Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995
Fréttir
Skoðanakannanir
og kosningaúrslit
samanburöur á síðustu könnunum fyrir kosningarnar 8. apríl -
% 3,., 37,1 K°
r m - birt
23j323’3 É|| ■
fe® Bi14-8 m
IÉHHÉmí^V^
Könnun DV
- birt 7. apríl '95 -
Niöurstaöa könnunar
Úrslit kosninganna
),2 0'4 0,9 0,6 0,1 0,2
A-listi 8-listi D-listi G-listi J-listi V-listi S-listi M-listi N-listi K-listi
36,8 37,1
Könnun Gallup
- birt 7. apríl '95-
■ Niöurstaöa könnunar
14,3
12 3 ■ Urslit kosninganna
8«7’2s’34 9
Hi 0.6 O’70,40,4 070,6 0,1 0,2
A-listi BJisti D-listi G-listi J-listi V-listi S-listi M-listi N-listi K-listi
% 37^37,i Könr
23,3 I
..21ím M 14,3
10.6 ^2’8 H’3
mmmim
37,637,1 Könnun Félagsvísindast.
birt 5. apríl '95 -
■ Niöurstaöa könnunar
■ Úrslit kosninganna
5,1,
'4’6,
0,6 0,7 o,2 0,4 o 2 O’6 0,5 0,2
A-listi B-listi D-listi G-listi J-listi V-listi S-listi M-listi N-listi K-listi
%
39,6
37,1
2 5,5 4,9
Könnun Skáíss
- birt 6. apríl '95 -
■ Niöurstaöa könnunar
Úrslit kosninganna
H.411,4
! m BjXjí 0.40,7 0’5q.4 170,6 0,4q,2
A-listi B-listi D-listi G-listi J-listi V-listi S-listi M-listi N-listi K-listi
Könnun Stöövar 2
- birt 6. apríl '95 -
■ Niöurstaöa könnunar
15,314,3 I Úrslit kosninganna
Hj7'2 271^
A-listi B-listi D-listi G-listi J-listi V-listi AOrir
%
Könnun Hagvangs
- birt 25. mars '95 -
18 8 3,3 !f!H 15,4 B Niöurstaöa könnunar
114 ÉeHH^in, H Úrslit kosninganna
7,4 mfe HI wm Hh »7,2
! jjgg 2,6 0,6 0,7 0,2 0,4 0,6 0,6 0,2
A-listi B-listi D-iisti G-listi J-listi V-listi S-listi M-listi N-listi ’K-listi
DV
Miklar sakargiftir á hendur pilti í réttarhaldi:
18 ára framdi
tvö vopnuð rán
einnig gefhir að sök stórfelldir þjófiiaðir og tékkafals
Átján ára piltur viöurkenndi í rétt-
arhaddi í Héraðsdómi Reykjavíkur í
fyrradag aö hafa framið tvö vopnuð
rán á höfuðborgarsvæðinu í febrúar
síðastliðnum. Pilturinn hefur verið í
gæsluvarðhaldi frá því eftir síðara
ránið sem var framið 19. febrúar.
Þegar Sverrir Einarsson héraðs-
dómari spurði piltinn um afstöðu
hans til sakargifta í ákæru við þing-
festingu málsins sagði hann að „þetta
væri rétt“. Enginn ágreiningur verð-
ur því væntanlega um sakarefni þeg-
ar vitnaleiðslur fara fram eftir páska
en piltinum eru gefin að sök ýmis
önnur afbrot eins og talsvert stór-
felldur þjófnaður og skjalafals.
Samtals fjórir sakbomingar eru í
þessum afbrotamálum og tengjast
þeir hinum unga höfuðpaur með
mismunandi afgerandi hætti. Einn
sakborningur er í afplánun og kom
í dómsalnum
Óttar Sveinsson
því í fylgd fangaflutningamanna í
gær eins og höfuðpaurinn en hinir
tveir eru frjálsir ferða sinna.
