Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1995, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 26.04.1995, Side 11
Menning Sigrún Hjálmtýsdóttir. Diddú og kariamir Karlakór Reykjavíkur efndi til tónleika í Langholts- kirkju sl. mánudag. Einsöngvari og sérlegur gestur kórsins var Sigrún Hjálmtýsdóttir. Anna Guöný Guð- mundsdóttir lék með á píanó í sumum lögunum en Friðrik S. Kristinsson stjórnaði kórnum. Aldarafmæl- is Sigurðar Þórðarsonar var m.a. minnst, með því að helja efnisskrána á fimm lögum eftir hann, auk einnar útsetningar, en hann var bæði stofnandi og fyrsti stjórnandi kórsins. Lag Sigurðar, ísland, ísland, við ljóð Huldu hljómaði fyrst og var það bæði vel og hressi- lega sungið. Þá komu lögin Sof þú, blíðust barnakind mín, og Kvöldljóð. Það sem kórinn mætti helst laga er að jafna nokkuð 1. tenórrödd, en ójöfnur hennar heyrast einna mest í lögum eins og þeim tveim síðast- nefndu, auk Ave Mariu Bruckners, sem síðar var á efnisskránni. Hið þekkta lag Sigurðar, Sjá dagar koma, var næst og nú bættist þeim góður Úðsauki sem voru Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og Sigrún Hjálm- týsdóttir, sópran. Enda var lagið og fallega flutt, þess- ar ágætu listakonur brugðust ekki. Sigrún söng einnig lagið Vormorgunn með kórnum og Anna Guðný lék með kórnum í lagi Sigurðar, Þér landnemar. Við tóku tvö lög Karls Ottós Runólfssonar, Nú sigla svörtu skipin, sem var vel sungið hjá kórnum, og Lullu lullu bía sem Sigrún söng einnig með körlunum. Sumamótt Árna Thorsteinssonar fylgdi í kjölfarið og síðan lag Sigvalda Kaldalóns, Á Sprengisandi, en þar sýndi kórinn nokkuð af þeirri sönggleði sem hann er þekktur fyrir. Fyrri hluti efnisskrárinnar endaöi síðan á skondnu lagi, Söngvaramars, eftur Julius Otto. Eftir hlé breytti efnisskráin nokkuð um svip og voru þá flutt kirkjuleg lög og kórar úr óperum. Fyrst söng kórinn, Þitt lof, ó, Drottinn, eftir Beetho- ven, en síðan Et Incarnatus est, eftir Hans Leo Hassl- er. Voru þau ágætlega sungin. Ave Maria eftir Bruckn- er og Heyr, himnasmiður eftir Þorkel Sigurbjörnsson komu síðan og var hið fallega lag Þorkels flutt af til- finningu. Fjörleiki og glaðværö einkenndi Vorljóð Antons Tórúist Áskell Másson Dvoráks og Hermannakórinn úr óperunni Fást eftir Gounod var hressilega sunginn við píanóleik Önnu Guönýjar. Sigrún og Anna Guðný fluttu síðan með kómum La Vergine Degli Angeli úr óperu Verdis, Valdi örlaganna, og Vokalisu eftir Wilbur Chenoweth, sem var ákaflega skemmtileg. Tónleikunum lauk með Fangakórnum úr óperunni Nabucco eftir Verdi, en hápunktinum hafði þó áður verið náð, þegar Sigrún söng með þeim La Vergine og á engan er hallaö, þótt sagt sé að hún hafi átt sinn þátt í því. Friðrik S. Krist- insson stjórnaði kórnum af myndugleik og er augljóst að hann hefur unnið vel að undirbúningi þessara tón- leika. Hringiðan Theódór Kristjánsson, kennari i Hveragerði, lék á harmoníku á sýningunni. DV-myndir Sigrún Lovisa, Hveragerði 11111 y? 11111 *—v *?** ***** '****.."1"....;1.1:1?";' 1 j Læknavaktin 9 9*1 7*00 _2j Apótek Verö aðeins 39,90 mín. 3] Gengi Blómarós og rósir. Fjölmenni á sýningu garöyrkjunema Hátt á fimmta þúsund manns sóttu Reykjum í Ölfusi. Þar var ýmislegt hina árlegu sýningu Garðyrkjuskóla til skemmtunar og sýning glæsilegra ríkisins á sumardaginn fyrsta að blóma og tijáa. Tilboðsverð á Tulip 3JA ARA ABVRGÐ Kp tölvum ■ Tulip Vision Line 1 486 SX2/66 VJ 4 MB minni NÝHERJI 270 MB diskur SKAFTAHL(Ð24"TI 1 Alltaf skrefi á undan

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.