Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995
21
dv___________________________________________FréttLr
Ekki vísbending um óvinsældir
- segir Ólafur G. Einarsson um útstrikanir í Reykjaneskjördæmi
Samtals 3.162 útstrikanir voru
gerðar á kjörseðlum í Reykjaneskjör-
dæmi í alþingiskosningunum á laug-
ardag. Rúmur helmingur útstrikana
var hjá Sjálfstæðisflokki, eða 1.684,
og var nafn Ólafs G. Einarsson, efsta
manns á D-listanum í Reykjaneskjör-
dæmi, langoftast strikað út eða rösk-
lega 1.000 sinnum.
„Þetta veldur mér ekki alvarlegum
áhyggjum. Ég held ekki að þetta sé
vísbending um óvinsældir þó að ég
kunni ekki alveg að lesa í það hvað
veldur. Einhvem veginn flnnst mér
þetta ekki vera algjör tilviljun en ég
á eftir að raða þessum brotum sam-
an,“ segir Ólafur G. Einarsson.
Aðrir flokkar fengu mun minni
útstrikanir en Sjálfstæðisflokkurinn.
Alþýöuflokkurinn fékk helmingi
færri útstrikanir eða 710 og var nafn
Guðmundar Árna Stefánssonar oft-
ast strikað út. Framsóknarflokkur
fékk 110 útstrikanir og Alþýðu-
bandalag 158. Þá fékk Þjóðvaki rúm-
lega 100 útstrikanir.
„Eg veit ekki hvernig skiptingin
var á þessu innbyrðis meðal fram-
bjóðenda og það skiptir máli en mér
skilst að ég hafi oftast verið strikaður
út og ég kann ekki skýringar á því.
Það kann að vera að þetta séu afleið-
ingar af harðri prófkjörsbaráttu sem
fram fór fyrir tveimur mánuðum.
Mér finnst þaö sennilegasta skýring-
in,“ segir Guðmundur Árni Stefáns-
son alþingismaöur.
Alþýðuflokkurinn á Reykjanesi
hlaut 6.602 atkvæði í alþingiskosn-
ingunum um helgina. Það er rösk-
lega 2.000 færri en tóku þátt í próf-
kjöri flokksins eftir áramót. Samtals
kaus 8.791 í prófkjörinu.
„Ég vakti á því athygli á sínum
tíma að þátttaka í prófkjörinu væri
meiri í sumum sveitarfélögum en
fylgi flokksins hafði mælst þar áður.
Eg haföi áhyggjur af því að það
myndi ekki skila sér og það virðist
ekki hafa gert það,“ segir Guðmund-
ur Árni.
-GHS
Afgreiðslutími
Shell-stöðva
um páskana
Skírdagur/
Annar í páskum
Öskjuhlíð 9.00-16.00
Suðurfell 9.00-16.00
Laugavegur 180 9.00 - 16.00
Hraunbær 7.30-16.00
Vesturlandsvegur 7.30 - 16.00
Aðrar Shell-stöðvar
á höfuðborgarsvæðinu
10.00 - 15.00
Föstudagurinn langi
Lokað
Laugardagur
Opið skv. venju
Páskadagur
Lokað
Nýjung
hjá Shell,
betri þjónusta.
Sjálfsalar sem taka
bæöi kort og seðla
á Shell-stöðvunum
Öskjuhlíð,
Dalvegi,
Garðabæ
og Vesturlandsvegi.
Einnig eru sjálfsalar
á öðrum stöðvum.
Skeljungurhf.
Skelegg samkeppni
Blákaldar
staðreyndir
og samanburður á kjörum
staðfesta kosti TM trygginga
Lækkun iðgjalda á fasteigna- og fjölskyldutryggingum.
Viðskiptavinir TM fá endurgreiðslu frá og með 1. apríl 1995.
Hækkun á bónus. Hæsti bónus kaskótrygginga hækkar úr 40% í
50% frá og með 1. maí 1995. Ef kaskótjón verður útvegar TM
bílaleigubíl í allt að 5 daga.
Tveir gjalddagar og engin sjálfsábyrgð. Greiðslur á ábyrgðar-
tryggingum ökutækja skiptast niður á tvo gjalddaga á ári og
sjálfsábyrgð er engin.
Prósentur segja ekki allt, staðreyndir og
samanburður leiða í Ijós að TM tryggingar eru
hagkvæmar tryggingar.
Kynntu þér góð kjör á tryggingum hjá TM.
Lækkun iðgjalda á fasteigna- og
fjölskyldutryggingum
Hækkun á bónus í
kaskótryggingum
Tveir gjalddagar og engin
sjálfsábyrgð í
ábyrgðartryggingum ökutækja
TRYGGINGAMIÐSTÖÐIN HF.
- þegar mest á reynir!
Aðalstræti 6-8,101 Reykjavík, sími 26466.