Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1995, Blaðsíða 46
58
MÁNUDAGUR 3. APRÍL 1995
Afmæli
Eiríkur Guðnason
Eiríkur Guðnason seðlabankastjóri,
Mánabraut 3, Kópavogi, er fimm-
tugurídag.
Starfsferill
Eiríkur fæddist í Keflavík og ólst
þar upp. Hann lauk þar landsprófi
1961, stúdentsprófi frá ML1965,
prófi í viðskiptafræði við HÍ1970,
stundaði námskeið hjá Alþjóða-
gjaldeyrisvarasjóðnum 1974 og 1985
og námskeið hjá Seðlabanka Banda-
ríkjanna í New York 1983.
Eiríkur hóf störf hjá Seðlabanka
íslands 1969. Hann var fulltrúi þar
1969-74, deildarstjóri 1975-83, hag-
fræðingur bankans 1984-86, varð
aðstoðarbankastjóri 1987 og banka-
stjóri þar frá 1994. Hann er formað-
ur stjómar Verðbréfaþings frá 1986.
Fjölskylda
Eiríkur kvæntist 31.7.1965 Þor-
gerði Guðfmnsdóttur, f. 14.12.1946,
kennara. Hún er dóttir Guðfinns G.
Ottóssonar, verkamanns á Stokks-
eyri, og Guðrúnar Kristmannsdótt-
ur húsmóður.
Börn Eiríks og Þorgerðar eru Guð-
fmnur Eiríksson, f. 23.12.1964, mál-
arameistari í Reykjavík, kvæntur
Agnesi Geirdal og eiga þau tvo syni;
Guðni Magnús Eiríksson, f. 31.1.
1970, nemi í Reykjavík, en kona hans
er Gunnhildur Sveinsdóttir og eiga
þau eina dóttur; Hanna Rún Eiríks-
dóttir, f. 13.8.1971, nemi í Kópavogi;
Oddný Lára Eiríksdóttir, f. 22.11.
1979, nemi í Kópavogi.
Hálfbróðir Eiríks, sammæðra, er
Ellert Eiríksson, f. 1.5.1938, bæjar-
stjóri í Keflavík-Njarðvík-Höfnum.
Hálfbræður Eiríks, samfeðra, eru
Vignir Guðnason, f. 30.8.1931, bíl-
stjóri í Njarðvík; Birgir Guðnason,
f. 14.7.1939, forstjóri í Keflavík.
Systur Eiríks eru Steinunn
Guðnadóttir, f. 4.6.1949, verslunar-
maður í Keflavík; Árnheiður
Guðnadóttir, f. 3.12.1951, ferðabóndi
í Breiðuvík.
Foreldrar Eiríks eru Guðni Magn-
ússon, f. 21.11.1904, málarameistari
í Keflavík, og Hansína Kristjáns-
dóttir, f. 5.5.1911, húsmóðir.
Ætl
Guðni var sonur Magnúsar, sjó-
manns í Njarðvíkum, Pálssonar
Jónssonar. Móðir Guðna var Stein-
unn Ólafsdóttir frá Leiru af Víkings-
lækjarætt.
Faðir Hansínu var Kristján Þórð-
arson, á Rauðkollsstöðum í Mikla-
Eirikur Guðnason.
holtshreppi, Þórðarsonar. Móðir
Hansínu var Elín Jónsdóttir.
Þau hjónin taka á móti gestum í
Akoges-salnum að Sigtúni 3 í dag
millikl. 17.00 og 19.00.
Páll V. Daníelsson
85 ára
Aðalheiður Eliníusardóttir,
Hrafnistu við Kleppsveg, Reykja
vik.
80 ára
Hólmfríður Jónsdóttir,
Grundarstíg 11, Sauðárkróki.
75 ára
Hefga Magnúsdóttir,
Smárarima 116, Reykjavík.
Magnús Ágúst Torfason,
Stuðlaseli 17, Reykjavík.
Guðmundur S, Einarsson,
Engjavegi 11, ísafirði.
Ágúst Oddsson,
Sjávargrund9B, Garðabæ.
Eygló Svana Stefánsdóttir,
Melgerði 10, Reykjavik.
Ragnheiður Hálfdánardóttir,
Furugrund 20, Kópavogi.
Jón B. Hannesson,
Kirkjuvegi ll.Keflavík.
Guðbjörg Laufey Eirxksdóttir,
Hraunteigi 26, Reykjavík.
Einar Jónsson, •
Jaðarsbraut 13, Akranesi.
70 ára
Sesselja Þorvaldsdóttir,
Digranesheiði 25, Kópavogi.
60ára________________
Kjartan Ólason,
Fagragaröi 1, Keflavík.
Kjartan er að heiman.
Sigriður Ólafsdóttir,
■Torfufelli 46, Reykjavík.
Gunnar Harafdsson,
Álfaskeiði 78, Hafnarfirði.
