Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1995, Blaðsíða 9
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ 1995 9 Utlönd Færeyjar: Togaraflotinn bundinn við bryggjutil haustsins Togarafloti Færeyinga og fleiri fiskiskip veröa bundin viö bryggju fram í september þar sem kvóti þeirra er uppurinn. Togar- amir hafa þegar farið fram úr leyfilegum ýsu- og þorskkvóta og hafa fengið fyrirmæh um að hætta þegar veiðum og sigla til hafnar. Búist er við minni um- svifum í færeysku atvinnulífi vegna veiöistoppsins og stór- auknu atvinnuleysi. Færeyska lögþingið ræöir nú breytingar á kvótareglunum sem gefið gætu meiri kvóta til handa togurunum en óvíst er um niöurstöðuna. Þetta er í fyrsta skipti sem Fær- eyingar veiða samkvæmt kvóta- kerfi. Dönsk stjórnvöld kröfðust þess aö Færeyingar tækju upp kvótakerfi sem lið í endurupp- byggingu efnahagslífsins sem orðiö hefur fyrir hverri ágjöfinni áfæturannarri. rb Kosningabaráttan í Frakklandi á lokasprettmum: Fast skotið hjá Chirac og Jospin Frönsku forsetaframbjóðendurnir Jacques Chirac og Lionel Jospin skiptust á fostum skotum á loka- spretti kosningabaráttunnar í gær. Jospin sakaði andstæðing sinn um að vera tvístígandi í afstöðunni til Evrópusambandsins en Chirac sagði Jospin vera hættulegan. Chirac, gaullisti og borgarstjóri Parísar, sem talinn er sigurstrang- legri, lagði áherslu á að stríðið væri ekki unnið og hvatti kjósendur til að koma á kjörstað. Hann varaði við efnahagslegum afturkipp og óróa ef hann tapaði í síðari umferð forseta- kosninganna á sunnudag. Sósíalistinn Jospin gagnrýndi hins vegar þá kröfu Chiracs aö efna skyldi til þjóðaratkvæðagreiðslu um Evr- Jacques Chirac. Símamynd Reuter ópusambandið og sakaði Chirac um að hafa skipt svo rækilega um skoð- un að ekki yrði hægt að taka mark á honum ef hann næði kosningu. „Hvemig getur Chirac átt alvarleg- ar viðræður við Kohl og Major ef hann svíkur ákvarðanir frönsku þjóðarinnar um Maastricht-samn- inginn," sagði Jospin í sjónvarpsvið- tali seint í gærkvöldi. Chirac reyndi í morgun að lægja öldurnar vegna kröfu sinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um breyting- ar á stofnunum ESB sem verða rædd- ar á ríkjaráðstefnunni á næsta ári. Hann sagði þá kröfu sína ekki nýja af nálinni. „Ég hef alltaf nefnt þennan mögu- leika á meðan á kosningabaráttunni stóð,“ sagði Chirac í útvarpsviötali í morgun og bætti viö að þess gerðist ef til vill alls ekki þörf. Síðustu skoðanakannanir sem birt- ust um síðustu helgi bentu til að Chirac fengi allt að 55 prósent at- kvæðaásunnudag. Reuter Kari Bretaprins þarff á hollum ráðummömmu aðhalda Karl Breta- prins þarf svo sannarlega á góðum ráðum Elísabetar móður sinnar að halda á mæðradaginn sem ber upp á 14. maí næstkomandi. Er hann þar í hópi með öðru frægu fólki Þetta er að minnsta kosti álit Bandaríkjamanna sem tóku þátt í símakönnun sem símafélagið MCI stóð að í gær. Lisa Marie Presley, dóttir Elvis- ar og eiginkona Michaels Jack- sons, er sú sem þarf mest á ráö- leggingum mömmu að halda. i öðru sæti er fyrrum gestur O.J. Simpsons og eitt aðaivitnamia í roorðmálinu fræga, Kato Kaelin, og loks er Karl ríkisarfi í þriðja sæti, með þrettán prósent at- kvæða. Reuter Islenska óperan, sími 11475 Föstudaginn 5. maí, næstsíðasta sýning. Laugardaginn 6. maí, síðasta sýning. Þessi glæsilega stúlka, sem brosir svona sætt framan i Ijósmyndavélina úr stóra skónum sínum, heitir Julie Cial- ini, 24 ára snót frá Rochester i New York-fylki. Hún var í gær útnefnd leikfang ársins af karlatimaritinu Playboy og fékk að launum rúmar sex milljónir króna, auk þess sem hún fékk splunkunýjan bil. Þá munu myndir af henni prýða júníhefti timaritsins. Símamynd Reuter Silvía drottning fegurst í Svíþjóð Silvía Svíadrottning þarf ekki lengur að spyrja spegil sinn hver feg- urst sé i landi þar. Það er nefnilega hún sjálf. Svo segir að minnsta kosti í bandaríska tímaritinu People. _ Timaritið kynnir ár hvert 50 faíleg- ustu manneskjur heimsins og er Sil- via drottning ein Svía nógu falleg til að komast á listann. í nýjasta tölu- blaðinu er mynd af öllu þessu fallega fólki sem allt er nokkrum áratugum yngra en drottningin og mismunandi fáklætt í eggjandi stellingum. Silvía er hins vegar klædd eins og hæfir drottningu, með kórónu og annað Silvía Sviadrottning. sem til heyrir. Ritstjórar og blaðamenn People telja SOvíu, sem er dökkhærð, grönn og með brún augu brasilískrar móð- ur sinnar, vera fædda drottningu. Annars eru flestir hinna fallegu manna og kvenna amerískir ungling- ar, leikarar í smáhlutverkum, fyrir- sætur og ruðningsspilarar. Silvía er ekki elst kvenna á listan- um. Sá heiður fellur í skaut Gloriu Steinem, einnar helstu frammákonu bandarískrar kvenréttindabaráttu, en hún er komin yfir sextugt. Við flytjum í Fellsmúlann (áður Ágæti/IKEA) Lokað 5. og 6. maí Opnum 8. maí á nýjum stað JHúnita & Æ verði! - tniggiHg fyrirj Síðumúla 34 (Fellsmúlamegin), s. 887332 Opið: mán.-fö. 9-18 laug. 10-14 10-40% afsláttur Vorum ab frá nýja sendingu af hinum geysivinsœla sem vib bjóbum núna á abeins krWflŒl^i i stœrbum 32-38, A, B og C skálar og 6 litir. Pantanir ósk- ast sóttar. Einnig eru hinir vinsœlu Lilyette brjóstahaldarar sem stœkka minni brjóst og gefa stœrri brjóstum hámarks lyftingu. Full búö af glæsilegum ; undirfatnabi. ÍL'g Og pU M Sendum í póstkröfu. M Laugavegi 74 « Sími 551 2211 |

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.