Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1994, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 15.11.1994, Qupperneq 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 1994 Fólk í fréttum_______________dv Rannveig Guðmundsdóttir Rannveig Guömundsdóttir alþm., Hlíöarvegi 61, Kópavogi, tók viö starfi félagsmálaráðherra á ríkis- ráðsfundi á Bessastööum á laugar- daginn. Starfsferill Rannveig fséddist á ísafirði 15.9. 1940 og ólst þar upp. Hún lauk lands- prófi frá Gagnfræðaskólanum á Isafirði 1956. Rannveig var starfsmaöur Pósts og síma á ísafirði 1956-62, stundaði skrifstofu- og verslunarstörf 1962-63 og 1967-68, var starfsmaður tölvu- deildar Loftleiða 1972-76 og aðstoð- armaöur félagsmálaráðherra 1988-89. Hún var búsett í Noregi 1963-66 Og 1969-71. Rannveig sat í bæjarstjórn Kópa- vogs 1978-88, var forseti bæjar- stjórnar 1980-81,1982-83 og 1986-87, formaður bæjarráðs 1987-88, sat í félagsmálaráöi Kópavogs 1978-86 og var formaður þess 1982-86. Hún var stjórnarformaður verndaða vinnu- staðarins Örva 1982-86, sat í stjórn Launanefndar sveitarfélaga 1986-88, í stjórn Sparisjóðs Kópa vogs 1981-83,1984-85 og 1987-89, hefur setiö í flokksstjórn Alþýðu- flokksins frá 1978, var ritari flokks- ins 1990-92, var varaformaður Al- þýðuflokksins 1993-94 og er þing- flokksformaður flokksins frá 1993. Hún var formaður Húsnæðisstjórn- arríkisins 1987-89. Rannveig tók sæti á Alþingi 1989, var kjörin þingmaður 1991, hefur verið formaður menningarmála- nefndar Norðurlandaráðs, formað- ur félagsmálanefndar Alþingis og hefur setið í fleiri nefndum þingsins. Fjölskylda Rannveig giftist 25.9.1960 Sverri Jónssyni, f. 9.7.1939, tæknifræðingi hjá íslandsbanka. Hann er sonur Jóns H. Guðmundssonar skóla- stjóra sem er látinn og k.h., Sigríðar Jóhannesdóttur húsmóður. Börn Rannveigar og Sverris eru Sigurjóna, f. 7.5.1959, leikkona, bú- sett á Ítalíu, gift Kristjáni Jóhanns- syni óperusöngvara og eiga þau tvo syni; Eyjólfur Orri, f. 7.7.1965, flug- virki í Kanada, en sambýliskona hans er Geirný Sigurðardóttir og eiga þau tvo syni; Jón Einar, f. 21.3. 1976, menntaskólanemi. Systkini Rannveigar eru Guðrún Sæmundsen, f. 1.8.1926, fyrrv. skólaritari; Margrét, f. 8.2.1928, fyrrv. bankastarfsmaður í Reykja- vík; Hulda, f. 12.2.1930, verslunar- maður á ísafirði; Marta, f. 9.11.1932, stöðvarstjóri Pósts og síma í Hafnar- firði; Jónas, f. 6.11.1934, sendibíl- stjóri í Kópavogi; Helga, f. 6.8.1937, aðstoðardeildarstjóri í Reykjavík; Gunnbjöm, f. 23.2.1944, prentari í Reykjavík. Foreldrar Rannveigar voru Guð- mundur Kristján Guðmundsson, f. 15.8.1897, d. 12.1.1961, b. í Stakkadal og síðan skipstjóri á ísafirði, og k.h, Sigurjóna Guðmundína Jónasdótt- ir, f. 14.1.1903, d. 9.9.1954, húsfreyja. Ætt Guðmundur var sonur Guðmund- ar, b. í Stakkadal í Sléttuhreppi, Guðmundssonar, b. á Atlastöðum og Látrum, Þeófílussonar. Móðir Guðmundar í Stakkadal var Karó- lína Ólafsdóttir, b. á Atlastöðum, Jónssonar. Móðir Guðmundar skip- stjóra var Sigríður Helga Sakarías- dóttir, b. í Stakkadal, Sakaríasson- ar, bróður Ingibjargar, langömmu rithöfundanna Jakobínu og Fríðu Sigurðardætra. Önnur systir Sakar- íasar var Sigurfljóð, langamma Árna Gunnarssonar framkvæmda- stjóra. Meðal móðursystra Rannveigar: