Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1994, Page 48
X
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast
3.000 krónur.
Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast
7.000 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við
tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing; Sími 032700
Frjálst,óháð dagblað
LAUGARDAGUR 8. OKTÓBER 1994.
Hurð og gluggar í tætlur
/ / ■
„Ég var staddur á efri hæö húss-
ins þegar sprengingin varð og
fannst ég takast á loft vlð hana. Það
fór allt úr hillunum á tæmar á mér
og brotnaðí í mél. Það urðu talsvert
miklar skemmdir hér og viðbygg-
ingin, þar sem sprenjgingin varð,
er gjörsamlega ónýt. Eg held að ég
hefði ekki þurft að kemba hæmrn-
ar hefði ég verið niöri þegar
sprengingin varð,“ segir Páll Páls-
son, 75 ára, fyrrverandi skipstjóri
og íbúi í steinhúsi við Þormóðsgötu
á Siglufirði, i samtali við DV.
Heljarmikil gassprenging varð í
húsi Páls, sem hann býr eínn í, upp
úr klukkan 11 í gærmorgun. Húsið
er tvílyft með viðbyggingu sem
rifnaði frá aðalbyggingunni við
sprenginguna. í viðbyggingunni er
stigi upp á hæðina, geymsla og
þvottahús í kjallara og baðherbergi
á efri hæð. í kjallara viðbyggingar-
innar var gaskútur og hallast lög-
regla að því að gaskúturinn hafi
lekið og sprengíngin oröið þegar
frystikista í sama herbergi fór í
gang. En neisti myndast þegar
sjálfvirkur rofi kveikir á henni með
vissu millibili.
Páll, sem staddur var á efri hæð
hi tssins, slapp ómeiddur en að sögn
lögreglu féilst hann á að eyða nótt-
inni á sjúkrahúsi.
Ólafur Jóhannsson er varðstjóri
hjá lögreglunni á Siglufirði og segir
hann sprenginguna hafa heyrst um
alfan bæ.
„Aðkoman var mjög Ijót. Brak
úr útidyrahuröinni og gluggunum
í viðbyggingunni, sem er laus frá
aðalbyggingunni, fannst í um 70
metra fjarlægð frá húsinu. Útidyra-
hurðina sjálfa fundum við ekki því
hún hefur sennilega tæst í frum-
eindir. Það má telja heppni að eng-
inn hafi verið að fara yfir götuna
sem brotin þeyttust yfir,“ segir
Ólafur.
Barentshafið:
Viðræðunefndin
Sighvatur Björgvinsson:
farin til Noregs
Fimm manna viðræðunefnd ríkis-
stjórnarinnar hélt til Noregs í morg-
un en nefndin mun eiga fund með
norskum embættismönnum nk.
þriðjudag um fiskveiðideiluna í Bar-
entshafi.
í íslensku viðræðunefndinni eru
Xlelgi Ágústsson og Gunnar Schram
frá utanríkisráðuneytinu, Albert
Jónsson frá forsætisráðuneytinu og
þeir Árni Kolbeinsson og Arnar Hall-
dórsson frá sjávarútvegsráðuneyt-
inu.
Að þessu sinni verður einungis
rætt við fulltrúa norsku ríkisstjórn-
arinnar. Jón Baldvin Hannibalsson
utanríkisráðherra heldur síðan í op-
inbera heimsókn til Rússlands um
miðjan mánuðinn og er þess vænst
að þá verði tekin ákvörðun um sams
konar viðræður við Rússa.
Búið og gert
„Þetta er ákvörðun sem Guðmund-
ur Bjarnason, fyrrverandi heilbrigð-
isráðherra, tók og varð að samkomu-
lagi þegar Guðjón Magnússon skrif-
stofustjóri hóf störf í heilbrigðisráðu-
neytinu. Ákvörðunin hefur verið
framkvæmd og það er ekki hægt að
láta hana ganga til baka. Ekkert
áframhald hefur verið á greiðslum
af þessu tagi því að ákvörðunin var
bara tekin fyrir þetta skipti. Þetta
kemur ekkert upp á mitt borð,“ segir
Sighvatur Björgvinsson heilbrigðis-
ráðherra um námsleyfisgreiðslur til
Guðjóns Magnússonar samhliða
kennslu hans í Gautaborg árið 1991.
„Ég hef enga skoðun á þessu máli
fyrr en ég hef heyrt hvaða ástæður
fyrrverandi heilbrigðisráðherra fær-
ir fyrir þessari ákvörðun sinni. Hann
hefur ekki svarað því enn og ég vil
bíða eftir því svari. Ekki er hægt að
banna vinnuveitendum að borga
meira en kemur fram í kjarasamn-
ingum og þess eru dæmi að opinber-
ir starfsmenn taki laun víðar en hjá
vinnuveitanda sínum,“ segir hann.
Sighvatur telur hugsanlegt að
hann óski eftir upplýsingum frá Páli
Sigurðssyni ráðuneytisstjóra um
námsleyfisgreiðslur frá árinu 1991.
MEISTARAFEL.AG
RAFEINDAVIRK.IA
S-91-616744
Viðurkenndur
RAFEINDAVIRKI
Verður lagt fyrir áramót
Það er stór dagur i íslenskri kvennaknattspyrnu í dag þegar okkar stúikur
mæta stöilum sinum frá Englandi i 8 liða úrslitum Evrópumótsins á Laugar-
dalsvellinum. íslensku stelpurnar hafa æft af fullum krafti í vikunni og var
myndin tekin á æfingu á Ármannsvellinum. I nótt dvaldi liðið svo saman
á hóteli til að undirbúa leikinn. DV-mynd Brynjar Gauti
„Við ætlum okkur að leggja skip-
inu fyrir áramót. Það er búið að sam-
þykkja á hann úreldingu upp á 79
milljónir," segir Pétur Olgeirsson,
framkvænidastjóri Meitilsins í Þor-
lákshöfn sem gerir út ísfisktogarann
Jón Vídalín ÁR.
Togarinn sem var smíðaður 1974
er með stærstan kvóta ísfiskskipa.
DV hefur heimildir fyrir því að ætl-
unin sé að Meitillinn kaupi togarann
Jóhann Gíslason ÁR sem veriö hefur
í leigu hjá Samherja hf. Kvóti Jóns
Vídalíns yröi þá færður á Jóhann
Gíslason.
LOKI
Ætlar Sighvatur bara að af-
greiða skrifstofustjórann sinn
sem fortíðarvanda?
Veðrið á sunnudag og mánudag
Hlýjast austanlands
Á sunnudag verður hvöss suðlæg átt og rigning, mest sunnan- og vestanlands, hiti 5-10 stig. Á mánudag veröur nokkuð
lélum landið vestanvert en úrkomulítið austan
Veðrið í dag er á bls. 53
í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i