Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1995, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1995, Blaðsíða 17
MÁNUDAGUR 3. APRÍL 1995 17 dv_________________________________________Fréttir Tveir arkitektar stefna ríkinu til greiðslu vegna tapaðra verkefna: Krefjast 3,5 milljóna vegna Þjóðminjasafnsins - höfðu engan samning, segir fyrrverandi þjóðminjavörður Svavar Gestsson, fyrrverandi menntamálaráöherra, var boðaöur fyrir dómara í Héraösdómi Reykja- víkur fyrr í þessum mánuði vegna deilumáls þar sem arkitektar á Teiknistofunni, Skólavöröustíg 28, krefja fjármálaráðuneytið um greiðslu tæplega 3,5 milljóna króna vegna þess að þeir telja sig hafa orð- ið fyrir skakkaíöllum í rekstri vegna samningsrofs við þá á verkefnum við endurbætur á Þjóðminjasafninu. Arkitektarnir Stefán Örn Stefánsson og Grétar Markússon voru ráðnir til verksins árið 1991 en síðan var samn- ingi við þá sagt upp fyrirvaralaust og án tilefnis í maí 1993, aö þeirra áhti. Þá var annar menntamálaráð- herra og bygginganefnd tekin við vegna endurbóta á Þjóðminjasafn- inu. Áður en málinu var stefnt fyrir dóm kærðu Stefán Örn og Grétar arkitektinn Ögmund Skarphéðins- son til siðanefndar Arkitektafélags- ins fyrir að hafa gengið inn á verk- svið þeirra vegna verkefna fyrir Þjóðminjasafn íslands. Þegar fjallað var um kæruna fór Arkitektafélagið m.a. fram á það við byggingarnefnd Þjóðminjasafnsins að fá ljósrit af öll- um reikningum Ögmundar fyrir ráðgjöf og hönnunarstörf hans við stofnunina frá árinu 1991 til ársloka 1993. Þegar Stefáni Erni og Grétari var sagt upp í maí 1993 hélt Ögmund- ur áfram að vinna að verkefnum fyr- ir stofnunina. Siðanefndin komst aö þeirri niðurstöðu fyrr í þessum mán- uði að Ögmundur teldist hafa brotið siðareglur Arkitektafélagsins. Siðanefndarkæran hefur ekki af- gerandi áhrif í dómsmálinu. Þar er tekist á um þann tíma sem fór for- görðum í rekstri arkitektastofu Stef- áns Arnar og Grétars á meðan þeir biðu eftir því að framkvæma þau verkefni sem gerður hafði verið samningur um við þá sem síðan var sagt upp. „Ég leit þannig á sem ráðherra að þetta væri alveg fullklárað alvöru- piagg. Það var því eðliiegt að menn- irnir teldu sig eiga að vinna eftir því,“ sagði Svavar Gestsson í samtali við DV í gær, aðspurður um samn- inginn sem gerður var við arkitekt- ana. Guðmundur Magnússon, fyrrver- andi þjóðminjavörður, er á öðru máli: „Þessir menn höfðu engan samning um framkvæmdir á Þjóð- minjasafninu enda hafa þeir ekki getað lagt neitt slíkt plagg fram. Kjami málsins er sá að hugmyndum þeirra um endurbætur á húsi Þjóð- minjasafnsins var hafnað og engum dettur lengur í hug að framkvæma þær. Þegar byggingarnefnd safnsins Akranesbær kaupir hlutabréf Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi: Bæjaryfirvöld á Akranesi hafa samþykkt aö bærinn gerist hluthafi í 2 fyrirtækjum sem nemur 800.000 krónum. Akranesbær er þegar um- svifamikUl í fyrirtækjarekstri - á stóran hiut í Skipasmíðastöð Þ&E hf. og sjávarútvegsfyrirtækið Krossvík hf. er alfarið í eigu bæjarins. Bærinn eignast 400 þúsund króna hlut í Skelfangi hf. sem hyggst heíja veiöar og vinnslu á kræklingi. Einnig hefur verið stofnað hlutafélag um kaup og rekstur skemmti- og sjó- stangaveiðibáts og eignast bærinn 400 þúsund króna hlut í því. ákvað að leita nýrra lausna var sjálf- gefið að hún leitaði til annarra hönn- uða og ráðgjafa. Til þess hafði hún allan rétt enda er það sérstaklega tekið fram í erindisbréfi hennar. Málatilbúnaður þeirra, sérstaklega gegn Ögmundi Skarphéðinssyni inn- an Arkitektafélagsins, er mér alveg óskiljanlegur," sagði Guðmundur sem einnig bar vitni fyrir dóminum að ósk ríkislögmanns. -Ótt Jafhar greiðslur Óverðtryggð lán til allt að 5 ára með jöfhum greiðslum allan lánstímann!' íslandsbanki vill stubla ab stöbugleika í fjármálum heimilanna og býbur nú nýjan lánamöguleika. Óverbtryggb lán til allt ab 5 ára meb jöfnum greibslum allan lánstímann. Leitabu upplýsinga í nœsta útibúi bankans. ÍSLANDSBANKI - í takt vib nýja tíma! *Um er oð rœöa jafngreiöslulán. Greiöslubyröi þessara lána veröur jöfn út lánstímann á meöan vextir breytast ekki.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.