Dagblaðið Vísir - DV - 12.04.1995, Síða 49
MIÐVIKUDAGUR 12. APRÍL 1995
73
»v_________________________ Afmæli
Sigríður Inga Sigurðardóttir
Skýrsla um samfélag, bók
Tómasar Gunnarssonar, er um
leyndarbréf Hæstaréttar, melnt
lögbrot æðstu embættismanna
og þögn kerfisins. Verð kr. 1.980.
Sigríður Inga Siguröardóttir hús-
móðir, Höfðavegi 16, Vestmannaeyj-
um, verður sjötug á föstudaginn.
Starfsferill
Sigríður er fædd í Vestmannaeyj-
um og ólst þar upp í Skuld. Hún
starfaði við fiskvinnslu frá fjórtán
ára aldri og síðar við netagerð hjá
BirniJakobssyni.
Sigriður hefur tekið þátt í félags-
störfum í Vestmannaeyjum og gegnt
ýmsum trúnaðarstörfum.
Fjölskylda
Sigríður giftist 14.10.1944 Ingólfi
Theódórssyni, f. 10.11.1912, d. 14.3.
1988, netagerðarmeistara í Vest-
mannaeyjum. Foreldrar hans:
Theódór Pálsson, skipstjóri á Siglu-
firði, og Guðrún Olafsdóttir hús-
móðir.
Böm Sigríðar og Ingólfs: Sigurður
Ingi, f. 28.1.1945, útgerðarmaður í
Vestmannaeyjum, kvæntur Jónu
Andrésdóttur skrifstofumanni og
eru böm þeirra þijú, Andrea Inga,
Tryggvi Rúnar og Guðni Steinar;
Elínbjörg, f. 6.12.1946, d. 19.12.1946;
Hugrún Hlín, f. 25.8.1948, banka-
starfsmaður í Kópavogi, var gift
Jónasi Traustasyni íþróttakennara
en þau skildu og eru dætur þeirra
Hera Björg og Ingunn Hhn, auk þess
sem dóttir Hugrúnar er Sigríður
Drífa Alfreðsdóttir; Kristín Hrönn,
f. 20.10.1960, snyrtifræðingur í
Kaupmannahöfn, gift Pierre Rene
Schwarts þjóðhagfræðingi og eru
börn þeirra Michelle, Danielle og
ívar Om; Elfa Dröfn, f. 28.9.1962,
hjúkrunarfræðingur, gift Páh
Mágnússyni og er dóttir þeirra Agn-
es; Harpa Fold, f. 28.9.1962, fisk-
matsmaður í Reykjavík, en sonur
hennar er Ingóhur Pétursson.
Dætur Ingóhs frá því fyrir hjóna-
band eru Jóhanna Margrét; Kornel-
ía Sóley; Amaha.
Systkini Sigríðar: Jónas, nú lát-
inn, skipstjóri í Vestmannaeyjum;
Lovísa Þórunn, nú látin, húsmóðir
í Vestmannaeyjum; Oddur, skip-
stjóri í Vestmannaeyjum; Olafur, nú
látinn, skipstjóri og útgerðarmaður
í Vestmannaeyjum; Elínborg, nú
látin, húsmóðir á Selfossi; Sigur-
björg, nú látin, húsmóðir í Reykja-
vík; Jónheiður Ámý, nú látin, hús-
móðir í Reykjavík; Stefanía, hús-
móðir í Reykjavík; Jóhanna Júha,
húsmóðir í Reykjavík; Jónas Ragn-
ar, prentari og guhsmiður í Reykja-
vík.
Foreldrar Sigríðar voru Sigurður
Pétur Oddsson frá Krossum í Land-
eyjum, f. 28.3.1880, d. 1945, útgerðar-
maður í Skuld í Vestmannaeyjum,
og Ingunn Jónasdóttir frá Hehuvaði
Gunnlaugur Magnússon
Gunnlaugur Magnússon, örygg-
isvörður í Seðlabanka fslands,
Fornuströnd 1, Seltjamamesi,
verður fimmtugur á laugardaginn.