Þorvaldína, móðir Brynjólfs Sig- urðssonar, prófessors við HÍ, og Brynhildur, móðir Elsu Haralds- dóttur hárgreiðslumeistara. Sigur- jóna var dóttir Jónasar, hreppstjóra á Sléttu í Sléttuhreppi, Dósóþeus- sonar, b. í Görðum, Hermannsson- ar. Móðir Jónasar var Margrét Sturludóttir, hreppstjóra í Görðum í Aðalvík, Bárðarsonar, b. á Hóli í Bolungarvík, Sturlusonar. Móðir Bárðar var Ingibjörg Bárðardóttir, Rannveig Guðmundsdóttir. ættfoður Arnardalsættarinnar, 111- ugasonar. Móðir Siguijónu var Þór- unn Jóhanna Brynjólfsdóttir, b. á Látrum, Þorsteinssonar, b. á Atla- stöðum, Snæbjörnssonar. Móðir Þórunnar var Ingibjörg Hermanns- dóttir, b. á Sléttu, Sigurðssonar, bróður Sigurðar langafa Árna, fyrrv. framkvæmdastjóra SH, og Jóns Hjartar, afa Sveins Hjartar, hagfræðings LÍÚ. Afmæli Bjami Þorgeir Bjamason Bjarni Þorgeir Bjamason gullsmið- ur, Vallhólma 18, Kópavogi, er sjö- tugur í dag. Starfsferill Bjarni Þorgeir fæddist í Reykja- vík og ólst þar upp. Hann hóf nám í gullsmíði hjá Óskari Gíslasyni gullsmið, stundaði nám við Iðn- skólann í Reykjavík 1942^46, lauk sveinsprófi í greininni og hefur starfað við gullsmíði síðan. Síðustu fjörutíu árin hefur Bjami Þorgeir verið í samstarfi við Þórarin Gunn- arsson gullsmið, nú að Hverfisgötu 49 í Reykjavík. Fjölskylda Bjarni Þorgeir kvæntist 16.11. 1946, Svövu Jónsdóttur, f. 26.7.1928, d. 9.2.1974, húsmóður. Hún var dóttir Jóns Halldórs Gíslasonar múrarameistara og Guðrúnar Jónsdóttur húsmóður. Börn Bjarna Þorgeirs og Svövu: Láms Bjarnason, f. 28.4.1947, d. 6.6.1950; Jón Halldór Bjarnason, f. 31.7.1949, gullsmiður, kvæntur El- ísabetu Elíasdóttur og eiga þau þrjú börn; Ragnhildur Bjamadóttir, f. 26.4.1951, hárgreiðslumeistari, gift Birgi Reynissyni og eiga þau tvær dætur; Láms Bjarnason, f. 18.10. 1954, sýslumaður, kvæntur Hrafn- hildi Sigurðardóttur og eiga þau þrjú böm; Svava Bjamadóttir, f. 21.5.1964, gift Sveinbirni Imsland og eiga þau fjögur böm; Bjarni Þ. Bjamason, f. 27.1.1967, prentari, kvæntur Kristínu Þorsteinsdóttur og eiga þau eitt barn. Langafabörn Brúdkaupsafmæli Hjónin Sigurlaug Guöjónsdóttir og Guömundur Guðnason. Guðmundur Guðnason og Sigurlaug Guðjónsdóttir Hjónin Guðmundur Guönason, fyrrv. bóndi, og Sigurlaug Guðjóns- dóttir húsfreyja, til heimili á Dval- arheimilinu Kirkjuhvoli á Hvol- svelli, eiga sextíu ára brúðkaupsaf- mæli í dag. Guðmundur og Sigurlaug voru gefin saman í hjónaband af séra Sveinbimi Högnasyni sem þá var prestur á Breiðabólstað í Fljótshlíð. Þau hófu búskap í Vestmannaeyj-1 u'rt haustiö Í934. Voriðl936byggðu f þau nýbýlið Fögmhlið úr landi Kotmúla í Fljótshlíð og stunduðu þar síðan hefbundinn búskap til 1990, eða í fimmtíu og fjögur ár. Þá fluttu þau á Dvalarheimilið Kirkju hvol á Hvolsvelli. Guðmundur og Sigurlaug eiga fjögur böm, sjö bamabörn og þrjú langafa- og langömmuböm. Guðmundur og Sigurlaug veröa áðíioiman í dág. ; liiyt öiav isrnðá .a.m .14 <!<: a-TSÖA Bjarna Þorgeirs em nú tvö. Seinni kona Bjarna Þorgeirs er IngibjörgMagnúsdóttir. Hún er dóttir Magnúsar Finnssonar frá Stapaseli í Borgarfirði og Sigríðar Guðmundsdóttur húsfreyju. Systkini Bjarna Þorgeirs: Sverr- ir, f. 2.10.1916, d. 11.7.1976, verk- stjóri; Guðbrandur, f. 8.9.1917, d. 18.11.1969, verslunarstjóri; Harald- ur, f. 29.10.1918, d. 16.6.1974, skrif- stofumaður; Guðjón, f. 14.11.1921, rafvirki; Baldur, f. 2.7.1923, mynd- listarmaður; Sigurður Gísli, f. 2.2. 