileikaríkum tón-
listarmanni. Leikstjóri er M. Fjodorov,
höfúndur tökurits V. Spirina. Skýringar-
textar á ensku. Aðgangur ókeypis og öll-
um heimill.
sýnir á Hanastéli, Núbýlavegi 22, Kópa-
vogi. Á sýningunni verða olíumálverk
unnin í blandaðri tækni og gifsgrímur.
Kitta er alfarið sjálfmenntuð en hefur
fengið leiðsögn frá sambýhsmanni sín-
um, Kristmundi Þ. Gíslasyni listmálara,
í 3 ár. Kitta hefur farið óhefðbundnar
leiðir í listsköpun sinni. Sýningin er opin
frá kl. 11-23.30 og mun standa til mánaða-
móta.
Þjóðleikhúsið
Á sunnudaginn er lestrardagur evr-
ópskra leikhúsa, en þann dag er sama
sagan lesin í leikhúsum viða um Evrópu
og er upplesturinn sérstaklega ætlaður
bömum. Maísbaunastrákurinn og fleiri
sögur verða lesnar á Smíðaverkstæðinu
sunnudaginn 9. okt. og hefst fyrsti lestur
kl. 14, en hann er túlkaður á táknmáli.
Næstu lestrar em kl. 15, 16 og loks kl.
17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomn-
ir. Foreldrar era sérstaklega hvattir til
að koma með börn sín.
Nýir eigendur - nýtt nafn
Nýir eigendur hafa tekið við hársnyrti-
stofunni Hárlist, Æsufelli 6. Hársnyrti-
stofan heitir nú Hársetrið og eigendur
hennar em: Ingirnn L. Hannesdóttir hár-
greiðslumeistari og Linda Viggósdóttir
hárgreiðslusveinn. Þær störfuðu áður
saman hjá Stellu, Hraunbæ. Hársetrið
býður upp á alhliða þjónustu fyrir alla
fiölskylduna.
Dönsk kvikmyndavika
Dagskrá danskrar kvikmyndaviku sem
haldin er í Háskólabíói er sem hér segir:
Laugardaginn 8. okt. kl. 16.50 Sinfónía
æsku minnar (Min fynske bamdom). Kl.
21 Rússneska söngkonan (Den mssiske
sangerinde). Sunnudaginn 9. okt. kl. 16.50
Rússneska söngkonan. Kl. 21 Svart haust
(Sort host). Leikstjórinn Anders Refn
verður viðstaddur.
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
Litla sviðkl. 20.00
ÓSKIN (GALDRA-LOFTUR)
eftir Jóhann Sigurjónsson
j kvöld, uppselt.
Sunnud. 9. okt., uppselt.
Mlðvikud. 12. okt., örfá sæti laus.
Flmmtud. 13. okt., uppselt.
Föstud. 14. okt., uppselt.
Laugard. 15. okt.
Sunnud. 16. okt., örfá sæti laus.
Miðvikud. 19. okt., uppselt.
Fimmtud. 20. okt., uppselt.
Laugard. 22. okt., uppselt.
Sunnud. 23. okt., uppselt.
Mlðvikud. 26. okt., uppselt.
Fimmtud. 27. okt., uppselt.
Föstud. 28. okt.
Stóra svið kl. 20.
LEYNIMELUR13
eftir Harald Á. Sigurðsson, Emil
Thoroddsen og indriða Waage.
í kvöld, fáein sæti laus, laugard. 8/10,
fimmtud. 13/10, föstud. 14/10, laugard. 15/10
Stóra svið kl. 20.
íslenska leikhúsið
Býr íslendingur hér
- minningar Leifs Muller
Sunnud. 16/10, aðeins þessi eina sýning.
Miðasala er opin alla daga nema
mánudaga frá ki. 13.00-20.00. Miða-
pantanir í síma 680680 alla virka daga
frá kl. 10-12.
Munið gjafakortin, vinsæl
tækifærisgjöf.
Greiðslukortaþjónusta.
Leikfélag Reykjavikur-
Borgarleikhús
Fyrirlestur um Karen Blixen
Sunnudaginn 9. október kl. 16 heldur
Auöur Leifsdóttir cand. mag. fyrirlestur
um dönsku skáldkonuna Karen Blixen í
fyrirlestraröðinni Orkanens oje í Nor-
ræna húsinu. Fyrirlesturinn er einnig
liður í dagskránni „Danskir haustdagar"
sem em að hefiast í Reykjavík um þessar
mundir.
