Dagblaðið Vísir - DV - 03.04.1995, Síða 29
MÁNUDAGUR 3. APRÍL 1995
41
Fréttir
Búlandstindur, Djúpavogi:
Hagnaður tífaldaðist milli ára
Hafdis Bogadóttir, DV, Djúpavogi:
Heildarvelta útgerðarfélagsins
Búlandstinds hf. hér á Djúpavogi
varð 682 milljónir króna árið 1994
ogjókst um 19% frá 1993. Hagnaður
fyrirtækisins 1994 nam rúmlega 44
milljónum króna og tífaldaðist
milli ára.
Loðnubræðsla og frysting hófust
á ný eftir langt hlé og skilaði fyrir-
tækinu verulegum tekjuauka. Eig-
ið fé í árslok 1994 var 133,3 milljón-
ir króna fyrir utan aflaheimildir
sem þýðir um 20,43% eiginfjárhlut-
fall.
Togari fyrirtækisins, Sunnutind-
ur SU 59, aflaði rúmlega 2000 tonn
á síðasta ári sem er minnkun um
369 tonn. Togarinn var ekki að
veiðum tvo síðustu mánuði ársins
- var þá breytt í hálffrystiskip.
Á árinu störfuðu að meðaltali 90
starfsmenn hjá félaginu og er það
sami fjöldi og árið áður. Launa-
greiðslur voru 185 milljónir króna.
Jóhann Þór Halldórsson er fram-
kvæmdastjóri Búlandstinds.
Akureyringar
halda veglega
páskahátíð
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii
Aðilar í ferðaþjónustu og tengdri
starfsemi á Akureyri hafa sameinast
um að halda páskahátíð í bænum og
bjóða bæjarbúum og gestum upp á
ýmsa afþreyingu aUa hátíöardagana.
Þar spilar ekki síst inn í umtals-
verð rýmkun á opnunartíma ýmissa
staða, s.s. veitingastaða sem verða
opnir alla dagana fram á kvöld.
Dansleikir verða einnig eftir mið-
nætti bæði á fóstudeginum langa og
páskadag auk annarra daga og sund-
laugin, líkamsræktarstöðvar og aðr-
ar stofnanir lengja mjög opnunar-
tíma sinn.
Skíðasvæðið í Hlíðarfjalli veröur
opiö alla dagana sem og skíðagöngu-
svæðið í Kjarnaskógi og skautasvell-
ið, Leikfélag Akureyrar sýnir Djöfla-
eyjuna daglega og verður m.a. með
miðnætursýningu á fóstudaginn
langa, í Listagilinu verður mikið um
að vera og á listasviðinu má einnig
nefna stórtónleika Kristjáns Jó-
hannssonar og Sigrúnar Hjálmtýs-
dóttur.
Þá verður útivistardagskrá á Súlu-
mýrum á föstudaginn langa sem að
standa Hjálparsveit skáta, bifreiða-
klúbburinn 4x4 og vélsleðamenn,
efnt verður til grillveislu við rætur
Súlu, skipulagðar gönguferðir verða
í bænum og efnt til flugeldasýningar,
svo að eitthvað sé nefnt.
Akureyringar eiga von á talsverð-
um fjölda fólks í bæinn eins og venju-
lega um páska og ganga nú mjög
langt í að skapa ýmsa afþreyingu
fyrir gesti og gangandi en nokkuð
hefur þótt skorta á það að ferðamenn
gætu haft nóg við að vera í bænum
um páska undanfarin ár.
Áhöfnin á Hugin VE tekur nótina upp á bryggju í Bolungarvík en hún var
svo óheppin að rifa hana. Loðnuveiði er nú frekar treg enda hefðbundinni
vertíð lokið. Mikið vantar á að náist að veiða upp í loðnukvótann.
DV-mynd BG
Sjöfn Har listmálari í hópi gesta við opnun sýningarinnar í Kirkjuhvoli. DV-mynd SSV
Akranes:
Olíumyndir í Kirkjuhvoli
Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi:
Sjöfn Haraldsdóttir listmálari, eða
Sjöfn Har eins og hún kallar sig, hef-
ur opnað sýningu á olíumyndum og
myndum sem gerðar eru með bleki
á handgerðan pappír í listasetrinu
Kirkjuhvoli og stendur hún til 9.
apríl.
Sjöfn fæddist í Stykkishólmi 1953.
Hún stundaði nám við Myndlista- og
handíðaskólann 1969-1973 og 1979-
1980 og síðar við listaháskólann í
Kaupmannahöfn. Sýningin í Kirkju-
hvoli er 6. einkasýning Sjafnar Har.
Ný hljómflutningsstæða úr POWER PLUS linunni frá Pioneer
N-50 samstæáan býáur Karaoke kerfi
2 x 50 W RMS umhverfismagnara (surround) —
3ja ára ábyrgá — Fullkominn geislaspilara
Útvarp Tvöfalt segulbandstæki Fjarstýringu
flD PIONEER
HVERFISGÖTU 103 : SÍMI 625999