Starfsferill
Gunnlaugur er fæddur á Reyk-
hólum en ólst upp í foreldrahúsum
fram yfir fermingu á Bæ í Króks-
firði. Hann stundaði nám í húsa-
smíði 1964-69 og lauk námi frá
Meistaraskóla í húsasmíði 1977.
Gunnlaugur vann öh almenn
sveitastörf og var nokkur sumur í
vegavinnu, fyrst sem verkamaður
og síðar bílstjóri. Hann var við
smíðar og akstur 1970-80 en hjá
Skeljungi hf. 1980-87. Síðustu árin
hefur Gunnlaugur starfað sem ör-
yggisvörður hjá Seðlabanka ís-
lands.
Fjölskylda
Gunnlaugur kvæntist 30.12.1971
Guðríði Gígju, f. 8.3.1944, banka-
starfsmanni, en þau trúlofuðu sig
1.12.1967. Foreldrar hennar: Geir
Gígja, látinn, náttúrufræðingur, og
SvanhvítL. Guðmundsdóttir kenn-
ari.
Synir Gunnlaugs og Guðríðar:
Magnús Geir Gunnlaugsson, f. 7.3.
1968, sjálfstæður atvinnurekandi,
sambýliskona hans er Alisandra
Margrét Scheving Thorsteinsson;
Daníel Eyþór Gunnlaugsson, f.
12.12.1975, iðnnemi í rafeindavirkj-
un.
Systkini Gunnlaugs: Sigríður, f.
22.5.1924, húsmóðir í Reykjavík;
Lúðvík, f. 19.8.1925, verkamaður í
Reykjavík; Arndís, f. 20.6.1927,
skrifstofumaður og húsmóðir í
Garðabæ; Erlingur, f. 7.10.1931,
sölumaður í Garðabæ; Ingimund-
ur, f. 11.9.1933, d. 21.8.1992, húsa-
smíðameistari í Reykjavík; Hákon,
f. 11.9.1933, húsasmíðameistari í
Reykjavík; Ólafur, f. 20.3.1940,
verkamaður í Reykjavík. Fóstur-
systir Gunnlaugs: Hulda Pálsdótt-
ir, f. 17.9.1922, húsmóðir, Króks-
fjarðarnesi.
Foreldrar Gunnlaugs: Magnús
Ingimundarson, f. 6.6.1901, d. 13.8.
1982, bóndi og vegaverkstjóri, og
Sigríður Guðjónsdóttir, f. 19.4.1903,
d. 18.7.1985, húsmóðir og ljósmóð-
ir, þau voru búsett að Bæ í Króks-
firði.
Gunnlaugur verður erlendis á
afmælisdaginn.
80 ára
Una Thorberg Elíasdóttir,
Tjarnarbraut 19, Vesturbyggð.
75 ára
Gunnar Guðröðsson,
Lerkiiilíð2, Reykjavík.
Kristin Jónsdóttir,
Drápulilíð 5, Reykjavik.
Sveinn Kristjánsson,
Stórahjalla 19, Kópavogi.
60 ára
Erla Eyjólfsdóttir,
Engjavegi 11, Selfossi.
Guðlaug Þorleifsdóttir,
Grýtubakka 24, Reykjavík,
Leil’ur Þorleifsson,
Hörgslundi 19, Garðabæ.
Helena Hólm Sigurgeirsdóttir,
Brekkuseli 18, Reykjavík.
Hulda Hahdóra Gunn|>órsdóttir,
Garðarsvegi 2, Seyðisfirði.
50ára
Kristín Sveinbjarnardóttir,
Skálholtsstíg 2, Reykjavík.
Jónas Hallgrímsson,
Múlavegi 41, Seyðisfirði.