Húsnæðisstofnun ríkisins
Húsnæðisstofnun efnir til ljósmyndasýn-
ingar í tilefni af þvi að um þessar mund-
ir er um aldarfiórðungur frá því að stofn-
unin hóf að veita lán til öryrkja. Ljós-
myndasýningin ber yfirskriftina „Hús-
naeðislán til samtaka öryrkja í rúman
aldarfiórðung". Ljósmyndari sýningar-
innar er Anna Fjóla Gísladóttir. Sýningin
er haldin í húsnæði öryrkjabandalagsins,
Hátúni 10, og stendur yfir frá 7. október
til 23. október. Sýningin er opin alla daga
frá kl. 9-18.
Skaftfellingafélagið í Rvík
Félagsvist á morgun, sunnudaginn 9.
okt, kl. 14 í Skaftfellingabúð, Laugavegi .
178.
Tapað fundið
Kvenúr
með svartri ól tapaðist í Hamraborg í
Kópavogi miðvikudaginn 5. október milli
kl. 1 og 2. Finnandi hafi samband í vs.
40102 (Guðný) á daginn og hs. 77122 á
kvöldin. Fundarlaun í boði.
Kötturinn Dolli hvarf frá Seláshverfi í
Árbæ sunnudaginn 2. október. Þeir sem
hafa séð til Dolla em beðnir að hafa sam-
band í síma 677584.
ÞJÓDLEIKHÚSIÐ
Sími 11200
Stórasviðiðkl. 20.00
VALD ÖRLAGANNA
eftir Giuseppe Verdi
6. sýn. i kvöld, ld„ uppselt, 7. sýn. mán.
10/10, uppselt, 8. sýn. mvd. 12/10, uppselt.
NÆSTA SÝNING ARTÍM ABIL. Föd. 25/11,
uppselt, sud. 27/11, uppselt.
Þrd. 29/11, nokkur sæti laus, föd 2/12,
uppselt, sud. 4/12, nokkur sæti laus, þrd.
6/12, fid. 8/12, Id. 10/12, örfá sæti laus.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
GAURAGANGUR
eftir Ólaf Hauk Simonarson
Ld. 15/10, sud. 16/10, fid., 20/10, Id. 22/10.
GAUKSHREIÐRIÐ
eftir Dale Wasserman
Á morgun, sud., föd. 14/10.
Litla sviðiðkl. 20.30.
DÓTTIR LÚSÍFERS
eftir William Luce
í kvöld, örfá sæti laus, föd. 14/10,
örfá sæti laus, Id. 15/10.
Smiðaverkstæðið kl. 20.00
SANNAR SÖGUR AF
SÁLARLÍFISYSTRA
eftir Guðberg Bergsson i leikgerð
Viðars Eggertssonar.
í kvöld, ld„ fid. 13/10, föd. 14/10.
Lestrardagur evrópskra leikhúsa
sunnudaginn 9/10
„MAÍSBAUNASTRÁKURINN" eftir
Augustina Bessa Luis
Leikarar Þjóðleikhússins lesa barnasög-
ur höfundarins á sunnudag kl. 14.00,
15.00,16.00 og 17.00. ÓKEYPIS AÐ-
GANGUR.
Miðasala Þjóðleikhússlns er opin alla
daga frá kl. 13-18 ogfram aösýnlngu
sýningardaga. Tekið á móti simapöntun-
um alla virka daga frá kl. 10.00.
Græna linan 99 61 60. Bréfsíml 61 12 00.
Simi 112 00-Grelðslukortaþjónusta.
Leikfélag Akureyrar
KARAMELLUKVÖRNIN
KARAmEi ,
%
KVORNIN
Gamanleikur með söngvum fyrir
alia fjöiskylduna!
ídagkl. 14.
Laugard. 15. okt. kl. 14.
Sunnud. 16. okt. kl. 14.
BAR PAR
Tveggja manna kabarettinn sem
sló í gegn á síðasta leikári!
Sýnt i Þorpinu, Höfðahlið 1
i kvöld kl. 20.30, uppselt.
Föstud. 14. okt.kl. 20.30.
Laugard. 15. okt. kl. 20.30.
TAKMARKAÐUR SÝNINGAFJÖLDI!
Sala aðgangskorta stendur
yfir!
Miðasala i Samkomuhúsinu er opin
alla virka daga nema mánudaga kl.
14-18 og sýningardaga fram að sýn-
ingu. Simi 24073. Símsvari tekur við
miðapöntunum utan afgreiðslutíma.
Greiðslukortaþjónusta.
Hjartanlegar þakkir fyrir hlýhug og
heillaskeyti, blómasendingar og aðrar
gjafir á níræðisafmæli mínu
27. september.
Anna Þórhallsdóttir
söngkona