Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1995, Blaðsíða 42
54
MÁNUDAGUR 3. APRlL 1995
Hver verða kosningaúrslit-
in í Norðurlandskjördæmi
vestra? (spurt á Siglufirði).
Sigurður Árni Leifsson verkamaður:
„Sjálfstæðisflokkurinn fær tvo
menn, Alþýðubandalagið einn,
Framsókn fær einn og Aiþýðuflokk-
ur einn mann.“
Anton Eyþórsson nemi: „Þetta verð-
ur allt óbreytt, Sjálfstæðisflokkurinn
fær 2, Framsóknarflokkurinn 2 og
Alþýðubandalagið 1 mann.“
Lilja Karlsdóttir kennari: „Alþýðu-
flokkurinn fæj; tvo, Sjálfstæðisflokk-
urinn tvo og Framsóknarflokkurinn
einn mann.“
Hildur Bjarnadóttir húsmóðir: „Þetta
verður alveg óbreytt, Norölendingar
eru svo afskaplega íhaldssamt fólk.“
Vilhelm Friðriksson ellilífeyrisþegi:
„Ég hef trú á aö sjálfstæðismenn taki
annan manninn af Framsókn og fái
3 menn og Alþýðubandalagið fær
einn mann.“
Njörður Jóhannsson fiskvinnslu-
maður: „D-listinn fær tvo, B-listinn
tvo og G-listinn einn mann og ég yrði
ánægður með þau úrslit.“
DV á almennum kosmngafundi á Siglufirði:
„Þeir Ijúga og Ijúga
og svíkja og svíkja"
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Fyrsti sameiginlegi kosningafund-
ur framboðslistanna í Norðurlands-
kjördæmi vestra var haldinn í síð-
ustu viku. Sigluíjörður varö fyrir
valinu sem fundarstaöur og e.t.v.
hafa frambjóðendumir litið svo á að
illu væri best af lokið. Siglfirðingar
hafa nefnilega ekki verið feimnir við
það upp á síðkastið að lýsa van-
trausti á þingmenn kjördæmisins,
þeir segja að þingmennimir vanræki
skyldur sínar við þá en séu þess í
stað þingmenn ákveðinna svæða og
staða í kjördæminu, annarra en
Siglufjarðar.
Siglflrðingar sýndu fundinum líka
takmarkaðan áhuga. Þegar fundur-
inn hófst vom 36 „atkvæði" mætt í
salinn í Bíó-kaffi þar sem fundurinn
fór fram og fundarmenn urðu flestir
um 50 talsins á fundinum. Sú þátt-
taka er ekki svipur hjá sjón miðað
við það sem veriö hefur á slíkum
fundum á Siglufirði. Það kann að
hafa valdið einhverju um fundar-
sókn að fundinum var útvarpað í
bænum.
Úreltfundarform
Stefán Guömundsson þingmaður
hafði á orði við blaðamann DV áður
en fundurinn hófst að hann dáðist
að því fólki sem nennti að ómaka sig
og mæta á fund sem þennan. Umfjöll-
un um stjómmál í fjölmiðlum væri
svo viðamikil að fólk ætti að vera
búið að fá nægju sína.
Það verður að segjast eins og er að
flokkarnir gerðu líka sitt til að stuðla
að því að fólk sæti heima. Boðið var
upp á gjörsamlega úrelt fundarform,
tæplega 20 frambjóðendur fluttu á
þriðja tug ávarpa í þremur umferð-
um, engar fyrirspurnir voru leyfðar,
og svo fór auðvitað að sjá mátti
þreytumerki á mörgum fundar-
manna þegar fundinum lauk loks
skömmu fyrir miðnætti.
Órólegir frambjóðendur
Frambjóðendurnir sátu á sviðinu í
Bíó-kaffi, eða áttu að sitja þar. Þeir
voru hins vegar órólegir einhverra
hluta vegna og voru á sífelldu ferða-
lagi um fundarsahnn, ýmist til að
taka í hendur „atkvæðanna" í saln-
um eða kinka kolli til annarra. Sum-
ir fóru fram í sal til að reykja en slíkt
var bannað á sviðinu og séra Hjálm-
ar Jónsson, oddviti sjálfstæðis-
manna, sem auðvitað er vanur að
þjóna til altaris í kirkju sinni á Sauð-
árkróki, var farinn að þjóna úti í sal
og bar kaffi fyrir gesti við eitt borðið.
Allir vilja betri samgöngur
Siglfirðingar telja sig afskipta með
ýmislegt, en þó fyrst og fremst hvaö
varðar samgöngur, enda vegurinn
frá Hofsósi til Siglufjarðar vægast
sagt lélegur og þarf aíla leið austur
á Melrakkasléttu til að finna sam-
jöfnuð. Siglfirðingar segjast hafa tal-
að fyrir daufum eyrum stjómmála-
manna varðandi þetta mál, þeir hafi
jú hlustað á óskir þeirra og kvartan-
ir, en efndir loforða um úrbætur
hafi engar orðið.
Þjóðvegur 76
Sigurður Hlöðversson, G-lista,
sagði Ragnar Amalds einan þing-
manna kjördæmisins hafa mótmælt
vegaáætlun en í henni væri ekki gert
ráð fyrir framkvæmd viö veginn.
Guðrún Guðmundsdóttir af J-hsta
sagði að veturinn sem væri að líða
hefði sýnt svo ekki yrði um villst að
úrbóta væri þörf. Ólöf Kristjánsdótt-
ir af A-hsta sagði sljóleika þing-
manna kjördæmisins svo mikinn að
þeir hefðu ekki móttekið síendur-
tekningar Siglfirðinga um úrbætur.
Jesús minn almáttugur
Auðvitað voru fleiri mál til um-
ræðu, atvinnuleysi, fjármál heimil-
anna, húsbréfakerfið og sjávarút-
vegsmál, svo eitthvað sé nefnt.
Stefán Guömundsson, B-hsta, sagði
það alveg skýrt að kæmist Fram-
sóknarflokkurínn til áhrifa að lokn-
um kosningum yrði það eitt af fyrstu
málunum að taka atvinnumálin til
sérstakrar meðferðar. Sigfús Jóns-
son, D-lista, sagði húsbréfakerfi Jó-
hönnu Sigurðardóttur vera að sliga
heimilin. „Fólk sem stendur fyrir
svona löguðu eins og húsbréfakerf-
inu, ég ætla bara að vera slepjulegur
og segi Jesús minn almáttugur,“
sagði Sigfús.
Hjálmar Jónsson, oddviti D-hstans,
sagði að Þjóöhagsstofnun hefði nú
sent frá sér nýjar og miklu betri frétt-
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks f.v.: Vilhjálmur Egilsson, Hjálmar Jónsson og
Sigfús Jónsson.
Fulltrúar Alþýðubandalags og óháðra f.v.: Sigurður Hlöðversson, Anna
Kristín Gunnarsdóttir og Ragnar Arnalds.
Fulltrúar Framsóknarflokks f.v.: Elln Lfndal, Páll Pétursson og Stefán Guö-
mundsson.
Fulltrúar Alþýðuflokks f.v.: Ólöf Kristjánsdóttir, Steindór Haraldsson og Jón
Hjartarson.
Fulltrúar Þjóðvaka f.v.: Guðrún Guðmundsdóttir, Jón Daníelsson og Sveinn
Allan Morthens. DV-myndir gk
Fulltrúar Kvennalistans f.v.: Anna Hlfn Bjarnadóttir og Anna Dóra Antons-
dóttir.