Þann 15. febrúar ruddist hinn 18
ára piltur hettuklæddur vopnaður
hnifi ásamt jafnaldra sínum, þeim
sem er í afplánun, inn í Effeltuminn
aö Leimbakka 36. Þar vom fyrir af-
greiöslustúlka og vinur hennar. Pilt-
unum er gefiö að sök að hafa með
hótunum um ofbeldi spennt upp pen-
ingakassa og rænt 45 þúsund krón-
um, skemmt símtæki og glerplötu og
kassann.
Lögreglan sleppti piltinum en fjór-
um dögum síðar framdi hann annað
rán og var þá einsamall. Hann fékk
lánaöan eldhúshníf hjá félaga sínum,
sem með því er ákærður fyrir hlut-
deild, og er síðan talinn hafa farið í
Áskjör að Ásgarði 22 og rænt þar
afgreiðslustúlku með ofbeldi og hót-
unum um ofbeldi 16 þúsund krónum
í peningum.
Eftir ránið náðist pilturinn og var
þá úrskurðaður í gæsluvaröhald.
Reiknað er með að afplánun hans
vegna ránanna komi í beinu fram-
haldi af dómi í málinu sem verður
væntanlega upp kveðinn í maí.
Skoðanakannanir og kosningaúrslit:
Kannanir almennt
nálægt úrslitum
Miklar umræður hafa orðið í
fjölmiðlum að undanfórnu um þær
skoðanakannanir sem gerðar voru
fyrir alþingiskosningarnar. Við sam-
anburð hafa sumir fjölmiðlar fallið í
þá gryfju að mgla saman skoðana-
könnunum og kosningaspám sem
aöeins aö litlu leyti byggjast á könn-
unum. Það er hins vegar fróðlegt aö
sjá hversu nálægt einstakar kannan-
ir fóm sjálfum kosningaúrshtunum.
Samanburður á skoðanakönnun-
um fyrir kosningamar leiðir í ljós
að könnun DV, sem birtist daginn
fyrir alþingiskosningarnar, komst
langnæst sjálfum úrshtunum. Með-
alfrávikið var rétt innan við 0,3 pró-
sentustig sem er lægra hlutfaU en
áður hefúr sést í skoðanakönnunum
á íslandi. TU samanburðar var með-
alfrávikið rúmlega 1 prósentustig hjá
Félagsvísindastofnun, tæplega 1,3
prósentustig hjá Skáís, tæplega 1,4
prósentustig hjá Stöð tvö, tæplega 2,3
prósentustig hjá Hagvangi og rétt
tæplega 0,5 prósentustig hjá GaUup.
Fyrir kosningarnar birti DV einnig
kosningaspá sem var byggð að stór-
um hluta á meöaltalsútreikngum á
hegðan kjósenda í kosningum und-
anfama áratugi. Spáin reyndist mið-
ur góð enda vék hún að verulegu
leyti frá skoðanakönnun DV. Eftir
stendur að skoðanakönnun DV
reyndist besta mæUngin á skoðunum
kjósendafyrirkosningar. -kaa
I dag mælir Dagfari________________________
Hver og hver og vill og verður?
Nú er þinginu lokiö og kosninga-
baráttunni og kosningunum sjáff-
um og þá fyrst hefst fjörið. Fólk
fékk að vísu aö kjósa sinn flokk en
í raun og vem er verið að kjósa um
ríkisstjóm og ráðherrastóla og fóUí
fær engu um þaö ráðið. Kosningar
eru í besta falff til þess eins og
blekkja fólk til að það haldi að þaö
ráði því hveijir fara í ríkisstjóm.
Það er auðvitað hinn mesti mis-
skUningur að kosningamar hafi
eitthvaö með það að gera hver sest
í stjóm, eins og gleggst kemur fram
í því að þeir sem töpuðu hvað
stærst í kosningunum em nú taldir
líklegastir til aö sefjast í ríkissfjóm.
Alþýðuflokkurinn tapaði nærri
því þriðja hveiju atkvæði og þrem-
ur þingsætum og KvennaUstinn
þurrkaðist næstrnn því út af þingi.