Linda Xiao Qin Zhang,
Tjarnarmýri41, Seltjarnarnesi.
Einar Orri Davíðsson,
Kleifarseli 14, Reykjavík,
Ásbjörn Jensson,
Rauðalæk 57, Reylgavík.
Guðrún Aðalsteinsdóttir,
— Vesturgötu69,Akranesi.
Ester Jónatansdóttir,
Kringlunni39, Reykjavík.
Kristín Einarsdóttir,
— Hrafnsmýri 2, Neskaupstað.
Björk Níelsdóttir,
_ Helgubraut 21, Kópavogi.
Jóhannes Guðmundsson,
Fossheiöí38,Selfossi.
Jóhann Bragason,
Fífurima 40, Reykjavík.
Lára Guðmundsdóttir,
Ásklifi 22, Stykkishólmsbæ.
Sigríður Einarsdóttir,
Smáraflöt 46, Garðabæ.
Hannes
Guðmundsson
Hannes Guðmundsson, bóndi að
Auðkúlu m í Svínadal, er sjötugur
ídag.
Starfsferill
Hannes fæddist að Hafgrímsstöð-
um í Tungusveit en ólst upp í Slétt-
árdal í Svínavatnshreppi. Hann var
fjórtán ára er hann missti foöur sinn
og hefur fengist við búskap nær
óslitiðsíðan.
Hannes lauk búfræðiprófi frá
Hvanneyri 1946. Hann flutti að
Auðkúlu 1947 og reisti þar nýbýlið
Auðkúlu m í byrjun sjötta áratugar-
ins en þar hefur hann búið síðan.
Hannes starfaði með ungmennafé-
lagi sveitarinnar og keppti í íþrótt-
uni á sínum yngri árum.
Fjölskylda
Systkini Hannesar eru Arnljótur
Guðmundsson, f. 17.4.1929, húsa-
smíðameistari í Reykjavík; Elín
Hannes Guðmundsson.
Guömundsdóttir, f. 24.4.1931, bóka-
vörðuríReykjavík.
Foreldrar Hannesar voru Guð-
mundur Kristjánsson, f. 1888, d.
1939, bóndi í Sléttárdal, og Pálína
Jónsdóttir, f. 1894, d. 1972, húsfreyja.
Páll V. Daníelsson, fyrrv. fram-
kvæmdastjóri Pósts og síma, Suður-
götu 61, Hafnarfirði, er áttræður í
dag.
Starfsferill
Páll fæddist að Flatnefsstöðum á
Vatnsnesi í Vestur-Húnavatnssýslu
en ólst upp á Bergsstöðum á Vatns-
nesi við almenn sveitastörf og sjó-
róðraáhaustin.
Páll flutti til Hafnaríjarðar 1940,
lauk stúdentsprófi frá MR1944 og
viðskiptafræðiprófi frá HÍ1957.
Páll var kvæmdastjóri Drafnar hf.
1942-48, framkvæmdastjóri Sjálf-
stæðisflokksins í Hafnarfirði og rit-
stjóri Hamars 1949-56, starfsmaður
hagdeildar Framkvæmdabanka ís-
lands 1956-60, forstjóri hagdeildar
Pósts og síma 1961-76 og fram-
kvæmdastjóri fjármáladeildar Pósts
og síma 1976-80.
Páll átti sæti í stjórn SUS, í stjórn
Stefnis í Hafnarfirði, landsmálafé-
lagsins Fram, í fulltrúaráði Sjálf-
stæðisfélaganna í Hafnarfirði, átti
sæti í flokksráði Sjálfstæðiflokks-
ins, var í skiplagsnefnd flokksins og
sat landsfundi um árabil. Hann sat
í stjórn Málfundafélagsins Magna í
Hafnarfirði, var formaður 1968-70,
sat í stjórn Skógræktarfélags Hafn-
arfjarðar, í Áfengisvarnaráði
1965-66 og 1974-87, formaður áfeng-
isvarnarnendar Hafnarfjarðar frá
1955 og formaður Landssambands-
ins gegn áfengisbölinu 1968-90.
Páll var bæjarfulltrúi í Hafnar-
firði 1958-60, skoðunarmaður reikn-
inga kaupstaðarins 1990-94, í niður-
jöfnunarnefnd 1951-52, í Fræðslu-
ráði Hafnarfjarðar 1954-62 og
1974-86 og formaður 1978-86, í út-
gerðarráði 1962-74, formaður at-
vinnumálanefndar 1968-69 og for-
maður útgáfustjórnar sögu Hafnar-
fjarðar 1980-84.
Fjölskylda
Páll kvongaðist 23.5.1942 Guðrúnu
Jónsdóttur, f. 6.3.1913. Hún er dóttir
Jóns Brynjólfssonar, b. í Austurkoti
í Flóa í Hraungerðishreppi, síðar á
Grafarbakka í Hrunamannahreppi
í Árnessýslu, og k.h., Katrínar Guð-
mundsdóttur húsfreyju.