1930, gullsmiður. Foreldrar Bjarna Þorgeirs vom Bjami Einarsson, f. 9.5.1892, d. 6.7. 1943, gullsmiður á Seyöisfirði og síðar í Reykjavík, og Ragnhildur Jónsdóttir, f. 12.9.1891, d. 24.8.1972, húsmóðir. Ætt Meðal systkina Bjama Einars- sonar má nefna Guðjón knatt- spyrnudómara, Ástu, móðurÁs- geirs Sigurðssonar rallökumanns og Hallfríði Margréti, ömmu Guð- mundar Sigurjónssonar skák- meistara. Bjami var sonur Einars, b. í Holtahólum, bróður Jóns, fóður Vilmundar landlæknis, afa Þor- steins heimspekings, Vilmundar ráðherra og Þorvalds prófessors Gylfasona, og Ólafs framkvæmda- stjóra og Kristínar sjónvarpsfrétta- manns Þorsteinsbama. Annar bróðir Einars var Magnús, faðir Guðbrands, ritstjóra Tímans og forstjóra ÁTVR. Einar var sonur Sigurðar frá Hrífunesi Bjamason- ar í Þykkvabæjarklaustri Jónsson- ar, bróður Jóns, hreppstjóra í Hlíð, ættfóður Hlíðarættarinnar. Móðir Einars var Gróa Einarsdóttir. Meðal systra Guðrúnar Eiríks- dóttur vom Auðbjörg í Holtahól- um, amma Rafns Eiríkssonar skólastjóra, og Jóhanna á Seyöis- firöi, langamma Hannesar Hlífars Stefánssonar skákmanns. Guörún var dóttir Eiríks í Flatey og á Djúpavogi Einarssonar, b. á Brunnum, Eiríkssonar. Móðir Ei- ríks Einarssonar var Auðbjörg Sig- urðardóttir, b. á Reynivöllum, Ara- Bjarni Þorgeir Bjarnason. sonar, og Guðnýjar Þorsteinsdótt- ur, b. á Felli, Vigfússonar. Móðir Guðnýjar var Ingunn Guðmunds- dóttir, b. á Kálfafelli, Brynjólfsson- ar, prests á Kálfafellsstað, Guð- mundssonar. Móðir Guðrúnar Ei- ríksdóttur var Guðrún Jónsdóttir úr Vestur-Skaftafellssýslu. Ragnhildur var fædd að Núpi í Rangárvallasýslu, dóttir Jóns Ben- ónýssonar sem var sonur Benónýs Hinrikssonar. Ti 1 hamingju með aJ 15.nóvembe] Fmæl r ið ■* 85 ára 60 ára 40 ára Guðrún Pálsdóttir, Bólstaöarhlíð 3, Reykjavik. Jón Þór Fr. Bueh, Einarsstöðum, Reykjahreppi. 80 ára Sigrún Ámadóttir, Tangagötu 15A, ísafirði. Gunnar Þoryaldsson, Bakkavegi 5, ísafirði. Erla Einarsdóttir, Sandbakkavegi 6, Höfn í Horna- firöi. Björgvin Jónsson, Kópavogsbraut 64, Kópavogi. 50 ára 75 ára Benedikt Haíliðason, Njörvasundi 6, Reykjavík. 70ára Margrét Karlsdóttir, Brekkubraut 3, Keflavík. Valgerður Jónsdóttir, Rauöagerði 44, Reykjavik. Guðlaug Jóhannsdóttir, Baugsholti 9, Keflavik. Ólafur Eyjólfsson, Bólstaðarhlíð 9, Reykjavik. Eiður Skarphéðinsson, Kvíholti 2, Hafnarfirði. Birgir Lárusson Blöndal, Þúfuseli 3, Reykjavík. Jón J. Haraldsson, Sæunnargötu 2, Borgamesi. : Sigurðurlngólfsson, Breiövangi 37, Hafnarfirði. Rakel Rut Ingadóttir, Stórateigi 6, Mosfellsbæ. Sólveig Steinsson, Kársnesbraut 82, Kópavogi. Magnús Guðmundsson, Fjögugranda 14, Reykjavík. Anna Jóna Pálmadóttir, Svínaskálahlíð3, Eskifirði. María Björg Filippusdóttir, Vesturási 27, Reykjavík. Jón Björn Sigtryggsson, Miögarði 11, Keflavík. Margrét LilUan Skúladóttir, Selási 4, Egilsstöðum. Björn Júlíus Hannesson, Ljósheimum 6, Reykjavik, Iðunn Antonsdóttir, Duggugerði 7, Öxarfiarðarhreppi. Helga Hannesdóttir, Álftártungukoti, Álttaneshreppi. Einar Már Kristinsson, i. ’1 11 ! J ' ! I I ’ , I ■ * S : jJ—U-llixllu u-íi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.