Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1995, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1995, Síða 5
MIÐVIKUDAGUR 26. APRÍL 1995 5 Fréttir Gunnarstindi skipt upp: Togaraútgerð leggst af á Breiðdalsvík - samvinna tekin upp við Djúpavog „Það stendur til að skipta upp Gunnarstindi og Breiðdalsvíkurhlut- inn sameinist Búlandstindi á Djúpa- vogi. Kvóti Hafnareyjar fer yfir á togarann Sunnutind og hannig ætl- um viö að styrkja reksturinn," segir Árni Benediktsson, stjórnarformað- ur Búlandstinds hf. á Djúpavogi, vegna fyrirhugaðs samstarfs Djúpa- vogs og Breiðdalsvíkur. Eins og DV hefur skýrt frá hafa logað ófriöareldar milli Breiðdals- víkur og Stöðvarfjaröar þar sem Gunnarstindur hf. hefur rekið stærstu fyrirtækin. Þessi átök hafa nú leitt til þess að ákveðið hefur ver- ið að aðskilja þessa aðila og skipta upp fyrirtækinu. „Þetta mun leiða til hagræðingar á báöum stöðum. Rekstur togarans Sunnutinds verður tryggari. Þá ætti að vera hægt að koma hráefni jafn- ara til Breiðdalsvíkur. Loks gefur þetta fyrirkomulag færi á meiri sér- hæfingu á hvorum stað fyrir sig. Þannig að þegar um er að ræða t.d. loðnu og síld getur annar staðurinn séð um þá vinnslu,“ segir Árni. Það vekur óneitanlega athygli að þessir nágrannar skuli ekki geta komið sér saman um samvinnu sem er þó talin báðum fyrirtækjum nauð- synleg. Á milli Breiðdalsvíkur og Stöðvarfjarðar eru innan við 20 kíló- metrar, en á milli nýju samstarfsaðil- anna á Djúpavogi og Breiðdalsvík eru 77 kílómetrar, eða álíka langt og frá Akranesi til Reykjavíkur. „Málið var það að þetta voru orðn- ar of litlar einingar vegna kvótasam- dráttar, bæði á Stöðvarfirði og Breið- dalsvík. Það var reynt að bæta úr þessu með sameiningu en það heppn- aðist ekki. Áður voru tvær stjórnir og tveir framkvæmdastjórnir sem hvor um sig hugsaði um hag síns fyrirtækis. Síðan þegar sameiningin varð leiddu þessar erjur milli stað- anna til þess að ekkert mátti gera. Þarna varð því fyrst kyrrstaða og síðan hnignun,“ segir Árni. „Það var ekki um annað að ræða en að skilja þetta að og við þykjumst hafa búið þannig um hnútana að þetta samstarf milh Breiödalsvíkur- hlutans og Búlandstinds geti gengið, svo framarlega sem sjávarútvegur getur gengið á annað borð,“ segir Árni. Hann segir að fyrst í stað verði um samvinnu að ræða milli fyrirtækj- anna en síðar verði hugað að sam- runa þeirra. Þegar upp er staðið verður ekki skip á Breiðdalsvík en togari staðar- ins hefur verið seldur kvótalaus til Voga. Skip Búlandstinds hf. munu veiða þau rúmlega 1000 þorskígildi sem falla í hlut Breiðdælinga við skilnaðinn. Á Stöðvarfirði verður togarinn Kambaröst enn um sinn, en samkvæmt heimildum DV er fyrir- hugað að leita þar samvinnu eða samruna norður á bóginn og þá hugsanlega til Fáskrúðsfjarðar en þangað eru tæpir 30 kílómetrar. Það liggur því fyrir aö hrepparígur- inn, sem áður olli sambúðarerfið- leikum, hefur nú endað með sambúð- arslitum. -rt Forstjóri Eirar: Rétt staðið að inngöngu félaganna „Ég vil helst sleppa öllum túlkun- um. Það skiptir minnstu hvað manni finnst. Það er verst þegar þetta kem- ur niður á gömlu fólki. Við teljum að þaö hafi verið staöið rétt að inn- göngu þessara félaga og lögmaður á eftir að skila athugun á því. Ef þetta er rétt hjá borgarlögmanni veröum við að takast á við það þegar þar að kemur en ég hef ekki trú á því,“ seg- ir séra Sigurður Helgi Guðmunds- son, forstjóri hjúkrunarheimilisins Eirar. Aðalfundi sjálfseignarstofnunar- innar Eirar var frestað nýlega eftir að borgarlögmaður hafði sent bréf um að ranglega hefði verið staðið að inngöngu Sóknar, Framsóknar, Hús- sjóðs Öryrkjabandalagsins og SÍBS í samtökin á síðasta ári. Búist er við að aðalfundinum verði fram haldið í næstu viku eftir að lögmaður Eirar hefur tekið erindi borgarlögmanns til athugunar. „Það datt engum annað í hug en að þetta væri eins og það ætti að vera enda greiddu fulltrúar borgar- innar inngöngu þessara félaga at- kvæði," segir séra Sigurður Helgi. -GHS HAPPA,, drattur Vorleikur fyrir viðskiptavini Kiinglunnar 27. apríl - 5. maí 1995 Ef þú verslar fyrir 2.000 krónur eða meira á einum stað í Kringlunni, þá fylgir einn Happadráttarmiði. Þú fyllir niiðann út og setur í Happadráttarkassa sem eru við aðalútganga Kringlunnar. 100 góðir rínningar frá fyríríækjum Krínglunnar Aðalrínnmgurinn er: 3ÖÓ» þúsund króna verslunarferð í Kringhuia Stærsti vinningurinn er verslunarferð í Kringluna þar sem vinningshafinn verslar í glæsilegum verslunum og þjónustu- fyrirtækjum Kringlunnar fyrir samtals 300 þúsund krónur. BYLGJAN GOTT UTVARP Bylgjan sér uni kynningu og útdrátt daglega kl. 14. Daglega er dregið um Qóra góða vinninga og tíu aukavinninga og nöfn hinna heppnu lesin upp á Bylgjunni. Síðasta daginn fara allir miðarnir í stóra pottinn. Aðalvinningurinn, 300 þúsund króna vöruúttekt, verður dreginn út laugardaginn 6. maí kl. 14.00. Heildarverðmæti vinninga er yfír [ milljón kr. Komdu í Kringluna og kynntu þér nánar leikreglumar KRINGWN -heppilegur staður- Afgreiðslutími kringluiinnr: Mánudaga - iimmtudaga 10-13:30 föstudaga 10-19 laugardaga 10-16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.