Börn Páls og Guðrúnar eru Vil-
borg f. 26.8.1943, skrifstofumaður í
Mosfellsbæ, gift Þráni Kristinssyni
verkamanni og eiga þau þrjú böm;
Katrín f. 16.10.1944, kennari í Hafn-
arfirði, og á hún einn son; Anna
María f. 22.8.1946, kennari í Hafnar-
firði, gift Per Roald Landro, cand.
philol, fulltrúa, og eiga þau þrjú
börn; Páll Gunnar, f. 15.1.1952, mat-
vælafræðingur, kvongaður Ólínu
Birgisdóttur félagsráðgjafa og eiga
þau þijúbörn.
Systkini Páls: Fanney f. 3.12.1913,
d. 2.10.1968, húsfreyja í Miðhúsum
í Vatnsdal; Davíð f. 28.12.1917, d.
17.9.1930; Guðni f. 5.7.1920, d. 19.11.
1992, húsamiður í Kópavogi; Ingi-
björg, f. 3.3.1922, fyrrv. húsfreyja á
Bergsstöðum á Vatnsnesi, nú búsett
á Seltjarnarnesi.
Páll V. Daníelsson.
Hálfsystkini Páls, sammæðra: Ól-
öff. 23.9.1924, kennari; Daníel f.
27.8.1928, sjómaður á Hvamm-
stanga; Vilborg f. 11.2.1932, húsmóð-
iríHafnarfirði.
Foreldrar Páls: Daníel Teitsson, f.
28.11.1884. d. 22.2.1923, b. á Bergs-
stöðum á Vatnsnesi, og k.h., Vilborg
Árnadóttir, f. 31.3.1895 d. 11.2.1993,
húsfreyja. Seinni maður Vilborgar
og fósturfaðir Páls var Pétur Teits-
son. Hann var bróðir Daníel|.
Foreldrar Daníels voru Teitur
Halldórsson, b. á Bergsstöðum, og
Ingibjörg Árnadóttir, húsmóðir þar.
Foreldrar Vilborgar vom Árni
Magnússon, húsmaður í Fellsaxlar-
koti, Skilmannahreppi í Borgarfiröi,
og k.h., Vilborg Pálsdóttir húsmóð-
ir.
Margrét Hauksdottir
Margrét HaUksdóttir húsmóðir,
Dælengi 18, Selfossi, er fertug í dag.
Starfsferill
Margrét fæddist í Reykjavík en
ólst upp að Stóru-Reykjum í Hraun-
gerðishreppi. Þar átti hún heima til
1973 er hún flutti á Selfoss þar sem
hún hefur búið síðan. Hún gekk í
barnaskólann í Þingborg í Flóa, lauk
gagnfræðaprófi á Selfossi og stund-
aði nám við Húsmæðraskólann í
Reykjavík 1972.
Áuk húsmóðurstarfa hefur Mar-
gét m. a. stundað skrifstofu-, versl-
unar- og framreiðslustörf. Hún
starfaði með ungmennafélaginu
Baldri, SUF og í Framsóknarfélagi
Selfoss.
Fjölskylda
Margrét giftist 2.6.1973 Guðna
Ágústssyni, f. 9.4.1949, alþm. Hann
er sonur Ágústs Þorvaldssonar, b.
og alþm. á Brúnastöðum í Flóa, sem
lést 1986, og Ingveldar Ástgeirsdótt-
ur húsfreyju sem lést 1989.
Börn Margrétar og Guðna eru
Brynja, f. 7.3.1973, framreiðslumað-
ur í Noregi, en maður hennar er
Ragnar Friðriksson framreiðslu-
maður; Agnes, f. 20.11.1976; Sigur-
björg, f. 15.4.1984.
Systkini Margrétar eru María
Ingibjörg, f. 16.5.1953, b. qg húsmóð-
ir í Geirakoti í Flóa, gift Ólafi Krist-
jánssyni og eiga þau fjórar dætur;
Gerður, f. 23.10.1958, baðvörður í
Reykjavík, gift Karli Bergmann og
eiga þau þijú börn; Gísli, f. 20.3.1961,
hreppstjóri að Stóru-Reykjum í
Flóa, kvæntur Jónínu Einarsdóttur
og eiga þau þrjú börn; Vigdís, f. 20.3.
1965, kaupmaður í Reykjavík, gift
Þorsteini Sigurfinnssyni og eiga þau
einn son; Hróðný Hanna, f. 13.9.
1969, bæjarfulltrúi á Selfossi, en
maður hennar er Hróbjartur Eyj-
ólfsson og eiga þau tvö börn.
Foreldrar Margrétar eru Haukur
Margrét Hauksdóttir.
Gíslason, f. 23.12.1920, fyrrv. hrepp-
sljóri að Stóru-Reykjum í Flóa, óg
k.h., Sigurbjörg Geirsdóttir, f. 10.7.
1932, húsfreyja.