Stefanía Erla Gunnarsdóttir,
Dalseh 15, Roykjavik. ■: 3|§|!|||
Reinhold Paul Fischer,
Ásgarði 127, Reykjavík.
Kristján G. Sigvaldason,
Eskihlíð 12 A, Reykjavík.
Dóra Hiimarsdóttir,
Kötlufelli 1, Reykjavik.
Unnur Halldórsdóttir,
Álftamýri 4, Reykjavik.
Calcedonio Gonzales,
Birkihlíö 14, Reykjavík.
Óskar Elías Óskarsson,
Faxastíg 5, Vestmannaeyj um.
Gunnar Þór Ámason,
Hraíhhóli, Hólahreppi.
Loftur Ingólfsson,
Vestimbyggð I, Biskupstungna-
hreppi.
Sólrún Anna Sveinbergsdóttir,
Bárugötu 3, Dalvík.
Óskar Eggerts Sverrisson,
Austurholti 4, Borgarbyggð.
Anna Kristin Guðmannsdóttir,
starfsmannahúsi 2, Reykjalundi,
Mosfelisbæ.
Abna Jónsdóttir,
Klapparstíg3, Sandgerði.
Guðrún Björg Ólafsdóttir,
Logafold 173, Reykjavík.
Sigriður Diljá Guðmundsdóttir,
Nýjubúð, Eyrarsveit.
Sigurjón Maríusson,
Vesturgötu 19,Keflavík.
SigurðurStrange,
Hjarðarhaga42, Reykjavík.
iii ■ SS 13 jg hw gjgj Ei
'c.bcc-r: clss Ss ~~~ m Læknavaktin v,o ^OB EVER-B0Ð\^
9 9*1 7 * 0 0 2J Apótek \j' -simi-.
Verö aöeins 39,90 mín. gj Gengi yrT l Blái íiglinn |i
Tajaðu við okkur um
bilarettingar
glLASPRAUTUN
■iSSns'
Varmi
Auðbrekku 14, sími 64 21 41
á Rangárvöllum, f. 23.11.1883, d.
1960, húsmóðir.
Sigríður Inga tekur á móti gestum
í Oddfellowhúsinu, Strandvegi 45,
laugardaginn 15.4. frá kl. 17.00-22.00.
Gunnlaugur Magnússon.
Borgartúni 26, Reykjavík. S.91-622262
Bæjarhrauni 6, Hafnarfirdi. S.91-655510
Háberg, Skeifunni 5. Rv. S.91-814788
TELEFUNKEN
ÞYSK HAGÆÐASJONVARPSTÆKI
MEÐ SURROUND STEREO
Telefunken F-531 C STEREO NIC
er 28" sjónvarpstæki:
Black Matrix-flatur glampalaus
skjór • Surround-umhverfishljóm-
ur • PSI (Picture Signal Improve-
ment) • ICE (Intelligent Contrast
Electronic) • Pal, Secam og NTSC-
video • 59 stöðva minni •
Sjólfvirk stöðvaleit og -innsetning
• Mögu-leiki ó 16:9 móttöku •
Islenskt textavarp • Tímarofi •
40W magnari • A2-Stereo
Nicam • 4 hótalarar • Tengi fyrir
heyrnartól og sjónvarpsmyndavél
• Aðskilinn styrkstillir fyrir
heyrnartól • 2 Scart-tengi o.m.fl.
NORDMEIXIDE
Nordmende V-1242 SV er vandað þriggja
hausa myndbandstæki með hraðþraeÖingu,
2 Scart-tengjum, Long f% Show View-mögu-
leika, ATRS( GoTo, Index, Intro Scan, 8 liða-
365 daga upptökuminni og vandoðri fjarstýr-
ingu sem einnig mó nota fyrir sjónvarpstækið.
Þessi tæki eru nú baeði saman ó sérstöku tilboðsverði, aðeins 129.900,- kr. eða
Alh. Aðeins þorf a5 stinga Surround-hótölurum í samband við sjónvarpstækið!