Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1995, Side 27
MÁNUDAGUR 3. APRÍL 1995
39 •
típútyíú
aásM
Fréttir
Lífeyrissjóður verslunarmanna:
Sátt um menn í stjórnina
- stjómarmönnum flölgað um tvo
Ákveðiö hefur verið að fjölga
stjórnarmönnum í Lífeyrissjóði
verslunarmanna um tvo til að leysa
ágreining miili vinnuveitenda um til-
nefningu manna í stjórnina. Breyt-
ingin tekur gildi 1. júní næstkomandi
og munu þá 8 menn skipa stjórnina
í stað sex, þar af 4 frá samtökum
vinnuveitenda og 4 frá Verslunar-
mannafélagi Reykjavíkur.
Alls bárust 4 tilnefningar í stjórn-
ina frá Félagi íslenskra stórkaup-
manna, Verslunarráði íslands,
Vinnuveitendasambandinu og Sam-
tökum iðnaðarins. Ef ekki hefði kom-
ið til fjölgun hefði þurft að kjósa um
þessi sæti í stjórnina. í kjölfarið hefði
mátt vænta málaferla þar sem óvissa
ríkti um atkvæðavægi einstakra
samtaka. Af því verður þó ekki þar
Skoðanakönnun Feykis:
Framsókn
sterk á Norður-
landi vestra
Þórhallur Ásmundsson, DV, Sauðárkróki:
Héraðsfréttablaðið Feykir á Sauð-
árkróki efndi til skoðanakönnunar
um fylgi flokkanna í Norðurlands-
kjördæmi vestra. Úrtakiö var 551 eða
um 9% af kjörskrá og könnunin var
gerð undir lok síðustu viku. Svörun
var 63,16% sem þykir nokkuð gott.
Framsóknarflokkurinn er sterkur
í kjördæminu. Fengi 41,7% atkvæða
samkvæmt könnuninni ef kosið væri
nú en fékk 32,30% í kosningunum
fyrir 4 árum. Sjálfstæðisflokkurinn
var með 26,32% í könnuninni, aðeins
minna en i kosningunum. Alþýðu-
bandalagið fékk 14,80% en var með
19,20 í kosningunum. Alþýðuflokkur
fékk 5,26% en var með 11,60 í kosn-
ingum og Kvennahstinn 1,97% en var
með 5,20% í síðustu kosningum. Þá
fékk Þjóðvaki 9,87% í könnun Feykis.
Samkvæmt könnuninni fengi
Framsóknarflokkurinn 2 menn
kjörna, Sjálfstæðisflokkurinn einn
og Alþýðubandalagið einn. Sjálf-
stæðisflokkinn vantar minnst upp á
að fá uppbótarmann.
Samkvæmt könnuninni var fylgi
Alþýðuflokks mest á Siglufirði,
Framsóknarflokks í Skagafirði,
Sjálfstæðisflokks í V-Húnavatns-
sýslu, Alþýðubandalags á Siglufirði,
Kvennalista á Sauðárkróki og Þjóð-
vaka á Siglufirði.
Nýtt málgagn
samtaka bænda
Öm Þóraririsson, DV, Fljótum:
Bændablaðið, sem síðasta ár var
ritstýrt af Jóni Daníelssyni á Tann-
stöðum í Hrútafirði, er nú orðið mál-
gagn Bændasamtaka íslands. Sam-
tökin keyptu blaðið á dögunum af
Bændasonum hf. og fluttust þá bæki-
stöðvar blaðsins í Bændahöllina í
Reykjavík. Ritstjóri blaðsins er
Áskell Þórisson.
Áskell sagði í samtali við frétta-
mann að blaðið mundi væntanlega
koma út á 2ja vikna fresti hér eftir
og verði sent endurgjaldslaust á öll
sveitaheimili fyrst um sinn.
Tilgangurinn með útgáfunni væri
að koma ýmsum upplýsingum til
bænda á sem fljótvirkastan hátt, auk
þess að miðla fréttum og fjalla um
hagsmunamál bændastéttarinnar.
Það er í dagsblaðsbroti eins og áður.
Fyrsta tölublað er nýkomið út og
samfara útgáfu nýs blaðs verður
dregið úr útgáfutíðni tímaritsins
Freys.
sem samkomulag hefur náðst.
Af hálfu vinnuveitenda eiga nú
sæti í stjórninni þeir Birgir Rafn
Jónsson, tilnefndur af Félagi ís-
lenskra stórkaupmanna, Guðjón
Oddsson, tilnefndur af Kaupmanna-
samtökunum og Víglundur Þor-
steinsson, tilnefndur af Vinnuveit-
endasambandinu og Verslunarráð-
inu. Samkvæmt heimildum DV er
gert ráð fyrir að fjórði maðurinn
verði Kolbeinn Kristinsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Myllunni-Brauði
hf. -kaa
M
Konur á Reykianesi vita
tóbetri menntun
c
tryagir börnunum
% bjarta framtíð
W
| A+A
.ú: 3 w*
Guðlaug Konráðsdóttir bankastar&naður, HafnarfirðU © I
Sigurveig Sæmundsdótf jr aðstoðar’skóiastjóri, ÞÍj Garðabæ. ,J'< m æ. Sl i
I 1 u. * « SigrídurÁL alþingisnly Mosfellsbeé
'úýi 3',.• < f'-j r-'’* N- ■. ,-;ír<tTV fli \ f * * - f§$ú' v 11 H a * * " U i • 'fgz
ÖWffiíiíi:::;.'J
átj} 4 f
Jafnrétti eru sjálfsögð mannréttindi. Hagur fjölskyldunnar
er best tryggður með góðri menntun og fjölbreyttu
atvinnulífi. Með þeim hætti er hægt að snúast gegn
atvinnuleysi og stuðla að auknum sveigjanleika
á vinnumarkaðnum.
Kjósum Sjálfstæðisflokkinn og tryggjum áfram sókn
til bættra lífskjara.
BETRA
ÍSLAND