Þetta em þeir flokkar sem helst
koma tU greina með Sjáffstæðis-
flokknum í ríkisstjóm. Ef þetta
gengur eftir verða þeir sigurvegar-
ar kosninganna því auðvitað skipt-
ir það ekki máU hvað flokkar fá í
kosningum. Það sem skiptir máli
er hvort þeir komast í rikisstjórn.
VesUngs Jóhanna sem hélt aö
sinn tími væri kominn og fékk þón-
okkuð margt fólk tíl að trúa því og
náði þremur öðrum þingmönnum
með sér inn á þing. Hvað gerir Jó-
hanna nú? Hún situr úti í homi og
enginn nennir að tala við hana og
engum dettur í hug að bjóða henni
í ríkisstjórn af því að hún var ein
um það aö halda að hennar tími
væri kominn.
Tökum Framsóknarflokkinn sem
menn hafa verið að hamast við að
útnefna sem sigurvegara í kosning-
unum. Framsóknarmenn halda
þaö jafnvel sjálfir. En þegar sig-
urvíman rann af þeim blasti það
við að Framsóknarflokkurinn hef-
ur Utla sem enga möguleika til að
setjast í ríkissljóm, hvaö þá að
mynda hana sjálfur. Framsóknar-
flokkurinn getur í besta faUi beðið
og vonaö að Sjáffstæðisflokknum
þóknist aö ræða við hann um sam-
starf ef Davíð hugnast ekki að
starfa með krötum og konum.
Davíð er í sömu spomm og
krakkamir sem segja hver og hver
og viU og verður? Hann getur bent
á hvaða flokk sem er og boðið hon-
um að vera með sér í ríkisstjóm
ef sá hinn sami flokkur situr og
stendur eins og Davíð segir. Þeir
bæði vilja og verða.
Hann getur meira aö segja talað
við Ólaf Ragnar og boöiö honum í
rUcisstjórn einum og sér, enda bíð-
ur Ólafur garmurinn í ofvæni og
er löngu búinn að loka og læsa niðri
stjómarsáttmálann sem hann
samdi einn og sér handa sjáffum
sér í viðræðum við sjáffan sig
heima í eldhúsi. Ólafur Ragnar reið
ekki feitum hesti frá þessum kosn-
ingum en jafnvel Ólafur Ragnar
getur orðið sigurvegari kosning-
anna með því að komast í ríkis-
sfjóm meö Davíö ef Davíö þóknast!
Davíð ætlar að taka sér tíma, góð-
an tíma. Hann segir að ekkert
markvert muni gerast yfir páskana
og vonbiðlarnir geta þess vegna
slappaö af yfir hátíðisdagana og svo
tekur biðin aftur við og þá er um
að gera að hafa sjálfvirka símann
í lagi ef kaUið skyldi koma.
Þannig verður biö á því að kjós-
endur fái að vita hver sigraði í þess-
um kosningum. Það fer alveg eftir
því í hvaða skapi Davíð er og það
fer nánast alveg eftir því hvað þeir
em góðir við Davíð í samningum.
Ekki hvaö þeir fengu mörg atkvæði
og ekki hvað fólkið vUl heldur hvað
Davíð vUl. í því verður sigurinn
fólginn.
Hver var að tala um fráfararatr-
iöi? Evrópa, gleymdu því. Kvóta-
mál, breytir engu. Gatt-samningar,
ráöuneyti, stjómarsáttmáli! Býttar
engu, aUs engu, því kosningarnar
vora ekki tU þess aö blekkja hina
flokkana heldur tíl að blekkja kjós-
endur og allt í þykjustunni.
Hvers vegna ættu líka kjósendur
að fá að ráða þessu þegar það er
miklu betra að láta Davíð ráða
þessu. Hann réð í borginni og hann
réð í síðustu ríkisstjóm og Davíð
ræður Sjáffstæðisflokknum og
Davíð á auðvitað að ráða því hvern
hann tekur með sér í ríkisstjóm.
Hann mun ráða því hveijir verða
ráðherrar og hvaö ríkisstjórnin
kemur til með aö gera og það er
ekkert sem stöðvar hann, hvorki
kosningar, kjósendur né aðrir
flokkar sem ýmist hafa unnið eða
tapað í kosningum sem ekkert
mark er takandi á.
Dagfari